Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
írar leggja kapp á að efla
iðn- og tæknimenntun
- eftir Steinar
Steinsson
Skólinn er mjög vel búinn tækjum til verklegrar þjálfunar.
Atvinnuástand hefur löngum
verið erfitt á Irlandi, barnafjöldi
hefur ávallt verið mikill og fjöldi
ungs fólks hefur leitað frama til
annarra landa. Þegar milljónir
manna eru atvinnulausir í löndum
Evrópubandalagsins og svipaða
sögu er að segja frá flestum öðrum
löndum þá er erfitt um úrlausn.
Góð, breið og aðlögunarhæf
menntun er talin nauðsynleg til
handa ungu fólki svo og öflug upp-
bygging í iðnaði. Menntakerfið var
sniðið að eldri viðhorfum, sem
höfðu orðið til í gegnum kynslóðir.
Grunn-, handverks- og embætt-
ismannamenntun voru áherslu-
svið í írsku skólakerfi. í skólakerf-
inu var eyða hvað varðaði mennt-
un tæknimanna.
Limerick-tækniskólinn
Limerick-skólinn er byggður til
að fylla upp í tómarúmið í tækni-
menntuninni. Meginmarkmiðið
með stofnun skólans var að stór-
auka tæknikunnáttu og hæfni
írsks vinnuafls. Erlent fjármagn
og fjölþjóða fyrirtæki hafa verið
löðuð að landinu á grundvelli
lágra vinnulauna og launatengdra
gjalda. í framtíðinni er hinsvegar
ætlunin að byggja upp írskan iðn-
að og að fá fjármagn og fyrirtæki
til landsins á grundvelli þekkingar
og hæfni vinnuaflsins. Námstími
er við forfallalaust nám 4 ár og
útskrifar nemendur með BS-
gráðu. Skólinn er byggður að
bandarískri fyrirmynd og er í
Plassey-tæknigarðinum.
Bygging tækniskólans.
Undirbúningur að byggingu
Limerick-skólans hófst 1970 og
var áætlaður fyrir 6.000 nemend-
ur. Ákveðið var að byggja skólann
í tveimur áföngum og var fyrri
áfanginn tilbúinn 1975 og rúmaði
3.000 nemendur. Nú var verið að
ljúka síðari áfanganum og er þá
skólinn kominn í áætlaða stærð.
Skólinn er mjög vel búinn tækjum
til verklegrar þjálfunar í eðlis- og
efnafræði, ennfremur til kennslu í
framleiðslutækni í rafeinda- og
málmiðnaði. Þarna eru ákaflega
fullkomin tæki og vélar búnar
vönduðum sjálfvirknibúnaði.
Geysistór tölvusalur er þarna til
kennslu og afnota fyrir nemendur.
Er ljóst að ekkert hefur verið til
sparaö að gera skólann vel úr
garði. Fjármunir til skólabygg-
ingarinnar og tækjakaupanna hef-
ur komið að miklu leyti frá Efna-
hagsbandalaginu svo og hafa verið
tekin erlend lán til að fjármagna
framkvæmdirnar.
Samstarf tækniskólans
og atvinnufyrirtækjanna
Mikil áhersla er lögð á samstarf
við atvinnulífið og í því skyni er
6—9 mánaða starfsnám hluti af
tæknimenntuninni. Sérstök deild
við skólann svonefnd Cooperative
Education hefur það verkefni að
útvega nemendunum náms- og
þjálfunarpláss í fyrirtækjum svo
og að fylgjast með framförum
nemendanna þar. Vistun nemend-
anna í fyrirtæki fer fram eins og
um venjulega ráðningu sé að ræða.
Nemendurnir sækja um störfin
eftir áhugasviðum og fara til við-
tals í fyrirtækin á sama hátt og
umsækjendur almennt. Fyrirtæk-
ið velur síðan þá nemendur til
starfa er það telur henta því best.
Deildin aðstoðar þá nemendur er
eiga erfitt með að leysa verkefni
sem eru lögð fyrir þá eða að aðlag-
ast vinnustaðnum. Að loknum
starfs- og þjálfunartímanum skila
nemendurnir skýrslu um starfið.
Skýrslan svo og frammistaða
nemandans í starfi er metin til
einkunna eins og aðrar náms-
greinar.
Kostir samstarfsins
Að áliti skólans hefur starfs-
þjálfun marga kosti fyrir nemand-
ann og nefndu þeir m.a. eftirtalda:
— Nemandinn fær raunverulega
starfsreynslu, sem er metin til
prófs. — Nemandanum verður
betur ljóst samhengið í milli
námsins og starfsins og kemur til
náms að nýju með aukinn áhuga.
— Nemandinn veit meira um at-
vinnulífið og hefur kynnst fleiri
hliðum þess. — Starfsnámið leiðir
til kynningar í milli nemandans
og fyrirtækisins, sem oft leiðir til
ráðningar nemandans er hann
lýkur námi. — Kynni nemandans
af starfinu leiðir til markvissara
vals af hans hendi varðandi sér-
hæfða þætti í lokaáföngum náms-
ins.
Iðnmenntunin
Iðnmenntunin er í höndum sér-
stakrar ríkis- og ráðuneytisstofn-
unar er gengur undir nafninu
AnCO. Skammstöfunin AnCO er
komið úr keltnesku. Nafnið er vel-
þekkt á írlandi, blasir víða við á
verkmenntastofnunum, enda
gegnir stofnunin lykilhlutverki í
menntun iðnaðarmanna svo og í
námskeiðahaldi fyrir iðnaðar-
menn og verksmiðjufólk. AnCO
hefur á hendi gerð námsskráa,
námsefnis og skipulag fræðslunn-
ar. Á vegum stofnunarinnar eru
starfræktar um 50 skólastofnanir
víðsvegar um landið. Á stserri
stöðum eru fleiri en ein stofnun
t.d. mundu vera 7 í Dublin. Lögð er
mikil áhersla á að iðnmenntunin
sé breið og að viðhorf nemand-
anna til ummenntunar og aðlög-
unar að nýjum störfum séu já-
kvæð.
Iðnfræðslan
Iðnfræðslan er ekki ósvipuð
meistarakerfinu eins og það er
Stjórnarnefnd
Þjóðskjalasafnsins
- eftir Jón Kristvin
Margeirsson
Nýlega hefur verið lagt fram
frumvarp á Alþingi um Þjóð-
skjalasafn Islands. Samkvæmt
þessu frumvarpi skal sú breyting
verða á stjórn safnsins, að skipuð
skuli stjórnarnefnd til að hafa yf-
irumsjón með rekstri safnsins.
Verkefni nefndarinnar eru skil-
greind sem hér segir í frumvarp-
inu: „Stjórnarnefndin markar
safninu stefnu, hefur yfirumsjón
með gerð fjárhagsáætlunar og
framkvæmd hennar. Einnig fjall-
ar nefndin um eyðingu gagna í
skjalasöfnum, sem lög þessi taka
til.“
Stjórnarnefndin skal skipuð
fjórum mönnum, þjóðskjalaverði,
einum manni tilnefndum af
starfsliði safnsins, einum manni
tilnefndum af menntamálaráð-
herra og einum manni tilnefndum
af Sagnfræðistofnun Háskóla (s-
lands.
Stærstu flokkar, sem nota safn-
ið, eru sagnfræðingar og ættfræð-
ingar. Ættfræðingarnir eru þó
fjölmennari. Það er vel við hæfi að
veita fulltrúum notenda rétt til
setu í stjórnarnefndinni, og þetta
hafa frumvarpshöfundar greini-
lega haft í huga, er þeir lögðu til,
að einn fulltrúi frá Sagnfræði-
stofnun Háskóla íslands tæki sæti
i stjórnarnefndinni. En þá virðist
Jón Kristvin Margeirsson
„Sjálfsagt virdist, aó
Ættfræðifélagid tilnefni
einn fulltrúa í væntan-
lega stjórnarnefnd
safnsins ... “
einsætt, að stærsti notendahópur-
inn, ættfræðingarnir, fái einnig
fulltrúa í stjórnarnefndinni. Þetta
virðist og ennþá eðlilegra, þegar
litið er á það, að ættfræðingar
hafa jafnan átt einhvern fulltrúa í
starfsliði safnsins, en nú er svo
komið, að enginn er eftir. Skjala-
verðirnir fimm, sem starfa við
safnið, hafa allir sagnfræðimennt-
un, en enginn þeirra hefur lagt
stund á ættfræði. Sama máli
gegnir um yfirmann safnsins.
Sjálfsagt virðist, að Ættfræðifé-
lagið tilnefni einn fulltrúa í vænt-
anlega stjórnarnefnd safnsins, og
má þá benda á það, að þetta félag
á völ á jafn ágætum manni til setu
í stjórnarnefndinni og fráfarandi
þjóðskjalaverði, Bjarna Vil-
hjálmssyni. Hann er þjóðkunnur
fyrir farsæl störf í þágu ættfræð-
innar.
í Þjóðskjalasafninu er allmikið
af gögnum, sem snerta íslenzka
hagsögu, og er það hafið yfir allan
vafa, að mikill vöxtur mun verða í
þessum hluta safnsins næstu ára-
tugina. Gögn þessP munu snerta
alla þætti efnahagslifsins og hér
mun þá stundum verða óhjá-
kvæmilegt að grisja þetta eitt-
hvað. Stjórnarnefndinni, sem á
einmitt að sinna grisjunarmálum,
mundi tvímælalaust vera fengur
að því að eiga einn hagfræðing í
sínum hópi, og þess vegna tel ég,
að rétt sé að gera þá breytingu á
nefndu frumvarpi, að iaga- og
hagfræðideild Hf tilnefni einn
mann með hagfræðimenntun til
setu í stjórnarnefndinni.
Með hliðsjón af pví, að íslands-
sagan hefur þá sérstöðu fram til
1300, miðað við sögu annarra
þjóða, að sömu heimildirnar eru
viðfangsefni sagnfræðinga og
bókmenntafræðinga, tel ég eðli-
legt, að Sagnfræðistofnun Há-
skóla Islands og heimspekideild
háskólans tilnefni einn fulltrúa í
sameiningu. Þar eð Sagnfræði-
stofnunin tilheyrir heimspeki-
deild, mundi það geta orðast þann-
ig í frumvarpinu, að heimspeki-
deild tilnefni einn mann til setu í
stjórnarnefndinni.
Sú sérstaða, sem hér er talað
um, hefur leitt til þess, að framlag
til rannsókna í íslenzkri bók-
menntasögu fram til 1300, er
oftast nær einnig framlag til ís-
lenzkrar sögu, og öfugt. Gott
dæmi um þetta eru rannsóknir á
Landnámu og íslendingabók Ara
fróða. Allar rannsóknir á þessum
ritum eru framlag bæói til ís-
lenzkrar sögu og íslenzkrar bók-
menntasögu.
í frumvarpinu hefur það
gleymzt að setja inn ákvæði um
varaformann. Vonandi verður
þetta leiðrétt i meðferð Alþingis.
Jón Kristinn Margeirsson er íil.lic
að mennt.
Sótt um lóö
fyrir fólks-
bflaþjónustu
LÓGÐ hefur verið fram í borgarráði
umsókn um lóð í Breiðholti undir
þjónustumiðstöð fyrir fólksbfla. Um-
sækjandi er Jón Oddsson og er hér
um ítrekaða umsókn að ræða, en Jón
mun fyrst hafa vakið máls á stofnun
þjónustumiðstöðvarinnar árið 1980.
1 erindi sínu sækir Jón Oddsson
um lóð í nágrenni Shell-stöðvarinn-
ar í efra Breiðholti til byggingar á
a.m.k. 300 fermetra sérhæfðri þjón-
ustumiðstöð fyrir fólksbíla, þar sem
hann hyggst reka hjólbarða-
þjónustu og sölu, ásamt skyldum
störfum, svo sem hjóla- og ljósa-
stillingum og aðstöðu til þrifa og
smálagfæringa.
Ný umferðarljós
á Bústaðaveg
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum nýverið uppsetningu umferð-
arljósa á Bústaðavegi við Grensás-
veg, Háaleitisbraut og austurtenginu
við Kringlumýrarbraut.
Umferðarnefnd hafði áður sam-
þykkt tillögu í þessa veru með eft-
irfarandi greinargerð: „Bústaða-
vegsbrú yfir Kringlumýrarbraut
verður byggð á þessu ári og er gert
ráð fyrir að umferð komi á hana
fyrir árslok 1985. Með tilkomu
þessarar tengingar Bústaðavegar
til vesturs má búast við veruiegri
aukningu umferðar um hann. Með
tilliti til þessarar aukningar er
lagt til að umferðarljós verði sett
á ofangreind gatnamót, en um-
ferðarljós komu á gatnamót Bú-
staðavegar og Réttarholtsvegar
1982.