Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 31 Kveðjuorð: Halldóra Jakobs- dóttir kaupkona í dag, föstudaginn 18. janúar, fer fram frá Garðakirkju útför ömmu minnar, Halldóru Jakobs- dóttur, sem lést á heimili sínu þann 13. jan. sl. Hún fæddist í Hraunsholti í Garðabæ þann 30. ágúst 1901, dóttir hjónanna Jakobs Gunnars- sonar og Helgu Eysteinsdóttur. Hún var yngst sex systkina en af þeim er nú eitt á lífi, Sigurlaug sem nú býr í Hraunsholti með manni sínum, Valdimar Péturs- syni. Amma Dóra, eins og við barna- börnin kölluðum hana jafnan, ólst upp í Hraunsholti fram yfir tví- tugt. Árið 1927 giftist hún Benóný Benónýssyni sem þá stundaði fisk- sölu hér í bæ en skömmu seinna settu þau á stofn verslun í Hafn- arstræti 19 sem síðar fluttist yfir í Tryggvagötu. Þeim afa og ömmu varð tveggja dætra auðið, Ólafar Helgu og Hjördísar Halldóru móð- ur minnar, en afi átti fyrir fjórar dætur með fyrri konu sinni. Benóný afi lést árið 1941 og var amma Dóra þá aðeins 38 ára göm- ul, og tók hún þá við versluninni og rak hana allt til dauðadags. Síðustu tuttugu árin bjó amma Dóra með Magnúsi Guðjónssyni bílstjóra, einkabilstjóra sinum eins og hún ávallt kallaði hann, enda var hann alltaf reiðubúinn að greiða götu hennar. Þegar horft er um öxl líða um hugann ýmis minningarbrot. Amma Dóra var mér mikið meira en venjuleg amma því á mínum æskuárum bjó ég á heimili hennar á Bjarkargötu 10 í Reykjavík og á ég þaðan rnargar ljúfar minningar þó ungur væri að árum. Ennfrem- ur reikar hugurinn til jólaboðanna hjá ömmu Dóru þegar hún bjó á Marargötu 7, en þar var ávallt glatt á hjalla meðal nánustu ætt- ingja hennar. Eg kveð elsku ömmu mina með sárum söknuði og minninguna um hana geymi ég í huga mér meðan ég lifi og þakka henni allar okkar samverustundir. Halldór Benóný Nellett í dag, föstudaginn 18. janúar, verður til moldar borin frá Garða- kirkju frú Halldóra Jakobsdóttir kaupkona, tengdamóðir mín. Ég vil með þessum fáu línum votta henni þakklæti mitt fyrir þær ánægjustundir, sem við höf- um átt saman. Man ég eftir mörg- um gleðistundum sem við höfum átt, enda var hún mjög glaðvær kona og hafði yndi af góðum fé- lagsskap. Halldóra var hetja sem sópaði að, hvar sem hún fór. Hún gat virst köld og hrjúf á yfirborð- inu, en það var stutt í hennar góða hjarta, og var hún sannur vinur vina sinna. Hún var glettin, kom vel fyrir sig orði, og mörg tilsvör hennar voru með afbrigðum góð. Halldóra var fædd 30. ágúst 1902 að Hraunholti, foreldrar hennar voru Jakob Gunnarsson og Helga Eysteinsdóttir. Átti Halldóra sex systkini og er nú ein systir hennar á lífi, Sigur- laug, sem býr í Hraunsholti. Arið 1927 giftist Halldóra Benóný Ben- ónýssyni kaupmanni, sem rak verslun í Hafnarstræti. Átti hún með honum tvær dætur, Ólöfu Helgu, gift Ásgrími Ásgeirssyni stýrimanni, og Hjördísi Halldóru, gift Herði Lorange sjómanni. Á Ólöf Helga tvö börn og þrjú barnabörn og Hjördís Halldóra fjögur börn og eitt barnabarn. Frá því að Benóný lést 1941 hefur Halldóra rekið búðina fyrst í Hafnarstræti og síðan í húsi, sem Rammagerðin á í Tryggvagötu. Eitt er víst að mörgum er eftirsjá að Halldóru, því hún hafði reynst mörgum alveg sérstaklega góð og hjálpsöm í öllum viðskiptum. Síð- astliðin 20 ár hefur dóttir hennar, Ólöf Helga, verið henni til aðstoð- ar í búðinni og nú í seinni tíð varð hún að treysta meira á ólöfu, eins og hún sjálf varð að gera eftir andlát Benónýs. Lífsgöngunni er lokið. Við minnumst hennar með hlýhug og þakklæti fyrir samfylgdina. Við söknum hennar úr hópnum og þykir skarð fyrir skildi. Þó er mestur harmur kveðinn að dætrum hennar tveim, þeim Ólöfu Helgu og Hjördísi Halldóru og börnum þeirra. Ég kveð elsku vinkonu mína með sárum söknuði. „Minninguna um hana geymi ég meðan ég lifi, og þakka henni allt,“ sagði Magn- ús Guðjónsson, sem hefur búið hjá henni síðastliðin ár, og verið henni mikil stoð og stytta á elliárum. Þakka ég Halldóru fyrir allt það góða og bjarta sem ég kynntist i fari hennar, sem oft gefur manni svo mikinn styrk þegar á reynir í lífinu. Ég vil að endingu þakka Hall- dóru fyrir alla tryggð og góðvild í minn garð, og fjölskyldu minnar. Blessuð sé minning hennar Ásgrímur Hóseas Björns- son - Minning Fæddur 25. desember 1885 Dáinn 9. janúar 1985 Hann afi er farinn, farinn í þá ferð sem við öll Ieggjum upp í að lokum. Það verður ekki lengur fastur liður í ferð til Reykjavíkur að fara til afa og ömmu í Skipa- sundi. í þeim heimsóknum var mest rætt um mannlífið fyrir austan, bæði frá fyrri tímum og eins það sem var efst á baugi hverju sinni. Því alltaf var hugur- inn fyrir austan í sveitinni sem ól þau lengst af og vildu þau veg hennar og þeirra sem hana byggja sem mestan. Hóseas Björnsson fæddist í Höskuldsstaðaseli í Breiðdal 25. desember 1885 yngsta barn for- eldra sinna Kristínar Marteins- dóttur og Björns Eiríkssonar sem þar bjuggu. Hann lærði trésmíðar í Reykjavík hjá Magnúsi Blöndal og lauk sveinsprofi árið 1906, síð- an vann hann í Reykjavík og ná- grenni um skeið. Hugurinn stefndi til frekara náms í Þýskalandi, en af því varð þó ekki. Árið 1912 giftist hann fóstur- systur sinni Marzelíu Ingibjörgu Bessadóttur, f. 22. marz 1895, for- eldrar hennar voru Helga Magn- úsdóttir og Bessi Sighvatsson á Brekkuborg í Breiðdal. Eftir að þau giftust tóku þau við búskap í Höskuldsstaðaseli. Þar voru einn- ig Eiríkur og Marteinn bræður hans og mun búið oft hafa verið i höndum þeirra og ömmu þar sem afi stundaði smíðar utan heimilis í Breiðdal og víðar. Heima fyrir vann hann líka við smfðar á hin- um ýmsu áhöldum, amboðum, húsgögnum, líkkistum, spunavél- um o.fl. Mörg þeirra húsa sem hann reisti standa enn t.d. Stöðv- arkirkja. Afi og amma eignuðust 4 börn, þau eru: Kristinn, prófastur í Hey- dölum, Helgi, trésmíðameistari, Skipasundi 48, Rvík, Ragnheiður, húsfreyja í Höskuldsstaðaseli, og Sigrún, verkakona, Rjúpufelli 46 Rvík. Einnig ólu þau upp frá barn- æsku systurnar Ragnheiði Ragn- arsdóttur, Holti Breiðdalsvík, sem nú er látin og Hjördísi Ragnars- dóttur, Efstahjalla 21, Kópavogi Eftir að afi og amma fluttu til Reykjavíkur 1947 bjuggu þau í skjóli sonar og tengdadóttur í Skipasundi 48. Fyrir sunnan hélt afi áfram að vinna við trésmíðar meðan heilsa og kraftar leyfðu. Nú mörg síðustu ár hafa dóttir, tengdasonur þeirra börn veitt þeim dyggja aðstoð til að geta haldið heimili, en þau bjuggu út af fyrir sig þar til afi var fluttur á Landspítalann 30. desember síð- astliðinn, en þar lést hann nú 9. janúar. Þá höfðu þau verið í hjónabandi f tæp 73 ár. Eftir að afi fór á Landspitalann flutti amma til dóttur sinnar og tengda- sonar í Rjúpufelli 46. Guð styrki ömmu mína og fari afi minn í friði og blessuð sé minning hans. Ingibjörg Björgvinsdóttir Útför Hóseasar fer fram á morgun, laugardag, frá Heydals- kirkju. 1 1 } Björgvin Ingi Olafsson — Minning Fæddur 3. júlí 1945 Dáinn 14. janúar 1985 Frændi okkar og vinur Björgvin Ingi ólafsson lauk sínu jarðlífi þann 14. janúar sl. aðeins 39 ára að aldri. Kveðjustundin kom okkur öllum á óvart, ekki vegna þess að aðdragandinn hafi ekki verið nægur, heldur hitt að bar- áttuþrekið var slíkt, að þrátt fyrir vonlausa stöðu tefldi Björgvin ótrauður og trúði á vinningsmögu- leika. Skákin var löng og hörð og fór oft í bið, en þrátt fyrir að hann yrði ætíð fleiri peðum undir, var teflt til sigurs, jafntefli kom ekki til greina hvað þá að gefa skákina. Þegar við setjumst niður og hugsum aftur í tímann til æskuár- anna, þá verður Sólbyrgi við Laug- arásveg eitt af perlum þess tíma. Þar bjó stór og gestrisin fjöl- skylda þekkt fyrir glæsileik og yf- irburði í íþróttum. Á þessu heimili áttu fjölskyldur okkar dýrlegar stundir við ýmis tækifæri og þar var appelsín og malt á boðstólum, sem var mjög fágætt í þá daga, enda vann hús- bóndinn „óli í Ölinu“ hjá ölgerð Egils Skallagrímssonar. Trúlega skína þrettánda- brennur bjartast í þessum endur- minningum. Þá var fjölmennt og kátt í Sólbyrgi og gott athafna- svæði. Bálköstur, flugeldar og álfadans. Allir klæddust í furðuföt með grímur. Börnin voru í forsæti og tilgangurinn að skemmta þeim. Þetta voru sælustundir. óli og Metta dekruðu við okkur og systk- inin 5 alltaf jafn brosmild og elskuleg. Elstur var Kolbeinn sem ásamt Kolbrúnu voru fulltrúar fjölskyldunnar á íþróttasviðinu, Ólympíufarar með meiru. Þá kom hagleiksmaðurinn óli, Hörður í hlutverki litla bróður og loks jafn- aldri okkar „sjarmörinn” Björg- vin. Það hefði verið leit að glæsi- legri quintet en unglingunum að Sólbyrgi. Glaðværðin og lífsneist- inn var slfkur að erfitt var að hugsa sér að hann gæti slökknað. Þó er svo komið nú, að búið er að slökkva á öllum ljósastikunum á Sólbyrgi. Það slökknaði á þeirri síðustu sl. mánudag er Björgvin var allur. Það er augljóst mál að Sólbyrgis-fjölskyldan háði meiri hildarleik við illkynjaða sjúkdóma en almennt þekkist og er vonandi einsdæmi. Björgvin frændi okkar, sá er síðastur kvaddi, var fæddur í Reykjavík 3.7. 1945 og hefði því orðið fertugur í sumar. Hann ólst upp í fjörmikilli og hamingju- samri fjölskyldu fram yfir ferm- ingu, en upp úr því fór heilsu- brests að gæta í hópnum. Sú sorg verður ekki tíunduð hér, allir þeirra vinir og vandamenn þekkja þá harmasögu. Björgvin lauk námi í vélsmíði og logsuðu og þótti mjög laginn og fljótur að ná tökum á hverskonar verktækni og því liðtækur í flesta handavinnu. Um tíma vann hann t.d. við trésmíðar hjá Kolbeini bróður sínum en hóf seinna störf hjá slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli og starfaði þar um 10 ára skeið. Þá fluttist hann vestur um haf og bjó lengst í Seattle þar sem hann stundaði bæði lax- og krabbaveiðar. í Seattle kynntist Björgvin unnustu sinni, Lindu Lee Dupuis, sem var honum síðan hin styrka stoð í öllum hans veikind- um allt til síðasta dags. Hennar sorg er mikil nú og eftirlifandi barna hans sem eru: Kristín Björk 17 ára, ólafur Hörður 10 ára og Björgvin Ingi 5 ára, en þau átti Björgvin með fyrrverandi konu sinni, Önnu Bjarnadóttur. Áður hafði hann eignast dóttur er Bryn- dís hét. Hún dó fyrir tæpum 2 ár- um aðeins 19 ára gömul. Nú þegar Sólbyrgisfjölskyldan hefur sameinast á ný handan móðunnar miklu fer ekki hjá því að þeirra sé ákaft saknað af eftir- lifandi bömum og öllum ástvin- um. En vonandi er það einhver huggun harmi gegn að trúa þvi að í þeirra nýja lífi þekkjast engir sjúkdómar og þar lifi allir í friði að lokum. Við viljum svo biðja góðan Guð að blessa systkinin frá Sólbyrgi, öll börn þeirra og ástvini. Far í friði frændi. Guðmundur Lárusson, Kjartan Lárusson, Júlíus Hafstein. Ragnheiður Einars- dóttir — Kveðja Fædd 30. júlí 1908 Dáin 26. desember 1984 Á annan dag jóla sl. lést í Sól- vangi í Hafnarfirði Dalla móður- systir mín, en svo var hún kölluð af vinum og ættingjum i daglegu tali. Fullu nafni hét hún Ragn- heiður, eftir ömmu sinni Ragn- heiði Pálsdóttur, konu séra Þor- kels Eyjólfssonar, prests á Stað- arstað. Foreldrar Döllu voru ólafía Jónsdóttir og Einar Þor- kelsson alþingisskrifari. Þeirra börn voru: Hrefna, elst, sem látin er fyrir mörgum árum, þar næst Þórkatla Ragnheiður, móðir mín, yngstur var Hrafnkell, sem lést ungur að árum, var hann við nám í Vín. Eiginmaður Döllu var Sveinn Jónsson, forstjóri hf. Mið- ness í Sandgerði, er hann látinn fyrir 18 árum. Það sem knýr mig til þess að taka mér penna í hönd, er þakk- arhugur, sem leitar á mig. Ég minnist þess, þegar ég var að alast upp úti á landi, hvað mér þótti til um að eiga ættingja í Reykjavík. Kom nú að því, að leiö mín lá þangað í atvinnu- og gæfuleit. Þá fékk ég að kynnast þvl, hvers virði var að eiga ættingja þar. Á heimili Döllu og Sveins átti ég dvöl. Var það um það leyti, sem ég var að undirbúa mig undir aö stofna mitt eigið heimili. Þar reyndist Dalla mér vel, studdi hún mig og gaf mér þau ráð, sem gott var að njóta. Margt kvöldið sat ég hjá henni við saumaskap og leiðbeindi hún mér af sinni nákvæmni og smekkvísi, sem henni var í blóð borin, enda bar heimili þeirra ‘ hjóna því gott vitni. Dalla var smágerð kona, en stór í sínum verkum og mundi vel eftir þeim, sem minna máttu sín. Þess fékk ég svo sannarlega að njóta, , ekki síst eftir að ég eignaðist mína fjölskyldu. Það er óhætt að segja að Dalla var hinn trausti hlekkur ættarinnar. Dalla átti við erfið j veikindi að glíma, áður en yfir I lauk. Það er því fagnaðarefni að hún hefur fengið lausn frá þeim. Ég votta dætrum hennar, Sigúr- veigu og ólafiu, og fjölskyldum j þeirra mína innilegustu samúð um * leið og ég kveð Döllu í hinsta sinn yfe með þakklæti fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og mína fjðl- J skyldu. Minning hennar lifir. Ellen Svava Stefánsdóttir J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.