Morgunblaðið - 10.11.1984, Page 19

Morgunblaðið - 10.11.1984, Page 19
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984 19 Basar Heimaeyj- ar að Hallveig- arstöðum BASAR Kvenfélagsins Heimaeyj- ar verður á morgun, sunnudag 11. nóv., kl. 14 á Hallveigarstöðum. Allur ágóði rennur til góðgerð- arstarfsemi. Listayerkabækur Sölusýning á rússneskum listaverka- bókum dagana 12.-17. nóv. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar Hafnarstræti 4, sími 14281. Einar G. Pétursson og Þór Magnússon þjóðminjavörður. Einar sá um upp- setningu sýningarinnar. Morgunblaðii/Július. Sýning tileinkuð Guðbrandi biskupi Þorlákssyni og bókaútgáfu hans f dag verður opnuð í Bogasal Þjóð- minjasafnsins sýning sem tileinkuð er Guðbrandi biskupi Þorlákssyni og bókaútgáfu hans. Efnt var til sýn- ingarinnar í tilefni af þvi að 400 ár eru liðin frá því að Guðbrandsbiblía var prentuð. Einar G. Pétursson bókavörður í Landsbókasafninu setti upp sýn- inguna og kennir þar margra grasa. Þar eru 18 bækur úr prentsmiðju Guðbrands og tvö aukaeintök biblíunnar, ljósmyndir af titilblöðum tveggja bóka og ein er í uppskrift, Þrjár skjalabækur, sem Guðbrandur hefur skrifað með eigin hendi eða eru nátengdar honum. Einnig eru á sýningunni elstu bækur hérlendis, sálmabæk- ur, bækur eftir Lúther, bók eftir Guðbrand sjálfan, bók sem var að- alheimild Passíusálmanna, Guð- brandsbiblía, Ijósprentanir henn- ar, bækur tengdar bibliunni og loks veraldlegar bækur. Fyrstu prentsmiðjuna flutti Jón Arason biskup hingað til lands um 1530 og eru heimildir um að hann hafi látið prenta tvær bækur. Á sýningunni er sýnt stækkað titil- blað annarrar bókarinnar, „Pass- io, það er píning vors herra Jesu Kristi í sex predikanir útskipt af Antonio Corvino", en hún er prentuð árið 1559 og er elsta bók sem prentuð er á íslandi og er enn varðveitt. Guðbrandur Þorláksson Hóla- biskup stýrði prentverki á árunum 1575—1627 og voru á þeim tíma prentaðar 100 bækur. Varðveittar eru 79 bækur, þar af 52 í Lands- bókasafninu. Guðbrandur virðist hafa verið mjög afkastamikill, því hann er talinn höfundur 11 bóka, sá um útgáfu 12 bóka, þýddi sjálf- ur 40 bækur og skrifaði formála fyrir a.m.k. 33 bækur. Guðbrandur Þorláksson fæddist árið 1542 og lést árið 1627. Hann vígðist biskup á Hólum árið 1571 og gegndi því embætti til dauða- dags eða í 56 ár. Guðbrandur hef- ur verið talinn einn mikilhæfasti biskup í lúterskum sið. Á sýning- unni er kynnt bókaútgáfa hans, kortagerð og smíðar, en ekki sýnt neitt að ráði, sem viðkemur kirkjustjórn hans. AUSTURSTRÆTI 17 STARMÝRI 2 höfum til kl. 13.00 í Austurstræti en til kl. 16 í Starmýri Kynnum SíllÓmi- AÐEINS Lambahry gg^^C .00 pr.kg. Frábært ljúfmeti á Stórfínu verði...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.