Morgunblaðið - 22.02.1985, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
IMYNDLISTASYNINGAR A KJARVALSSTOÐUMI
Páll Guðmundsson:
MorKunblaöiö/Bjarni
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir
Rut Rebekka:
Málverk og
graffkmyndir
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir opnar syningu í málverkum og grafíkmynd
um á Kjarvalsstöóum á morgun, laugardaginn 23. febrúar.
Þar sýnir hún 43 myndir, unnar
í oliu og akrýl auk silkiþrykks.
Rut Rebekka stundaði nám við
Myndlistaskólann i Reykjavík á
árunum 1975—1978. Hún útskrif-
aðist úr Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1982. Síðastliðið
sumar dvaldi hún í gistivinnustofu
i Danmörku á vegum Nordisk
Kunstcenter.
Hún hefur tekið þátt i nokkrum
samsýningum, við opnun Gerðu-
bergs árið 1983, haustsýningu FlM
á Kjarvalsstöðum 1983 og sýningu
í Riggs Gallery í Kaliforníu i
Bandaríkjunum 1984. Auk þess
hefur hún haldið einkasýningar i
Bókasafni Mosfellssveitar 1984 og
i Viborg i Danmörku 1984.
Sýningu Rutar Rebekku lýkur
10. mars n.k. og er hún opin frá kl.
14.00 til 22.00.
Nú eldar eiginmaöurinn ...
Konudagssteikin
ávaxtafyllt bac
on-steik tilbúin
ofninn
Ódýrt!
íþróttasokkar 69 kr.
Svartir og hvítir pottar 447—555 kr.
Barna- og unglingakörfustólar 840 kr.
Meira fyrir minna
Opnar höggmyndasýningu
PÁLL Guðmundsson á Húsafelli
opnar höggmyndasýningu á Kjar-
valsstöðum á morgun, laugardag.
Sýningin stendur til 10. mars nk.
og er opin frá 14—22.
Páll var við nám í Myndlista-
skólanum árin 1977—1982 og út-
skrifaðist úr málaradeild. Hann
lærði höggmyndalist hjá Björg-
vin Sigurgeir Haraldssyni auk
þess sem hann hefur lært mikið
af öldungnum Hallsteini
Sveinssyni.
Flestar myndir Páls eru unnar
úr rauðu grjóti og bláu sem tekið
er úr bæjargilinu ofan við Húsa-
fell, en það er gömul hefð að
vinna úr þessu grjóti, aðallega
legsteina. Myndir Páls eru unnar
með meitlum og slaghömrum og
jafnvel virbursta.
Páll Guðmundsson hefur hald-
ið nokkrar sýningar. Árið 1981
sýndi hann í matsal Flugleiða á
Reykjavíkurflugvelli, salarkynn-
„Svipur syrgjandi konu“ eftir Marg-
aret Bourke-White.
Sýning á
mynduin
Margaret
Bourke-White
SÝNING á myndum bandaríska
Ijósmyndarans Margaret Bourke-
White (1904—1971) verður opnuð í
dag, Töstudaginn 22. i'ebrúar, á
Kjarvalsstöðum.
Margaret Bourkee-White vakti
fyrst á sér athygli á þriðja ára-
tugnum fyrir afar sérstæðar
myndir úr bandaríska þunga-
iðnaðinum. Hún hefur þó hlotið
mesta frægð fyrir myndir sem
reynst hafa markverðar heimildir
um sögulegustu timabil aldarinn-
ar.
Margaret Bourke-White starf-
aði við tímaritið Life frá stofnun
þess og tók hún m.a. fyrstu mynd-
ina sem var á forsíðu tímaritsins.
Valið var úr u.þ.b. 20.000 mynd-
um eftir Bourke-White á þessa
sýningu, sem er farandsýning.
Sýningin skiptist í eftirtalda
þætti: Sovétríkin (1930—1932,
1941), Suðurríki Bandaríkjanna
(1936), Tékkóslóvakía (1938), ít-
alía (1943), Þýskaland (1945), Ind-
land 1946—1948), Suður-Afríka
(1950), Kórea (1952) og Norður
Amerika (1934—1954).
Ljósmyndasafnið, Menningar-
stofnun Bandaríkjanna og Kjar-
valsstaðir standa að uppsetningu
á sýningunni. Hún stendur til 10.
mars nk. og er opin frá kl. 14—22.
um starfsmanna Brunabótafé-
lags íslands og í kaffiteríu Loft-
leiðahótelsins. Árið 1982 tók
hann þátt í samsýningu ungra
myndlistarmanna á Kjarvals-
stöðum. Einnig sýndi hann i
Borgarnesi og á Kleppjárns-
reykjum árið 1983 og á Landspít-
alanum árið 1984.
Undanfarin þrjú ár hefur Páll
kennt myndlist við grunnskólann
í Borgarnesi auk þess að vinna að
málun og höggmyndagerð.
Páll Guðmundsson við „Freymóð"
Morffunbladið/Bjarni
Kristjana Samper:
Sýnir skúlptúr
Kristjana Samper opnar skúlptúrsýningu á Kjarvalsstöðum á morgun,
laugardaginn 23. febrúar. Þetta er fyrsta einkasýning Kristjönu.
Á sýningunni eru 23 verk, unnin
i leir og brennd með mismunandi
tækni og eitt verk sem steypt er í
brons. Flest verkanna eru unnin á
sl. tveimur árum.
Kristjana stundaði myndlist-
arnám við Myndlistaskólann í
Reykjavík 1%2—1963, Myndlista-
og handíðaskóia íslands árin
1975—1979 einnig stundaði hún
nám við leirskúlptúrdeild og
málmsteypudeild University of
Arizona 1980—1981.
Sýning Kristjönu stendur til 10.
mars nk. og er hún opin frá kl.
14.00-22.00.
Kristjana Samper við mynd sína „Frjáls“.
MorKunblaöið/Bjarni