Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
Tímamót
r
Arni Gunnarsson fyrrverandi
alþintíismaður stýrir þætti á
rás I á miðvikudögum er hann
nefnir Tímamót. Þættir þessir
fjalla um hverskyns tímamót í lífi
einstaklinfía og fjölskyldna. Þannig
ræddi Árni að þessu sinni við níu
barna foður frá Akureyri er tók sig
nýlega upp með barnahópinn og
flutti út í sveit. Maður þessi er
trésmiður að mennt og vænti fárra
verkefna heima á Akureyri, en þeg-
ar hann kemur í sveitina bíður
hans kirkjusmíð. Svona er lífið
eöldrótt. Kannski er það bara vilji
Guðs að er þessi maður flytur út i
sveit að rækta jörðina, fær hann
þess í stað vinnu við smíði Guðs-
húss? Máski er Drottinn allsherjar
að sýna í verki þakklæti vegna hins
myndarlega barnahóps? Við þekkj-
um eigi hugsun almættisins og þau
rök er þar liggja að baki, eða hvað
meinar Predikarinn er hann segir:
Það, sem við ber, hefir fyrir löngu
hlotið nafn sitt, og það er ákveðið,
hvað menn eiga að verða, og mað-
urinn getur ekki deilt við þann,
sem er honum máttkari. Og þótt til
séu mörg orð, sem auka hégómann,
hvað er maðurinn bættari? Því
hver veit, hvað gott er fyrir mann-
inn í lífinu, alla daga hans fánýta
lífs, er hann lifir eins og skuggi?
Þvi hver segir manninum, hvað
bera muni við eftir hans dag undir
sólinni?
Köllunin
Svo mörg voru þau orð og gætu
einnig mætavel átt við síðari við-
mælendur Árna í fyrrgreindum
þætti, tvo hjúkrunarfræðinga er
hafa ákveðið að halda til Eþíópíu
að líkna bágstöddum. Heyrðist mér
að hér væru á ferð tápmiklar stúlk-
ur er höfðu báðar allmikla reynslu
af hjúkrunarstörfum erlendis.
Auðvitað vissu stúlkurnar ekki
hvers var að vænta í Eþíópíu, en
Árni þekkir nokkuð til þarna og
gat þess sérstaklega að algengt
væri að vestrænt hjúkrunarfólk
þyldi ekki hið mikla tilfinningalega
álag er fylgir störfum á hungur-
svæðunum. Minntu þessi ummæli
Árna Gunnarssonar mig á grein
eftir Edward M. Kennedy öldunga-
deildarþingmann er hann ritaði í
janúarhefti (28. jan.) vikuritsins
People, en þar lýsti Kennedy viku-
dvöl sinni og tveggja barna sinna,
þeirra Köru og Teddy, í hjálpar-
búðum í Eþíópíu og Súdan.
Lýsing Kennedys
Lýsing Kennedys öldungadeild-
arþingmanns er átakanleg og ber
með sér að þar fer mannvinur er
hugsar ekki bara um þá betur settu
í heimi hér. Kennedy getur sér-
staklega um hugrekki og mann-
gæsku hjálparfólksins. Að sjá líf
færast að nýju í augu barnanna er
aflgjafi þessa hjálparfólks. En
Kennedy gefur ekki bara gaum að
hinu hugprúða hjálparfólki: Inní
fæðugjafatjaldinu var megn
ódaunn. Flugur skriðu yfir augu
barnanna ... glýja á augnsteinum
þýddi að eitthvað alvarlegt var að.
Við tókum sérstaklega eftir því hve
mörg barnanna höfðu misst stjórn
á augnhreyfingunum — og alltaf
þessi hósti. Samt voru mömmurnar
önnum kafnar við að flétta hár
þessara barna einsog þau væru á
leið í afmælisboð. Gagnvart slíkum
veruleika fær fyrrgreindur texti
Predikarans annarlega merkingu.
Þá verður þetta ekki lengra að
sinni en takið eftir myndinni af
Kennedy þar sem hann rabbar við
níræða konu sem hefir misst öll níu
börn sín í greipar hungursins.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Ingrid Bergman og Charles Boyer í hlutverkum sínum.
GASLJÓS
— bandarísk sakamálamynd
■ Föstudags-
15 myndin er
— bandarísk
sakamálamynd í
svart/hvítu frá árinu 1944
og nefnist Gasljós (Gas-
light), gerð eftir sam-
nefndu leikriti Patricks
Hamilton.
Myndin gerist á Eng-
landi á öldinni sem leið.
Kona er myrt og talið er
að morðinginn sem kemst
undan hafi tekið með sér
hina frægu Barlow-rúb-
ína. Fimmtán árum síðar
gerast atburðir sem varpa
nýju ljósi á málið.
Paul, frændi myrtu
konunnar, og kona hans,
Bella, flytjast inn í hús
látnu frænkunnar. Upp úr
kafinu kemur að Paul er
að reyna að æra konu
sína, jafn framt því sem
hann leitar ákaft að týndu
rúbínunum.
Grunsemdir vakna hjá
leynilögreglumanninum
Rough og böndin berast
að Paul sem morðingja
frænkunnar. Fær Rough
Bellu í lið með sér og sam-
an reyna þau að færa
sannanir fyrir máli sínu.
Leikstjóri er Thorold
Dickinson en með aðal-
hlutverk fara Ingrid
Bergman, Charles Boyer
og Joseph Cotten.
/r
A sveitalínunni
■I Hilda Torfa-
15 dóttir er stjórn-
*“ andi þáttarins
Á sveitalínunni sem er á
dagskrá RÚVAK í kvöld
kl. 23.15.
Að þessu sinni ræðir
Hilda við Ólínu Jónsdótt-
ur á Flatey á Breiðafirði
um lífið og tilveruna. Þá
spjallar hún við Ólafíu
Egilsdóttur á Hnjóti í Ör-
lygshöfn í Barðastrand-
arsýslu. Hún rifjar upp
uppvaxtarár sín á
Sjöundá, en sem kunnugt
er gerðust þar atburðir
sem síðar urðu efni í bók,
mynd og ieikrit. Er hér
átt við morðin sem þar
voru framin á öldinni sem
leið og Gunnar Gunnars-
son rithöfundur skrifaði
síðar um í bók sinni
Svartfugl.
Loks verður rætt við
Jónas Jónasson þar sem
hann segir frá kynnum
sínum af Lizzy á Hall-
dórsstöðum. Lizzy var
skosk en giftist til íslands
og vakti mikla aðdáun
manna á meðal. Hún var
mikil söngkona og mun
Hilda leika upptökur með
söng hennar þar sem hún
syngur tvö lög. Jónas
þekkti Lizzy vel þar sem
hann var sem strákur í
sveit á Halldórsstöðum.
Skólalíf
Rjett verður við eldri og yngri nemendur.
KASTLJÓS
- fjallað um MR
■■ { kvöld kl. 21.25
25 verður sýndur
“- fyrsti þáttur af
þremur um félagslíf og
skólabrag í íslenskum
framhaldsskólum.
í þessum fyrsta þætti
sem unninn er af Sigurði
G. Valgeirssyni verður
staldrað við í Menntaskól-
anum í Reykjavík. Fjallað
verður um hefðir þessa
aldna skóla sem breyst
hafa minna en í öðrum
framhaldsskólum lands-
ins í gegnum árin. Fylgst
verður með félagslífi við
skólann og íþróttaiðkun-
um og rætt verður við
yngri og eldri nemendur
um skólalífið fyrr og nú.
Það fer vel á því að
byrja á Menntaskólanum í
Reykjavík þar sem hann
skipar sérstakan sess sem
elsti framhaldsskóli á
landinu. Síðar á árinu
verður fjallað um Fjöl-
brautaskólann á Akranesi
og Alþýðuskólann á Eið-
um.
■■■■■ Kastljós verður
OA 55 * sjónvarpi í
vf kvöld kl. 20.55.
Umsjónarmaður er Ólafur
Sigurðsson og er þáttur-
inn um innlend málefni.
f þættinum verður rætt
við tvo Vestfirðinga, þá
Einar K. Guðfinnsson á
Bolungarvík og séra Lár-
us Guðmundsson á Holti í
Önundarfirði um hugsan-
legar radarstöðvar fyrir
vestan en þeir eru á önd-
verðum meiði um það mál.
Þá verður litið við hjá
nokkrum áhugamönnum
sem hafa gert upp gamla
bíla og skoðaðir verða
fornbílar þeir sem Þjóð-
minjasafnið hefur að
geyma.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
22. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leiktimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar trá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð — Kristján Þor-
geirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Pipuhattur galdramanns-
ins“ eftir Tove Jansson.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
les þýðingu Steinunnar
Briem (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin
kær“
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli sér um þáttinn
(RÚVAK).
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Blessuö skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vfg-
lundsdóttir les þýðingu slna
(12).
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
a. Konsert fyrir selló og
blásarasveit eftir Jacques
Ibert. André Navarra og
Kammerblásarasveitin I Prag
leika; Martin Turnovský
stjórnar.
b. Fiðlukonsert I d-moll op.
47 eftir Jean Sibelius. Hen-
ryk Szeryng og Sinfónlu-
hljómsveit Lundúna leika;
Gennady Rozhdestvensky
stjórnar.
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu
10. Baldur rýfur keðjuna
Kanadlskur myndaflokkur I
þrettán þáttum, um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þóröard-
óttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 60 ára afmælismót
Skáksambands Islands
Skákskýringaþáttur.
17.10 Siðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Kvöldfréltir. Tilkynn-
ingar.
19.55 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björn Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. Frá safnamönnum. Þáttur
um þjóöleg efni.
b. Fyrr en dagur rfs. Guðrún
Aradóttir les frásðgn frá
Grænlandi úr samnefndri
20.55 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónarmað-
ur ólafur Sigurðsson.
21.25 Skólallf 1. Vita in schola
Fyrsti þáttur af þremur um
félagsllf og skólabrag I Is-
lenskum framhaldsskólum.
I þessum þætti veröur staldr-
að viö I Menntaskólanum I
Reykjavlk. Fjallaö verður um
hefðir þessa aldna skóla,
fyigst með félagsllfi og
Iþróttaiökunum og rætt við
eldri og yngri nemendur um
skólallfiö fyrr og nú.
Umsjón: Sigurður G. Val-
geirsson.
bók eftir Jörn Riel I þýðingu
Friðriks Einarssonar.
c. Mannahvörf og morð-
grunur. Úlfar K. Þorsteinsson
les um hvarf séra Odds frá
Miklabæ úr „Grlmu hinni
nýju“. Þetta er fyrsti þáttur
af fjórum. Umsjón: Helga
Agústsdóttir.
21.30 Hljómbotn
Tónlistarþáttur I umsjón Páls
Hannessonar og Vals Páls-
sonar.
22.00 Lestur Passíusálma (17)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Stjórn upptöku: Valdimar
Leifsson.
22.15 Gasljós (Gaslight) s/h
Bandarisk sakamálamynd
frá 1944, gerö eftir sam-
nefndu leikriti eftir Patrick
Hamilton.
Aðalhlutverk: Charles Boyer,
Ingrid Bergman og Joseph
Cotten.
Myndin gerist I Englandi á
öldinni sem leið. Kona er
myrt til fjár og morðinginn
finnst ekki. Fimmtán árum
slöar gerast atburðir sem
varpa nýju Ijósi á málið. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
00.20 Fréttir I dagskrárlok.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Úr blöndukútnum
— Sverrir Páll Erlendsson
(RÚVAK).
23.15 A sveitallnunni
Umsjón: Hilda Torfadóttir
(RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
FÖSTUDAGUR
22. febrúar
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Póslhólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
Hlé
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vlgnir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásir 1 og 2 samtengjast að
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
22. febrúar