Morgunblaðið - 10.11.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
23
Dali heim af sjúkrahúsi
Listmálarinn og súrrealistinn Salvador Dali yfirgefur sjúkrahús í Barcelona fyrir skömmu, þar sem hann var til
meöferðar í sex vikur vegna brunasára. Á myndinni eru hjúkrunarkonur að kveðja Dali og einnig skyldmenni,
sem fylgdu Dali til heimilis hans í Figueras á Norðaustur-Spáni.
Svíar og Danir:
Samkomulag um
landhelgislínu
Kaunminnihöfn Q návpmhor AP
Ríkisstjórnir Danmerkur og Sví-
þjóðar hafa komist að samkomulagi
um fiskveiði- og efnahagslögsögu á
hafsvæðunum á milli landanna, eftir
að miklar deilur spruttu upp á síð-
asta ári vegna olíuleitar danskra að-
ila á svæði nokkru í Kattegat.
Samkomulagið er i stórum
dráttum á þá leið að miðlína ráði
og miðist miðlina við jafnvel lítt
byggðar eyjar, hvort heldur þær
tilheyri Danmörku eða Svíþjóð.
Þessi nýja lögsaga nær yfir Katte-
gat og inn eftir Eystrasalti. Að
taka smáeyjar með í reikninginn
var krafa Dana, því deilan spratt
einmitt upp er danskir aðilar bor-
uðu eftir olíu skammt austur af
eyjunni Hasselö. Urðu Svíar þá
bæði móðgaðir og reiðir, því þó
ekkert lægi fyrir að eyjan til-
heyrði Danmörku eða Svíþjóð, þá
fannst þeim að Danir hefðu átt að
ræða málin strax. Nýja samkomu-
lagið kveður á um að umrætt haf-
svæði tilheyri nú danskri lögsögu.
Sérfræðingar segjast ekki undr-
andi á því að samkomulag hafi
tekist svo skjótt og friðsamlega,
því hér hafi ekki einungis verið
um frænd- og vinaþjóðir að ræða,
heldur eru Svíar í samningaþófi
um sams konar lögsögureglur við
Sovétmenn um hafsvæði í Eystra-
Nairobi, Keija, 9. nóvember. AP.
MÖRG dæmi eru um, að hinir
þungbæru þurrkar { Austur-Afríku
hafi leitt til afbrigðilegs atferlis með-
al sveltandi dýra.
Fyrir skömmu réðst bavíana-
hópur á geitahirði með hjörð sina
rétt fyrir utan höfuðborgina,
Nairobi. Tókst honum með erfiðis-
munum að reka þá af höndum sér,
salti. Þyki Svíum gott að hafa for-
dæmi fyrir ýmsum af kröfum sín-
um í þeim viðræðum. Það voru
utanríkisráðherrar landanna,
Uffe Elleman Jensen fyrir Dan-
mörku og Carl De Geer fyrir Svi-
þjóð, sem undirrituðu sáttmálann
fyrir hönd landa sinna.
en gat hins vegar ekkert að gert til
að koma í veg fyrir, að þeir hefðu
á brott með sér 13 geitanna, sem
þeir voru búnir að drepa.
Siðustu vikur hafa fílar, bufflar
og nashyrningar komið hópum
saman heim að bæjum og valdið
stórskemmdum á ökrum og öðru
ræktarlandi.
Sveltandi dýr hegða
sér afbrigðilega
Skiptar skoðanir um
lífslíkur „Baby Fae“
Loma Unda. 9. nóyember. AP. _
SKOÐANIR eru mjög skiptar um
þaö hvort bavíanahjartað í „Baby
Fae“ muni halda lífi í barninu, eða
hvort ónæmiskerfi barnsins muni
hafna hjartanu litla er fram líða
stundir. Þá greinir menn á um
hvort skipta þurfi aftur um hjarta í
Fae og þá um leið hvort ekki sé
borin von að finna hjarta af ná-
kvæmlega réttri stærð.
Mikael Debakey, einn fremsti
hjartaskurðlæknir Bandarikj-
anna, telur að apahjartaígræðsl-
an hafi verið djarfleg og spenn-
andi leið til að halda barninu lif-
andi uns mannshjarta finnst.
Debakey litur á bavianahjartað
sem nokkurs konar „gervihjarta
til bráðabirgða".
William Devries, hjartaskurð-
læknir, sem setti gervihjartað i
Barney Clarke á sínum tíma
sagði: „Ég er ekki bjartsýnn á
árangurinn þó tilraunin sé vissu-
lega spennandi. Ég tel að apa-
hjartað muni ekki halda lífi i
barninu nógu lengi til að útvega
mannshjarta sem hentar. Sá
lærdómur sem við komum til
með að draga af þessu er að
minu viti hvað hægt er að halda
sjúklingum lengi lifandi með
apahjörtum." Annar frægur
hjartaskurðlæknir, John Najari-
an við Minnesota-háskóla, sagði
að uppskurðurinn væri dæmdur
til að mistakast, því ónæmis-
kerfi Fae litlu myndi hafna bavi-
anahjartanu um leið og það færi
að þroskast.
Leonard Bailey, skurðlæknir-
inn sem græddi apahjartað i Fae
segist vona að það muni verða
framtiðarhjarta barnsins, en
ekki „millistig" uns mannshjarta
finnist. Hann segir þó enn frem-
ur að von sé annað en vitneskja
og hann búist frekar við þvi að
ónæmiskerfið muni hafna hjart-
anu og því sé leitað dyrum og
dyngjum að nýju hjarta,
mannshjarta. „En fari svo, þá
var árangurinn þó sá, að Fae
litla fékk svigrúm, hún hefði dá-
ið ef við hefðum ekki grætt i
hana apahjartað." Aðstoðar-
læknar Baileys eru á sama máli.
Af Fae litlu berast hins vegar
þær fregnir, að hún láti engan
bilbug á sér finna og ekki beri
enn á þvi að likaminn vilji ekki
aðskotahjartað.
KRISTINBOÐSDAGURINN1984
Eins og undanfarin ár veröur annar sunnudagur í nóv-
ember (11. nóvember) sérstaklega helgaöur kristniboö-
inu og þess minnst í ýmsum kirkjum og á samkomum á
morgun. Á eftirfarandi samkomum viljum við vekja at-
hygli:
Akranes:
Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K kl. 8.30 e.h.
Meðlimir kristniboðsflokksins Tíunnar lesa úr bréfum frá
kristniboðunum og tala.
Akureyri:
Kristniboössamkoma í kristniboðshúsinu Zíon kl. 8.30
e.h. Skúli Svavarsson og sr. Helgi Hróbjartsson tala.
Kaffisala verður í húsinu frá kl. 3.00 e.h.
Hafnarfjörður:
Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K viö Hverfisgötu
kl. 8.30 e.h. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson talar.
Reykjavík:
Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K viö Amt-
mannsstíg kl. 8.30 e.h. Valdís Magnúsdóttir og sr.
Kjartan Jónsson eru ræðumenn kvöldsins og segja frá
starfinu í máli og myndum.
Á ofangreindum stööum og eins og áður sagöi í ýmsum
kirkjum landsins veröur íslenska kristniboösstarfsins
minnst og gjöfum til þess veitt móttaka. Kristniboösvin-
um og velunnurum eru færöar bestu þakkir fyrir trúfestu
og stuöning viö kristniboðiö á liðnum árum og því
treyst, aö liösinna þeirra bregöist eigi heldur nú.
Samband íslenskra kristniboösfélaga.
Aöalskrifstofa Amtmannsstíg 2B.
Pósthólf 651.
Gíróreikningur 65100-1
Reykjavík.
BOSCH
LJÓSA-
STILLINGATÆKI I
fyrirliggjandi
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍM' 38820
Lærið að fljúga
FLUGKENNSLA — ÚTSÝNISFLUG — LEIGUFLUG
FLUGSKÓLINN H/F
Reykjavíkurflugvelli,
símar 28970 og 14824.
Metsölublaö á hverjum degi!