Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 41 Stykkishólmur: Fundur um fíkni- efnavandann Stykkishólmi, 14. febrúar. SVO SEM kunnugt er hefir Lions-hreyfingin ákveðið um allan heim að beita sér fyrir baráttu allra til fyrirbyggjandi starfs í áfengis- og fíkniefnamálum. Hafa verið skipaðir fulltrúar í ölíum Lions-klúbbum þessa lands og eiga þeir að vera bæði tengiliðir milli aðalsvæðis og hinsvegar áhugamenn um starf í þessum efnum í hverjum klúbbi. Fíkniefnafulltrúi Lions á íslandi, Þór Guðjónsson, hefir ritað öllum klúbbum þar sem hann bendir á 7 atriði málefni þessu til framdrátt- ar. 1. Stuðla að fræðslu á hinum ýmsu skólastigum í landinu um þessi mál. 2. Gangast fyrir ritgerðasam- keppni og veggspjaldagerð um fíkniefnavarnir í skólum landsins. 3. Vinna að útgáfu fræðslurita um fíkniefnavarnir og styðja slíka út- gáfu. 4. Útvega myndbandsspólur og kvikmyndir um fíkniefnavarnir. 5. Styðja heilbrigða tómstunda- iðju. 6. Leita samstarfs við aðra aðila sem vinna að fíkniefnavörnum. 7. Fá aðila sem vinna að ungl- ingamálum til að flytja erindi um fíkniefnavandamálið á Lions- fundum. Ennfremur að stuðlað verði að erindaflutningi um fíkni- efnavarnir í hópum foreldra og unglinga og reyna að koma á um- ræðum um efni erindanna. Fyrsti fundur um þessi mál var svo haldinn í Lions-klúbbi Stykkis- hólms í gær, þar sem Sigfús Sig- urðsson, sem er fulltrúi klúbbsins um þessi mál, reifaði þau í stuttu máli og Pálmi Frímannsson heilsu- gæslulæknir í Stykkishólmi flutti erindi um hinn gífurlega vanda sem hér væri á ferðum og skil- greindi vímuefni frá lyfja- og heil- brigðissjónarmiði. Var ræða Pálma ítarleg og víða komið við. Á eftir spunnust nokkrar um- ræður um málið og eins voru gerð- ar fyrirspurnir til frummælanda sem hann svaraði. Þar sem fundartími var liðinn og meira en það var ákveðið að fresta umræðum til síðari tíma, en það fer ekki á milli mála að þetta um- ræðuefni og sú vá sem fyrir dyrum er, verður hugsandi mönnum mikið áhyggjuefni og er þegar orðið. Á Lions-hreyfingin heiður skilið fyrir að taka á þessum málum og hve raunverulega og vel undirbúin hún heldur af stað í þessa miklu baráttu. Þessi fundur markar vissulega sín spor á þessum tíma- mótum. Árni Foreldraráð Laugarnesskóla harmar skilningsleysi yfirvalda Foreldraráð Laugarnesskóla hefur sent menntamálaráðuneytinu, fjár- málaráðuneytinu, Kennarafélagi Reykjavíkur, Kennarasambandi ls- lands og öllum fjölmiðlum eftirfar- andi bréf: „Fundur haldinn í foreldraráði Laugarnesskóla fimmtudaginn 14. febrúar 1985 harmar það skiln- ingsleysi yfirvalda gagnvart kjör- um og aðbúnaði kennara sem við- gengst víða í grunnskólum. Við foreldrar sjáum fram á að verði ekkert að gert er hætta á að börnin okkar njóti ekki kennslu hjá kennurum með full réttindi. Því krefjumst við að stjórnvöld bæti kjör og aðbúnað kennara, svo að börn í dag fái notið þeirrar kennslu sem þeim er ætlað í grunnskólalögunum. Fundurinn mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um bónusgreiðslur fyrir aukinn fjölda nemenda í bekkjardeildum. Slíkar hugmyndir eru aðeins til þess að auka álag á kennara sem og minnka þá aðstoð sem sumir nem- endur þurfa á að halda." Bréfið er undirritað af 14 fund- armönnum. (Kréttatilkynning.) Það eru óneitanlega tilþrif í þessu atriði. Ærslaleikur frumsýndur í Borgarnesi: Rómantískt aldamóta- verk um fornar ástir - segir höfundurinn, Trausti Jónsson veðurfrædingur Borgarnesi, 20. febrúar. LEIKDEILD UMF Skallagríms frumsýnir nýtt íslenskt gamanleik- rit, „Ingiríði Óskarsdóttur“ eftir Trausta Jónsson veðurfræðing, í samkomuhúsinu í Borgarnesi nk. laugardag, 23. febrúar, kl. 21. Leikritið er með söngvum og tónlist, aðallega eftir Bjarna Valtý Guðjónsson. Hljómsveitar- stjórn og útsetningar annast Björn Leifsson en leikstjóri er Guðjón Ingi Sigurðsson. Leikend- ur í verkinu eru 9 en alls hafa um 30 manns tekið þátt í uppfærsl- unni. Leikurinn gerist á Flæðiskeri sem mun vera eyja vestanlands. Höfundurinn, Trausti Jónsson, sagði í samtali sem birtist í Morg- unblaðinu fyrir nokkru að leikritið væri ærslaleikur eða farsi. „Þetta er algjör andstæða tímamótaverks og það er ekkert sagt í þessu sem hefur ekki verið sagt ótal sinnum. Það vottar ekki fyrir frumlegri hugsun i verkinu og flest er stælt og stolið úr svipuðum leikjum þó efnið sjálft sé allt annað. Einna helst væri hægt að segja þetta rómantískt aldamótaverk. Sögu- þráðurinn í sjálfu sér er ákaflega flókinn og það yrði alltof langt mál að útskýra öðruvísi en þylja allt leikritið. Það eina sem kannski einkennir verkið er að það fjallar að miklu um fornar ástir," sagði Trausti þegar blaðamaður- inn reyndi að grafast fyrir um þetta verk hans. — HBj. Tveir leikaranna í „Ingiríður Óskarsdóttir", Blængur Alfreðsson tekur Ingv- ar Sigurðsson föstum tökum. Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída: Útflutningur ís- lenskrar verðbólgu Ekki veit ég, hvort fslendingar hafa gert sér grein fyrir því, að valdatími Ronalds Reagan, hérna í henni Ameríku, hefir verið slæmt tímabil fyrir af- komu íslands. Hin vel heppnaða barátta hans gegn verðbólgunni hefir orðið til þess, að langflest- ar vörur, þar með taldar matvör- ur, hafa staðið í stað eða jafnvel lækkað í verði á undanförnum árum. Verðbólgan 1984 varð ekki nema 4%, sem er svo smávægi- legt, að hún á það varla skilið að vera kölluð bólga. Verð á fiskafurðum á þessum langmikilvægasta markaði fs- lendinga hefir að mestu haldizt óbreytt eða lækkað, og hefir bað haft stórslæm áhrif á afkomu sjávarútvegsins og þjóðarínnar heild. Hér áður fyrr, sérstaklega þegar demókratar voru við völd, var hér víðunandi verðbólga og verðlag hækkaði nægt og bít- andi, eins og tíðkast hjá öllum löndum með háþróað efnahagslíf eins og t.d. fsland. Nú eru sumir Ameríkanar loksins farnir að sjá, að verð- bólgulaust efnahagslíf er ef til vill ekki eins ákjósanlegt og verðbólguandstæðingar hafa haldið fram öll þessi ár. Þessir glöggu menn benda á, að það geti verið mjög slæmt fyrir iðnrek- endur og aðra framleiðendur að geta ekki velt smávægilegum framleiðslukostnaðarhækkunum út í verð vörunnar, eins og svo auðvelt var að gera áður, og kenna bara um verðbólgunni. Núna er feikilegur þrýstingur á móti hvers kyns hækkunum. í annan stað er bent á, að launþegar verði órólegir og óánægðir, þegar laun standi svo að segja i stað. Kauphækkanir eru nú fáar og langt á milli. Það er ekkert líkt því sem var, þegar blessuð verðbólgan sá um að launatékkarnir hækkuðu með reglulegu millibili. Verðbólgu- leysi orsakar slen og óánægju hjá vinnulýðnum. Við þekkjum þetta svo vel af íslandi. Þegar verðbólgan er í al- gleymi, er gróska og fjör á öllum sviðum. Einstaklingunum finnst upp til hópa, að þeir séu fjár- málasnillingar og þeir njóta þess að láta verðbólguölduna bera sig áfram. Allir eru þeir sannfærðir um að þeir hafi gert reyfara- kaup, þegar þeir keyptu íbúðina eða húsið, því á fáum árum hafa slíkar eignir þotið upp í verði. „Ég borgaði ekki nema 1,8 millj- ónir,“ segja þeir roggnir. Það eykur á vellíðan og hamingju lífsins. íslendingar eru búnir að sjá það, að þeir geta ekki eða vilja ekki lifa án verðbólgu. Launþeg- arnir lýstu vilja sínum í verk- fallinu mikla í haust er leið. Og af framansögðu má sjá, að það er líka feikilega mikilvægt, að næfileg verðbólga ríki jbeim löndum, þar sem við seljum af- urðir okkar. Verð það, sem við fáum fyrir fiskinn, barf að hækka með reglulegu millibili, svo við getum eytt fyrirfram út á þessar hækkanir á íslandi, eins og gert hefir verið í marga ára- tugi. Við mörlandar eigum ekki einungis erfitt með að lifa án verðbólgu í okkar eigin landi, heldur hefir það sýnt sig, að út- flutningsverzlunin þrífst ekki al- mennilega nema þessa nauðsyn- legu og vingjarnlegu bólgu sé einnig fyrir að finna í markaðs- löndum okkar. En hvað getum við gert til að bæta þetta ófremdarástand? Getum við snúið þessari þróun við? Líklega getum við ekki haft mikil áhrif á skömmum tíma, en eitthvað verðum við samt að reyna að gera. Byrja mætti á því að viðurkenna, að við getum ekki lifað án verðbólgu. Siðan þurfum við að vinna skipulega að því að útbreiða verðbólguboðskapinn á erlendum vettvangi, fyrst og fremst í Ameríku. Ameríkanar prédika um lýð- ræði og einkaframtak, og reyna eftir beztu getu að snúa þjóðum heimsins á sína braut. Öll vitum við, hvað hinir vondu kommar í Rússlandi hafast að. Þeir halda uppi þrotlausum áróðri um ágæti kommúnismans um alla heimskringluna. Svíar boða af- vopnun og bann kjarnavopna. Þetta eru nú bara þeir helztu, sem flytja vilja út lífsstefnur sínar og hafa áhrif á aðra jarð- arbúa. Nú skulum við bæta ís- landi í hópinn og hefjast handa við að breiða út okkar lífsins boðskap, verðbólgukenninguna. Þetta ætti að vera mjög tíma- bært, því mikið er rætt og ritað um það, að Islendingar eigi að hefja útflutning þekkingar. Og mýgrút eigum við af mennta- mönnunum. Ég gæti trúað, að á landinu séu nú fleiri doktorar en sjómenn. Hér er þeirra tækifæri til að leggja sitt lóð á vogarskál- arnar. í áróðrinum þarf að beita öll- um tiltækum ráðum og sýna mikil klókindi. Hið ritaða mál er mjög mikilvægt, en einnig væri hægt að hefja útvarp á ensku. Senda mætti leikflokka til að setja upp góð íslenzk verðbólgu- leikrit, popparar gætu sungið verðbólgunni prís o.s.frv. Koma yrði á allslags skiptiheimsókn- um, og gætum við þannig sent góða verðbólgumenn til að halda fyrirlestra við bandaríska há- skóla. Ef til vill yrði hægt að fá am- erísku verkalýðssamböndin til að bjóða Kristjáni Thorlacius í sex mánaða kynnisdvöl. Gæti hann eflaust hrært eitthvað upp í þeim. Hver veit, nema hægt væri að lauma nokkrum tslenzk- um bankastjórum inn í banka- kerfið vestra og ættu þeir að geta gert þar einhvern usla á skömmum tíma. Þeirra yrði ábyggilega ekki saknað á Fróni, því af nógu er að taka. Ef allt annað bregzt, væri hægt að finna nokkra særinga- menn á íslandi. sem reynt gætu að særa eða vekja upp verð- bólgudrauginn í Ameríku. Öllum ráðum verður að beita, því hér er til mikils að vinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.