Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 2
2_____________________ Norska flensan komin: MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 Yfir 10 þús- und bólusettir gegn veikinni NOKSKA flensan hefur að undanfornu herjað á íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú tilfelli hafa verið greind, að sögn Lúðvíks Olafssonar, borgarlæknis. Hann sagði, að veikin hefði skotið upp kollinum í byrjun mánaðarins en rúmlega 10 þúsund manns voru sprautaðir gegn veikinni í vetur, einkum gamalt fólk og lasburða. Lúðvík sagði, að flensa hefði gengið að undanförnu og margir lagst og léki grunur á að þar færi norska flensan. Helstu einkenni flensunnar eru hiti, beinverkir og höfuðverkur, sárindi í brjósti og stundum niðurgangur. Norska in- flúensan hefur ekki breiðst út til annarra Norðurlanda, aðeins náð almennri útbreiðslu í Osló og nú í Reykjavík. Helgarveðrið: É1 og vægt frost Á laugardag er gert ráð fyrir hægri austanátt á landinu. Við suður- og austurströndina verða smáél, en éljagangur fyrir austan. Á sunnudag verður komin norð- austanátt á Norðurlandi með élj- Athugun Verölagsstofnun- ar á kaffiverölaginu lokiö: „Ekkert athugavert kom fram“ um, en á Suður- og Vesturlandi verður vestangola eða kaldi og smá él. Vægt frost verður um allt land. Við suðurströndina og á hafinu fyrir sunnan land varð vart við þrumur og eldingar í fyrrakvöld og í gærmorgun. Gunnar Hvamm- dal veðurfræðingur sagði, að ástæðan fyrir þessu hafi verið sú að í háloftunum væri ókyrrt loft og bólsturský sem fóru hátt. Þar myndast rafmagnsský með and- stæða póla og þegar kviknar þar á milli myndast blossi, eða elding. Fryst loðna til Japan: Elliðavogstanginn, þar sem tfvolf Kauplands verður f sumar og næstu sumur. MorKunblaAið/RAX Tívolí á Elliðavogstanga SAMÞYKKT hefur verið í borgar- ráði að heimila Kauplandi hf. að setja upp skemmtigarð á Elliða- vogstanga, samkvæmt tillögu borg- arskipulags og skipulagsnefndar. Er fyrirhugað að starfsemi skemmtigarðsins hefjist nú um mánaðamótin aprfl/maí. Sigurður Kárason hjá Kaup- landi hf., sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins að ætlunin væri að hafa garðinn opinn á hverju sumri frá maíbyrjun og fram í miðjan september og yrði þar boðið upp á öll helstu tívolítæki og aðstöðu fyrir unga sem eldri til að njóta útivistar. Einnig er áformað að bjóða upp á skemmtiatriði af ýmsu tagi um helgar og á kvöldin og ýmsar uppákomur, að sögn Sigurðar. Samkvæmt bókun skipulags- nefndar er heimilað að reka á svæðinu svokallað „mini-tívolí“ og eru afnot heimiluð til þriggja ára. Er hér um að ræða 1,5 hekt- ara svæði í vestari uppfyllingu í Elliðaárósum, sunnan smábáta- hafnarinnar. „AF GEFNU tilefni hefur Verð- lagsstofnun gert athugun á verð- lagningu á kaffi á árunum 1979—1980. Þeirri athugun er lok- ið og telur stofnunin ekki tilefni til frekari aðgerða í málinu," segir í fréttatilkynningu Verðlagsstofn- unar sem Morgunblaðinu barst í dag. „Það kom ekkert athugavert fram í þessari athugun, og er því ekkert frekar um hana að segja," sagði Gunnar Þorsteinsson að- stoðarverðlagsstjóri í samtali við blm. Mbl. í gær. Verðmæti sölusamninga 300 milljónir kr. Útflutningsverðmæti þeirra 7 þúsund tonna af frystri loönu sem útflytjendur hafa Borgarstjóm í gærkvöldi: Skíðaskálinn yerður seldur A FUNDI borgarstjórnar Reykja- víkur í gærkvöldi var samþykkt með 11 atkvæðum gegn 8 að selja Skíðaskálann í Hveradölum núver- andi leigutaka, Carli J. Johansen. Verðmæti skálans og annarra eigna borgarinnar í Hveradölum, þar með talin skíðalyfta, er sam- kvæmt kaupsamningnum 3 millj- ónir kr. Borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins gerðu tillögu um að sölu skálans yrði frestað og mál- inu vísað til húsfriðunarnefndar en þeir hafa jafnframt gert til- lögu um að skíðaskálinn verði friðlýstur. Frestunartillagan fékk 10 atkvæði og hlaut því ekki stuðning. talið sig geta selt til Japans á þessu ári gæti verið nálægt 250—300 milljónum kr., að sögn Guðmundar H. Garðars- sonar, viðskiptafræðings hjá Sölumiðstöö hraðfrystihús- anna. Loðnan þarf aö vera í ákveðnu ásigkomulagi fyrir þennan markað, hún er núna í frystingarhæfu ástandi en lík- legt er talið að hún verði það ekki nema fram í miðjan mars, að sögn Andrésar Finn- bogasonar hjá Loðnunefnd. Loðnan er margfalt verðmeiri fryst en brædd og ef verkfall sjó- manna stendur það lengi að ekki verður hægt að frysta hana fyrir Japan missa sjómenn, útgerðin og vinnslan þessar tekjur. Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði í samtali við Mbl. í gær að útflutningsverðmæti þeirra 100 þúsund tonna sem eft- ir er að veiða af loðnu á vertíð- inn væri rúmar 300 milljónir kr. miðað við að loðnan færi öll í bræðslu. Reikna mætti með að út úr henni kæmu 16 þúsund tonn af mjöli að verðmæti um 229 millj. ísl. kr. og 6 þúsund tonn af lýsi, að verðmæti um 77 milljónir kr. Hann sagði að þetta magn hefði getað veiðst á tveim- ur vikum. Sagði hann að loðnu- frystingirt hefði gengið mjög vel, loðnan hefði aldrei verið jafn stór og heppileg til frystingar og nú. Magnið hefði eingöngu verið undir því komið hverju frysti- húsin hefðu getað annað. Hert eftirlit með hundahaldi: Eitt leyfi var afturkallað vegna rangra upplýsinga Hundaeftirliti Reykjavíkur bárust kvartanir um tvo hunda í Seljahverfi í Breiðholti fyrir nokkru. Að sögn Odds R. Hjartarson- ar, framkvæmdastjóra Hunda- eftirlitsins, hafa eigendur þess- ara hunda farið að tilmælum eftirlitsins um að hafa hundana í bandi þegar þeir eru úti við, eins og segir í samþykkt um hundahald í borginni. „Þessir hundar hafa ekki ráð- ist á neinn," sagði Oddur, „Menn eru bara hræddir við þá. Þeir eru með gelt og flaðra upp um fólk og hræða þannig blaðsölubörn með urri þegar þeir verja lóðir eigenda sinna.“ Eftir að hundarnir voru settir í band hefur aðeins ein kvörtun borist vegna annars hundsins en það var vegna þess að einhverjir höfðu verið að kvekkja hann og hundurinn þá glefsað. Hvorugur hundanna hefur bitið mann. Mjög mikið hefur verið að gera hjá hundaeftirlitinu síðan það tók til starfa. Á næstunni mega hundaeigendur, eiga von á því að hart verði gengið eftir því að hundar séu á skrá og þeir hundaeigendur, sem ekki sinna skráningarskyldu, verða kærðir. Þegar umsókn um hundahald berst fer eftirlitið og kannar all- ar aðstæður umsækjenda. Full- nægi umsóknin settum skilyrð- um fyrir hundahaldi, er hún lögð fyrir borgarráð og afgreidd það- an. Eitt leyfi hefur verið aft- urkallað af borgarráði, vegna þess að gefnar voru upp rangar upplýsingar um þær aðstæður, sem voru í því húsi sem hundur- inn bjó í.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.