Morgunblaðið - 18.01.1985, Side 2
2
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985
BÚR tapaði 128
milljónum 1984
Á ÁRINU 1984 varé rekstrartap Bæjarútgerðar Reykjavíkur 128,1 milljón
króna, en það hafði verið áætlað í ársbyrjun um 180 milljónir króna. Reiknað
er með 125,6 milljón króna tapi í ár án verðbreytingafærslna. Þetta kom fram
í ræðu Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, í gær þegar hann fylgdi fjárhagsáætlun
Keykjavíkurborgar úr hlaði.
I ræðu borgarstjóra kom fram,
að í upphafi 1984 voru vanskil Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur (BÚR) 120
milljónir króna. „Með margvísleg-
um aðgerðum í fyrra,“ sagði borg-
arstjóri „og þá sér í lagi með
skuldbreytingum hefur málum
þannig verið fyrir komið, að nú um
áramótin var búið að ganga frá
flestum vanskilum og fjárþðrf
vegna ársins 1984 og fyrri ára kom-
in niður í 26 milljónir króna. Hins
vegar bendir margt til þess. að
fjárþörf aukist mikið á yfirstand-
andi ári að öllu óbreyttu."
Borgarstjóri sagði, að áætlanir
BÚR fyrir 1985 byggðust á því, að
gerðir yrðu út fjórir togarar, fram-
leiðslutakmarkanir yrðu í fryst-
ingu og að markaður fyrir saltfisk
og skreið breyttist ekki frá 1984.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins:
Boðar til Landsfund-
ar um miðjan apríl
MIDSTJÓRN Sjálfstæðisflokksins
samþykkti á fundi sínum í gær til-
lögu Þorsteins Pálssonar, formanns
flokksins, að efna til Landsfundar
um miðjan aprfl næstkomandi. Á
fundinum var jafnframt fjallað um
stjórnmálaviðhorfið, stöðu flokksins
og starfshætti og hvernig best yrði
staðið að undirbúningi Landsfundar.
Þorsteinn sagði að það væru
einkum tvær ástæður fyrir því að
menn teldu rétt að halda Lands-
fund nú. Annars vegar væru það
þau viðhorf sem nú væru uppi í
stjórnmálunum, að ástæða væri
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að taka
forystu og frumkvæði í mótun
stjórnmálahugmynda, sem geta
leitt þjóðina fram á við og stuðlað
að sáttum í þjóðfélaginu. f annan
stað væri verið að fella fundartím-
ann aftur á þann tíma sem lands-
fundur hefur oftast verið haldinn
á, það er á vorin.
Z, ^ m
Nýja olíuskipið sem Olíufélagið Skeljungur hf. og Olíuverslun íslands hf. hafa fest kaup á.
Níftt olíuskip til landsins
NYTT skip er væntanlegt til landsins sunnudaginn
20. jan. nk. Kaupendur eru Olíufélagið Skeljungur hf.
og Olíuverslun Islands hf. Skipið er olíuskip og kemur
í stað M.s. “Kyndils“ og var afhent nýju eigendunum
15. jan. sl., í Rotterdam.
Nýja skipið er byggt í Noregi 1982 og er 1198
brutto tonn, ganghraði 13 sjómílur. Skipið getur
flutt 12 tegundir af olíu samtímis og er hreinsun á
farmgeymum sjálfvirk. Kaupverð skipsins er 27,5
milljónir norskra króna, sem eru jafnvirði um
122,4 milljóna ísl. króna.
Ráðherra fyrirskipar ekki niðurskurð hjá Sjóeldi:
„Slátrum líklega öllum
fiski, iafnvel um helgina“
— segir framkvæmdastjóri stöðvarinnar
Beðizt
afsökunar
f Morgunblaðinu í gær birtist
auglýsing um að lögmannsstof-
an að Ránargötu 13, Reykjavík,
yrði lokuð fyrir hádegi vegna
jarðarfarar. Undir þessari aug-
lýsingu áttu að standa nöfn lög-
mannanna Kristjáns Stefáns-
sonar og Hilmars Ingimundar-
sonar. Vegna mistaka í vinnslu
mátti skilja auglýsinguna svo,
að um útför annars lögmanns-
ins væri að ræða. Morgunblaðið
harmar þessi mistök og biður
þá, sem hlut eiga að máli, afsök-
unar á þeim.
„VIÐ EKUM ekki endanlega búnir
að ákveða aðgerðir, en höllumst
helst að því að slátra öllum fiski í
stöðinni, sótthreinsa hana og byrja
frá grunni með nýjum seiðum. Þetta
gæti jafnvel orðið um helgina,"
sagði Jón G. Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóeldis hf. í Höfnum
í samtali við blm. Mbl.
Þrátt fyrir að fisksjúkdóma-
nefnd hafi í aliti sínu talið trygg-
ast að slátra öllum fiski í stöðinni
mun landbúnaðarráðherra ekki
gefa neina fyrirskipun um niður-
skurð. Jón Helgason, landbúnað-
arráðherra, sagði í samtali við
Mbl. í gær, að eftir að ljóst varð að
nýrnaveikin væri útbreiddari en í
fyrstu var talið og meðal annars í
klakfiski úr sjó, væri ekki ljóst
hvað niðurskurður gagnaði mikið.
Sagði hann að Sjóeldi væri með
lokaða eldisrás og væri máiið
öðruvísi en verið hefði í fyrri til-
vikum þegar niðurskurður var
fyrirskipaður vegna nýrnaveiki,
þar sem um var að ræða seiða-
stöðvar sem seldu seiði frá sér.
Jón Gunnlaugsson sagði: „Við
verðum að hugsa um okkar hag og
atvinnugreinarinnar í heild. Ég
held að það yrði báðum þessum
aðilum fyrir bestu að slátra öllum
fiski í stöðinni. Okkar ákvarðanir
geta þó breyst ef ekki verður skor-
ið niður annars staðar þar sem
veikin kemur upp, svo sem í Kolla-
fjarðarstöðinni. Ef aðrir gera það
ekki er ekki eins mikil ástæða
fyrir okkur að vera harðir í
þessu.“ Jón sagði að verðmæti
þeirra 28 þúsund seiða sem í stöð-
inni eru væri áætlað 5—6 milljón-
ir í vor en við það tjón bættist
rekstrarstöðvun.
Óvíst um niðurskurð í
Kollafjarðarstöðinni
„MÁLIÐ er ennþá í athugun hjá flsk-
sjúkdómanefnd og sérfræðingum og
hafa því engar ákvaróanir verið tekn-
ar umfram það að hindra útbreiðslu
sýkinnar og gera þeim viðvart sem
fengið hafa hrogn úr Kollafírði í vet-
ur,“ sagði Jón Helgason, landbúnað-
arráðherra, þegar hann var spurður
um það hvort gripið yrði til niður-
skurðar eða annarra aðgerða í Lax-
eldisstöð rfkisins í Kollaflrði vegna
nýrnaveikinnar sem þar hefur komið
Sigurskák Margeirs gegn Vesterinen
Síðasta umferðin á svæðamótinu í Gausdal var æsispennandi. Augu
manna beindust að skákum Agdestein og Ernst, Margeirs og Vesterinen og
Larsens og Jóhanns. Þeir Margeir og Agdestein sigruðu, en Larsen varð að
sætta sig við jafntefli. Önnur úrslit urðu að Helgi gerði jafntefli við
Östenstad, Yrjola vann Moen og skák Hansens og Schusslers fór í bið.
Staðan er þvt: 1.—2. Margeir og Agdestein 7'/>. 3. Bent Larsen 7. 4.
Jóhann 6'/>, 5.—6. Östenstad og Helgi 6. 7.—8. Schussler og Hansen 5'/> og
biðskák. 9. Ernst 5. 10.—11. Yrjola og Vesterinen 4. 12. Moen Vt.
Hér fer á eftir sigurskák Mar- Tukmakov á ólympíuskákmótinu
16. (MMI — Hxf4
Svartur hefur þrem peðum meira,
og reynir nú að fækka hættu-
legum sóknarmönnum hvíts.
17. Bxf4 — g5, 18. Dh2 - RÍ8
geirs gegn Vesterinen.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Vesterinen (Finnlandi)
Kóngsindversk-vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 —
Bg7, 4. e4 — d6, 5. f3 —
Margeir velur að sjálfsögðu eitt
hvassasta afbrigðið í þessari
byrjun, Sámisch-afbrigðið, því
hann þarf nauðsynlega að vinna.
5. — 0-0, 6. Be3 — Rc6, 7. Rge2 —
a6
Svartur velur svokallað Panno-
afbrigði, sem leiðir fljótt til mik-
illa átaka, þar sem hvítur hrókar
langt og sækir kóngsmegin, en
svartur leggur til atlögu á drottn-
ingararmi.
8. Dd2 — Hb8, 9. h4 — h5,10. Rd5
1 skák sinni við sovétmanninn
í fyrra lék Margeir hér 10. 0-0-0
og náði vinningsstöðu
10. - Rh7!?
Vesterinen hefur skrifað bók um
þetta afbrigði og því öllum hnút-
um kunnur. Síðasti leikur hans er
athyglisverð leið til að koma í veg
fyrir að hvítur nái kaupum á
riddaranum á f6, sem er sterkur
varnarmaður.
11. g4!?-
Margeir leggur óhikað til atlögu á
kóngsvæng, en öruggari leikir
hefðu verið hér 11. 0-0-0 eða 11.
Bh6.
11. - hxg4, 12. h5 - e6, 13. Rdc3
— gxf3, 14. hxg6 — fxg6, 15. Rf4 —
Rxd4?
Vesterinen missir af leiknum 15.
— Bxd4l, sem hefði gefið honum
betra tafl.
19. e5!í —
Vinningsleikurinn. Nú opnast
skálínan bl — h7 fyrir biskupinn
á fl, og reiturinn e4 verður
stökkpallur fyrir Rc3 i sóknina
yfir á kóngsvænginn. Svartur
getur ekki varist þessari atlögu,
því tveir menn hans eru lokaðir
úti á drottningarvængnum og
komast ekki í vörnina.
19. — Rf5
Eftir 19. — gxf4, 20. Hxd4 (eða
jafnvel 20. Bd3 — Dg5, 20. Hdgl
— Dxe5) hefur hvítur mjög
sterka sókn.
20. Bd3 — Rg6
Eða 20. — gxf4, 21. Bxf5 — exf5,
22. Hdgl og svartur er varnarlaus
(hótunin t.d. 23. Dh8+).
21. Dh7+ - Kf7, 22. Dh5! -
Nú gengur 22. — gxf4 ekki vegna
23. Hdgl o.s.frv.
22. — Dg8
Ekki 23. - Dh8, 24. Dxg5 - Dg8,
25. Hdgl o.s.frv.
23. Re4 —
Enn bætist maður við I sóknina
og nú verður fátt um varnir hjá
svörtum.
23. — Bxe5, 24. Bxe5 — dxe5, 25.
Dxg5 — Bd7
Svörtu mennirnir á drottningar-
væng komast nokkuð seint út á
borðið.
26. Rf6-
og Vesterinen gafst upp, því hann
ræður ekkert við fjölmargar hót-
anir hvíts, 27. Rxd7, 27. Rxg8 og
27. Hh7.
upp.
I gær var haldið áfram rann-
sóknum á fiski úr stöðinni. Að sögn
Sigurðar Helgasonar,
fisksjúkdómafræðings, hefur ekk-
ert nýtt komið fram í málinu.
Greinileg merki um nýrnaveiki
fundust í 13% af þeim klakfiski,
sem slátrað var, en enn sem komið
er hafa greinileg merki um hana
aðeins fundist f einu seiði úr stöð-
inni, en rannsóknir eru enn
skammt á veg komnar. Kollafjarð-
arstöðin var sett í einangrun og er
verið að rannsaka lax þaðan og frá
öðrum stöðum. Þá hafa þeir, sem
fengið hafa seiði og hrogn úr stöð-
inni, verið aðvaraðir og er vitað til
þess að að minnsta kosti einn aðili,
sem fékk hrogn frá stöðinni hefur
þegar eytt þeim. Útlit er fyrir að
eyða þurfi öllum hrognum í stöð-
inni, en þau eru um 2 milljónir.
„Um áramótin var ráðinn annar
maður til starfa við sjúkdómavarn-
irnar samkvæmt heimild í fjárlög-
um og bætti það mikið úr. Jafn-
framt hef ég óskað eftir því að fá
yfirlit frá sérfræðingunum yfir það
sem þeir telja brýnast að fá til að
geta sinnt þessu verkefni. Ég mun
vitanlega gera það sem ég get til að
hægt verði að standa að þessu verki
á þann hátt sem tryggast getur
orðið, miðað við þær aðstæður sem
nú eru og þær staðreyndir sem
fyrir liggja,“ sagði Jón aðspurður
um hvort og þá hvernig hann hygð-
ist beita sér fyrir fyrirbyggjandi
starfi á sviði fisksjúkdóma í ljósi
þeirra nýrnaveikitilfella, sem upp
hafa komið að undanförnu.
Sjá frásögn og viðtöl á bls. 26.