Morgunblaðið - 18.01.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985
47
Meistaramir í basli
• Árni Lárusson sækir ad kðrfu
stúdenta í gærkvöldi. Árni átti
góðan leik meö Njarðvíkurliöinu,
eins og svo oft áður, og skoraði
þessi sækni bakvöröur 15 stig (
leiknum. Morgunblaöiö/Július
leik. Voru sunnanmenn ekki
sannfærandi i leik sínum. Valur
komst snemma i villuvandræöi
og sat á bekknum helming leik-
tímans, en hann átti mjög góöan
leik i lokin og geta Njarövíkingar
fyrst og fremst þakkað honum
sigurinn. Jónas var góöur á köfl-
um og Árni Lár á aldrei slakan
leik.
Enski dómari leiksins, Rob II-
iffe, var ákveöinn og dæmdi vel,
en það setur annars hvimleiðan
blett á skemmtilega íþrótt
hversu leikmenn, ekki aöeins
þessara liöa, heldur allra, nöldra
jafnan og naga þegar á þá er
dæmt. Fá dómarar stundum
óvandaöar kveöjur og óíþrótta-
mannslegar. Teitur Örlygsson er
ungur og efnilegur leikmaöur en
var rekinn af velli, fyrst og fremst
fyrir eigin klaufaskap, hlaut tvær
villur og brottrekstur í framhaldi
af einu og sama brotinu, fyrir aö
taka of mörg skref meö knöttinn.
Stig ÍS: Ragnar Bjartmarsson
19, Guömundur Jóhannsson 18,
Eiríkur Jóhannsson 17, Árni
Guömundsson 8, Helgi Gúst-
afsson 6 og Karl Ólafsson 6.
Stig UMFN: Valur Ingimund-
arson 20, Jónas Jóhannesson
19, Árni Lárusson 15, Hreiöar
Hreiðarsson 10, ísak Tómasson
8, Gunnar Þorvaröarson 6 og
Ellert 4.
Staöan í deildinni er nú þann-
ig, aö Njarövíkingar eru í efsta
sætinu meó 24 stig, hafa einung-
is tapaö einum leik í mótinu.
Haukar hafa 20 stig, KR-ingar
eru meö 14, Valsmenn 12, IR-
ingar 6 og Stúdentar sitja á
ÍS — UMFN
74:82
meö langneösta liö úrvalsdeildarinnar
NJARÐVÍKINGAR mörðu stúd-
enta í gærkvöldi í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í Kennara-
skólahúsinu. Sigurinn tryggðu
Njarðvíkingar á siðustu mínút-
um eftir jafnan barningsleík. f
lokin skildu 8 stig, 82—74, en í
hálfleik var staðan 42—39 fyrir
UMFN.
Leikur liöanna var mjög jafn
og lengst af útilokaö aö gera
upp á milli botnliös deildarinnar
eöa þess efsta. Stúdentar kom-
ust nokkrum sinnum yfir þótt
frumkvæöiö væri oftast Njarð-
víkinga. Jafnt var, 60—60, er 10
mínútur voru til leiksloka, en siö-
an mjökuöust gestirnir fram úr.
Léku liðin i sama gæöaflokki í
gær. Leikurinn var alls ekki lé-
legur, en UMFN hefur þó sýnt
talsvert betri leik og líklega hafa
Njarövíkingar vanmetiö and-
stæöinginn. Þaö var rétt á siö-
ustu 5—6 mínútunum aö Njarð-
víkingar náöu aö rífa sig upp og
tryggja sér sigur.
Stúdentar hafa nú í sömu vik-
unni velgt tveimur sterkustu liö-
um deildarinnar vel undir ugg-
um, UMFN og Haukum, og eru í
talsveröri sókn. Meiri ögun og
ákveöni í sóknarleiknum á loka-
mínútunum aö þessu sinni heföi
getað leitt til minni munar í
leikslok. Þá vantar fleiri skipti-
menn því sumir leikmennirnir
voru útkeyröir í lokin, bagalegt
aö Jón Indriöason skuli meiddur.
Eirikur lætur ekki deigan síga i
langskotunum og skoraöi þrjár
þriggja stiga körfur, en ekkert liö
hefur hlotiö í vetur jafnmargar
þriggja stiga körfur i deildinni og
ÍS. Beztir hjá fS voru Eiríkur og
Guðmundur, aö Ragnari og Árna
ólöstuöum.
Njarövíkingar áttu i basli aö
þessu sinni og á stundum haföi
maöur á tilfinningunni aö þeir
myndu tapa sínum öörum leik í
vetur og ÍS vinna sinn annan
botninum meö aöeins 2 stig. fS
hefur lokiö 14 leikjum, KR-ingar
13, Haukar, ÍR-ingar og Njarö-
víkingar 13 en Valur 12.
Stigahæstur i úrvalsdeildinni
nú er Njarövíkingurinn Valur
Ingmundarson meö 320 stig,
næstur kemur Haukaleikmenn-
irnir ívar Webster og Pálmar
Sigurösson, hnífjafnir meö 273
stig. Fjóröi stigahæstur í deild-
inni er Guöni Guðnason, KR-ing-
urinn sterki, meö 239 stig.
— ágás.
Heimsbikarinn:
Diana Haight
meiddist illa
KANADÍSKA skiðastÚlkMl Diana
Haight meiddist mjög illa á hná (
gær á æfingu fyrir brunkeppni (
Megeve i Frakklandi. Hún var
þegar í stað fhitt á sjúkrahús, aft-
ir að hafa lent í slysi i brautinni,
og þar var ákveðið að flytja hana
til Kanada í dag, föatudag, þar
sem hún fer í skuröaögerö. Æf-
ingum var hætt i Ehret-brautinni
eftir slysið, en 24 stúlkur höfðu
rennt sér á undan Haight. Brautin
var i mjög slæmu ásigkomulagi.
Oddný og Aðalsteinn
keppa baeði á morgun
á HM innanhúss í París
FYRSTA heimsmeistarakeppn-
in í frjálsum íþróttum innanhúss
hefst í Paris í dag. Þátttakendur
verða 380 íþróttamenn frá 74
löndum, þar á meöal íslend-
ingarnir Oddný Árnadóttir og
Aðalsteinn Bernharösson. Þau
keppa bæði í 400 m hlaupi og
spreyta sig á morgun, á síöari
degi keppninnar.
Reiknaö er meö aö 15 verð-
launahafar, þ.á m. fimm gullverö-
launahafar í Ólympíuleikunum,
veröa meðal keppenda á mótinu
í París. Chandra Cheseborough,
Ólympíumeistari í 4x100 og
4x400 m hlaupum, og silfurverö-
launahafi í 100 metra hlaupi mun
keppa í 60 m hlaupi í París. Sam
Graddy, gullverölaunahafi í
4x100 m hlaupi og silfurverö-
launahafi í 100 m keppir einnig í
París. Þau eru bæöi frá Banda-
ríkjunum.
Aörir Ólympíumeistarar sem
veröa á mótinu eru Julius Korir
frá Kenya, sem vann 3000 m
hindrunarhlaupiö í LA, Ernesto
Canto frá Mexíkó, sem vann 20
km gönguna, sem keppa mun í 5
km göngu, og Claudia Losch,
Vestur-Þýskalandi, sem sigraöi í
kúluvarpi kvenna í LA.
Þrátt fyrir aö Ólympíumeistar-
inn í stangarstökki, Frakkinn
Pierre Quinon, veröi ekki meö
vegna meiösla, er taliö aö keppni
í stangarstökki veröi einn af há-
punktum mótsins. Sovétmaöur-
inn Sergei Bubka, sem á heims-
metiö (5,94 m) og Frakkinn
Thierry Vigneron, eru taldir munu
berjast um gulliö, en Vigneron
hefur náö bestum árangri inn-
anhúss í þessari grein, stokkiö
5,85 m. Þeir áttust síöast viö í
Róm 31. september síöastliöinn.
Þeir settu báöir heimsmet á því
móti, Vigneron stökk fyrst 5,91
og Bubka 5,94 m nokkrum mín.
siðar.
Moses
segist
saklaus
Frá Gunnar Valgairasyni, fróttamanni
MorgunWaóaina i Bandarfkjunum.
Stærsta málið í þróttafréttum
hér í Bandaríkjunum þessa
stundin er handtaka Edwin Mos-
es, grindahlauparans heims-
fræga, en eins og komiö hefur
fram í Mbl., var hann tekinn af
lögreglunni og gefði það aö sök
að hafa reynt að kaupa sér tíma
hjá gleðikonu.
Ekki vildi betur til en svo aö
„gleöikonan" var dulbúin lögreglu-
kona, og lét hún handtaka Moses
samstundis og var hann færður á
lögreglustöö. Honum var siöan
sleppt er borin voru kennsl á hann.
Moses hélt blaöamannafund
vegna þessa máls og sagöist þar
vera saklaus meö öllu. „Ég var aö
koma af diskóteki er stúlka gekk
aö bíl mínum og spuröi hvaö ég
væri a gera. Ég svaraöi aö bragöi
aö ég væri bara aö leika mér. Hún
spuröi þá hvort óg væri meö ein-
hverja peninga á mér — og ég
svaraði því til aö ég væri meö 100
dollara, og hló, því ég var einungis
aö grinast. Þá vissi ég ekki fyrr en
ég haföi veriö handtekinn!"
Mönnum þykir þessi framburóur
trúveröugur — og lögreglan viröist
ekki örugg i þessu sambandi því
enn hefur hún ekki iagt fram kæru
á hendur Moses.
Fólk sem þekkir hlauparann
segír aö ekki sé möguleiki á aö
lögreglukonan hafi haft ástæöu til
aö láta handtaka hann. „Þetta er
svo fjarri hans framkomu venju-
lega," sagöi þjálfari Moses, „aö ég
legg engan trúnaö á sögu konunn-
ar.“
Þess má geta aö ABC-sjón-
varpsstööin valdi Moses íþrótta-
mann ársins 1984 í Bandaríkjun-
um, og ætluöu forráöamenn stöö-
varinnar að afhenda honum viöur-
kenningu í því sambandi í leikhléi
úrslitaieiks bandaríska fótboltans
sem fram fer á sunnudag. Eftir aö
kappinn var handtekinn gaf ABC-
stööin út þá yfirlýsingu aö afhend-
ingunni yröi frestaö. Nú hefur svo
veriö hætt viö aö hætta. Moses
fær viöurkenningu sina, í beinni út-
sendingu aö sjálfsögöu, hvaö sem
tautar og raular. Forráöamenn
sjónvarpsstöðvarinnar segjast,
eins og flestir aörir, telja Moses
saklausan í þessu leiöindamáli.
Eiginkona Moses var meö hon-
um á blaöamannafundinum og
studdi mann sinn í hvitvetna.
Moses er 39 ára aö aldri og hef-
ur yfir eina milljón dollara í árstekj-
ur.