Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 ttec/HArm 11*1. © 1904 Umversal Press Syndicate --------------—— ------------------------------- „Éý SCKgö'i þér a& hringja. ekJci i mig i vinnuncu effc'ir kLukkan níu." ... að vilja ekki missa hana Langamma, blessuð lokaðu hurð- inni svo hitinn streymi ekki allur út! HÖGNI HREKKVlSI ,EITTHVAP UM ^VIKJASTlU " Berdreymi eða tilviljun? Lesandi skrifaði og bað um að komið yrði á framfæri draumi einum sem hann dreymdi á síðasta ári. Mig dreymdi að ég stæði inni í stóru fordyri og var þar hátt til veggja. Allt í einu er sem ég sjái í gegnum útidyrahurðina þrjá menn standa í kyrrstöðu. Einn þeirra heldur á dunki sem hann lyftir til hins fjórða sem stendur á öxlum tveggja manna. Sá er uppi er brýtur þá með steini litla rúðu, tekur við dúnkinum og skvettir innihaldi hans inn á gólfið. Lætur hann síðan ílátið detta inn á gólfið. Eldspýtnastokkur birtist í hendi hans óðara að hinu loknu. Kviknar svo í öllum stokknum og hverfur hann ofan í myrkrið. Svo varð allt skínandi bjart. Morguninn eftir birtist í fréttum: „Álafoss hf. í Mos- fellssveit eyðilagðist í eldi í nótt.“ Margir sakna þeirra Cliff Barnes og J.R. sem löngum elduðu grátt silfur. Dallas og Falcon Crest Doktor M.K.H. ritar. kaupið nokkra þætti af Dallas, Ég vil aðeins koma því á fram- Falcon Crest, spennumyndum og færi að sjónvarpið ætti nú að sjá James Bond. Það er svo gott að sóma sinn í því að útvega okkur geta sest fyrir framan sjónvarp- sem ekki eigum myndbandstæki ið eftir erfiðan vinnudag og skikkanlegt efni til að horfa á. gleymt sér í þessum vel gerðu Hættið nú að sýna þessar bandarísku þáttum sem eiga hug blessuðu dýralífsmyndir og hálfrar þjóðarinnar. Endur- tekið efni á fimmtu- dögum S.F. skrifar: Vinsamleg tilmæli til hins nýja útvarpsstjóra eru þau að allt endurtekið sjónvarpsefni, sem er svo mikið flutt af, verði flutt tii og sýnt allt saman á fimmtudagskvöldum. Það þyrfti varla að kosta mikið ef þulun- um yrði sleppt og efninu rennt í gegn án kynningar. Sykur- snautt kók Svenni skrifar: Nú þegar allir hugsa sem mest um heilsuna og línurnar skjóta sykursnauðir gosdrykkir upp kollinum hver á fætur öðr- um. En kók, sem okkur þykir mörgum svo afskaplega gott, er aðeins fáanlegt hér með hefð- bundnu sniði, þ.e. með ómældu sykurmagni í. Erlendis, a.m.k. í Bandaríkj- unum, fæst bæði diet-kók og kofféinlaust kók. Mikið sakna ég þess nú eftir að ég fluttist hingað á heimaslóðir á nýjan leik. Er vonandi að forráðamenn Vífilfells, sem framleiðir kók hér á landi, taki þetta til athug- unar, varla vilja þeir að kók- drykkjufólki sé mismunað á þennan hátt. Ehis Presley ásamt eiginkonu sinni Priscillu. Haldin verði Presley-vika Presley-aðdáandi hringdi: Mig langar til að beina þeirri fyrirspurn til forráðamanna kvikmyndahúsanna hér f borg þess eðlis hvort ekki sé hægt að halda hér Presley-viku og sýna myndir Presleys en nú eru sem kunnugt er 50 ár liðin frá fæð- ingu hans. Vitanlega deila menn um leik Presleys og gæði mynda hans en samt sem áður væri gaman fyrir alla hans aðdáendur að fá að sjá þær. Það hlýtur að vera hægt að halda slíka viku líkt og rússn- esku kvikmyndavikuna o.fl. sem haldið hefur verið hér. Lélegt sím- samband Símnotandi á Hrafnistu hringdi: Mig langar til að kvarta yfir símsambandinu hér á Islandi. Það virðist vera alveg sama hvenær sólarhringsins ég reyni að hringja út á land, ég fæ alltaf eins og það sé á tali. Þetta er auðvitað hvimleitt þegar að maður nær ekki sambandi við ástvini sína vegna lélegs sím- sambands. Vona ég nú að gerðar verði úrbætur á þessu hið bráð- asta. Þessir hringdu . . . Um nýtt létt- jógúrt Björg Jóna hringdi: Eitt langar mig til að spyrjs Mjólkursamsöluna um og það ei hvað orðið hafi af nýju létt- jógúrttegundunum tveimur sem kynntar voru svo rækilega á bú- vörusýningunni BÚ ’84. Tegund- ir þessar voru mjög góðar og bragðaði ég báðar á sýningunni, en hef hvorki séð tangur né tetur af þeim í verslunum. Stóð ann- ars ekki til að koma nýjungun- um tveimur í sölu? Bréfritari segir að ekki bóli á nýju léttjógúrttegundunum í verslun- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.