Morgunblaðið - 25.07.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLl 1984
15
Álver við Eyjafjörð
Niðurstöður rannsókna um næstu áramót?
en einnig þarf að nýta eldri athug- steins og flúors í andrúmslofti og
— eftir Þórodd F.
Þóroddsson
í álversumræðum undanfarnar
vikur hefur oft verið fullyrt að
niðurstöður rannsókna á mengun-
arhættu frá álveri við Eyjafjörð
muni liggja fyrir um næstu ára-
mót. Þetta verður að teljast hæpin
fullyrðing.
Rannsóknir á
mengunarhættu
Til þess að kanna dreifingu
mengunarefna í lofti eru gerðar
sérstakar veðurathuganir, auk
þess sem notuð eru eldri veður-
farsgögn.
Hér í Eyjafirði eru þrennskonar
athuganir i gangi.
1. Hitamælingar i Vaðlaheiði og
flugvél.
2. Vindmælir hjá Ytribakka.
3. Athugun á hafgolu, ýmsum
veðurfyrirbærum og dreifingu
mengunarefna frá loðnu- og
síldarbræðslum, með samtölum
við íbúa á svæðinu.
Hitamælarnir eru austan fjarð-
arins um 10—12 km sunnan fyrir-
hugaðrar byggingarlóðar og
vindmælirinn tæplega 3 km norð-
an hennar. Vindmælingar hafa
staðið í 2 ár, hitamælingar á landi
i samfellt 1 ár en mælingar i
flugvélinni eru frá þremur á mán-
uði upp i rúmlega tuttugu á mán-
uði (í 1 ár). Athugun á hafgolu og
dreifingu reyks frá bræðslunum
byggist aðallega á frásögnum
fróðra manna en ekki mældum
gögnum, en hún hefur samt leitt
ýmislegt i ljós sem e.t.v. er ekki
minna marktækt en það sem mælt
er.
I Noregi og Bandarikjunum er
gerð krafa um að veðurathuganir
séu gerðar með sjálfvirkum, sirit-
andi mælum i mastri á fyrirhug-
aðri byggingarlóð iðjuvers, í að
minnsta kosti 1 ár.
Tvö fyrirtæki, NILU i Noregi
(Norska loftgæðarannsóknastofn-
unin) og ERT i Bandarikjunum
(Umhverfisrannsóknir og tækni
hf.) hafa gert tilboð í gerð svokall-
aðrar dreifingarspár mengunar-
efna, vegna fyrirhugaðs álvers við
Eyjafjörð.
Jörgen Schjoldager, starfsmað-
ur NILU sem kom hér til vett-
vangsskoðunar i vor, segir í
skýrslu um sina ferð, að ef reisa
ætti nýtt álver í Noregi við svipaðar
aðstæður og í Eyjafirði, yrðu þar lík-
lega gerðar bsði mælingar með ferl-
unarefnum og veðurathugunar-
mastri í eitt ár. Ferlunarathugun
felst i því að loft er merkt með
efni sem hægt er að greina i mjög
litlu magni. Á þann hátt er hægt
að fylgjast með ferli loftmassa frá
byggingarstað við mismunandi
veðurfarsskilyrði.
í tilboði ERT kemur fram, að á
fyrirliggjandi gögnum verði að-
eins byggðar bráðabirgðatillögur
um stærð verksmiðju sem svæðið
þyldi (miðað við bandaríska
staðla) en jafnframt verði gerðar
tillögur um áframhaldandi veð-
urfarsathuganir og hve lengi þær
þurfi að standa.
Það er mjög eðlilegt að hinir
erlendu aðilar bendi á að veður-
gagna þurfi að afla hér á bygg-
ingarstað, því reiknilíkön þeirra
gera væntanlega ráð fyrir því að
svo sé gert.
Almenningur stendur oft i
þeirri trú að ef mælingum er beitt
þá hljóti fullkomnar niðurstöður
að fást. Allar mælingar á fyrir-
bærum í náttúrunni eru meira og
minna ófullkomnar, oft hafa
margir óskyldir þættir áhrif á
niðurstöður og því ber ekki að
treysta þeim um of. Til þess að
CASTILLO DE Santa Clara
COMPLEJO TURISTICO
C*ul luicu
TAU TTMÍ »C»C
TORREMOLINOS' MALAG*
TO WHOM IT MAY CONCERN
This is to certify that no other Soandinavian TOUR
OPERATOR haa got lov/er prices on oontracts than
UTSYN TRAVEL has in our establishment and with v/hom
we mantein good relationship and-oooperation since
many years ago.
Torremolinos, 16 de Julio de 1984
5NERAL MANAGER
-fMYcíu
'sf/es
u&m.
3/>rx'.-..sm
CsUdUt- y/i ifí</•200
'*■ *■ s... Pímc y-stp
Uooo
60QV
Sólarlandaferðir - Leiðrétting
„Allar mælingar á fyrir-
bærum í náttúrunni eru
meira og minna ófull-
komnar, oft hafa margir
óskyldir þættir áhrif á
niðurstööur, og því ber
ekki að treysta þeim um
of.“
auka marktækni mælinga eru þær
t.d. endurteknar margsinnis, eða
látnar standa yfir í langan tíma.
Einnig er reynt að velja vandlega
mælistaði með tilliti til skekkju-
valda og þess sem byggja á á
niðurstöðunum. Það er sjálfsagt
hægt að áætla ölduhæð á Pollin-
um út frá einum mæli sem væri
fyrir utan Svalbarðseyri, en eðli-
legra væri að mæla hana með 1—2
mælum á Pollinum sjálfum.
Þær veðurathuganir sem hér
eru nú gerðar nýtast væntanlega
allar við gerð dreifingarspárinnar
MEINLEG prentvilla varð í grein
Ingólfs Guðbrandssonar, forstjóra
Útsýnar, í blaðinu í gær. Viðkom-
andi setning á að vera þannig:
„Meðfylgjandi er yfirlýsing frá
forstjóra glæsilegasta hótelsins
íTorremolinos, Santa Clara, þar
anir tl þess að sjá hversu einkenn-
andi mælingarárið júlí 1983 til júli
1984 er fyrir veðurfarið. Ekki hef-
ur komið fram að Veðurstofa Is-
lands hafi gert tillögur um athug-
anir í veðurmastri á byggingarlóð,
þrátt fyrir að erlendis sé lögð mik-
il áhersla á að svo sé gert.
Á fundi (22/6 ’84) samráðshóps
(Staðarvalsnefnd og fulltrúar
heimamanna) sem fjallað hefur
lítillega um dreifingarspána, kom
fram að Staðarvalsnefnd mælti
með að tilboði NILU yrði tekið
m.a. vegna þess að það væri um
800 þús. krónum ódýrara en tilboð
ERT (1200 þús.) og það fé væri
betur komið í framhaldsrann-
sóknum. Þetta má túlka þannig að
Staðarvalsnefnd telji eðlilegt að
gerðar verði frekari veðurathug-
anir, t.d. með mastri á byggingar-
lóð.
Niðurstöður um
næstu áramót
Nú hefur verið tekið tilboði
NILU í gerð dreifingarspárinnar.
I því kemur fram að skekkja í
áætluðu magni mengunarefna
sem falla til jarðar á hverjum stað
verði 10—50%. NILU hefur einnig
verið beðið að gera tillögur og
kostnaðaráætlun um ferlunarat-
hugun og mælingar í veðurmastri
í eitt ár. Um áramót munu einnig
væntanlega liggja fyrir einhverjar
upplýsingar um magn brenni-
gróðri hér um slóðir.
Þetta eru þær niðurstöður sem
væntanlegar eru um næstu áramót
Með vorinu liggja væntanlega
fyrir bráðabirgðaniðurstöður um
áhrif mengunarinnar sem spáin
(með 10—50% skekkju) bendir á
að búast megi við og þá er ekki
seinna vænna að hefja frekari
veðurathuganir á byggingarlóð-
inni, svo marktækari niðurstöður
fáist.
Niðurstöður:
1. Á íslandi á ekki að gera minni
kröfur um rannsóknir vegna
mengunarhættu frá iðjuverum
en gerðar eru í öðrum löndum.
2. Rannsóknir á að gera á þann
hátt sem sérfræðistofnanir
leggja til, ekki síst þær stofn-
anir sem óskað er eftir að dragi
ályktanir af gögnunum og mik-
ilvægar ákvarðanir byggjast
síðan á.
3. Heimamenn (fslendingar —
Eyfirðingar) eiga að gera kröf-
ur um að staðið verði að rann-
sóknum á þann hátt að sem
bestra gagna verði aflað.
4. Frá því að nánari veðurathug-
anir hefjast á Dysnesi, líður
væntanlega um 1 V4 ár þar til
ályktanir hafa verið dregnar af
þeim mælingum.
Þóroddur F. Þóroddsson erjmrð-
fræðingur, búsettur i Akureyri.
Fuglarnir fljúga frækilega
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Stefán J. Fjólan:
Ljóðakorn.
Kostnaöarmaður: höfundur.
Akureyri 1984.
í bókarkynningu má lesa eftirfar-
andi um höfund Ljóðakorna:
„Stefán Jóh. Júlíusson er fædd-
ur árið 1957 og er f Vatnsberanum.
Hann hætti snemma í skóla, en er
byrjaður aftur og farinn að fást
við ljóðagerð. Hann hefur fengist
við margt, en þó aðallega ekki
neitt. Hann er sonur hjónanna
Júlíusar Bogasonar og Iirafnhild-
ar Finnsdóttur og er þetta hans
fyrsta bók.“
Stefán Jóh. Júlíusson kallar sig
semsagt Stefán J. Fjólan og hefur
nú sent frá sér þykka bók með
ljóðum af ýmsu tagi. Það sem ein-
kennir ljóð Stefáns er að þau eru
skorinorð og stundum jafnvel
hrottafengin. Þótt í þeim séu við-
kvæmir strengir er karlmennskan
það sem skiptir máli. Höfundur-
inn segir heiminum til syndanna
og spottar hann á óheflaðan hátt,
en stundum með lfkingamáli sem
vekur eftirtekt. Það er uppruna-
leiki og kraftur f tjáningu Stefáns,
en eins og fleiri á hann margt eftir
ólært ljóðagerð.
Bergið er meðal þeirra ljóða
Stefáns sem eru myndræn og laus
við yfirlýsingar í fútúrískum
anda:
Einmanalegt tré. Fuglarnir fljúga
frækilega í suður til elskunnar
sem bíður. Hrátt bergið stynur.
Þessi blóm sem falla alltof fljótt
þau ættu að skreyta himininn.
Meðan ekkert er að gert við ágengni
[óvinarins
í svanslíki
ézt tréð upp af sorg. Engir skógarþrestir.
Aðeins einstaka neyðaróp útúr berginu.
Stefán kemst stundum hnytti-
lega að orði. Til dæmis í öld þar
sem talað er um að tfminn standi
alltaf kyrr „meðan atburðarásin
hleðst utan á hann/einsog armar
ástsjúkrar skólastúlku/um kaldan
trjábol". Ljóðinu lýkur á eftirfar-
andi setningu: „I dagbók lifsins
verður auða síðan æ flóknari
skáldskapur."
Ljóðakorn Stefáns J. Fjólans,
æði misjöfn að gæðum, eru við-
brögð hans við umhverfinu. Þau
eru einlæg og ekta, minna fremur
á blautan sjóvettling en hina sí-
gildu ljóðaflóru íslands. Hvað ger-
ir það til? Hann syngur með sínu
nefi.
sem hann staðfestir, að engin
ferðaskrifstofa á Norðurlöndum
njóti betri kjara en Útsýn. Verð-
samanburður við samningsverð
Spies fylgir einnig." — Blaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
tfilt þú eignast frá'
bæran kappsiglara?
Verð með seglum
aðeins kr.
85.375.-
Supernova
lengd 4,55
breidd 3,20
fokka 6 fm
stórsegl 12 fm
vegur 91 kg.
Benco
Bolholti 4, Reykjavík
sími 91-21945/84077.