Morgunblaðið - 25.07.1984, Side 28

Morgunblaðið - 25.07.1984, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 27 „ Eg er aö sjá gamlan draum rætast “ Rætt viö Einar Vilhjálmsson spjótkastara „Ég hef eflst með hverri viku sem liöið hefur og er sterkari en nokkru sinni fyrr. Enda hef ég æft geysilega mikið og vel að undan- förnu. En þaö er ekki nægilegt að æfa vel, maöur verður að halda sálarró sinni og vera í andlegu jafnvægi. Það fara stórir dagar í hönd og þeim fylgir mikil andleg sponna og um leið líkamlegt álag. En óg er vongóður og bjart- sýnn, þaö er um aö gera að láta ekki neikvæðar hugsanir ná tök- um á sér,“ sagði Einar Vilhjálms- son spjótkastari sem nú undirbýr sig af miklu kappi fyrir Ólympíu- leikana í Los Angeles er blm. Mbl. spjallaði viö hann á dögun- um. Einar hefur dvaliö í Los Angeles síöustu vikur og dvaliö ásamt fé- lögum sínum þeim Oddi Sigurös- syni, Óskari Jakobssyni og Siguröi Einarssyni viö æfingar og keppni i Kaliforníu. Aö sögn Einars hefur þeim gengiö allt í haginn og fariö vel um þá á heimili Bud Nelsson islandsvinar sem bauö þeim aö dvelja hjá sér þeim aö kostnaöar- lausu. Ég innti Einar eftir því hvernig hann hefði hagað lokaundirbún- ingnum: — Ég hef æft allt öðru vísi en áöur. Þaö er mikill vandi aö æfa þannig aö maöur geti losaö um all- an kraftinn sem í manni býr á rétt- um degi á réttri stund. Þaö er erfitt aö stilla hugann og kraftinn á aö- eins einn dag. Á síöasta keppnis- timabili komst ég á toppinn of snemma og gekk illa aö halda mér þar. — Því setti ég upp sérstaka æf- ingatöflu núna og tók miö af því hvernig gekk á síöasta ári. Ég hef byggt mikiö á eigin reynslu en um leiö á reynslu góöra þjálfara og reyndra íþróttamanna. Þaö er ekk- ert sem kennir mönnum jafnvel og reynslan. — Ég æföi mikiö lyftingar í júní- mánuði og er orðinn vel sterkur. í lok síöustu viku fór ég aö minnka álagið á æfingunum. En júlímánuð- ur fór mikiö í aö æfa útkastiö sjálft og líka ýmis önnur tækniatriöi. Mér hefur til dæmis hætt viö aö kasta spjótinu of hátt. f grein eins og spjóti veröur maöur sífellt og stöö- ugt aö æfa grunnatriöi. — Ég vil bara undirstrika einn hlut, þaö er ekki hægt aö ganga aö neinu vísu í svona keppni. Þaö má ekkert út af bera til þess aö maður kasti ekki 10 til 12 metrum styttra en maöur á best. Þaö þarf allt aö heppnast fullkomlega til þess aö vel gangi. Þetta á ekki aöeins viö um mig heldur alla þá sem keppa í spjótinu. — Keppnisvöllurinn „Los Angel- es Memorial Coliseum" er lokaöur af meö áhorfendapöllum á alla vegu. Þar er því minna uppstreymi og mótvindur en á opnum völlum. Þetta getur gert þaö að verkum aö keppendur kasti ekki eins langt og oft áöur. Eöa ég á ekki von á því. — Þetta veröa mínir fyrstu Ólympíuleikar. Ég er aö sjá gamlan draum rætast aö vera keppandi is- lands á slíkum leikum. Af því er ég stoltur. Ég er búinn aö ganga meö þessa keppni í maganum lengi og nú er bara aö standa sig, sagöi þessi geöþekkl íþróttamaöur sem boriö hefur hróöur íslands víöa og þá sér í iagi í Bandaríkjunum. — ÞR DAGATAL ÓLYMPÍULEIKANNA July August 28 30 1 Mjl 3 §■ 5 ■■ 7 m 9 ■■ 11 ■■ _■———*—m ■————*—■ Setningarhátíð Bogfimi Frjálsar íþróttir Körfuknattleikur Hnefaleikar Kajakróður Hjólreiðar Hestamennska Skylmingar Knattspyrna Fimleikar Handknattleikur Kylfuknattleikur Júdó Nútíma fimmtarþraut Róður Skotfimi Sund Dýfingar Listsund Sundknattleikur Blak Lyftingar Glíma Siglingar Lokaathöfn Kylfuknattleikur Tennis I □□□□ □□□□□ □E3E3E3E3E3E3E3E3E3E3E3E3 BDQOOÐOOQÐBÐ O □□□□□□ □□□□□□ Q DB D DD DBBB D OOOBO OOOOO I OQÐÐQÐ QQ Q QQ BBBBBBQB BBB BDBBBDBDEiDDD □□□□□□□□□□□□□□ QQQQQQQQ DDDD S5SB3E33S353SS ooooooo BBBBBBBB DQDDDDDDDD DD K3IE3IISI oooo ooooo 00000 BB aaaaaaaa DDDDDD Þess ber að geta að tennis og kylfuknattleikur eru sýningargreinar. Kppavogsvöllui Bikarkeppni BREIDABLIK AKRANES í kvöld kl. 19. Kópavogsbúar mætum öll. Hvetjum okkar liö. Útvegsbanki íslands, Kópavogi Banki Kópavogsbúa sntittjukalll Smiöjuvegi 14d. Opið allar nætur STÁUÐJANhf ••MIOIUVUil ■ KOPAVOCV SIM' .1 l.’M BYKO w ISPAN HF. ■ EIN ANGRUN A9GLER ■ AXIS AKI l i V kTi f SS> 'N HUTrf M •NA'. I Hst c iS -.M.t Xil (Vf < .i 2UU K. ■'iS*> ■*)' AJjUO

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.