Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 47

Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 47 Man. Utd. áfram í Mjólkurbikarnum Fré Bob Henne.iy, fréttamanni Morgunblaöaina i Englandi. MANCHESTER United komst áfram í Mjólkurbikarnum í gærkvöldi er liöið sigraöi Col- chester 2:0 á útivelli. Bæöi mörk- in komu í fyrri hálfleik. Gordon McQueen skoraöi fyrra markið strax á 7. mínútu með hörku- skalla eftir hornspyrnu Arthur Graham, og Remi Moses geröi seinna markiö á 23. mínútu. Colchester reyndi hvað þaö gat til að ógna 1. deildarliöinu, en aldrei skapaöist verulega hætta við mark United. Fulham og Liverpool geröi jafn- tefli, 1:1, á Craven Cottage í Lond- on í frábærum leik, aö sögn frétta- manna BBC, en leiknum var lýst þar. Bæöi lið léku skemmtilega sóknarknattspyrnu. Fulham var á undan aö skora, Kevin Lock gerði markið úr vítaspyrnu á 64. mínútu eftir aö Gordon Davies haföi veriö felldur í teignum. „Fulham á þetta fyllilega skiliö," sagöi Emlyn Hugh- es, fyrrum fyrirliöi Liverpool og enska landsliösins, sem var á meðal þula BBC á leiknum. En fréttamennirnir voru enn aö tala um mark Lock er Liverpool haföi jafnað. Sextíu sekúndum eft- ir markiö haföi lan Rush skoraöi sitt 14. mark á tímabilinu. Leik- menn Liverpool geröu sig greinilga ánægöa meö jafntefli og eftir mark Rush héldu þeir boltanum vel. Fulham fékk varla færi. Liöin þurfa aö mætast á nýjan leik 22. nóv- ember og veröur þá leikiö á An- field Road í Liverpool. Úrslit annarra leikja í Mjóikur- bikarnum uröu: Birmingham—Notts County 2:2 Preston—Sheff. Wedn. 0:2 Rotherham—Southampton 2:1 Stoke—Huddersfield 0:0 Walsall—Shrewsbury 2:1 West Ham—Brighton 1:0 Wimbledon—Oldham 3:1 Dave Swindelhurst skoraói sig- / % urmark West Ham átta mínútum fyrir leikslok meö skalla eftir send- ingu Alan Devonshire. Leikurinn var mjög jafn. Imre Varadi og Gary Shelton skoruöu fyrir Sheffield Wednesday. Þau úrslit sem vekja mesta athygli eru sigur Rotherham á Southampton. Peter Shilton lék aö visu ekki meö Southampton, hann er meiddur. Varamarkvörö- urinn Spearing slasaöi Wright, framherja Rotherham í leiknum er hann hljóp úr markinu og ætlaöi aö góma boltann. Þess má geta aö Rotherham sló annað 1. deildarlið úr bikarnum í síöustu umferð, Lut- on. Crystal Palace sigraöi Cardiff 1:0 í 2. deild í gærkvöldi. Piontek velur fyrir Grikkjaleikinn: Danir verða að vinna EFTIR eina viku, þann 16. nóv- emberleika Danir sinn þýóingar- mesta landsleik í knattspyrnu um langt árabil. Þá mætir danska landslióiö því gríska f Aþenu. Leikur liðanna er síöasti leikur Danmerkur í riölakeppninni í Evr- ópukeppni landsliða í knatt- spyrnu. Danir eru meö forystu í þriöja riðli, hafa hlotið 11 stig, en Englendingar eru meö 10 stig. Sigri Danir gríska landslióiö hef- ur lióió tryggt sór sigur f riðlinum og jafnframt þátttökurétt í úrslitakeppninni í Frakklandi á næsta ári. Englendingar eiga eftir aó leika gegn Luxemborg og verða aö teljast öruggir sigurveg- arar í þeim leik. Landsliösþjálfari Dana, Sepp Piontek, valdi í gærdag 15 leik- menn í landsliöshópinn fyrir leikinn gegn Grikkjum. Hópurinn er skipaöur eftlrtöldum leikmönnum: Markveröir: Ole Kjær, Esbjerg, og Ole Quist, KB. Aörir leikmenn: Seren Busk, Ghent, Ivan Nielsen, Feyenoord, Morten Olsen, Anderlecht, Jan Molby, Ajax, Jens Jorn Bertelsen, Seraing, John Lauridsen, Espanol, Allan Simonsen, Vejle, Soren Lerby, Bayern Munchen, Frank Arnesen, Anderlecht, Jesper Olsen, Ajax, Klaus Berggreen, Pisa, Michael Laudrup, Lazio, og Preben Elkjær Larsen, Lokeren. Einum leikmanni veröur bætt viö þennan hóp og veröur þaö aö líkindum varnarmaöur. Annaö- hvort Ole Rasmussen hjá Herta Berlin eða Ole Madsen sem leikur með Brondby. Flestir eru leik- mennirnir atvinnumenn meö þekktum liöum í Evrópu. Gifurleg- • Danski landsliótþjáifarinn f knattspyrnu, Sepp Piontek, ásamt dönsku landsliðsmönnunum sem leika hjá Anderlecht. Frá vinstri: Kenneth Brylle, Morten Olsen, Per Frimann og Frank Arnesen. ur áhugi er á leiknum gegn Grikkj- um heima í Danmörku og búist er viö aö ekki færri en 6.000 Danlr fari til Grikklands til aö horfa á leikinn, þrátt fyrir aö um beina sjónvarpsútsendingu veröi aö ræöa. • Janus Guólaugsson á æfingu meö íslenska landsliöinu, Viöar Hall- dórsson fyrirliöi landsliösins fylgist vel meö. I Janus hefur skorað síðustu fjórum leikjum JANUS Guölaugsson skoraöi mjög glæsiiegt mark um helgina er lið hans Fortuna Köln vann Oberhausen 3—1, í 2. deild vestur-þýsku 2. deildar keppn- inni í knattspyrnu. Janus sem leikur nú sem miövallarspilari hefur skoraö mark í síöustu fjór- um leikjum F-Köln og spilaö mjög vel og fengið góöa dóma. — Mark mitt gegn Oberhausen var sérlega glæsilegt þó svo aö óg segi nú sjálfur frá. Ég náöi aö skjóta viöstööuiaust þrumuskoti sem fór alveg efst í markhornið óverjandi fyrir markvöröinn, sann- kallaö draumamark og sennilega þaö fallegasta sem ég hef skoraö um dagana, sagöi Janus þegar Mbl. spjallaöi viö hann. Aö sögn Janusar þá hefur For- tuna Köln gengiö vel í vetur. Liöiö er skipað sömu leikmönnum aö mestu og á síöasta ári sem þekkja vel hver inná annan. Janus sagöi aö tvö stig skildu á milli Kölnar- liösins og liðsins sem væri í þriöja sæti í 2. deild. „Viö gerum okkur góöar vonir um aö veröa i baráttunni um efstu sætin í deildinni í vetur. Þaö er sterkari heildarsvipur á liöinu en oft áöur. Ég kann mjög vel viö mig í stööu miðvallarleikmanns, þaö er mun líflegri staöa heldur en staöa aftasta varnarmanns," sagöi Jan- us. — ÞR. Blakdeild Víkings AÐALFUNDUR blakdeildar Víkings verður haldinn f Vík- ingsheimilinu á sunnudaginn, 13. nóv., og hefst kl. 17. Norðurlandamótið í borðtennis í Laugardalshöll: Sonja Gretberg og Jörgen Person þrefaldir meistarar Svíar voru mjög sigursælir á Noróurlandamótinu f borðtennis sem fram fór f Laugardalshöll um helgina. Svíar fengu gull í fjórum flokkum og Finnar í þremur. Þaö kom í Ijós strax á föstu- dagskvöld, aö Svíar voru meö yfir- buröaliö í karlaflokki. Þá hófst mótiö meö landskeppninni, en henni lauk svo á laugardag meö úrslitaleik Svía og Dana. Sænskur sigur var mjög öruggur þar, Jan- Ove Waldner og Jörgen Person — tveir efnilegustu borðtennisleikar- ar á Noröurlöndum voru þar fremstir í flokki hjá Svíum. Þeir fé- lagarnir mættust einmitt í úrslita- leiknum í einliöaleik á sunnudag- inn. Flestir bjuggust viö öruggum sigri Waldner, sem er Evrópu- meistari unglinga, en Persson lét þaö ekki á sig fá. Hann sigraöi landa sinn í skemmtilegri viöur- eign. Claus Petersen og Teis Jonas- son frá Danmörku urðu í þriöja til fjóröa sæti. Svtar sigruðu í landskeppninni, Danir uröu í ööru sæti og Finnar í því þriðja. í kvennaflokki sigruöu Svíar einnig í landskeppninni, finnsku stúlkurnar uröu í ööru sæti og Danir í þriöja sæti. I einliöa- og tvíliöaleik sigruöu hins vegar finnskar stúlkur — og var úrslita- leikurinn í einliöa leik kvenna sér- staklega skemmtilegur. Vel leikinn og spennandi. Þar áttust viö Sonja Gretberg, Finnlandi og Memi Veja- des, Svtþjóö. Sonja sigraöi í þeirri viöureign. í tvíliöaleiknum hjá kvenfólkinu sigruöu þær Sonja Gretberg og Eva Malmberg frá Finnlandi. Memi Veijades og Pia Elason frá Svíþjóö uröu aö gera sér annaö sætiö aö góöu. Sonja Gretberg hin finnska lét ekki þar við sitja: hún sigraði einnig í tvenndarleik ásamt landa sínum Jaramu Jokkinen. Hún varð því þrefaldur sigurvegari á mótinu. Jörgen Person, Svíþjóö, varö einnig þrefaldur sigurvegari á mót- inu. Eins og áöur sagöi sigraði hann í einliöaleik karla, hann var í sigursveit Svía í landskeppninni, og þá varö hann Noröurlanda- meistari í tvíliöaleik karla ásamt Jan-Ove Waldner. i tvenndar- keppninni uröu Eva Malmberg og Stefan Söderberg frá Finnlandi í ööru sæti. Þaö var mikið þrekvirki af Borö- tennissambandi íslands aö ráöast í þaö verkefni aö halda Norður- landamótiö í borötennis en ekki er hægt aö segja annaö en aö fram- kvæmd mótsins hafi veriö meö miklum ágætum. Þaö eina sem vantaöi voru fleiri áhorfendur, en þeir voru því miður mjög fáir í Höll- inni keppnisdagana. — SH. McLean neitaöi Fré Bob Hennessy, fréttamanm Morgunbtaösins í Englandi. JIM McLean, framkvæmda- stjóri Dundee United, hafnaöi tilboði forráóamanna Glasgow Rangers um aö taka við liöinu. Rangers bauö honum 70.000 sterlingspund í árslaun, en það samsvarar tæplega þrem- ur milljónum íslenskra króna. Þetta eru geysilega há laun, enda er Rangers eitt alríkasta félagslið á Bretlandseyjum, ef ekki það ríkasta. Forráöamenn Dundee Unit- ed urðu yfir sig hrifnir þegar Mclean hafnaöi tilboöi Rangers og gáfu út þá yfirlýsingu að fé- lagiö myndi halda góögeröaleik fyrir hann, og myndi hann fá um 40.000 sterlingspund í eigin vasa út úr því. McLean geröi liö Dundee Utd. aö skoskum meistara í vor. Þeir sem aðallega eru nefnd- ir í sambandi viö framkvæmda- stjórastööuna hjá Rangers þessa stundina eru Jock Wall- aca hjá Motherwell, Billy Bing- ham, einvaldur noröur-írska landsliðsins og Jack Charlton, fyrrum stjóri Sheffield Wednes- day. Skotland ÚRSLIT í skosku úrvalsdeildinm. Dundee Utd. — Dundee 0—1 Hibernian — Hearts 1—1 Motherwell — St. Mirren 0—0 Rangers — Celtic 1—2 St. Johnstone — Aberdeen 0—5 Staöan t úrvalsdeildinni. Aberdeen 11 8 1 2 31: 7 17 Celtic 11 7 2 2 29:14 16 Dundee Utd. 10 7 1 2 22 : 9 15 Hearts 11 6 3 2 14: 9 15 Hibernian 11 5 1 5 16:21 11 Dundee 11 4 1 8 15:23 9 Rangers 11 3 1 7 16:21 7 St. Mirren 10 1 5 4 9:15 7 Motherweli 11 1 5 5 6:18 7 St. Jonstone 11 2 0 9 10:33 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.