Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 19 þjóðanna en að fjölga sátta- semjurunum. Hann endaði grein sína með orðunum: „Skomaker — bli ved din lest“. Og nú færðist fjör í umræðurn- ar. Þótti sumum sendiherrann hafa sýnt nokkurn hofmóð í skrif- um sínum og að þróun alþjóða- mála síðustu árin bæri vott um að ríki heims þyrftu á hjálp fleiri að- ila en Sameinuðu þjóðanna að halda til þess að forða því að deilumál leiði til vopnaðra átaka. Tveir af starfsmönnum norsku friðarrannsóknarstofnunarinnar rituðu m.a. grein, þar sem þeir töldu ástæðu til þess að fjölga kostum í „friðarsáttum" (freds- megling) og þar sem tillögur Björns Egge fjölluðu um viðbót- arkosti við þá möguléika, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa til málamiðlunar, væri ekki ástæða til annars fyrir talsmenn Samein- uðu þjóðanna en að taka tillögun- um vel. Björn Egge hefur í síðustu grein sinni um málið, sem hann birti í Aftenposten í október s.l., lagt áherzlu á rétt Rauða kross-hreyf- ingarinnar til þess að taka frum- kvæði í mannúðarmálum og undir það falli „friðarsættir“, þegar öll önnur sund hafa lokast, þ.á m. sáttatilraunir á vegum Sameinuðu þjóðanna. Forsendur fyrir slíku starfi séu þó að allir aðilar deil- unnar fallist á það, að Rauöi krossinn reyni að miðla málum og málamiðlunarstarfið brjóti ekki í bága við hlutleysi hreyfingarinn- ar. því tilefni. Aðstandendur eru af ýmsu þjóðerni, bæði frá stórveld- um austurs og vesturs og óháðum ríkjum. Nefnist stofnunin á enskri tungu „The Foundation for Int- ernational Conciliation" og á hún að starfa sjálfstætt og eigi í hagn- aðarskyni. Hugmyndin er að nýta nýjar að- ferðir í sáttastarfi í líkingu við þær, sem settar hafa verið fram í áðurnefndu samningaverkefni Harvard-háskóla og sem notaðar voru í Camp David-samningunum 1978. Um aðferðir við þá samn- ingagerð hafa verið skrifaðar eft- irtektarverðar greinar af háskóla- mönnum og öðrum sérfræðingum og vissulega varð árangurinn óvæntur, hvern þátt sem nýjar samningaaðferðir hafa átt í því. Ekki er þó við því að búast að hinir lærðu menn hafi fundið neinn „stórasannleik" um það at- riði, hvernig setja eigi niður deilur á plánetunni, þar sem vopnuð átök eru yfirvofandi. Þar dugar engin ein aðferð eða ein stofnun. En vissulega er nauðsynlegt að kanna allar leiðir og safna þekkingu um þær aðferðir, sem bezt hafa reynst. Klædi á vopnin, en hvað svo? Björn Egge hefur beint umræð- um um friðarmál að því umræðu- efni, hvað gera skuli þegar styrj- öld er um það bil að skella á og Sameinuðu þjóðirnar og svæðis- bundin ríkjasamtök geta ekki komið í veg fyrir hana. Hann hef- ur einnig beint huga manna að því grundvallaratriði, hvað komið geti í stað vopnavalds. Þótt komiö hafi verið á fót alþjóðastofnunum í því skyni, brestur getu þeirra sorglega oft. Klæði á vopnin, en hvað svo? Það er vissulega umhugsunar- efni fyrir okkur íslendinga jafnt sem aðrar þjóðir. Febrúar 1985 Alþjóðaráð Rauða krossins býr sig undir sáttastarf Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC), sem mannað er Svisslend- ingum, hefur nú ákveðið að búa sig undir sáttastarf af þessu tagi, ef eftir hjálp þess verði leitað. Er ætlunin að gera það bæði með þjálfun eigin starfsmanna og eins með því að leita til sérfræðinga frá óháðum stofnunum. í ágúst sl. var ein slík stofnun sett á fót í og voru fulltrúar Alþjóða- Björn Friðfinnsson á sæti ístjórn is viðstaddir fundahöld af Rauða kross Islands. Forsætisráðherra um rækjuvinnsluleyfi til Kaupfélagsins á Patreksfirði: „Eðlilegt að veita leyfið til að nýta hús og skip“ „MÉR finnst mjög eðlilegt að Kaupfélag V-Barðstrendinga fái rækjuvinnsluleyfi, því þeir eru þarna með hús sem ekkert þarf að breyta nema setja í einhverjar vél- ar. Þetta hús nýtist ekki fyrir slát- urhús, þár sem veriö er að slátra mest öllu fé á svæðinu út af riðu- veiki,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra er blm. Mbl. spurði hann hvort það væri að hans mati eðlilegt að Kaupfélagið á Patreksfirði fengi leyfi til rækju- vinnslu, en fyrirtækið Vatneyri ekki, sem sótti um rækjuvinnslu- leyfi fyrir hálfu öðru ári. Steingrímur sagði að tvö skip þeirra Patreksfirðinga stæðu ónotuð ákveðinn hluta ársins, þar sem þau fengju ekki meiri kvóta, og því sagðist hann telja það mjög eðlilegt að þeir fengju rækjuleyfi. Það yrði til þess að bæði skip og hús nýttust betur. „Ég vil taka það fram,“ sagði for- sætisráðherra, „að ef svipað er ástatt með þá hjá Vatneyrinni tel ég það fyllilega eðlilegt að þeir fái vinnsluleyfi einnig. Þar á ég við að húsið hjá þeim fullnægi þeim kröfum, sem gerðar eru til rækjuvinnslustöðva og þeir hafi skip til rækjuveiðanna." á morgun kl. 1—4 KAUPIÐ NYJAN LADA LUX Verö Lán 248.000 128.000 Þér greiöiö 120.000 VERÐ Á LADA BILUM Lada 1200 Lada sport Lada safír Lada station kr. 198.500 kr. 408.000 kr. 219.600 kr. 216.00 NYIR 0G N0TAÐIR BÍLAR TIL SÝNIS 0G SÖLU TÖKUM VEL MEÐ FARNA LADA UPP í NÝJA Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf! jíðTiu Suðurlandsbraut 14 - Simi 38600 Söludeild 31236 i ttttmuumm#r ^tiYrtns»iti»lit BÍLASÝNING Höfum í okkar þjónustu tvo innahúsarkitekta, sem standa yður ávallt til boða, þegar um er aö ræöa val og skipulagn- ingu á nýjum eldhúsinnréttingum —allar leiðbeiningar eru aö sjálfsögöu án allra skuldbindinga. 15% afsláttur af Alno heimilistækjum, séu þau keypt með innréttingum. BlllDeldhús Grensásvegi8 (áður Axminster) simi 84448
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.