Morgunblaðið - 22.02.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
17
Arviss ádeila á svefnlyf frá
Fuglaverndarfélagi íslands
þekkt heima. Iðnnemar fara yfir-
leitt á 4ra ára samning hjá fyrir-
tæki. Nemendurnir sækja skóla
samfara starfinu og eru það um 11
stundir á viku. Nemendurnir hafa
frí frá vinnu einn dag í viku og
ljúka þá meirihluta námsstund-
anna en það sem á vantar er num-
ið í kvöldnámi. Nemendur er lokið
hafa 1. ári í verknámsskóla eiga
þess kost að sækja samfellt skóla-
nám í 2x11 vikur í stað vikulegrar
skólasóknar.
Verknámsskólar
Végna atvinnuástandsins er erf-
itt að komast í nám og til að létta
á þeim vanda hafa verið settir á
stofn allmargir verknámsskólar.
Þessum skólum er ætlað að
mennta nemendur að því marki er
svarar til 1. árs náms á samningi.
Framhald námsins er síðan með
námssamningi við fyrirtæki. f
verknámsskólunum er kennslan
með mjög svipuðum hætti og við
þekkjum heima. Áhersla er lögð á
undirstöðuþekkingu í meðferð
verkfæra og áhalda og skilning á
vinnuteikningum svo og efnum og
meðferð þeirra. Skilgreining á
námsefninu er mjög vel unnin og
sett upp í vandaðar námsskrár. I
hinni hörðu samkeppni er ríkir á
frlandi er ekki óalgengt að fyrir-
tæki hætti rekstri. Kemur þetta
mjög illa niður á þeim nemendum,
sem eru við nám á vinnustað, sem
er lagður niður. V^rknámsskól-
arnir reyna að leysa vanda nem-
endanna og gefa þeim kost á 6
mánaða verknámi. Á þeim tíma er
reynt að finna nýtt námspláss
fyrir nemendurna.
Námskeið
Stofnunin býður atvinnulausu
fólki 6 mánaða námskeið. Þessum
námskeiðum er ætlað að veita inn-
sýn í fleiri iðngreinar og að hafa
hagnýtt gildi fyrir viðkomandi
einstakling. Viðfangsefnin eru að-
allega varðandi viðhald húsa og
muna. Þarna eru teknar fyrir
röra- og raflagnir, tré- og múr-
vinna, málun og veggfóðrun, við-
hald bifreiða og annað þessu líkt. í
raun eru þarna mjög athyglisverð
námskeið er auðvelda einstakling-
um að finna sér verkefni á starfs-
lausum tímabilum. Þetta er í raun
uppistaða í frístundamenntun,
sem mikil þörf mun verða fyrir í
komandi framtíð þegar vinnuvik-
urnar styttast og þeim fækkar. Þá
rekur stofnunin umfangsmikið
námskeiðastarf, sem er ætlað til
að leysa sérhæfðar þarfir atvinnu-
fyrirtækja. Slík námskeið eru
unnin í samvinnu við tæknistofn-
anir og eru liður í lausn þróunar-
verkefna fyrir iðnaðinn.
Sveinspróf
Að loknu iðnnámi þreyta nem-
endurnir sveinspróf. Próf þessi
eru sniðin að enskri fyrirmynd.
Stuðst er við prófreglur sem hin
ýmsu borgar- og iðnaðargildi í
Englandi setja og eru skilyrði
fyrir viðurkenningu sem hæfur
iðnaðarmaður. Próf þessi munu
vera viðurkennd í Efnahags-
bandalaginu. írsk stjórnvöld
leggja áherslu á að iðn- og tækni-
menntunin uppfylli allar prófkröf-
ur, sem þarf til að hljóta alþjóð-
lega viðurkenningu.
Menntunin og
iðnadurinn
Lítil fyrirtæki hafa ávallt verið
miklar uppeldisstöðvar manna,
sem hafa skapað, fóstrað og mótað
hugmyndir að nýjum framleiðslu-
vörum. Sérstaklega á þetta við um
þann geysistóra markað, sem fell-
ur utan við hagkvæmnismörk
stórfyrirtækjanna. Kynni íra af
fjölþjóða fyrirtækjum hefur eflt
meðvitund þeirra fyrir nauðsyn á
góðri hönnunar-, iðn-, tækni- og
markaðsmenntun svo og gildi
smáiðnaðar. Þeir leggja kapp á
breiða menntun, sem hentar ný-
iðnaði og sérhæfðum minni fyrir-
tækjum. Þeir hlúa að framtaki
tæknimanna með þvi að beina
iðntæknimálunum til stuðnings
við þróun hugmynda og vilja til að
byggja upp arðbæran írskan iðn-
að.
Steinar Steinsson er skólastjóri
Iðnskólans í Hafnarfirði. Hann er
nú í náms- og kynnisterð í Bret-
landi og á Norðurlöndum.
- eftir Þorvald
Björnsson
í fréttatilkynningu frá Fugla-
verndunarfélagi íslands í NT og
Morgunblaðinu þann 7. febrúar
síðastliðinn, er þess getið að 212
aðilum hafi verið selt fenemal-
svefnlyf. Samkvæmt heimildum
sem ég hef aflað mér er vitað til
þess að 119 æðarræktendur ásamt
trúnaðarmönnum veiðistjóra hafa
haft leyfi til að nota svefnlyf til að
verjast tjóni af völdum vargfugla.
Leyfisskírteini þessi eru aðeins í
gildi í 1—3 ár í senn. Leyfishafar
hafa þurft að fullnægja ýmsum
skilyrðum til að fá þetta skírteini
frá viðkomandi lögregluyfirvaldi.
Þá þarf eiturefnanefnd einnig að
veita umsögn. Lyfjaverslun rikis-
ins afgreiðir ekki lyf nema því að-
eins að skírteini sé í gildi. I dag er
21 aðili með leyfi í gildi.
Þá kemur fram að ísland er að-
ili að alþjóðasáttmála sem bannar
að deyða villta fugla með eitri.
Eftir því sem næst verður komist
hafa nokkur lönd í Evrópu sem
aðild eiga að sáttmálanum einnig
átt við vargfuglavandamál að
stríða en þar sjá fuglafriðunar-
Þorvaldur Björnsson
menn sjálfir um fækkun vargfugla
með lyfjum.
Ekki liggja neinar sannanir um
það að örn hafi komist í vímu eða
drepist af völdum lyfja hér á
landi. Hins vegar á ég von á því að
ernir deyi náttúrulegum dauða
eins og aðrar lífverur.
Það lætur nærri að um 20%
aukning hafi orðið innan arnar-
stofnsins á árinu 1984. Það er
ánægjulegt fyrir okkur sem horf-
um úr fjarska, en fólk sem býr á
þessu afmarkaða svæði arnarins
og hefur hagsmuna að gæta er
ekki eins hrifið. Nærvera arnarins
kemur í veg fyrir að hægt sé að
veita hagsmunaaðilum aðstoð til
að halda vargfuglum frá vissum
svæðum með aðstoð svenlyfs í æti.
Það er engin sönnun tii fyrir því
að gagnslaust sé að nota lyf til að
fækka vargfugli. En reynsla af
þeim tilraunum sem gerðar hafa -
verið sanna að hægt er að hindra
frekara tjón og nokkur dæmi eru
um að staðbundin fækkun hafi átt
sér stað.
Fuglaverndunarmenn vitna í
rýmkunarkenningu, en sú kenning
á að segja manni það, að veiðar á
vargfugli séu gagnslausar, því
svar náttúrunnar sé ör fjölgun
stofnanna í kjölfar veiða.
Hvers vegna erum við þá að
friða hinar ýmsu fuglategundir?
Að lokum vil ég taka undir það
sem fram kemur í greininni að
átak þarf að gera í að eyða úr-
gangi eins og lög segja til um.
Þorraldur Björnsson er settur
reiðistjóri
Þrír nýir salir við Háskólabíó
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á
fundi sínum þann 7. febrúar sl.
að Háskólabíó verði stækkað.
Að sögn Jónatans Þórmunds-
sonar prófessors, formanns
stjórnar Háskólabíós, er hug-
myndin að viðbyggingin verði
austan við anddyri bíósins. Þar
verða þrír salir, einn fyrir 300
manns, annar sem tekur 200
manns og einn sem tekur 150
manns og verða salirnir hann-
aðir á þann veg að hægt verði
að nýta þá til ýmissa þarfa.
Jónatan sagði að tilgangur-
inn með stækkun bíósins væri
þríþættur. Bíóið þarf nú á
minni sölum að halda til þess
að geta nýtt sínar myndir bet-
ur, t.d. myndir sem ekki þola
stóra salinn vegna lítillar að-
sóknar. Einnig verður hægt að
nota salina á morgnana til
fyrirlestrahalds fyrir stærstu
stúdentaárganga Háskólans. Á
sumrin er hugmyndin að nota
salina fyrir ráðstefnur, þar sem
salir af þessari stærð henta
mjög vel til slíkrar starfsemi.
Mikil áhersla er lögð á það,
bæði af hálfu stjórnar Háskóla-
bíós og af hálfu Háskólans, að
framkvæmdir við bygginguna
gangi fljótt fyrir sig. Vonir
standa til að hafist verði handa
við jarðvinnu næsta haust og
að hægt verði að taka eitthvað
af húsnæðinu í notkun haustið
1987.
ÚR STJÓRNSTÖÐINNI:
íbjúgt mælaborö meö nýstár-
iegu fyrirkomulagi mæla og
rofa. — Aiit tii aö auka á
öryggi og vellíðan þeirra, sem
í bílnum eru.
1985 ARCERÐIN FRA MITSUBISHI
5 manna „drossía" með framhjóladrifi
6 ÁRA RYÐVARNARÁBYRCÐ
ÚR BETRI STOFUNNI:
í Lancer 85 sklptlr vaxtar-
lagið engu. Meö ótal mögu-
leikum á stillingu, veröa
sætin jafn þæglleg fyrir aiia.
Lancer er ótrúlega sparneytinn bíll.
Aðeins 5,51100/km í utanbæjarakstri (1500GLX).
□ Mjög lágur vindstuöull = 0,38.
□ Hagstæð þungadreifing á frambjói.
O Gírkassi meö 5 hraðastig - þar af einn yfirgír.
□ Hlutfail milli orku og þunga mjög hagkvæmt.
□ Léttari vél meö betri nýtlngu.
HVAÐ
VELDUR?