Morgunblaðið - 10.01.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1985
35
Formaður Stýrimannafélags íslands:
Fær ekki leyfi hjá Sam-
bandinu til að taka þátt
í samningagerð
— Maðurinn bað ekki um frí, segir starfs-
mannastjóri Skipadeildarinnar
„MÉR finnst það hreinlega fráleitt,
að Skipadeild Sambandsins skuli
ekki hafa veitt formanni Stýrimanna-
félags fslands leyfi frá störfum til að
taka þátt í samningagerð. Bteði Stýri-
mannafélagið og forseti Farmanna-
og fiskimannasambandsins óskuðu
eftir því, en leyfið fékkst ekki,“ sagði
Guðlaugur Gíslason, starfsmaður
Stýrimannafélagsins í samtali við
Morgunblaðið.
Morgunblaðið bar þetta undir
Óskar Einarsson, starfsmanna-
stjóra Skipadeildarinnar. Hann
sagði það rétt, að hann hefði synjað
þessum aðilum um leyfi fyrir for-
mann Stýrimannafélagsins, Ara
Leifsson. Það hefði hann gert á
þeim forsendum, að ekki hefði
reynzt unnt að fá mann til að leysa
hann af sem skipstjóra. Auk þess
hefði Ari sjálfur ekki beðið um
leyfi og jafnvel lýst því yfir í sam-
tali við sig, að hann vildi heldur
fara þennan túr.
Guðlaugur Gíslason sagði þessi
ummæli fráleit. Hann vissi ekki
betur en Ari hefði beðið um frí er
hann kom til landsins þriðja dag
jóla. Auk þess væri það hagsmuna-
mál félagsins, að formaðurinn tæki
þátt í samningagerðinni og því ætti
það ekki við rök að styðjast að
neita leyfinu. Hann sagðist enn-
fremur draga það í efa, að ekki
hefði fengizt afleysingarmaður
INNLEN-T
fyrir Ara. Skipadeildin ætti marga
hæfa skipstjórnarmenn, sem hefðu
getað leyst hann af. Það virtist sem
Skipadeildin væri með þessu, að
reyna að hafa áhrif á kjarabaráttu
yfirmanna á kaupskipunum. Það
væri ætlazt til þess í vinnulöggjöf-
inni, að trúnaðarmenn á vinnustað
fengju svigrúm til að sinna félags-
störfum. í Stýrimannafélaginum
væru engir trúnaðarmenn, þar sem
oftast væru aðeins tveir félagar um
borð í hverju skipi. Því hlyti þetta
ákvæði að minnsta kosti að gilda
um formann félagsins.
Skákmót í Hamar:
Andri Ass og
Snorri Bergs-
son í 3.-5. sæti
ANDRI Ass Grétarsson og Snorri
Bergsson höfnuðu í 3—5. sæti á al-
þjóðlegu unglingaskákmóti í Haraar í
Noregi, sem lauk fyrir skömmu. Þeir
hlutu 6 vinninga í 9 umferðum. Sigur-
vegarar urðu S. Larsen frá Danmörku
og Peelen, Hollandi með 6'/> vinning.
Tómas Björnsson var einnig meðal
keppenda og hlaut 5 vinninga.
30 keppendur frá 8 löndum tóku
þátt í mótinu. Davíð Ólafsson,
unglingameistari íslands í skák,
tók þátt í alþjóðlegu unglinga-
skákmóti í Gausdal. Hann hlaut 3
vinninga í 9. umferðum. Ilitsiv frá
Júgóslvaíu hlaut 7 vinninga i mót-
inu, en Daninn Lars Schandorff
átti möguleika á að ná honum að
vinningum.
Séra Gunnar Björnsson og David Knowles.
Tónleikar á Vestfjörðum
SÉRA Gunnar Björnsson selló-
leikari og David Knowles píanó-
leikari halda þrenna tónleika á
Vestfjörðum dagana 10.—12. janú-
ar 1985. Fimmtudagskvöldið 10.
janúar leika þeir á Flateyri, föstu-
dagskvöldið 11. janúar í Félags-
heimilinu í Bolungarvík og laug-
ardaginn 12. janúar kl. 17.00 í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði.
Á efnisskránni eru verk eftir
J.S. Bach, Ludvig van Beethoven,
Franz Schubert og Sigurð Egil
Garðarsson.
Mezzoforte í Kefla-
vík og Vestmannaeyjum
HIJÓMSVFITIN Mezzoforte leggur
land undir fót nú um helgina og held-
ur tónleika í Keflavík og Vestmanna-
eyjum.
Hljómsveitin heldur tónleika
sina í Félagsbió í Keflavik i kvöld
kl. 19:30, aðgöngumiðar verða seld-
ir á 250 krónur.
Föstudags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin á Skansinum í
Vestmannaeyjum. Mezzoforte mun
flytja tónleikadagskrá sina og nýt-
ur aðstoðar danska saxófónleikar-
ans Nielsar Macholm, sem leikið
hefur með hljómsveitinni að und-
anförnu.
Liðsmenn sveitarinnar halda
utan til Englands i næsta mánuði
og leggja upp í tónleikaferð um
Evrópu 1. mars næstkomandi, að
þvi er Jóhann Ásmundsson, bassa-
leikari Mezzoforte, sagði i samtali
við blm. Mbl.