Morgunblaðið - 10.11.1984, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
25
JjHioírjptímMafoifo
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 300 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö.
„Mjög viðunandi
lausna álmálsins
Gerður hefur verið nýr við-
aukasamningur við Alu-
suisse, sem Alþingi hefur nú til
umfjöllunar. Meginefni samn-
ingsins eru þessi:
• Samið hefur verið um nýtt
orkuverð, á bilinu 12,5 til 18,5
mill í stað 6,5 mill eftir fyrri
samningi. Þessi nýi samningur
gefur Landsvirkjun 2.230 millj-
óna króna tekjuauka á fimm ár-
um. Hefði hann gilt í iðnaðarráð-
herratið Hjörleifs Guttormsson-
ar og til dagsins í dag, hefði
orkuverð sveiflast milli 12,5 og
16,5 Bandaríkjamilla. Þá væri
Landsvirkjun 1.800 milljón krón-
um betur sett í dag, að mati
Sverris Hermannssonar iðnaðar-
ráðherra. Orkuverð er að hluta
til tengt álverði, þann veg að
hækki heimsverð á áli hækkar
orkuverð. Ákvæði er í samningn-
um um endurskoðun orkuverðs á
fimm ára fresti.
• Ríkisstjórnin leysir Alusuisse
og ÍSAL undan öllum kröfum
vegna liðins tíma en ÍSAL greið-
ir ríkisstjórninni þrjár milljónir
Bandaríkjadala í sáttafé.
• Eftir er að semja um stækkun
álversins og verð þeirrar við-
bótarorku, sem hún krefst.
Það vakti sérstaka athygli er
frumvarp til staðfestingar á
þessum samningi kom til fyrstu
umræðu að iðnaðarráðherra las
upp tvö bréf frá sérhæfðum um-
sagnaraðilum, sem Hjörleifur
Guttormsson, fyrrverandi iðnað-
arráðherra, hafði ráðið til ráð-
gjafar í samskiptamálum ríkis-
ins og Alusuisse, forstjóra enska
endurskoðunarfyrirtækisins
Coopers & Lybrand og bandar-
ískum ráðgjafarlögfræðingi.
Breska endurskoðunarskrifstof-
an varar sérstaklega við gerðar-
dómsmeðferðinni, sem Hjörleif-
ur valdi, og telur hana hafa
„alvarlega ókosti í för með sér“
og bandaríski ráðgjafinn telur
þriggja milljóna dala sáttafé
„vera mjög viðunandi lok skatta-
deilunnar" og „vafasamt að ríkis-
stjómin gæti vænst betri árang-
urs“ með málarekstri, sem dreg-
ist gat von úr viti og seinkað
heildarlausn og nauðsynlegri
hækkun orkuverðs.
Það kemur fram í umsögn for-
sjármanna Landsvirkjunar, sem
frumvarpinu fylgir, að meðal-
orkuverð til álvera í Evrópu er
nú á bilinu 14—15 Bandaríkja-
mill á kWst og að í Noregi er það
nú um og innan við 9 Bandaríkja-
mill. Verð til orkuvera í N-Amer-
íku er allnokkru hærra, en þar
hafa „nokkur helstu raforkufyr-
irtæki boðið upp á verulega verð-
lækkun raforku, tímabundið,
meðal áliðnaðurinn er i þeirru
kreppu sem nú stendur yfir“, seg-
ir forstjóri Landsvirkjunar í um-
sögn sinni. Forstjórinn telur „að
samkomulag það, sem lögð hafa
verið drög að um breytingu á
rafmagnssamningi Landsvirkj-
unar og ÍSAL, sé Landsvirkjun
mjög í vil og fyrirtækinu mjög til
hagsbóta".
Það kom fram í máli iðnaðar-
ráðherra, er hann svaraði gagn-
rýni á samningsdrögin, að mál-
svarar Alþýðubandalags hefðu
ekki alls fyrir löngu lagt fram
þingmál um einhliða hækkun
orkuverðs til ÍSAL upp í 12,5 mill
að lágmarki. Þessi hækkun, og
gott betur, liggi nú fyrir í gerð-
um samningum milli aðila. Mið-
að við að þessi samningur hefði
getað gilt frá 1979 hafi þjóðin
tapað 1.800 m.kr. — og eðlilegum
vöxtum á þá fjárhæð að auki.
Það væri því hár reikningur sem
íslenskur almenningur ætti
ósendan Alþýðubandalaginu.
Unga fólkið og
húsnæðislánin
Ifjármálaráðherratíð Ragnars
Arnalds, fyrverandi for-
manns Alþýðubandalagsins, og
húsnæðismálaráðherratíð Svav-
ars Gestssonar, formanns Al-
þýðubandalagsins, var bygg-
ingarsjóður, eða hið almenna
húsnæðislánakerfi, svipt helsta
tekjustofni sínum, launaskattin-
um, og sett á vonarpening fjár-
laga hverju sinni. Síðan hefur
húsnæðislánakerfið naumast
haft burði til að gegna hlutverki
sínu sem vert væri.
Mikill fjöldi einstaklinga hefur
á næstliðnum misserum lagt í
það stórvirki að reisa sér og sín-
um þak yfir höfuð, í góðri trú á
það, að húsnæðislán fengjust á
eðlilegum tíma, miðað við lög,
reglur og byggingarstig húsnæð-
is. Þetta hefur ekki gengið eftir
hvað alla varðar, vegna pen-
ingaskorts byggingarsjóðs.
Það er mjög mikilvægt að
virkja framtal einstaklinganna
með þeim hætti, sem gert hefur
verið, til að tryggja nægjanlegt
húsnæðisframboð. Mikil eftir-
spurn húsnæðis umfram fram-
boð sprengir upp íbúðaverð, bæði
í sölu og leigu, og bitnar harðast
á þeim sem síst skyldi.
Það er réttlætanlegt á þreng-
ingartímum, ef kunngert er
fyrirfram, að draga úr húsnæð-
islánum. Það er hinsvegar ekki
verjandi að bregðast ungu fólki,
sem í góðri trú ræðst í fram-
kvæmdir, og valda þann veg
vandræðum, sem geta haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar. Stjórn-
völd mega ekki orsaka trúnaðar-
brest milli sín og (slenskrar
æsku.
Lækkun flutningsgjalda:
Hagræðing í rekstri og efna-
hagslegt jafnvægi ráða mestu
— segir Hörður
Sigurgestsson,
forstjóri Eim-
skipafélagsins
Skipafélögin hafa lækkað flutn-
ingsgjöld sín verulega á síðustu
mánuðum í kjölfar harðnandi sam-
keppni og aukinna útboða á flutn-
ingum.
Margir spyrja: Hvernig geta
skipafélögin lækkað flutningsgjöld
sín svo mjög? Hafa þau áður tekið
óhóflegan hagnað á þessum flutn-
ingum? Blm. Morgunblaðiðs hefur
átt samtal við Hörð Sigurgestsson,
forstjóra Eimskipafélags fslands,
um þessi mál og rekstur Eimskipa-
félagsins nú.
— Við skiluðum viðunandi
hagnaði í rekstri félagsins á ár-
inu 1983 og nokkrum hagnaði á
árinu 1982, segir Hörður Sigur-
gestsson. í fjögur ár þar á undan
var þetta fyrirtæki rekið með
tapi. Nokkrir aðilar annast
flutninga hér, bæði í áætlana-
siglingum og í stórflutningum,
þannig að enginn einn aðili getur
ráðið flutningsgjöldum.
— Hvernig getur Eimskipafélagið
lækkað flutningsgjöld um
20—30% á þessu ári?
— Við höfum lækkað flutn-
ingsgjöld svo mjög vegna þess,
að hagræðing í rekstri fyrirtæk-
isins er byrjuð að skila sér. Við
höfum unnið að endurskipulagn-
ingu skipaflotans á undanförn-
um árum og tekið upp nýja
flutningatækni, þ.e. gámaflutn-
inga. Við erum með skip, sem
eru betur búin til þess að annast
þessi verkefni nú en áður.
Markmið okkar hefur verið að
lækka kostnaðinn við flutninga-
þjónustuna. Þetta höfum við
gert með því að stækka eining-
arnar. Þar sem við áður notuð-
um fimm skip erum við í dag
með tvö skip. Okkur er fulljóst,
að þessi kostnaður verður að
vera eðlilegur, ef við eigum að
standast samkeppni í flutning-
um.
Þessi þróun hefur orðið í skip-
aflutningum yfirleitt. Stærri
skip hafa komið til sögunnar,
sem ráða framþróuninni. Sem
dæmi um þetta má nefna, að í
fyrsta skipti í sögunni eru nú í
gangi áætlunarsiglingar í kring-
um hnöttinn með skipun, sem
taka þrjú til fjögur þúsund
gáma.
— Hvað hafa flutningsgjöldin
lækkað mikið?
— Á stykkjavöru hafa þau
lækkað í erlendri mynt yfir 20%
á síðustu 12—14 mánuðum og þá
tel ég með þá 7% lækkun sem
Eimskipafélagið tók ákvörðun
um í desembermánuði sl. Þessi
þróun í flutningsgjöldum sýnir,
að samkeppnin hér er mjög virk.
í stórflutningum hafa flutn-
ingsgjöldin einnig lækkað miðað
við dollar, þó að það sé alltaf
meiri sveifla í þeim en í flutningi
á stykkjavörum. Það er hagræð-
ing í rekstri og efnahagslegt
jafnvægi, sem hefur ríkt hér frá
miðju ári 1983, sem hefur gert
okkur kleift að lækka flutn-
ingsgjöldin, svo og lækkað verð
leiguskipa á hinum almenna
markaði.
— Er rekstur Eimskipafélags-
ins arðbær eftir þessar lækkanir?
— Við eigum eftir að sjá fyrir
endann á því. Fyrri hluta ársins
var rekstrarafkoman viðunandi.
Við höfum hins vegar rekið
fyrirtækið með tapi síðustu þrjá
mánuði. Það er of snemmt að
segja til um hver endanleg út-
koma verður á þessu ári.
— Er taprekstur síðustu þriggja
mánaða vísbending um að aðflutn-
ingsgjöldin séu orðin of lág?
— Það gæti verið en sveiflur í
gengi og mismunandi nýting á
skipum eftir árstímum eiga hér
einnig hlut að máli. Með sama
áframhaldi er ekki grundvöllur
fyrir þessum rekstri með viðun-
andi afkomu.
— Er samkeppnin í skipaflutn-
ingum hér komin út í öfgar?
— Ég get ekkert fullyrt um
það. Það hafa alltaf verið veru-
legar sveiflur í afkomu sigling-
anna. Markaðurinn þarf að leita
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skipafélags íslands.
að nýju jafnvægi og það er of
snemmt að segja til um hvar
þetta endar.
— Eimskipafélagið hefur lagt út
í miklar fjárfestingar og endurnýj-
un á skipum og tækjum á undan-
förnum árum.
— Við höfum lagt áherzlu á
að koma okkur vel fyrir í Sunda-
höfn. Við höfum keypt skip en
einnig fengið ný skip á kaup-
leigusamningum svo og skip á
þurrleigu. Við höfum ekki haft
bolmagn til að endurnýja skipa-
flotann með kaupum einum og
höfum því farið þessa leið til
þess að flýta fyrir tækniþróun.
Islenzk lög eru þannig, að skip
þarf að vera 60% i eigu íslenzkra
aðila til þess að hægt sé að skrá
það hér. Við höfum óskað eftir
því við Matthías Bjarnason,
samgönguráðherra, að lögum
verði breytt til þess að íslenzk
útgerðarfyrirtæki geti tekið á
þurrleigu skip í erlendri eigu og
skráð þau á fslandi með íslenzk-
um áhöfnum. Þetta mundi einn-
ig opna nýja möguleika í sam-
bandi við útgerð fiskiskipa án
fjárfestinga.
Við höfum lokið við endurnýj-
un skipastóls á öllum áætlunar-
leiðum. í dag erum við með í
rekstri nútímaleg skip sem
byggja á nýrri flutningatækni.
Við rekum í dag að jafnaði 20
skip. Við eigum þrettán skip, en
leigjum með mismunandi hætti.
Þegar mest var áttum við 26
skip. Við höfum selt 13 og 2 hafa
farizt. Við flytjum nú samtals
með 20 skipum það sem áður var
flutt með 26—28 skipum og í
þessu felst auðvitað mikil hag-
kvæmni.
— Er eitthvað af skipum á sölu-
skrá?
— Við höldum áfram að
endurnýja skipastólinn og selja
gömul skip. Meðalaldur eigin
skipa er um 12 ár. írafoss, Mána-
foss og Dettifoss eru í sölu.
— Hefur þessi fækkun skipa í
rekstri þýtt fækkun á mannafla?
— Starfsmönnum Eimskipa-
félagsins hefur fækkað um 300
manns á nokkrum árum. í dag
eru í okkar þjónustu um 670
manns.
Önnur fjárfesting, sem við
höfum lagt í, er vöruafgreiðsla í
Sundahöfn. Þar höfum við reynt
að koma fyrir eins mikilli hag-
kvæmni og kostur er. Þar er nú
mjög góð aðstaða, sem er sam-
bærileg við það sem bezt gerist
erlendis í tækni og öllu fyrir-
komulagi. Við höfum einnig fjár-
fest í tækjabúnaði, sem tengist
gámavæðingunni. Henni er lokið
í áætlanasiglingum og nýjasta
tækið i því sambandið er gáma-
krani. Hann eykur afköst við
lestun og losun skipa og gefur
möguleika á að koma við stór-
virkari tækjum. Hann lyftir yfir
30 tonnum og afkastar 25—30
gámum á klukkustund. Gáma-
kraninn er framleiddur á Spáni
og var reistur undir umsjón
Spánverja og af Stáliðjunni. Við
höfum átt mjög ánægjulegt sam-
starf við spænskt fyrirtæki um
þessa framkvæmd.
í framhaldi af þessum breyt-
ingum stefnum við að því að
ljúka endurnýjun á skipakosti
okkar til stórflutninga.
— Hvernig er háttað samstarfi
Eimskipafélagsins við Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna?
— Frystiflutningar fyrir
Sölumiðstöðina er stór þáttur í
flutningum Eimskipafélagsins.
Við höfum unnið að því undan-
farin tvö til þrjú ár að endur-
skipuleggja þá flutninga í sam-
starfi við Sölumiðstöðina. Að
nokkru leyti er þessi endurskipu-
lagning komin til framkvæmda
en að öðru leyti erum við tilbún-
ir til þess að koma þarna á
breytingu. Til þess að sinna
þessum flutningum betur höfum
við byggt 1.300 tonna frysti-
geymslu í Sundahöfn og höfum
útbúið okkar skip til pallaflutn-
inga. Við höfum fest kaup á
fleiri frystigámum vegna þess-
ara flutninga. Frystigámur er
sölutæki í höndum framleiðanda
og seljanda. Við erum reiðubúnir
til þess að keppa við aðra um
þessa flutninga.
— Þið hafið einnig haflzt handa
um flutninga yflr Atlantshaf milli
Kandaríkjanna og Evrópu.
— Við erum byrjaðir á því að
feta okkur áfram á þeim slóðum.
Við byrjuðum á því í lok síðast-
liðins árs og leggjum á þetta
vaxandi áherzlu. Líklega leggja
þessir flutningar okkur til um
4—5% af heildartekjum Eim-
skipafélagsins á þessu ári. í
september voru 13% af tekjum
Eimskipafélagsins af þessum
flutningum.
Það sem skapar möguleika til
þess að gera þetta nú er það, að
flutningsgjöldin hafa hækkað
erlendis og að við höfum skip,
sem henta til gámaflutninga og
opna ýmsa nýja möguleika. Við
erum með þrjú skip í þessum
flutningum. Þau geta flutt um 10
þúsund gáma á ári, þ.m.t. til og
frá Islandi.
— Eru þessir flutningar arð-
bærir?
— í dag skila þeir jákvæðri
útkomu en markaður sem þessi
er mjög viðkvæmur og það verða
fljótt miklar sveiflur á honum.
Þessir flutningar hafa m.a. orðið
til vegna gífurlegrar aukningar
á flutningum frá Evrópu til
Bandaríkjanna vegna hás gengis
dollarans og eru þess vegna aðal-
lega í aðra áttina, sagði Hörður
Sigurgestsson að lokum.
Hækkanir til sjómanna verði
samhliða öðrum hækkunum
— segir Halldór Ásgrímsson um kjaramál sjómanna
„AÐ mati Þjóðhagsstofnunar hafa
almenn kjör sjómanna haldizt f
hendur við kjör annarra stétta fram
að nýgerðum kjarasamningum.
Þetta er hins vegar misjafnt. Nú
hafa stærstu stéttarfélög landsins
samið um kaup og kjör, en málum er
hins vegar þannig hittað að almennt
flskverð gildir til næstu áramóta. Sú
þróun, sem hefur átt sér stað var
ekki séð fyrir á síðastliðnu vori og
því er eðlilegt að næstu daga verði
leið fundin til að hækkanir til sjó-
manna verði sem mest samhliða öðr-
um hækkunum í landinu,“ sagði
sjávarútvegsráðherra, Halldór As-
grímsson, meðal annars íávarpi sínu
við setningu þings Sjómannasam-
bands íslands.
Þá sagði Halldór:
„Fiskveiðistefna næsta árs verð-
ur mikilvægt umræðuefni á þingi
ykkar. Að sjálfsögðu má haga
henni með ýmsum hætti en við
verðum að miða hana við það að
hún þjóni sem best heildarhagsm-
unum sjómannastéttarinnar, sjáv-
arútvegsins og þjóðarinnar i heild.
Það er ekki hagsmunamál sjó-
manna að taka of mikla áhættu í
umgengni við stofnana. Meðan í
öldudalnum er siglt er mikilvægt
að dreifa aflanum með réttlátum
hætti milli skipanna og þótt sam-
keppnin hafi ávallt verið aðals-
merki sjósóknar á íslandi eru
takmörk fyrir því þegar lítið er til
skipta hvað þolanlegt er að einn
afli mikið á kostnað annars.
Kjaramál sjómanna verða ef-
laust eitt af stórmálum þessa
þings. Kaup og kjör til sjós verða
að vera góð svo ekki tapist góðir
menn í land. Það er jafn mikil þörf
nú og jafnan áður að halda góðum
mönnum. Það er ekki nóg að eiga
góðan fiskiskipaflota og gjöful
fiskimið ef mannskapinn vantar.
Við höfum reynt erfiðleika í þessu
efni. Margir muna vandræðin við
að manna gömlu síðutogarana á
síldarárunum þegar oft þurfti að
sigla milli hafna og skrapa saman
í áhöfn áður en hægt var að hefja
veiðiferðina. Slíkt ástand er mjög
hættulegt. Það er hinsvegar erfitt
að verja kjörin á tímum afla-
samdráttar og söluerfiðleika á
fiskmörkuðum okkar. Það hefur
þó verið reynt eftir megni.“
Frumvarp um stjórnun fiskveiða
lagt fram á Alþingi
— frumvarpið mætir andstöðu á Fiskiþingi
Halldór
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um breytingu á lög-
um um veiðar í fiskveiðilandhelgi ís-
lands. Frumvarp þetta, sem fjallar
um stjórnun fiskveiða, er að mestu
byggt á frumvarpi sama efnis, sem
gildir til næstu áramóta. Helztu
breytingar frá gildandi frumvarpi
eru þær, að gildistími þessa skal
vera þrjú ár í stað eins.
1 frumvarpinu felast ýmiss kon-
ar heimildir til handa sjávarút-
vegsráðherra við stjórnun fisk-
veiða eins og er I núgildandi frum-
varpi. Frumvarp þetta hefur mætt
nokkuri andstöðu á yfirstandandi
Fiskiþingi. Þar var í gær sam-
þykkt ályktun frá hluta sjávarút-
vegsnefndar, þar sem mótmælt er
eindregið ýmsum ákvæðum frum-
varpsins. Flutningsmaður er
Ágúst Einarsson. í ályktuninni er
meðal annars harðlega mótmælt
gildistíma frumvarpsins til
þriggja ára og talið eðlilegt að
hann verði aðeins eitt ár. Þá er
þar mótmælt heimild til handa
ráðherra til að úthluta aflamarki
til vinnslustöðva; að ákveða skipt-
ingu hámarksafla milli veiðar-
færa; að heimila framasal afla-
marks og sóknardaga. Þá er í
ályktuninni lýst andstöðu við
framsal á sóknardögum og vænzt
strangra og sanngjarnra reglna
um framsal aflamarks.
w
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GORDON BROOK-SHEPHERD
Getur Rajiv Gandhi
reitt sig á herinn?
Það er herinn, sem haldið hefur reikulum feiknarfjölda 730 milljóna
Indverja saman sem einu ríki undanfarna daga. En í hvert sinn sem
indverskir hermenn halda aftur til búða sinna og hershöfðingjarnir brjóta
saman landakortið, vaknar þessi spurning: Á sá dagur eftir að koma, er
herinn tekur sjálfur að sér stjórn landsins í stað þess að halda því saman
í þágu þrasgjarnra stjórnmálamanna? Svarið er alltaf á sama veg. Nei.
Indverski herinn hefur alltaf haldið þeirri hefð og á eftir að gera það
einnig í framtíðinni að skipta sér ekki af stjórnmálum. Þetta er í rauninni
einstætt, að því er varðar fyrrverandi nýlendu Breta.
Iindverska hernum eru nú um
950.000 manns og er þeim
skipt í 29 herfylki, sem lúta
stjórn fimm hershöfðingja, en
landinu er að því er snertir her-
inn skipt í fimm hersvæði. Enda
þótt síkhar séu minna en 2% af
öllum íbúum Indlands, þá eru
þeir hlutfallslega miklu fleiri
innan indverska hersins. Þar eru
þeir um 100.000 eða um 10% af
öllum mannaflanum og á meðal
yfirmanna í hernum eru þeir
hlutfallslega enn fleiri. Sums
staðar eru meiri en 20% af öllum
foringjum í hernum síkhar.
Tveir af æðstu hershöfðingjum
hersins, þeir Bhupinder Singh og
T.S. Orberoi, eru síkhar. Þeir
hafa um nokkurt skeið haft
augastað á stöðu sjálfs yfir-
manns herráðsins. í rauninni má
halda því fram, að æðsti yfir-
maður hersins sé síkhi, því að
Giani Zail Singh forseti Ind-
lands er sjálfur síkhi og hann er
að formi til æðsti yfirmaður'
hersins.
Vaxandi tortryggni
Hér verður samt strax að gera
mikinn greinarmun. Telja má
víst að sjálfsögðu, að hvorki for-
setinn né mikill meirihluti yfir-
manna úr röðum síkha innan
hersins séu aðskilnaðarsinnar
með þeim hætti, að þeir séu
hlynntir sjálfstæðu ríki síkha í
Khalistan. Slíkt riki er hins veg-
ar óskadraumur hinna róttækari
öfgamanna í röðum síkha. En
engu að síður halda foringjarnir
áfram að vera síkhar. Eftir at-
burði síðustu viku er varla unnt
að álasa nokkrum yfirmanni úr
röðum hindúa, þótt hann líti
nokkrum tortryggnisaugum á
aðstoðarforingja sinn, ef sá hinn
sami er úr hópi síkha.
Þegar öllu er á botninn hvolft
og þrátt fyrir tryggð síkha sem
hermanna yfirleitt, þá voru þeir
menn síkhar, sem réðu frú
Gandhi bana. Þar að auki voru
þeir úr hópi lifvarða hennar og
þangað áttu aðeins að vera vald-
ir úrvalsmenn.
Sannanir eru vissulega fyrir
hendi um, að hermenn úr hópi
síkha hafi verið kallaðir úr
fremstu víglínu gegn Pakistan í
Jammu og Kashmir og síðan
fluttir til Suður-Indlands vegna
efasemda um hlýðni þeirra og
tryggð.
Sú tortryggni, sem vart hefur
orðið gagnvart síkhum eftir
morðið á frú Gandhi, hlýtur að
hafa áhrif innan indverska hers-
ins alveg eins og hún hefur haft
áhrif á indversku þjóðina í heild.
En einmitt af þeim sökum má
gera ráð fyrir því, að síkhar eigi
eftir að gera hernum erfiðara
fyrir, ef hann hyggst grípa til
Rajiv Gandhi, sem tekið hefur við
embætti forsætisráðherra Ind-
lands eftir lát móður sinnar.
skipulegra og samræmdra að-
gerða til þess að hrifsa til sín
völdin í landinu.
Indland of víðlent
Þegar þessi spurning um
hugsanlegt valdarán hersins er
lögð fyrir yfirmenn í hernum,
kemur oft í ljós, að þeir hafa velt
henni fyrir sér, að minnsta kosti
sem fræðilegum möguleika. En
svarið er yfirleitt á einn veg.
Indland er allt of víðlent land til
þess að unnt sé aö taka þar öll
völd með herbyltingu. Landið er
líka allt of klofið I einstök svæði
og héruð, til þess að slík valda-
taka hersins gæti orðið varanleg.
Ef herinn gerði tilraun til valda-
töku, yrði það sennilega ekki til
þess að auka eininguna innan-
lands, heldur til þess að kljúfa
landið í marga hluta fyrir fullt
og allt.
Sú skoðun er samt útbreidd i
indverska hernum, að sú frænd-
semishyggja, getuleysi og spill-
ing, sem er í stjórnmálum lands-
ins, verði ekki liðin miklu lengur.
Rajiv, sonur Indiru Gandhi, á
því sem forsætisráðherra eftir
að mæta sömu óleystu vanda-
málunum og móðir hans gerði.
Ef hann veldur vonbrigðum sém
leiðtogi, má allt eins gera ráð
fyrir, að indverski herinn horfi
ekki á aðgerðalaus, heldur láti
stjórn landsins til sín taka í
miklu ríkara mæli en áður. Það
væri blátt áfram heimskulegt að
halda áfram að endurtaka l(kt
og páfagaukur, að slíkt geti
„aldrei" gerzt.
Gordon Brook-Shepard er blaða-
maður rið Tbe Sundar Telegrapb í
London. Grein þessi er birt aðeins
stjtL
Frá Kalkútta. Þar kom til mikilla óeirða í kjölfar morðsins á frú Indirn
Gandhi forsætisráðherra og varð að kalla út fjölmennt herlið til þess að
stilla til friðar. Á Indlandi rfkir nú mikill ótti við stjórnleysi og upplausn
eftir morðið á frú Gandhi og þá er spurt: Hvernig bregst herinn við?