Morgunblaðið - 09.02.1985, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 09.02.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985 43 Margir eru í vandræðum með línurnar, bókstaf- lega ráða ekkert við þær hvað sem tautar og raul- ar. Alltaf verða freistingarnar til þess að leggja menn kylliflata. Svo er aftur annað fólk, sem gerir það gott í bardaganum við kílóin, bókstaflega held- ur þeim í skefjum eða rífur þau af sér. Cheryl Tiegs heitir ljómyndafyrirsæta ein, vel þekkt fyrir vestan haf. Hún er með þeim rennilegri og státar ekki af aukagrammi. Hún stenst freistingarnar með allsérstæðum hætti. Hún talar við matinn sem hún má alls ekki innbyrða. Dæmi: „Ef ég sé snúð þá segi ég við hann: „Ég ætla ekki að borða þig.“ Ef þetta heppnast ekki og snúðurinn heillar sem fyrr reynir hún aðra bardagatækni. Hún þríf- ur vasatölvuna úr töskunni og reiknar út hitaein- ingarnar, sem í snúðnum litla kunna að leynast. Cheryl segir að það dugi venjulega og bætir við: „Annars er ótrúlegt hvar hitaeiningarnar fela sig. I einum litlum avókadó-ávexti, sem allir halda að sé ekki hót fitandi, eru nokkur stykki. Það eru alls kyns olíur í avókadó, sem geta bætt nokkrum grömmum utan á mann ef maður varar sig ekki.“ Sverrir Sverrisson og Eiður Baldursson í starfskynningu á Mogganum rfStarf ljósmyndarans heillar okkuf Sverrir Sverrisson og Eiður Baldursson frá Sauöárkróki. Þeir félagar Sverrir Sverrisson, fimmtán ára, og Eiður Baldursson, 16 ára, frá Sauöárkróki, dvöldu hér í viku hjá okkur á Morgunblaðinu f starfskynningu fyrir skömmu. Áður en þeir héldu norður spreyttu þeir sig á starfi blaða- manns og ljósmyndara og við birt- um hér með eina frétt frá þessum efnilegu piltum. Við spjölluðum aðeins við þá til að spyrja hvernig þeim hefði litist á störfin sem hér eru unnin og hvernig blaðið verður til. „Okkur hefur líkað stórvel hérna og það starf sem heillar okkur langmest er starf ljósmynd- arans. Það hlýtur að vera alveg frábær vinna og við gætum vel hugsað okkur að leggja það fyrir okkur. Það kom okkur mikið á óvart hvað allt er stórt í sniðum og í hve mörg horn þarf að líta til að koma einu blaði út. Prentsmiðjan er al- veg ofsalega stór og fullkomin. Maður bjóst ekki við þessu svona stóru öllu. Heima erum við með eitt blað sem heitir „Feykir" en það kemur aðeins út hálfsmánað- arlega og er þá ekki meira en 7 til 8 síður.“ Þannig að þið gætuð alveg hugs- að ykkur að vinna að einhverju sem varðar blaðaútgáfu eftir þessa viku? Já, já, en þá helst i ljósmynda- deildinni. Og með það kvöddu þessir ágætis piltar. Morgunblaðið/EiOur Baidursaon, starfafraeðalunemi Hjálpfús lögregluþjónn Óþægilegt getur verið þegar springur á hjólbarða á þröngum götum borgarinnar og er þá ekki spurt að því, hvort slíkt óhapp gerist um háannatímann, þegar umferð er þyngst. Þetta óhapp henti konu í gær en lán í óláni var að í nágrenninu var hjálpfús lögregluþjónn sem skipti um hjól á bifreið konunnar. Nýpifónabók Nr.3 Gefjun AKUREYRI L eðurstígvél frá Austurríki og Danmörku Litur ....svart Stærð ....VA-8 Verð..... 2680 Teg......62565 s Litur .....svart Stærð .. 36-39 Verð..... 2335 Teg...... 2004 • • Litur ...............svart Stærð ................VA-8 Verð................. 3029 Teg................. 62550 STJORNUSKOBUÐIN Laugavegi 96 - Sími 23795

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.