Morgunblaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984 9 Basar Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur heldur hinn árlega basar sinn, köku- sölu og flóamarkaö aö Hallveigarstööum í dag laugardag 10. nóvember kl. 14.00. Glæsilegt úrval muna, jólaföndur og skreytingar og aldrei meira úrval af kökum. Kvenfólag Karlakórs Reykjavíkur. STORFLOAMARKAOUR FÉLABS EINSTÆÐRA FORELDRA veröur í Skeljanesi 6, laugardag 10. nóv. og 11. nóv. frá kl. 2 e.h. Athugiö aö leiö 5 stoppar viö húsiö. Úrval hefur aldrei verið magnaöra: fatnaður, á alla og af öllum stæröum og gerðum, aldri og tísku. Sór- stök furöufataslá. Mikiö af barnaúlpum, sérstakir smábarnafatapakkar. Myndar- legir stólar, hjónarúm, sjónvörp, hárþurrk- ur, ritvélar, saumavélar, búöarrúlla ofl.ofl. ofl.ofl. Búsáhöld, gömul og ný, krukkur og kirnur, postulín og leir, tekatlar og krukk- ur, silfurmunir ofl. Sérstaklega mikiö af bútum, gardínum og dúkum. Sértilbod laugard.: tveir skinn-cape. Sértilboð sunnud.: kínverskt silki ofl. Sjáumstl Stjórnin. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar S|álfstæölsflokkslns veröa tll vlötals í Valhöll, Háalelt- isbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á mótl hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfasra sér viötalstíma þessa. i L Laugardaginn 10. nóvember veröa til viötals Ingibjörg Rafnar, k Kolbeinn H. Pálsson og Jóna Gróa Siguröardóttir. Hjörleifur hinum megin viö yztu sjónarrönd Enginn vafi er á því að Sverrir Hermannsson iðnaöarráð- herra og samningamenn hans hafa skilað íslenzku þjóöinni mjög góðum viöaukasamningi viö álveriö, miöaö við allar aöstæöur. Landsvirkjun fær 2.200 milljóna króna tekju- auka í hærra orkuveröi næstu fimm árin. Ríkissjóöur fær þrjár milljónir bandaríkjadala, eöa rúmar hundraö milljónir króna í sáttafé, en gömul deilumál viö álveriö eru látin niður falla. Líkur standa til enn hærra orkuverðs til stækk- unar álversins, sem enn er á samningsstigi. Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi iönaöarráöherra, var sendur af flokki sínum á þing Sameinuöu þjóöanna meö hæfilegum fyrirvara, til aö hafa hann sem lengst í burtu er þetta mál kæmi til umfjöllunar Alþingis. Þetta sýnir að jafnvel Alþýðubandalaginu er ekki alls varnaö! 1.800 milljóna króna tap Sverrir Hermaimsson greindi frá því í umræðu í Alþingi um nýjan viðauka- samning við Ahisuisse að hefði þessi samningur gilt frá árinu 1979 til dagsins í dag verum við fslendingar (Landsvirkjun) 1.800 m.kr. ríkari. Landsvirkjun hafi, eins og fieiri ríkisfyrirtæki, verið rekin með botnlaus- um halla i ríkisstjórnartíð Alþýðubandalagsins, og tapgjáin brúuð með er- lendri skuklasöfnun. Þær erlendu skuldir, sem að meginhluta hefðu saman- safnazt i valdatið Alþýðu- bandalagsins, jafnvel í metafiaári eins og 1981, skerða síðan kaupmátt þjóðartekna á líðandi stund um 12,5%, og eru önnur helzta meginorsök kaupmáttarrýrnunar al- mennra launa í landinu nú. Það er fiestra manna mál að Hjörleifur Gutt- ormsson fýrrverandi iðnað- arráöherra hafi haldið eins illa á samskiptamálum og deilumáhim við Ahisuisse eins og frekast var kostur. Það er útbreidd skoðun að samningar hefðu aldrei tekizt undir forsjá Hjör- leifs, enda er afstaða hans til orkuiðnaðar yfir höfuð þrungin öfgum og kreddu- sjónarmiðum, samanber þau ummæli hans í þing- ræðu að það væri bezti orkukostur þjóðarinnar að loka álverinu í Straumsvík, vinnustað mörg hundruð manna, sem leggur til meir en 12% af útflutningstekj- um þjóðarinnar! Það er meir en skiljan- legt að Aiþýðubandalagið hafi valið Hjörleif Gutt- ormsson til utanfarar yfir Atlantsála, þá nýr samn- ingur við álverið var í sjón- máli á Alþingi. Það hljóm- ar hinsvegar eins og öfug- mælavisa að senda hann í fótspor Leifs hins heppna, jafn óheppinn og hann var f málsmeðferð sinni í álmái- inu, til Vínlands hins góða, beint inn í stórsigur Ron- akls Regan, sem Þjóðvilj- inn telur heldur hæpinn fé- lagsskap. Minna hefði gagn gerL Stykkishólmur hefði nægt! Kvennalistinn — halinn á Alþýðu- bandalaginu Það er segin saga á Al- þingi að Kvennalistinn fylgir Aiþýðubandalagi í af- stöðu, hvert sem máliö er og hvernig sem það ber að. Það eru ekki margar und- antekningar frá þeirri reghi, ef nokkrar. Kvenna- listinn er aftan í Alþýðu- bandaiaginu, skoðanaíega, næstum þvi jafn örugglega og hali fylgir nautpeningi. Þegar nýr álsamningur kom til umræðu á Alþingi í fyrradag var talsmaður Kvennalistans, Sigriður Dúna Kristmundsdóttir, eins og bergmál hins burt- senda Hjörleifs Guttorms- sonar i afstöðu sinni, máski lítið eitt einstreng- ingslegri, ef hægt er. „Kvennalistakonur eru lengra út i eyðimörkinni en nokkurn tíma Aiþýðu- bandalagið," sagði Sverrir Hermannsson, „en þær heyra þó til þeirra, því að allt apa þær eftir þeim og alhaf greiða þær atkvæði eins, þannig að þetta eru skilvisar fylgikonur Al- þýðubandalagisns ... Ég vona að menn snúi ekki út úr þessum orðum mínum, þvi að ég var ekki að taia um lagskonur í þessu sam- bandi." Eiður Guðnason þing- maöur Alþýðufiokks sem gagnrýndi sitt hvað í þess- um samningi, tók engu að síður skýrt fram, að Al- þýðuflokkurinn væri fylgj- andi orkuiðnaði, öfugt við tvíeykið, Alþýðubandalag og Kvennalista. Hann oröaði það svo efnislega, að stóriðja og iðnaður yfir höfuö rúmaðist ekki innan þröngs áhugasviðs Sam- taka um kvennalista, sam- ræmdist ekki þeim „mjúku gildum", sem tíðrædd væru á þeim bæ. Þaö er eðliiegt að konur, sem greiddu Kvennalistan- um atkvæði, en eiga í engu samleið með vinstri sósíal- istum og koramúnistum, sem ráöa ferð i Alþýðu- bandalaginu, spyrji sjálfar sig þeirrar timabæru spurningar, hvort þær vilji áfram styðja Alþýðubanda- lagið — um Kvennalist- ann. Rokkbræður í Klúbbnum Hárgreidslusýn- ing á Hótel Sögu Hárgreiðslusýning verður á Hótel Sögu næstkomandi sunnudag klukk- an 20.30. Þar mun þýski hár- greiðslumeistarinn Peter Gress sýna meðferð hárs og notkun vöru fri fyrirtækinu Hans Schwarzkopf. Ennfremur verður Gress með sýnikennslu fyrir hárgreiðslu- sveina á Hótel Esju, mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Peter Gress UM SÍÐUSTU helgi bauð Klúbbur- inn gestum sínum upp á nýtt skemmtiatriði, Rokkbræður. En það eru þeir Stefán Jónsson, sem áður starfaði f hljómsveitinni Lúdósext- ett, Þorsteinn Eggertsson, sem kall- aður hefur verið hinn íslenski Presley og Garðar Guðmundsson, ís- lenskur Cliff Richard. Þremenningarnir syngja lög frá upphafsárum rokksins. Þeir munu koma fram i Klúbbnum þær helg- ar sem eftir eru í þessum mánuði. Klúbburinn er nú starfræktur á fjórum hæðum. í kjallaranum leikur Sigfús E. á rafmagnspíanó, á tveimur næstu hæðum eru diskótek, en á efstu hæðinni leikur hljómsveitin Babadú. Hana skipa Sigurður Sigurðsson, Hildur Júlí- usdóttir, Rafn Jónsson, Haraldur Þorsteinsson, Styrmir Sigurðsson og Einar B. Bragason (0r frétUtilkynBingu.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.