Morgunblaðið - 10.11.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
Fékk rjómaís í nesti
Elísabet drottningannóðir var nýlega í Feneyjum og brá sér í gondólasigl-
ingu og fékk drottningarmóóirin rjómaís f nesti frá hugulsömum aó-
dáanda.
Sambúð Sovétríkjanna og Bandaríkjanna:
A fvopnunarviðræð-
ur fyrir áramótin?
Wiahinj{ton, 9. nóvember. AP.
BANDARÍSKA dagblaðið Washington Post greindi frá þvf í dag, að yfirvöld
í Sovétríkjunum hefðu brugðist með jákvæðum hætti við þeim umleitunum
Bandaríkjastjórnar að George Shulz og Andrei Gromyko funduðu og ræddu
afvopnunarmál.
Hafði blaðið tíðindin eftir
ónafngreindum en háttsettum
embættismanni innan bandaríska
utanríkisráðuneytisins og sagði
sá, að síðast fyrir viku hefðu Rúss-
ar aflað sér upplýsinga eftir dipló-
matískum leiðum um það í hverju
slikar viðræður myndu felast.
Embættismaðurinn sagði jafn-
framt, að Ronald Reagan forseti
legði nú mikla áherslu á að fá
háttsetta Rússa til viðræðna um
afvopnunarmál yfirleitt, en ekki
einungis fækkun kjarnorkuvopna.
Sagði hann að stjórnvöld í Wash-
ington hefðu ástæðu til að ætla að
Sovétmenn myndu tjá sig um
þetta mál fyrir árslok. Bætti tíð-
indamaður dagblaðsins við, að
Shultz utanríkisráðherra og ör-
yggismálaráðgjafinn Robert
McFarlane myndu brátt ieggja
fyrir Reagan endurskoðaða
utanríkisstefnu fyrir hið nýja
kjörtímabil. Þar væri rík áhersla
lögð á aukna efnahags- og hernað-
araðstoð til landa þriðja heimsins.
Spánn:
Innanríkisráðherr-
ann ræðir pyntingar
Madrid, 9. nóvember. AP.
INNANRÍKISRÁÐHERRA Spánar, Jose Barrionuevo, mun ávarpa þingið
15. nóvember og ræða um pyntingar. Kemur það í kjölfar þess að mannrétt-
indasamtökin Amnesty International birtu skýrslu, þar sem því er haldið er
fram, að mannréttindabrot viðgangist enn á Spáni, sjö árum eftir að lýðræði
komst á í landinu.
Talsmaður innanríkisráðuneyt-
isins staðfesti, að ræða ráðherrans
stæði í sambandi við áðurnefndar
fullyrðingar, sem fram hefðu
komið í ársskýrslu Amnesty er
birtist 23. október sl. Þar er stað-
hæft, að pyntingum og barsmíðum
sé reglulega beitt við þá, sem
hnepptir eru i varðhald i skjóli
hryðjuverkalaganna, en þau voru
sett árið 1980, þegar stjórn
Miðflokkasambandsins var við
völd. Var lögum þessum aðallega
stefnt gegn baskneskum hryðju-
verkamönnum, en samkvæmt
þeim má lögreglan halda þeim,
sem grunaðir eru um hryðju-
verkastarfsemi, i allt að tiu daga
áður en þeir eru látnir lausir eða
framseldir dómsyfifvöldum. í al-
mennum sakamálum má lögreglan
halda grunuðum í 72 klukkustundi
rán þess að bera fram ákæru á
hendur þeim.
I Amnesty-skýrslunni var því
haldið fram, að þessi langi tími,
sem leyfðist að halda mönnum
föngnum, í skjóli hryðjuverkalag-
anna, auðveldaði beitingu pynt-
inga og misþyrminga.
Vitiö þið hvar mesta og besta úrvalið af
jólastjörnum og nóvemberkaktus er og
veröiö lægst — ef ekki þá vitiö þiö þaö
núna.
óðrastöðin
Valsgarður
'^viö Suöurlandsbraut,
(innkeyrsla úr Skeifunni.)