Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 27
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
27
Olafur Þ. Þórðarson formaður Allsherjarnefndar:
Ýmislegt er brýnna
heldur en bjórmálið
EKKI hcfur verið haldinn fundur í alls-
herjarnefnd Sameinaðs þings síðan 30.
aprfl sl. og Ólafur i>. l>órðarson, sem er
formaður nefndarinnar afboðaði fund
þann sem boðaður hafði verið í nefnd-
inni sl. þriðjudagsmorgun. „Það verður
boðaður fundur í nefndinni jafnskjótt
og pláss er fyrir hann í starfi þingsins,
en það er samkomulagsatriði hvað við
tökum fvrir á fundum í nefndinni. Ég
tel þó að það séu ymis mál brýnni en
þetta mál,“ sagði Olafur 1>. Þórðarson
„Afstaða Framsókn-
ar hlýtur að byggj-
ast á misskilningi
u
„ÞAÐ VAR samþykkt í ríkisstjórninni
sama daginn og mælt var fyrir stjórn-
arfrumvarpinu, að forsætisráðherra
legði til að fjárhags- og viðskiptanefnd
Alþingis tæki þetta upp. Ég tel að af-
staða Framsóknarflokksins hljóti að
byggjast á misskilningi, því sam-
kennsla eins og hér var stefnt að hefur
verið framkvæmd vlða um land síðast-
liðin tíu ár. í mörgum tilfellum reyndar
án lagaheimildar og um það er aðeins
að rsða í þessu tilfelli að afla form-
legrar lagaheimildar," sagöi Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráð-
berra, er Mbl. spurði hana álits á af-
greiðslu þingflokks Framsóknar á við-
aukatillögu hennar við stjórnarfrum-
varp um ríkisfjármál, en í viðtali í frétt
Mbl. í gær við Pál Pétursson kom fram
að þingflokkur Framsóknar lýsti sig
andvígan tillögunni á fundi í fyrradag.
í viðaukatillögu Ragnhildar, sem
flutt er í sparnaðarskyni, er gert ráð
landsins. Myndi það þýða fækkun
kennara í þeim skólum. Ragnhildur
sagði ennfremur að mál þetta yrði til
umfjöllunar í ríkisstjórn nú árdegis.
Þingflokkarnir fjölluðu um mál
þetta í gær. Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins styður menntamálaráð-
herra, en í lok þingflokksfundar
Framsóknar sagði Páll Pétursson
formaður þingflokks Framsóknar, er
Mbl. ræddi við hann: „Við höldum
náttúrlega við samþykkt okkar frá í
gær. Við erum tilbúnir í ýmsar
breytingar og sparnaðarleiðir í
skólakerfinu, til dæmis eins og það
að bæta ekki við forskólana eins og
hugmyndin er að gera. Þannig má
spara og á ýmsan annan máta.“
alþingismaður, þegar blm. Mbl. spurði
hann í gær hvort hann sem formaður
allsherjarnefndar sameinaðs þings
myndi kalla saman fund bráðlega f
nefndinni og taka bjórmálið fyrir.
Blaðamaður spurði Ólaf hvort
hann sem formaður allsherjarnefnd-
ar ætlaði sér sem andstæðingur
bjórsins að frysta málið, og koma í
veg fyrir að það fengi afgreiðslu frá
allsherjarnefnd: „Það er misskiln-
ingur að formenn frysti mál og önn-
ur fái afgreiðslu.
Ólafur var spurður hvort það væri
réttur skilningur blaðamanns að ef
fram kæmi ósk frá meirihluta alls-
herjarnefndar að þingsályktunar-
tillagan um þjóðaratkvæaðgreiðslu
um bjórinn væri afgreidd frá nefnd-
inni, þá legðist hann ekki gegn slíkri
afgreiðslu. Ólafur svaraði: „Meiri-
hluti er meirihluti. Það skiptir engu
máli hverju ég leggst gegn sem slík-
ur, en þingsályktunartillagan eins og
hún er orðuð núna getur náttúrlega
aldrei farið út frá allsherjarnefnd,
einfaldlega vegna þess að hún þarf
að vinnast upp aftur."
Ólafur var að því spurður hvort
hann væri ekki með þessum orðum
að segja að útilokað væri að afgreiða
þessa þingsályktunartillögu um
þjóðaratkvæðagreiðslu um bjórinn á
því þingi sem brátt fer að Ijúka: „Við
skulum orða það þannig að ég sjái
margt nauðsynlegra en að afgreiða
hana.“
Morgunblaðið/RAX
Eigendur Tré-X búðarinnar. A mvndinni eru talið frá vinstri: Þorvaldur
Ólafsson, Sigríður Kjartansdóttir, Rósa Halldórsdóttir og Sæmundur Sæ-
mundsson framkvæmdastjóri.
Nýr sýningarsalur og
verslun á sama stað
SÝNINGARSALUR og ný verslun,
sem nefnist Tré-X búðin, var opnuð í
Ármúla 17 í Reykjavík nú fyrir
skömmu.
Markmið verslunarinnar er, að
sögn eigenda hennar, að sýna og
selja á einum stað sem flest er
þarf til innréttinga í hús og íbúðir.
Meðal þess sem er til sýnis og sölu
eru inni- og útihurðir, sólbekkir,
innréttingar, fataskápar og heim-
ilistæki, og eru allar framantaldar
vörutegundir íslensk framleiðsla.
Eigendur Tré-X búðarinnar eru:
Sæmundur Sæmundsson sem er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
Sigríður Kjartansdóttir, Þorvald-
ur Ólafsson og Rósa Halldórsdótt-
ir.
fyrir að sameina kennslu fámennra bekkja í minnstu grunnskólum Tol I Qi & k
JL L u f
Leiðrétting
í frásögn Mbl. í gær af ákvörðun-
um úthlutunarnefndar norræna
þýðingarsjóðsins féll eitt orð niður
í heiti bókar Ármanns Kr. Einars-
sonar, en hún heitir Himnaríki
fauk ekki um koll.
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður:
B
„Niðurstaða mín er sú að húsnæð-
issamvinnufélög með sama sniði og
Búseti muni uppfylla skilyrði þess að
fá lán úr Byggingarsjóði verka-
manna, ef stjórnarfrumvarpið verður
að lögura/' segir í lokaorðum álits-
gerðar Ragnars Aðalsteinssonar
hæstaréttarlögmanns um það hvort
11 OAfí
UOUU
húsnæðissamvinnufélög uppfylli
skilyrði lánveitinga úr Byggingar-
sjóði verkamanna skv. c-lið 33. gr. í
frumvarpi til laga um Húsnæðis-
stofnun ríkisins, en álitsgerð Ragn-
ars er unnin að ósk nokkurra þing-
manna.
Ragnar segir í álitsgerð sinni að
ClÁ lÓí»ClK nrvfvi»
öc laiiðilOCl Ul
húsnæðissamvinnufélög eins og
aðrir lántakendur verði að upp-
fylla lánsskilyrðin skv. lögunum
um meðferð þess húsnæðis sem
fjármagnað sé með lánum úr
Byggingarsjóði verkamanna.
Hann telur að ágreiningur um
skilning á c-lið 33. gr. eigi einkum
rætur að rekja til þess að ekki hef-
ur verið greint nægilega á milli
þess hverjir geti fengið lán úr
sjóðnum (sveitarfélög, stofnanir
og félagasamtök) og hvaða skil-
yrði skuli setja fyrir lánveitingum
um not þess húsnæðis sem byggt
er fyrir lánin.
radauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Aðalfundur
Alliance Francaise auglýsir aðalfund sem
haldinn veröur mánudaginn 14. maí kl. 20.30
aö Laufásvegi 2.
Stjórnin.
Verð- og vörustefna
viö frjálsar
markaðsaðstæður
Verslunarráö íslands gengst fyrir námsstefnu
um verö- og vörustefnu viö frjálsar markaðs-
aðstæður, sem haldin veröur í húsakynnum
VÍ, Húsi verslunarinnar 7. hæð, miövikudag-
inn 16. maí nk. kl. 13:15—17:30.
Stjórnendur veröa Árni Árnason, fram-
kvæmdastjóri VÍ og Helgi Baldursson, viö-
skiptafræöingur.
Dagskrá:
13:15—13:45 Verölags- og samkeppnis-
löggjöfin
Hvaö er framundan?
13:45—14:15 Reiknireglur viö verðlagningu
14:15—14:45 Veröstefna sem samkeppnis-
tæki í iönaöi, heildverslun, smásölu.
Verðlagningu eftir aldri vörunnar, eöli
og kaupendahóp.
15:15—15:30
15:30—16:00
16:00—16:30
14.45—15.15 Framlegð, veltuhraöi, arö-
semi.
Kaffi
Afslættir og greiðslukjör
Verölækkun og mismunun í
verðlagningu
16:30—17:00 Vöruþróun, vörudauöi
17:00—17:30 Hvað ber aö varast?
Námstefnan er ætluö stjórnendum fyrirtækja
og þeim sem sjá um stefnumörkun í veröi og
vöruþróun. Þátttaka tilkynnist í síma 83088.
Þátttökugjald er kr. 500.
Q VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Hús verslunarinnar
108 Reykjavik, sími 83088
húsnæöi i boöi
Laugavegur — Til leigu
Á besta stað viö Laugaveginn er nú til leigu
130 fm verslunarhúsnæði. Húsnæöiö er laust
nú þegar.
Upplýsingar veittar í síma 17088 kl. 18—20 í
dag og næstu daga.
Við Laugaveg
Til leigu er verslunarhúsnæöi á mjög góöum
staö viö Laugaveg. Húsnæóið býöur upp á
fjölbreytta möguleika í verslunarrekstri. Til-
boð sendist augl.deild Mbl. fyrir 17. maí nk.
merkt: „L — 3084“.
Nýbýlavegur
Til leigu ca. 50 fm verslunarhúsnæði, tilvaliö
undir videoleigu og fleira.
Tilboö merk: „Nýbýlavegur — 1215“ sendist
Mb. fyrir kl. 18 föstudaginn 11. maí.
Verslunarhúsnæði til leigu
Ca. 45 fm húsnæöi á götuhæð í verslana-
miöstöö í austurborginni er til leigu frá 1.
júní. Gæti hentaö fyrir ýmsar verslanir eöa
þjónustustarfsemi (ekki vídeóleigu). Stórir
sýningargluggar.
Upplýsingar í síma 33645 eöa 31275 frá kl.
9.00—20.00
óskast keypt
Telex óskast
Útflutningsfyrirtæki staðsett í miöbænum
óskar eftir aö kaupa notaö telextæki. Tilboö
vinsamlegast sendist augl.deild Mbl. merkt:
„í — 1257“.