Morgunblaðið - 20.12.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
37
Norðfjörður
- saga útgerðar
og fiskvinnslu
ÚT ER komin bókin Nordfjördur,
saga útgeröar og fiskvinnslu. Höf-
undur er Smári Geirsson, skóla-
meistari í Neskaupstað, en útgefend-
ur Samvinnufélag útgerðarmanna,
Neskaupstað, og Síldarvinnslan hf.,
Neskaupstað. Prentsmiðjan Hólar
annaðist setningu, prentun og bók-
band.
Bókin skiptist í fjóra hluta og
fjallar um útgerð og fiskvinnslu á
Norðfirði, Neskaupstað, frá upp-
hafi og fram á þessa daga. í for-
mála útgefenda segir meðal ann-
ars: „Með riti þessu er minnst 50
ára afmælis Samvinnufélags út-
gerðarmanna í Neskaupstað og 25
ára afmælis Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað, en Samvinnufélagið
var stofnað 2. júlí 1932 og Síldar-
vinnslan 11. desember 1957.
Samvinnufélag útgerðarmanna
eða Sún, eins og félagið hefur ver-
ið kallað á heimaslóðum, var
stofnað af 18 útgerðar- og sjó-
mönnum í Neskaupstað, þegar
heimskreppan mikla þjarmaði
sem harðast að öllum atvinnu-
rekstri og afkoma sjómanna og út-
vegsmanna var að komast í þrot.
Saga Sún og Síldarvinnslunnar er
veigamikill þáttur atvinnusögu
Norðfirðinga á liðnum 50 árum.
Smári Geirsson, skólameistari í
Neskaupstað, hefur tekið saman
þetta rit. Útgefendur kunna hon-
Smiri Geirsson
ísafjörður:
Jólasveinar
útbýta gjöfum
ísafirði, 13. desember.
KIWANISMENN á ísafirði hafa, eins og nokkur undanfarin ár, samið
við nokkra velþekkta jólasveina um að koma til ísafjarðar á Þorláks-
messu. Gert er ráð fyrir því, að þeir verði á ferðinni um klukkan 16 í
neðanverðu Hafnarstræti.
Verða þeir með söng og
hljóðfæraslátt og líklega munu
þeir útbýta einhverjum gjöfum.
Á aðfangadag munu jóla-
sveinarnir síðan ganga í hús
með jólapakka fyrir Isfirðinga,
sé þess óskað. Pökkunum þarf
að skila í Kiwanishúsið á Skeiði
milli klukkan 13 og 17 á Þor-
láksmessu. — Úlfar.
um þakkir fyrir verkið og vænta
þess, að það verði til fróðleiks og
gagns fyrir alla þá sem áhuga
hafa á þróun atvinnumála í sjáv-
arútvegsbæ á þeim tíma sem ritið
tekur til umfjöllunar."
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
Úrval góðra reyrmuna
Blaöagrind kr. 720.-.
Handgeröar indverskar helgimyndir
í reyrramma. Kr. 970.-.
Speglar í
reyrramma.
Margar gerðir.
Blómasúla
meö 3 pottum.
Kr. 975.-
Verokina-stóll.
Kr. 3.180.- með sessu.
Prinsessuborð.
Kr. 2.150.-.
Símaborð með gleri.
Kr. 1.980.-.
Prinsessustóll.
Kr. 3.470.- með sessu.