Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 17

Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 17 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Ozal sigurvegari kosninganna í Tyrklandi: „Saga lýðræðis okkar er ekki löng — sníðum okkur því stakk eftir vexti“ Turgut Ozal greiðir atkvæði í kosn- ingunum á sunnudag. „Saga lýðræðisins í Tyrklandi er ekki löng — því skulum við sníða okkur stakk eftir vexti,“ sagði Turgut Ozal, formaður Föðurlandsflokks- ins og sigurvegari kosninganna þar í landi á sunnudag. Sigur Ozals kom þeim ekki á óvart, sem höfðu fylgzt með framvindu kosningabaráttunnar. Frá því Ozal fékk leyfi herforingjastjórnarinnar til að stofna flokk sinn á síðasta sumri þótti sýnt, að hann hefði mikinn byr. Heildaratkvæðamagn Föðurlandsflokksins varð tæp 45 prósent og þingmenn sennilega um 215—220 af 400 sem eiga að Uka sæti á nýju tyrknesku þingi. sent og um 70 þ'ingsæti. Alþýðu- /V, demókratar undir forystu Necd- / * N. et Calp fengu mun meira en bú- -g & izt hafði verið við, eða um 30 § \ prósent og 115—117 þingmenn. * Nk -- ^ jgl Af öllu mátti marka að Evren \ óttaðist að lýðhylli Ozals myndi \ WRkm wKSI M fleyta honum langt, enda lét stjórnin banna tvö blöð í Istan- bul í sl. viku vegna þess að þau höfðu látið að því liggja, að Ozal væri sigurstranglegur í kosning- unum. Margir veltu því fyrir sér þeg- ar úrslit kosninganna lágu fyrir, hvort Evren myndi grípa til þess ráðs að beita því valdi sem hann hefur samkvæmt nýrri stjórn- arskrá, láta Þjóðaröryggisráðið, sem hefur setið í landinu, lýsa óhæfa ýmsa forystumenn Föð- urlandsflokksins, þar á meðal Ozal, og halda áfram öllum völd- um í sínum höndum. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma ætlar Evren ekki að grípa til þess, enda myndi það án efa kalla fram mikla reiði og hörkuleg viðbrögð hjá Tyrkjum. AP- fréttastofan sagði í skeyti í gær, að ekki léki á tveimur tungum, að langflestir Tyrkir — meðal alþýðu manna — hefðu stutt að- gerðir herforingjastjórnarinnar meðan hún vann að því að upp- ræta ógeðfellda hryðjuverka- starfsemi sem viðgekkst í land- inu síðustu árin, áður en hún tók völdin. Nú þætti mörgum sem herstjórnin hefði setið of lengi og tími væri kominn til þess að Tyrkir fengju að spreyta sig á að búa við lýðræði á nýjan leik. Sama skoðun kom raunar fram í viðtali við tyrkneskan blaða- mann, Mehmet Yasin, ristjórn- arfulltrúa hins virta blaðs Gumhurieyh, sem var hérlendis í fyrri viku. Turgut Ozal er fæddur árið 1927 í Malatya í austurhluta Anatolíu. Hann nam rafmagns- verkfræði við Tækniháskólann í Istanbul og þótti afburða náms- maður. Hann vann síðan við grein sína næstu fimmtán ár, en árið 1965 skipaði þáverandi for- sætisráðherra, Suleyman Dem- irel, sem yfirmann Skipulags- og hagsýslustofnunar ríkisins. Þeg- ar herforingjastjón tók svo völd- in í landinu sex árum síðar, réðst Ozal til starfa hjá Alþjóðabank- anum í Washington. Eftir að Demirel tók við forsætisráð- kerfi ekki komið á í einum hvelli, enda gæti það leitt til að Tyrkir kollsigldu sig á ný og því segist hann vilja vinna að endurbótum á skipulagðan hátt og án of mik- illar róttækni. „Við verðum smátt og smátt að endurheimta eða endurbyggja sterkara og frjálslyndara efnahagskerfi, en það verður ekki gert í einu vet- fangi.“ Þrátt fyrir að tyrkneskur al- menningur hafi orðið að taka á sig miklar byrðar í kjölfar efna- hagsráðstafana þeirra sem Ozal var höfundur að, öðlaðist hann mikið traust og vinsældir meðal Tyrkja. Hann hefur á síðustu mánuðum hvað eftir annað látið í ljósi — varfærnislega þó — að hann stefndi að sigri. „Ég hef verið númer tvö í mörg ár,“ segir hann. „Ég á eftir svona sex sjö góð starfsár og þá vil ég vera númer eitt.“ Ozal er hlynntur þvi að efla samskipti við ríki þriðja heimsins, en ekki sízt við Araba- löndin. En hann er einnig sagður hlynntur betra samstarfi við Vesturlönd og er eindreginn stuðningsmaður þess að Tyrkir séu áfram innan Atlantshafs- bandalagsins. Turgut Ozal er lágvaxinn, Þjóðlegi lýðræðisflokkurinn hélt uppi harðri baráttu en það dugði ekki til. herraembættinu aftur árið 1979 varð Ozal aðstoðarforsætisráð- herra og sérlegur efnahagsráð- gjafi ríkisstjórnarinnar. Því starfi hélt hann eftir að Kenan Evren og herforingjar hans tóku völdin 1980. Hann fékk þá frjáls- ar hendur til að reyna að reisa úr rústum hruninn efnahag landsins. Honum tókst að ná verðbólgu niður í 27 prósent úr 130 prósentum. Útflutningur jókst í 6,1 milljarð dollara árið 1982 úr 2,3 milljörðum dollara árið 1979. Hann herti mjög eftir- lit með ríkisstofnunum og fjár- reiðum þeirra, reyndi að ein- falda hið flókna og seinvirka skrifstofubákn landsins og hvatti til aukins einstaklings- framtaks og var meðmæltur er- lendri fjárfestingu. Hann hefur sjálfur sagt að hagfræðilegur grundvöllur sé frjálslynt frí- verzlunarkerfi að vestrænni fyrirmynd. En hann hefur einnig bent á að samkvæmt nýju stjórnarskránni verði þessu dökkhærður með gróskumikið yfirskegg. Hann er þrekinn og þénugur í vexti, sagður kurteis maður í viðmóti, þolinmóður og ákaflega samvinnufús og reiðu- búinn að hlýða á aðrar skoðanir en þær sem hann fylgir og er þó fastur fyrir. Ozal er kvæntur og á tvo syni, eina dóttur og tvö barnabörn. Lýðræðissinnar um allan hinn vestræna heim hljóta að fagna kosningasigri Ozals og stjórn- málaskýrendur lofa reyndar mjög þá dómgreind sem hinn al- menni tyrkneski kjósandi hafi sýnt í kosningunum. Þó að Evren hafi gagnrýnt Ozal og sletzt hafi upp á vinskap þeirra fyrr á þessu ári, vonast menn til að Ozal fái það tækifæri og það umboð, sem tyrkneska þjóðin hefur ótvírætt veitt honum. Jóhanna Kristjónsdóttir er blaóa- maður á Morgunblaðinu. Enn um Grund - eftir Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur Nú fyrir nokkrum dögum barst inn á skrifstofu til mín þétt- skrifaður undirskriftalisti með svohljóðandi yfirskrift: „Vegna endurtekinna blaða- skrifa um Elli- og hjúkrunarheim- ilið Grund, þar sem ausið er óhróðri yfir starfsfólk og stofnun- ina, viljum við mótmæla. Við sjá- um engan tilgang í svona skrifum og skiljum ekki það hugarfar, sem á bak við liggur.“ Undir þetta rita 97 starfsmenn á Grund, flestir úr mínu félagi. Tilefnið mun vera grein í Helgar- póstinum um Elli- og hjúkrunar- heimilið Grund. Sú grein særði marga ómaklega og það er erfitt að gera sér í hugarlund að hún hafi glatt nokkurn mann. Allir sem koma nálægt sjúkra- húsmálum vita, að jafnvel á þeim stofnunum sem búin eru góðum tækjum og sérhæfðu fólki, getur sitthvað komið fyrir, sem betur hefði ekki skeð. Mannleg mistök, segja menn og svo er ekki meira um það. Kannske er þögnin of mikil, en vafalaust sprottin af því að menn vilja ekki ræna þá ör- yggiskennd, sem þangað leita. En á ekki gamla fólkið sama rétt? Á stofnunum fyrir aldraöa, van- gefna og geðsjúka vinnur margt ófaglært fólk, og gengur þar í lærðra manna verk. Vinnan er erf- ið og launin lág. Við búum við það óréttlæti, að því erfiðari sem vinn- an er, þvi lægra er kaupið einkum þar, sem konur eru í meirihluta. En allir sem þekkja til vita að það fólk, sem ílendist í þessum störf- um er gott og gefandi fólk. Ég tek undir það með Guðrúnu Gísladótt- ur, þegar hún segir að 95% af starfsfólkinu á Grund sé úrvals- fólk. „ ... allir sem þekkja til vita aö það fólk, sem flendist í þessum störf- um, er gott og gefandi fólk.“ Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Grundar, hefur oft verið umdeild- ur maður, en um eitt verður ekki deilt: Hann hefur áratugum sam- an barizt fyrir því að aldrað fólk ætti skjól og athvarf í ellinni. Eft- ir hann liggur mikið verk, bæði hér og í Hveragerði. Hann getur verið snöggur í svörum, en hann er líka fljótur að rétta hjálparhönd ef við liggur. Það vilja félagar mínir á Grund að komi fram, en um það er sjaldan talað. Ég tek undir með starfsfólkinu á Grund. Ég sé engan tilgang í skrifum eins og þeim sem birtust í Helgarpóst- inum. Þau eru engum til sóma. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir er formaður Starfsmannafélagsins Sóknar. Suðurlandsundiriendið val- ið sem sérstakt rannsóknar- svæði vegna jarðskjálftavarna Á VEGUM Evrópuráðsins er starf- andi nefnd sem skipuleggja á sam- starf Evrópuþjóða í jarðskjálftavörn- um. Tveir nefndarmanna, Mendes Victor forstjóri portúgölsku jarðeðl- isfræðistofnunarinnar, en hann er formaður nefndarinnar, og Ole Dalman yfirmaður jarðskjálftarann- sóknardeildar rannsóknarstofnunar sænska hersins, voru hér á landi fyrir skömmu og funduðu með þeira sem hér starfa að jarðskjálftarann- sóknum og -vörnum. Á blaðamannafundi sem boðað var til í tilefni heimsóknarinnar var sagt frá starfi nefndarinnar. Nefndin var skipuð 1979 og hefur hún síðan aðallega unnið að upp- lýsingasöfnun og samanburði á reynslu í hinum einstöku löndum. Mendes Victor sagði meðal annars að þar sem ekki væri hægt að komast hjá jarðskjálftum yrði fólk að læra að búa við þá. Ýmis- legt væri hægt að gera til að minnka þá hættu sem ávallt skap- ast af jarðskjálftum, og væri það verkefni nefndarinnar að fást við og samræma. Kom fram að Suðurlandsundir- lendið hefur verið valið sem sér- stakt rannsóknarsvæði ásamt svæðum í 5 öðrum Evrópulöndum. Telja vísindamenn að í ljósi sög- unnar megi búast við jarðskjálfta á Suðurlandsundirlendinu og með rannsóknum á svæðinu fram að þeim tíma megi varpa mikilvægu Ijósi á aðdraganda jarðskjálfta. ATHUGASEMD I grein sem undirritaður skrifaði um ríkisfyrirtæki og birtist í Mbl. þann 16. sept. sl. nefndi ég að senni- lega mundi gæta tregðu í viðskipta- ráðuneytinu ef innleiða ætti frjálsari verslunarálagningu. Nokkrir mætir menn hafa vakið athygli mína á þvi, að með tilliti til þess sem sagði síðar í greininni um ísl. embættismenn, þá hafi mátt skilja orð mín svo að emb- ættismenn þess ráðuneytis og þá sérstaklega ráðuneytisstjórinn, Þórhallur Ásgeirsson, væru likleg- ir til að standa gegn slikum breyt- ingum. Af þessum sökum stendur það engum nær en mér að minna á að Þórhallur Ásgeirsson hefur átt sæti í a.m.k. tveimur opinberum nefndum, sem lagt hafa til aukið frelsi i verslunarálagningu. Ábyrgðin á þeim seinagangi sem átt hefur sér stað í þessu máli skrifast því á þá stjórnmálamenn sem með völdin hafa farið. Bæta má við að þó að ég sé ekki sammála öllu því sem gert er í viðskiptaráðuneytinu, einkum þó því er lýtur að veitingu útflutn- ingsleyfa, skal ekki standa á und- irrituðum að viðurkenna að þau ánægjulegu umskipti sem áttu sér stað í ísl. þjóðlífi með afnámi ára- tugagamalla innflutningshafta og inngöngu í fríverslunarsamtök eru einkum og sér í lagi verk tveggja manna, þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar og Þórhalls Ásgeirssonar. Það væri því út í hött að væna Þórhall, sem öðrum fremur hefur barist fyrir frjálsum verslunarháttum til hagsbóta fyrir allan almenning, um seinagang í að innieiða frjálsa verslunarálagningu. Gunnl. M. Sigmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.