Morgunblaðið - 18.01.1985, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985
19
Hg8+ — Bg7, 64. h4 — H*6,65. Kf4
— Ha5, 66. He8 - Hf5+, 67. Ke3
— He5, 68. Hg8 — He7, 69. Kf3 —
Hf7+, 70. Kg4 - h5+, 71. Kh3
og meistararnir hættu þessari til-
gangslausu taflmennsku og sömdu
jafntefli.
Staðan:
Karpov 5 vinningar
(35 jafntefli)
Kasparov 1 vinning.
Daufur
miðviku-
dagur í
Moskvu
Fertugasta og önnur skákin í ein-
vígi Karpovs og Kasparovs um
heimsmeistaratitilinn var tefld sl.
miðvikudag í MoskVu. Byrjunin kom
ekki á óvart, Tartakover-afbrigðið í
Drottningarbragði, og tefldist skák-
in eins og skákir númer 38 og 39,
þar til Karpov brá út af í 16. leik.
Sérfræðingarnir á skákstað álitu
Kasparov hafa möguleika á að ná
varanlegu frumkvæði, en heims-
meistarinn byggði upp örugga varn-
arstöðu, svipaða þeirri, sem upp kom
í 39. skákinni. Jafntefli var samið
eftir 26 leiki.
Heimsmeistarinn verður því enn
að bíða eftir sjötta vinningnum, sem
hann vantar til að Ijúka þessu enda-
lausa einvígi.
42.skákin:
Hvítt: Kasparov
Svart: Karpov
Drottningarbragð
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
d5, 4. Rc3 — Be7, 5. Bg5
Námskeiðið í Drottningarbragði
heldur áfram.
5. — h6, 6. Bh4 — 0-0, 7. e3 — b6,8.
Be2 — Bb7, 9. Bxf6 — Bxf6, 10.
cxd5 — exd5, 11. b4 — c5, 12. bxc5
— bxc5, 13. Hbl — Bc6
Karpov hættir sér ekki í 13. —
Da5, en með honum lenti hann í
mikilli taphættu í 40. skákinni.
14. 0-0 — Rd7, 15. Bb5 — Dc7, 16.
Dc2 — Hfc8
I skákum nr. 38 og 39 lék svart-
ur 16. — Hfd8, en nú bregður
Karpov út af þeirri leið.
17. Hfcl — Bxb5, 18. Rxb5 — Dc6,
19. dxc5 — Rxc5, 20. Df5
Eftir 20. Rfd4 — Dd7 ásamt Rc5
— e6 er ekki mikið um að vera.
20. — De6, 21. Rfd4
Hvítur virðist ekki eiga betri
leik, en nú fær hann örlítið betra
endatafl, vegna staka svarta peðs-
ins á d5.
21. — Dxf5, 22. Rxf5 — Re6, 23.
Hxc8+
Hvítur fer í uppskipti, en ekki
verður séð, að hann eigi betra
framhald.
23. — Hxc8, 24. Rxa7 — Hc2
Hvíta peðið á a2 fellur, og upp
kemur staða, sem mjög líkist
þeirri, er Kasparov hélt fyrirhafn-
arlítið með svörtu í 39. skákinni.
25. Rb5 — Hxa2, 26. h3 — Ha5
og keppendur sömdu um jafntefli.
Hvítur getur ekki sótt að eina
veikleikanum í svörtu stöðunni,
staka peðinu á d5.
Staðan:
Karpov 5 vinninga (36 jafntefli).
Kasparov 1 vinning.
Kirkjur á landsbyggðinni:
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjar-
kirkju nk. sunnudag kl. 10.30.
Guðsþjónusta í Kálfholtskirkju
sunnudag kl. 14. Biblíulestur á
prestsetrinu nk. mánudagskvöld
kl. 20.30. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli nk. sunnudag kl. 11 og
messa kl. 14. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA Rang.: Guðsþjón-
usta á sunnudag kl. 14. Sr. Stef-
án Lárusson.
SIGLUFJARÐARKIRKJA: Á
morgun, laugardag, fundur í
safnaðarheimilinu í Félagi aldr-
aðra. Kaffiveitingar og að lokum
tekið í spil. Barnamessa á
sunnudag kl. 11 og almenn
messa kl. 14. Foreldrar ferming-
arbarna aðstoða. Flautu- og
trompetleikur. Eftir messu er
fundur með fermingarbörnum
og foreldrum þeirra í safnaðar-
heimilinu. Sr. Vigfús Þór Árna-
son.
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vík á morgun, laugar-
dag, kl. 11. Guðsþjónusta i
Skeiðfetarkirkju á sunnudag kl.
14. Sóknarprestur.
Tvær barnabækur á alþjóð-
lega myndabókasýningu
Tvær íslenskar barnabækur hafa
verið valdar sem framlag íslands á
alþjóðlega sýningu á myndabókum
fyrir málhölt börn. Sýningin byrjar í
Bolognia á Ítalíu í mars á þessu ári
og fer svo sem farandsýning víða um
heiminn.
Bækurnar eru Kátt í koti með
texta eftir Sigrúnu Einarsdóttur
og Húsdýrin okkar með texta eftir
Stefán Áðalsteinsson. Ljósmyndir
í báðar bækurnar er eftir Kristján
Inga Einarsson. Húsdýrin okkar
kom út hjá Bjöllunni árið 1982 en
Kátt í koti hjá Skímu 1983.
Það er alþjóðleg stofnun, IBBY,
með aðsetur í Basel í Sviss sem
heldur þessa sýningu í náinni
samvinnu við UNESCO, Menning-
arstofnun Sameinuðu þjóðanna.
IBBY er félagsskapur sem var
stofnaður árið 1953 í þeim tilgangi
að stuðla að auknum skilningi
þjóða á milli með hjálp barna-
bóka.
Á sýningunni verða 282 bækur
frá 30 löndum.
JMtargtiiifrlfifeife
Askriftcirsíminn er 83033
Ríkissaksóknari um verkfall BSRB:
Ekki rannsókn á vinnustöðvun
tollvarða á Keflavíkurflugvelli
RÍKISSAKSÓKNARI hefur synjað
kröfu BSRB um opinbera rannsókn
á þeim atburðum er urðu á Keflavík-
urflugvelli í verkfalli BSRB í októ-
ber sl., er tollgæsla vegna
millilandaflugs var að mestu felld
niður um nokkurra daga skeið og að
öllu í rúman sólarhring.
BSRB óskaði eftir rannsókninni
19. október sl. og er niðurstaða
rikissaksóknara dagsett sl. laug-
ardag. Segir þar m.a., að
rannsóknarbeiðnin þyki ýmsum
annmörkum háð og að athugun
embættisins hafi leitt til þeirrar
ákvörðunar, að „eigi þykir efni til
að verða við beiðni þessari um
opinbera rannsókn".
I kæru verkfallsstjórnar BSRB
sagði að Kjaradeilunefnd hafi sett
tollvörðum á Keflavíkurflugvelli
þær starfsreglur að eftirlit þeirra
með almennu flugi til og frá land-
inu hafi verið slíkar, að tollverðir
telji að í verkfallinu hafi mjög
verulegt smygl átt sér stað. Segir
að frá kl. 18:00 þann 12. október og
til kl. 21:00 daginn eftir hafi öll
tollgæsla verið felld niður, þar
með talin vopnaleit og leit að
fíkniefnum.
Sagði síðan í bréfinu að það
væri skoðun verkfallsnefndar
BSRB, að „með þessari fram-
kvæmd hefur öryggi flugáhafna
og farþega verið stofnað í tvísýnu,
sköpuð almannahætta og lög óvirt
af stjórnvöldum. Við teljum þvi
brýnt að málið verði rannsakað og
þau stjórnvöld, sem ábyrgð báru á
ástandi þessu, verði látin sæta
ábyrgð"
Ríkissaksóknaraembættið telur
ekki ástæðu til frekari aðgerða í
málinu, eins og fyrr segir.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
é
Kynnum í dag
í verslunum okkar:
Svikinn héra
AÐEINS
„Kaffe Kaffe“ J/2
Lúxuskafíi kg. O O
Lambakjöt
í 1/1 skrokkum A
niðursagað I /U
AÐEINS
.00
.00
pr.kg.
Kjuklingar Bananar^>{V
5 Stk.ípoka
178
00
pr-kg.
.00
pr- kg.
Mandarínur
.. Ekta
Marocco
.00
pr-kg.
2 st a'di ins 'JE .(K) Perur
Eldhúsrúllur JJ CQ
'l ^ rúllur 11 /i nn
lZwCpappírlM00 1/1 *■
Opið til kl. 19 í Starmýri og Austurstræti,
E en til kl. 21 í Mjóddinni “
STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆT117 MJÓDDINNI