Morgunblaðið - 18.01.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985
fólk í
fréttum
Nýfertugur
Rod íhugar
að kaupa
Úlfana ensku
Enn eitt unglambið hefur rofið 40 ára
múrinn, enginn annar en popparinn
Rod Stewart. Hann hélt upp á afmælið í
Rio de Janeiro þar sem hann var að hefja
heimsreisu með viðkomum bókstaflega
út um allt til hljómleikahalds. Það var
engin sérstök veisla. Rod þarf að vinna
fyrir kaupi sínu en hann lét þess getið
að hann myndi smala saman helstu
vinum sínum, nokkur hundruð
manns, er hljómleikaferðalaginu
væri lokið og lyfta glasi. Sagðist
hann vera ungur enn, 40 ár væru
ekki neitt neitt. Nýjasta vinkona
hans er ljósmyndafyrirsæta að
nafni Kelly Emberg. Hún var
ekki í Rio með stjörn-
unni. „Hún varð að fara til
Acapulco vegna vinnu sinnar. Ég
sakna hennar strax," sagði Rod næstum
snöktandi. Annars gengur það fjöllunum
hærra að Rod ætli að feta í fótspor Eltons John
vinar síns og fjárfesta í knattspyrnufélagi. Rod er mikill knattspyrnuaðdáandi og fer alltaf á
völlinn ef því verður við komið. Herma fregnir að hann sé með í tösku sinni í Brasilíu
umfangsmikla skýrslu yfir fjárreiður og innanhúsmál hjá
hinu gamalfræga knattspyrnufélagi Wolverhampton, sem
berst í bökkum í 2. deild, en var einu sinni stórveldi í 1. deild.
Félagið er á hausnum og Rod lítur á það sem verðugt verkefni
að rétta félagið við, leika sama leik og Elton John, sem gerði
Watford að mikils metnu 1. deildar liði, þó hann tæki við því
í 3. deild.
HARPA
HELGADÓTTIR
„Hef
samið 16
lög“
Hún heitir Harpa Helgadótt-
ir og er að fara með sitt
fyrsta hlutverk á sviði, nánar
tiltekið í Litlu hryllingsbúðinni,
þar sem hún leikur stúlku að
nafni Siffon (Chiffon). Á dögun-
um hitti blm. hana að máli og
spurði hvort hún hefði sungið
áður, en eins og að líkum lætur
byggist stór hluti verksins á
söng.
„Já, ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á söng frá því ég man
fyrst eftir mér og sungið heil-
mikið þó ég hafi ekki gert mikið
af því opinberlega.
Állir í fjölskyldunni minni
hafa mikinn áhuga á tónlist, og
Margaux ekki á
skíði á næstunni
Margaux Hemíngway, leikkona og
Ijósmyndafyrirsæta, barnabarn
hins fræga Ernst Hemingway, fer ekki á
sktði á næstunni. Hún var aö renna sér í
bröttum brekkum St. Moritz fyrir
skömmu er hún stakkst á höfuöió og tékk
slæma byltu. Það kom í
Ijós að hún haföi
mjaömagrindarbrotnað
og þótti brotiö slæmt.
Veróur hún rúmföst í allt
aö 7 vikur og þarf síöan
aö fara afar varlega fyrst
um sinn. Ekki er þó ann-
aö aö sjá á myndinni en
aó hún hafi tekiö gleöi
sína aó nýju þar sem hún
liggur í dúnmjúku sjúkra-
rúminu í Austurríki.
Læknir smellir kossi á
enni hennar fyrir Ijós-
myndarann.
Sophiu leiðist
Það eru ekki ný tíðindi að Sophiu
Loren hafi verið boðið hlutverk í
sjónvarpsþáttunum vinsælu Dall-
as og Dollars. Það sem hins vegar
hefur ekki komið fram er á hvaða
forsendum hin fimmtuga klass-
íska fegurðardís hafnaði fjár-
streyminu að vestan. Hún segir:
„Mér leiðist ef ég þarf að leika
sama hlutverkið í meira en mán-
uð.“
Edward
kippir
í kynið
Hinn tvítugi Edward Bretaprins hefur Iöngum verið 1
skugganum af kvennagullinu honum Andrew bróður
sínum hvað kvennamáiin varðar. Það þýðir þó ekki að hann
sé ekki við kvenfólk kenndur og allir virðast þeir bræður
vera smekkmenn, að minnsta kosti er ekki annað að sjá á
meðfylgjandi mynd þar sem Edward er á ferð með vinkonu
sinni. Hún heitir Georgia Lodge, er sögð 19 ára, fögur og
greind. Síðast en ekki síst, hvað varðar kóngafjölskylduna,
þá er Georgia af góðum ættum, en það er stórmál, því
„Teddy“ ræður því síður en svo sjálfur hvaða stúlku hann
gengur að lokum að eiga.
GOÐUR
DRENGUR
HANN
LIMAHL
Limahl, breska poppstjarnan
sem gerði það geysigott á ár-
inu sem leið með laginu „The Nev-
er Ending Story", úr samnefndri
kvikmynd, er systur sinni góður,
en hún er nú sjálf að feta hina
vandförnu frægðarbraut í popp-
heiminum. Systirin, sem heitir
Karólína, ber pilti afar vel söguna:
„Hann veitir mér mikinn styrk og
gefur mér góð ráð og það hjálpar
mér að við skulum búa saman. í
staðinn reyni ég að koma til móts
við hann með því að lána honum
fötin mín, ef hann telur sig geta
notað þau ...