Morgunblaðið - 02.08.1984, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
59
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
wr/Jsunm’UM-JU
Kirkjukórar hornrek-
ur guðsþjónustunnar
Ingvar Agnarsson skrifar:
„Nýjustu söng- og hljómleika-
hallir íslendinga, og þær eru
margar, eru byggðar með nokkuð
undarlegum hætti: Allt söng- og
hljómlistarfólkið er haft uppi und-
ir þaki á bak við áheyrendur, svo
enginn megi það augum líta.
Hafið þið heyrt aðra eins full-
yrðingu? Þið, sem þessar línur les-
ið, haldið nú e.t.v. að ég fari hér
með staðlausa stafi, en það er öðru
nær, eins og raunar flestir ættu að
vita.
Lítið á allar kirkjurnar, sem
byggðar hafa verið á undanförn-
um árum. Þær eru að vísu guðshús
og reistar í trúarlegum tilgangi
meðal annars. En engu að síður
eru þær einnig og ekki síður must-
eri ræðulistar, sönglistar og tón-
listar, svo sem vera ber. En með
þessu fyrirkomulagi sem neytt er
upp á kirkjugesti, er fyrir því séð,
að áheyrendur geta engan séð,
nema prestinn einan. Hvers á
söfnuðurinn að gjalda? Hví er svo
um hnútana búið, að enginn geti
notið nema til hálfs, þeirrar listar
sem flutt er í þessum veglegu hús-
um?
Allir vita, að fagurra hljóma
getur enginn notið, nema þeir ber-
ist úr réttri átt, þ.e. framan að
áheyrendum. Allir snúa sér í þá
átt, sem hljóðið kemur úr, sé þess
nokkur kostur. Enginn temur sér
að snúa baki í útvarp, sem hlustað
er á og menn snúa ekki bökum
hver í annan þegar þeir tala sam-
an. Neir, þeir snúa hver að öðrum.
Að þessu leyti er eðlilegum lög-
málum tilverunnar snúið öfugt
þegar um kirkur er að ræða, alla-
vega flestar hverjar. Ef einhverj-
um finnst eðlilegt að snúa baki í
flytjendur söng- og hljómlistar,
finnst þá ekki þeim sama að einn-
ig ætti að snúa baki í prestinn,
flytjanda guðsorðsins? Ég sé ekki
mikinn mun á þessu tvennu. í báð-
um tilvikunum er um flutning að
ræða, sem áheyrendur eiga rétt á
að njóta, án óþarfa hindrana.
En hverjir stjórna þessu fárán-
a a«
Það er von bréfritara að er bygging
Hallgrímskirkju lýkur, verði kirkju-
kórnum þar gert hærra undir höfði
en almennt hefur tíðkast í kirkjum
landsins.
lega fyrirkomulagi? Helst dettur
manni í hug að hér komi einkum
tii greina andlegur sljóleiki arki-
tektanna (byggingarlistamann-
anna), sem ekki geri sér grein
fyrir tilgangi þessara húsa, og api
svo hver eftir öðrum sömu vitleys-
una án hugsunar. Ég get varla
ímyndað mér að prestarnir eða
safnaðarstjórnir eigi hér hlut að
máli. Til þess er þeim of kunnugt
álit þeirra sem kirkjurnar sækja.
Einhvers staðar í stjórn eða
skipulagi kirkjubygginga hlýtur
að vera við ramman reip að draga.
Einhverjir andlega steinrunnir yf-
irmenn eða stjórnendur kirkju-
mála, hljóta að vera hér Þrándur i
Götu, fyrir eðlilegum breytingum
til bóta.
Nú er langt komið byggingu
stærsta og veglegasta trúarmust-
erins landsins, Hallgrímskirkju, i
hjarta höfuðborgarinnar. Von mín
er sú, að þar megi ríkja meiri
frelsisandi i staðsetningu kirkju-
kórs en í flestum öðrum kirkjum,
sem risið hafa að undanförnu, svo
allir gestir hennar megi njóta að
fullu þeirrar listar, sem þar verð-
ur flutt i búningi orða, söngs og
tóna, en i öllum þessum greinum
listarinnar er guðsþjónusta fólgin.
Þessum skilningi má ekki
gleyma. Og eitt vil ég benda á að
íokum, atriði sem e.t.v. er hið mik-
ilvægasta: Tilgangur guðsþjón-
ustu er 8amstilling við hinn mikla
mátt, hinn mikla verund alheims-
ins, svo allir komi út úr
helgistaðnum hlaðnir lífsorku,
meiri en er þeir gengu inn.
Því verður að haga svo til í slíku
húsi að boðskapurinn sem þar er
fluttur, nái tilgangi sínum sem
best, verki samstillandi og magn-
andi, hverjir svo sem flytjendurn-
ir eru. En rétt staðsetning þeirra á
áreiðanlega mikilvægan þátt i því
að allir megi vel njóta.
Kirkjukórar skyldu njóta verð-
ugrar sæmdar, en ekki vera horn-
rekur guðsþjónustunnar, svo sem
nú tíðkast.
Flytjum
útimark-
aðinn
7589-8109 skrifar:
„Háttvirtu borgarráðsmenn.
Hvenær ætlið þið að hreinsa til í
Austurstræti? Er ekki mál að
ósómanum linni?
Okkur eldri Reykvíkingum er
mikil raun að því að horfa upp á
niðurlægingu þessarar aðalgötu
borgarinnar. Við leggjum til að
grjótgarðar, bekkir og moldarflag
verði fjarlægt svo og sölutjöld.
Væri ekki skömminni skárra að
flytja útimarkaðinn upp á Arnar-
hólstún og setja gamla söluturninn
þar sem hann var áður, við hornið
á Hverfisgötu og Arnarhóli?
Fyrir nokkrum árum var hreins-
un gerð á Arnarhólstúninu og var
útigangsmönnum meinað að liggja
undir blikkgirðingunni á hólnum,
en nú er öllu liðinu stefnt niður í
mitt Austurstræti og þar liggur
það og flatmagar.
Ég hef oft undrast umburðar-
lyndi það er bankastjórar og
bankaráðsmenn Útvegsbankans
hafa sýnt undanfarin ár, horfandi
á þessa fallegu byggingu niður-
lægða með allskonar druslum
hangandi um allt húsið, að
ógleymdum hávaðanum sem glym-
ur utandyra daglangt.
Takið ykku nú taki og gerið úrbót
á þessari vanvirðu hið bráðasta."
Bréfritari er þeirrar skoðunar að fjarlægja eigi sölutjöldin úr Austurstræti og
flytja þau upp á Arnarhólstún.
53? S\ú6A V/öGA í VLVZ.9AU
Veriö
velkomin.
ópavogsbúaT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
lástur, stripur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum.
Lokað á laugardögum í sumar.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Aðeins
14 sett efftir
og koma ekki aftur
Gættu þess að missa ekki af þessum eftirsóttu
barnasamstæðum, sem eru allt í senn, rúm, hirslur
og klæöaskápar. Verksmiöjan hefur skift um fram-
leiösluvörur og við fáum samstæöurnar ekki meir.
Lengd: 274 cm. Hæö 167 cm. Dýnubreidd 190x75 cm.
Eigum skrifborð í stíl
Aðeins 14.960.-
með dýnum + 3 púðum
K
^ Borgaöu útborgun meö greiölukorti
HISGACNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REVKJAVÍK * 91-41199 oq 81410