Morgunblaðið - 09.11.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
45
Norræni fjárfestingarbankinn:
ÍSNO fær lið-
lega 7,6 millj.
króna lán
Bankinn afgreiddi 25 lán fyrstu átta mánuði
ársins, að upphæð um 775 millj. norskra kr.
í nýbirtri áfangaskýrslu Norræna fjárfestingarbankans kemur fram, að á
fyrstu 8 mánuðum þessa árs hafí bankinn veitt 25 lán að upphæð samtals 775
milljónir norskra króna. Þar að auki hafí bankinn gefíð fyrirheit um 8
fjárfestingarlán til verkefna, sem samtals nema um 500 milljónum norskra
króna. Frá stofnun bankans 1976 hefur bankinn veitt 181 lán, samtals að
upphæð sem nálgast 7 milljarða norskra króna.
er mikilvægur þáttur í að bæta
sambandið við hin Norðurlöndin,
og til verksins er aðallega notaður
búnaður frá Noregi, Svíþjóð og
Danmörku. Lánið nemur 8 millj-
ónum norskra króna.
Áhuginn á norrænum lánum til
fjárfestinga í sérstökum verkefn-
um hefur verið mikill, bæði af
hálfu fyrirtækja á Norðurlöndum,
alþjóðlegra þróunarbanka og ein-
stakra þróunarlanda. Frá því að
slík útlán hófust 1. júlí 1982 hafa
bankanum borist um 160 umsókn-
ir. Stjórn bankans hefur fjallað
um 20 lánsumsóknir.
Fyrsta lánið til fjárfestingar 1
sérstöku verkefni var veitt Botsw-
ana Power Corporation. Lánið
hljóðar upp á 10 milljónir Banda-
ríkjadala og á að nota til fjár-
mögnunar á kolaknúnu raforku-
veri. Fleiri aðilar taka þátt í fjár-
mögnun raforkuversins, m.a. Al-
þjóðabankinn. Fyrirtæki í þremur
Norðurlandanna hafa sýnt áhuga
á þátttöku í þessu verkefni.
Að auki hefur bankinn veitt
fyrirheit um fjárfestingarlán til 8
verkefna, sem nema samanlagt
520 milljónum norskra króna.
Lánsloforð þessi taka til landanna
Kolumbíu, Indlands, Kamerún,
Portúgals, Suður-Kóreu og Ung-
verjalands. Alþjóðabankinn, Sam-
ameríski þróunarbankinn og
Þróunarbanki Afríku eiga hlut að
fjármögnun 5 þessara verkefna.
Þau verksvið sem hér er um að
ræða eru orkuframkvæmdir, iðn-
aðarframkvæmdir, fjarskipti og
samgöngur.
Á fyrstu 8 mánuðum þessa árs
hafa fjárfestingar atvinnulífsins á
Norðurlöndum í heild haldið
áfram að dragast saman. Þó hefur
bankinn á síðustu mánuðum orðið
var við vaxandi fjárfestingar-
starfsemi og aukna eftirspurn eft-
ir lánum. Bankinn telur að útlán á
öllu árinu 1983 muni ná sama
marki og 1982, þ.e. fara í um 1,3
milljarða norskra króna.
Á þessum 8 mánuðum hefur
bankinn tekið 4 lán, að upphæð
samtals 790 milljónir norskra
króna. Samtals hefur bankinn þá
tekið að láni nær 4,4 milljarða
norskra króna, þar af 93% á hin-
um alþjóðlega fjármagnsmarkaði.
Vaxtatekjur sjóðsins hafa auk-
ist um 38%, fyrst og fremst vegna
þess að heildarlán bankans voru á
tímabilinu 1,2 milljörðum hærri
en á sama tímabili árið 1982. Með-
alútlánsvextir jukust úr 10,2% í
10,4%. Nettóafrakstur bankans á
tímabilinu nam 97 milljónum
norskra króna, sem er svipuð upp-
hæð og fyrir sama tímabil árið
1982, og svarar til 11,4% arðs af
eigin fé.
Islenska fyrirtækið Isno hf. hef-
ur fengið sitt annað lán vegna lax-
eldisstöðvar í Lónum í Keldu-
hverfi, en stöðin er reist í sam-
vinnu við fyrirtækið A/S Mowi í
Björgvin, sem er í meirihlutaeigu
Norsk Hydro-samsteypunnar.
Þetta nýja lán er að upphæð 2
milljónir norskra króna.
Þá hefur bankinn einnig veitt
sitt annað lán til landsíma Fær-
eyja til stækkunar á símakerfi
eyjanna. Stækkun símakerfisins
84 brautskráðir frá
Háskóla íslands
Ljósm. Mbl./ól.K.M.
EFTIRTALDIR 84 stúdentar luku prófum
við Háskóla fslands í upphafi haustmiss-
eris.
Embættispróf í guðfræði (1)
Clarence Edvin Glad
Embættispróf í læknisfræði (1)
Örn Thorstensen
Aöastoðarlyfjafræðingspróf (1)
Robert Melax
B.S.-próf í hjúkrunarfræði (3)
Hildur Einarsdóttir
María Gunnlaugsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
Embættispróf í lögfræði (1)
Óskar Magnússon
Kandídatspróf í viðskiptafræðum (15)
Bernharður Jóhann Kristinsson
Birkir Leósson
Guðmundur Jónsson
Herbert Viðar Baldursson
Katrín Atladóttir
Kjartan G. Gunnarsson
Kristján Guðmundsson
Kristján Sigfús Sigmundsson
Kristján Skarphéðinsson
María Elínborg Ingvadóttir
Matthías Hannes Guðmundsson
Pétur Hafsteinn Bjarnason
Sigurður Hallur Garðarsson
Sturlaugur Sturlaugsson
Þórður B. Guðjónsson
KandídaUpróf í ísl. málfræði (1)
Haildór Ármann Sigurðsson
Kandídatspróf í ísl. bókmenntun (2)
Kristinn Kristjánsson
Sigurborg Hilmarsdóttir
Kandídatspróf í sagnfræði (3)
Guðmundur Jónsson
Þórunn Valdimarsdóttir
Ögmundur Helgason
B.A.-próf í heimspekideild (23)
Ágúst Tómasson
Álfhildur Álfþórsdóttir
Arnbjörn Jóhannesson
Bára Björg Kjartansdóttir
Brynja Baldursdóttir
Clarence Edvin Glad
Elísabet Guðbjörnsdóttir
Erna Hildur Gunnarsdóttir
Friðrik Magnússon
Guðbjörg Gústafsdóttir
Guðlaug Hermannsdóttir
Guðrún S. Eyjólfsdóttir
Gunnar Halford Roach
Séð yfír hóp kandidata.
Hrafnhildur Sveinsdóttir
Inga Karlsdóttir
Jóhanna Þráinsdóttir
Jón Hallur Stefansson
Jóna Pálsdóttir
Kristín Sigurðardóttir
Margrét Friðriksdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Óðinn Víkingur Jónsson
Þórarinn Friðjónsson
Próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta (1)
Glen Eric Jakobson
Verkfræði- og raunvísindadeild (19)
Lokapróf í rafmagnsverkfræði (1)
Kristinn Sigurjónsson
B.S. próf í tölvunarfræði (5)
Bragi Leifur Hauksson
Hafdís Einarsdóttir
Hrafnkell V. Gíslason
Ólafur Guðmundsson
Stefán Hrafnkelsson
BJS.-próf í eðlisfræði (1)
Þóra Jónsdóttir
B.S.-próf í matvælafræði (2)
Gunnar Kristinsson
Herdís M. Guðjónsdóttir
B.S.-próf í líffræði (4)
Árni Ingason
Arnór Þórir Sigfússon
Hafliði J. Ásgrímsson
Valur Emilsson
B.S.-próf (jarðfræði (2)
Ásdís Ingólfsdóttir
Olgeir Sigmarsson
B.S.-próf í landafræði (4)
Björg Þórarinsdóttir
Bryndís H. Bjartmarsdóttir
Bryndis G. Róbertsdóttir
Jón Júlfus Eliasson
B.A.-próf í félagsvísindadeild (13)
B.A.-próf í bókasafnsfræði (2)
Dögg Hringsdóttir
Steinunn Ósk Guðmundsdóttir
B.A.-próf í sálarfræði (4)
Auður Róberta Gunnarsdóttir
Guðrún Guðmunda Gröndal
Heiðdis Sigurðardóttir
Klaus Dieter Wiedman
B.A.-próf í uppeldisfræði (4)
Eiríkur Hilmarsson
Jóhann Geirdal Gíslason
Kristjana Bergs
Ragnheiður K. Benediktsson
B.A.-próf í félagsfræði (2)
Guðrún Valsdóttir
Gunnar V. Valgeirsson
B.A.-próf í mannfræði (1)
Hermann Ottósson
Auk þess luku 11 nemendur námi í
uppeldis- og kennslufræði til kennslu-
réttinda, en alls hafa 368 nemendur
lokið því námi frá stofnun félagsvís-
indadeildar 1976.
r ra brautskráningarathöfninni í Háskólabíói. Meðal gesta má sjá menntamálaráðherra, frú Ragnhildi Helgadóttui
og við hlið hennar Guðmund Magnússon, rektor Háskóla íslands.
Húnavaka 1983:
Grein um Svínvetninga-
brautarfélagið meðal efnis
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ritið Húnavaka, 23. ár — 1983. Út-
gefandi er Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga en ritið kemur
út árlega um Húnavöku þeirra
Húnvetninga.
í ávarpi ritstjóra Húnavöku,
Stefáns Á. Jónssonar á Kagað-
arhóli, segir meðal annars: „Efni
og útiit þessarar Húnavöku er
með svipuðu sniði og undanfarin
ár. Á þeim 23 árum sem Húna-
vaka hefur komið út, hefur verið
birt efni eftir 285 höfunda — 222
karla og 63 konur. Mest af þessu
efni hefur verið tengt þjóðlegum
fróðleik og sögu héraðsins á einn
eða annan hátt eða um 215 þætt-
ir. Þá hafa birst 57 viðtöl, um 50
smásögur, nær 40 erindi eða ræð-
ur, 35 ferðasögur, 146 ljóð og um
450 vísur. Frá því árið 1965 hafa
verið birt stutt æviágrip allra
þeirra er látist hafa í héraðinu á
ári hverju og eru þetta orðin nær
300 æviágrip og auk þess 45
minningargreinar með mynd,
þar sem æviferill manna hefur
verið rakinn nokkuð ítarlegar. Á
hverju ári hefur verið annáll
frétta úr héraðinu í máli og
myndum. Áður en þessi 23. ár-
gangur fór í prentun var ritið
orðið samtals 4.023 blaðsíður
fyrir utan auglýsingar."
Húnavaka 1983 er að venju
fróðleg og fjölbreytt. Meðal efnis
má nefna stórfróðlega grein
Ingvars Þorleifssonar í Sólheim-
um um Sveinvetningabrautarfé-
lagið. Segir þar frá baráttu
bænda og búandmanna í Svína-
vatns- og Torfalækjarhreppum
fyrir vegi frá Blönduósi um
Torfalækjarhrepp og í Svína-
vatnshrepp, sem síðar var nefnd-
ur Svínvetningabraut. En vegar-
lagning þessi mun einstakt fram-
tak.