Morgunblaðið - 10.01.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 10.01.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1985 Dansað við lög úr skemmtisýningum í London Mi-rtfvliyancli myndir voru teknar á nyársfatjnafli á Siigu. I'aci var dan.sflokkur frá Ja/v.ballHLskóla Káru srm sýndi þar dansa vió liit; ur sUrrstu skt'mmli.sýnmuum er t'ant'a í laindon um þes-sar mynd- ir. Slarlight Express, Chess og On your Toes. Magnús Kjartansson kynnti en Kllen Kristjánsdóttir og Jóhann llelgason sungu kafla úr Starlight Kxpress ásamt diinsurum. ÁSGEIR TÓMASSON, RÁS 2 „Útvarp á huga minn algjörlega“ Raddirnir sem hafa hljómað frá rás 2 undanfarið eru orðnar hluti af daglegu lífi margs fólks í samtímanum og sérstaklega ungu kynslóðarinnar. Ein af þeim röddum sem hvað mest hefur heyrst á rásinni frá byrjun er í eigu Ásgeirs Tómassonar. Við hittum Ásgeir stuttlega að máli og spurðum hvernig það hefði atvikast að hann byrjaði í starfinu. — Það kom nú þannig til að ég hafði verið hjá útvarpinu með næturútvarp og þátt sem kaliaðist „Syrpur". Þegar rásin var að fara af stað sótti ég um starf við að sjá um næturútvarpið þar en fór í morgunútvarpið í staðinn. Síðan hef ég verið viðloðandi þarna og hef nú tvo tveggja tíma þætti á viku. — Tekur ekki langan tíma að undirbúa hvern þátt? — Jú, það má eiginlega segja að það fari 6 dagar í að gera þá. Ég þarf að lesa heilmikið og hlusta á ótal hljómplötur sem ég nota svo jafnvel aldrei. Vinsældarlistinn er þó í sjálfu sér ekkert erfiður, ég tala lítið miðað við þá sem sjá um bandaríska vinsældalistann en heilmikið þó ef mið er tekið af þeim úr BBC. — Hefurðu þætti tii hliðsjónar þegar þú undirbýrð þig? — Ég hlusta mikið á erlent útvarp og í bílnum mínum hef ég stillt inn á fimm mismunandi stöðvar sem ég hlusta á þegar ég er á ieiðinni heim. Við fáum einnig senda þætti sem við hiustum á og athugum en ég held ég stæli samt engan, allavega ekki vísvitandi. Maður verður að sjálfsögðu fyrir áhrifum, annað væri undarlegt. — Eru það einhver sérstök áhugamál sem eiga huga þinn í frístundum? — Mér finnst vinnan svo skemmtileg að ég þarf ekki og hef alls ekki tíma fyrir önnur áhugamál. Það má segja að útvarp sé mitt áhugamál og eigi hug minn algjörlega. Ég hef áhuga á frjálsu útvarpi, erlendum sem inniendum rásum og öllu sem viðkemur hljóðvarpinu yfirleitt. Ég vii í raun ekki tala um annað en blessað útvarpið. Hvað finnst þér um þá gagnrýni sem hefur verið undanfarið varðandi málnotkun manna á rásinni? Hún á rétt á sér að sumu leyti, en aftur á móti ættu einnig þeir sem sjálfskipa sig oft á tíðum málkunnáttumenn, sumir hverjir, að líta nánar í eigin barm. Það er mjög erfitt að verða aldrei neitt á í messunni þegar maður þarf að tala um og segja ótrúlegustu hluti undir mikilli pressu. Liður í þessu er líka að það er mest ungt fólk sem vinnur á rásinni og talar þess vegna mál dagsins í dag. Það eru ýmsir sem vilja ekki viðurkenna þetta tungutak og það hefur alitaf verið viðkvæðið um árin að finna að yngra fólkinu. Ég held að Sókrates biessaður hafi kvartað yfir versnandi heimi og unglingum á prenti þegar hann var uppi. — Hvernig er vinnuandinn milli ykkar? — Við erum öll geysimiklir „egóistar" þannig að við eigum það til óspart að segja meiningu okkar. En það ríkir ekki illur andi síður en svo og við höldum ailtaf fagnaði af og til, þar sem engin slags- mál koma til og allt fer fram í miklu bróðerni. Pia léttari Pia Zadora, kynbomban litla, sem leikið hefur í nokkrum kunnum kvikmyndum svo sem „Butterfly“, léttist til mikils muna fyrir fáeinum dögum, en þá kom í heiminn dóttir hennar og eiginmanns- ins. Hefur barnið litla hlotið eafnið Kady og heilsast móð- ur og barni vel. Ali í klípu Moharaed Ali, hnefaleika- kappinn gamalkunni, á nú í vök að verjast gagnvart konu nokkurri sem segist hafa ver- ið eiginkona hans og heimtar nú offjár í meðlag fyrir dómstólum. Ali klórar sér f höfðinu og segist ekki vita hvaða kona þetta sé, hann hafí aldrei litið hana augum. Kona þessi heitir Aaisha Ali og dóttur sína segir hún jafnframt vera dóttur „The Greatest“ eins og hann kall- aði sig gjarnan. Hún segir að þau hafi gengið í það heilaga í maí 1975, en haustið áður hafi dóttir þeirra komið í heiminn. Þá hafi Ali lofað ölhi fogru um að sjá fyrir þeim um aldur og ævi. Lítið hafi verið um efndir ... fclk f 7?i fréttum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.