Morgunblaðið - 11.08.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984
5
Þýskur vísindamaður:
ísland breikkar
að meðaltali
um 10 sm á ári
— segir þýskur
vísindamaður
Hér á landi er staddur sjö manna
hópur jarðfræðinga frá tækniháskól-
anum í Braunschweig í V-Þýska-
landi. Þeir vinna vid rannsóknir á
Kröflusvæðinu og hafa þær rann-
sóknir staðið yfir í árabil.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hringdi norður og hafði tal af pró-
fessor Reinhard Richter og innti
hann eftir því hvað verið væri að
rannsaka. Hann sagði að rann-
sóknirnar hefðu hafist 1938, en
síðari heimsstyrjöldin hafi bundið
enda á þær. Á miðjum sjöunda
áratugnum voru hafnar rannsókn-
ir að nýju sem stöðugt hefði verið
haldið áfram síðan. Fyrst og
fremst væri verið að rannsaka
Tap á Lista-
hátíð 6 millj.
SAMKVÆMT endurskoðuðu
bráðabirgðauppgjöri, sem lagt var
fyrir fulltrúaráðsfund Listahátíð-
ar í gær, nemur tapið á hátíðinni í
ár um 6 milljónum króna. Bjarni
ólafsson, framkvæmdastjóri
Listahátíðar, sagði í samtali við
Mbl. að þetta endurskoðaða upp-
gjör væri staðfesting á þeim tölum
sem áður hefðu komið fram, þ.e.
5,5 milljón króna tap á Listahátíð
og hálf milljón á Kvikmyndahátíð.
landrekið á þessum slóðum, en
eins og kunnugt er gliðnar landið
stöðugt meira eða minna. Komið
hefur í ljós að á tímabilinu 1975 til
’77 gliðnaði landið hvað mest.
Mælingarnar eru framkvæmdar
með aðstoð Landmælinga íslands
sem annast töku loftmynda, sem
landakort eru unnin eftir. Kortin
eru síðan borin saman og fundið
út að hve miklu leyti ákveðnir við-
miðunarpunktar hafa fjarlægst
hvor annan. Hraði gliðnunarinnar
hefur verið misjafn, allt frá
nokkrum sentimetrum upp í
marga metra. Þ.e.a.s. hraðinn hef-
ur fylgt eldvirkninni á hverjum
tíma. Hægt er að segja að landið
breikki að meðaltali um tíu senti-
metra á ári. Eins og áður sagði
annast Landmælingar Islands
loftmyndatöku. Háskólinn í
Braunschweig gerir kort eftir
loftmyndunum sem koma að góð-
um notum fyrir Landmælingar ís-
lands. Ekki síður koma rann-
sóknaniðurstöðurnar vel að notum
við boranir sem fram fara á
Kröflusvæðinu. Hægt er að kom-
ast að hvar mesta gliðnunin er, og
með tilliti til þess er hægt að finna
út hvar minnst er hætta á að
borholur eyðileggist.
Reinhard Richter sagði að
margir hópar frá mismunandi
löndum væru við rannsóknir af og
til á Kröflusvæðinu, sem lítið
vissu af hvor öðrum. Það sagði
hann mikinn galla og sagði að
koma þyrfti á fót miðstöð sem all-
ar rannsóknaniðurstöður færu til.
22 pundari úr Laxá
í Dölum
í heild hefur veiði gengið
nokkuð vel í Laxá í Dölum í
sumar, í gær voru komnir 614
laxar á land samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. aflaði sér í
veiðihúsinu í Þrándargili. ís-
lendingar voru að veiðum, annar
hópurinn síðan útlendingar luku
þar veiðum, en hópnum hafði
ekki gengið sérlega vel, enda
hafði áin hlaupið í óargafljót í
rigningunum miklu.
Þeim gekk betur, fslendingun-
um sem renndu í ána næstir á
eftir Bretunum, þeir fengu 101
lax á stangirnar 7 á 3 dögum.
Stærsti lax sumarsins veiddist
þá, 22 punda lax, en hann veiddi
aflaklóin Þórarinn Sigþórsson á
maðk í Höskuldsstaðastreng.
Talsvert hefur verið að ganga
upp á síðkastið og síðast veiddist
í ánni lúsugur lax í morgun.
Alltaf þessi eini
í Breiðdalnum ...
Hann lætur bíða lengi eftir
sér, lax númer tvö í Breiðdalsá. í
gær hafði aðeins einn lax verið
færður í veiðibókina á Staðar-
borg, 8 punda fiskur sem veidd-
ist strax í júní.
Það er mönnum hulin ráðgáta
hvers vegna áin hefur hrunið svo
gersamlega, en fá ár eru síðan
hún gaf á fimmta hundrað laxa á
sumri. Sigurður Lárusson á
Gilsá sagði í samtali við Mbl. í
gær, að bændur þar í sveit væru
þeirrar skoðunar að Færeyingar
veiddu mikið af Breiðdalslax-
inum, vissulega gætu náttúru-
legar aðstæður komið til, en það
væri trú þeirra að veiðar Færey-
inga hefðu úrslitaáhrif.
Laugardalsá dauf
Frekar slök veiði hefur verið í
Laugardalsá við ísafjarðardjúp
það sem af er sumri. Hún mun
hafa losað rétt um 100 laxa eftir
því sem veiðimenn sem þar voru
nýlega sögðu. Fylgdi sögunni, að
fremur lítið sæist af laxi og nýr
lax sæist vart. Stærsti laxinn
var rúm 16 pund.
Stórlaxaganga í Álftá
Veiði er enn góð í Álftá á Mýr-
um og þar eru nú komnir um 200
laxar á land, sem telst mjög gott
þó ekki sé það alveg eins gott og
í fyrra. Veiðimenn sem nýlega
voru að veiðum fengu 8 laxa yfir
daginn og var meira en helming-
ur aflans stórlax, 10 til 14,5
punda fiskar með halalús. Sáu
sömu menn mikið af slíkum laxi
víða um ána. Stærsti lax
sumarsins er enn 19,5 punda
fiskur sem veiddist snemma,
hins vegar er meðalþunginn
geysilega góður, eitthvað um 9
pund, og virðast 12 til 14 punda
laxar vera sérlega algengir. Hins
vegar virðist vanta mikið milli-
stærð. Mest hefur veiðst á maðk,
en einstaka menn fá afla sinn á
flugu.
Veiðin eftir góóan dag.
VILHJÁLMSSON hfJFI IIAIT
h
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.
flDDDREGHTA
RÚMCÓÐUR, FRAMHJÓLADRIFINN,
SPARNEYTINN FIAT-CÆDINCUR
Höfum fengiö örfáa bíla
til viöbótar á kynningarveröi.
Tryggðu þér bíl strax — síðasta sending
seldist upp á skömmum tíma.
CÆÐI, ÖRYCCI, CLÆSILEIKI
KYNNINGARVERÐ KR. 329.000,
“ á götuna