Morgunblaðið - 11.08.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984
17
Aftur inn í stofu
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Ríkisútvarpið, leiklistardeild:
K-421 eftir Odd Björnsson.
Leikstjóri: Höfundur.
Leikendur: Rúrik Haraldsson,
Árni Tryggvason, Andrés Sigur-
vinsson, Kristín Kristjánsdóttir og
Auður Guðmundsdóttir.
Tæknimaður: Hreinn Valdimars-
son.
Oddur Björnsson notar Mozart
óspart í leikritum sínum. K-421
dregur nafn af strokkvartett
Mozarts. Það er alltaf gaman að
heyra fallega músík.
I K-421 kynnumst við tveim
skrýtnum köllum, þeim Samúel
og Betúel. Auk þeirra maetir
ungi maðurinn Snúlli og konu-
raddir berast til eyrna.
Leikritið er umræða um
mannleg samskipti og tilraun til
að varpa ljósi á þau. Betúel
hringir dyrabjöllu Samúels og er
boðið inn þótt húsráðandi þekki
hann ekkert. Þeir hafa báðir
slæma reynslu af konum og rifja
upp ýmislegt um þær. Samúel er
reyndar meira fyrir kynbræður
sína. í leikritinu tekur hann upp
á því að deyja, en skömmu áður
hefur Snúlli birst. Samræður
þeirra Betúels og Snúlla eftir að
Samúel er dáinn eru að mestu
endurtekning. Snúlli er bergmál
Samúels, eins konar yngri Sam-
úel.
„Konur eru plága,“ segir Betú-
el. „Ekki segi ég það nú
Oddur Björnsson
kannski," svarar Snúlli. Betúel:
„Ég ekki heldur — þá er allt
komið á bakkann — og við rölt-
um okkur aftur inn í stofu —
hitt er svo annað mál — að það
virðist stundum engin sérstök
þörf fyrir þær.“
Svona eru samræður þessa út-
varpsleikrits Odds Björnssonar.
Leikritið á að sýna fram á
hversdagsleik og það hve lífið er
tilbreytingarsnautt og sífellt
sama tuggan. Það tekst laglega
hjá höfundi, en vakti ekki sér-
staka eftirtekt undirritaðs
hlustanda.
Leikararnir fluttu textann
eins og af gömlum vana. Það var
helst Andrés Sigurvinsson sem
gæddi hann lífi, hinir á stöku
stað.
Gítar-
tón-
leikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Pétur Jónasson var með
þrenna tónleika i Skálholti um
verslunarmannahelgina og lék
verk eftir Eyþór Þorláksson,
Milan, Atla Heimi Sveinsson,
Sanz og Hafliða Hallgrímsson.
Tvö fyrstu verkin eru eftir Ey-
þór og nefnir hann þau Prelúdíu
og Improvisacion I. Þetta eru
geðþekk tónverk, einföld og skýr
og voru fallega leikin. Það er
ávallt mikill þokki yfir leik Pét-
urs, sem kom hvað best fram í
tveimur pavan-dönsum eftir
Milan og í „Preludio o capricho
arpeado" eftir Sanz. Verkin eftir
Atla og Hafliða hefur Pétur ný-
lega flutt og var leikur hans að
þessu sinni mun öruggari og eins
verkin nú lifnuðu í höndum
hans. Vera má að því valdi nokk-
uð að vel gerð verk batna við
endurhlustun. Á þetta þá eink-
um við um verk Hafliða og voru
þrír fyrstu þættirnir — Pro-
logue, Steinar og Svefn — sér-
lega vel leiknir. Það er eins og
losni um smíðatæknina hjá Haf-
liða í tveimur síðustu þáttum
„Jakobsstigans" og í síðasta
þættinum sérstaklega, sem er
eins og röð af „Kadensum". Eins
og fyrr segir er leikur Péturs
þokkafullur og sérkennilega yf-
irvegaður, allt að því alvarlegur.
Á þeim tónleikum sem haldnir
hafa verið í Skálholti nú í sumar
hafa kirkjugestir virt þá ósk að
klappa ekki í kirkjunni og er það
miður. Sú krafa að ekki megi
klappa í kirkjum er i raun ein-
hver miðaldabábilja og setur auk
þess leiðinlegan svip á allt tón-
leikahald. Að klappa er eins kon-
ar afmörkun á framferli tónleik-
anna, þátttaka áheyrenda, er
getur verið örvandi fyrir flytj-
endur. Ef kirkjuyfirvöld vilja
viðhalda einhverri helgistemmn-
ingu í kirkjunum ætti að banna
allt túristaráp og sölumennsku
og ef ekki að banna alit tónleika-
hald, þá að minnsta kosti banna
flutning á veraldlegri tónlist.
Að banna fólki að klappa á
tónleikum er í raun bann við því
að láta í ljós gleði og þakklæti
fyrir góða list. Kirkjan er al-
menningseign og rétt að almenn-
ingur verði látin skera úr um
þetta atriði, svo áheyrendur
þurfi ekki að fara eftir duttlung-
um einstakra presta um það
hvort megi klappa eða ekki.
BRunnBúr
AF ÖRYGGISÁSTÆÐUM
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055
Tryæingakaup eru
í sjálfu sér ekki flókin
- en |k> þarí aðmetamálin rétt
eigi kaupin að vera hagstæð
Með því að sameina í eina vátryggingu ýmsa áhættuþætti í
atvinnurekstrinum, sem áður hafa verið sértryggðir, er hægt að
auka vátryggingarverndina verulega.
Tryggingarráðgjafar okkar aðstoða þig við áhættumatið, svo
að verðmæti þín séu örugglega tryggð á raunvirði.
Samningur þinn og félagsins um samsetta vátryggingu byggist
á vátryggingarþörf þinni, raunréttu áhættumati og hagstæðum
iðgjöldum.
Samsett trygging er hagstæð trygging