Morgunblaðið - 22.02.1985, Blaðsíða 24
24____________
Rauðir khmerar:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
Gera lítið úr
sigri Víetnama
Peking, Aranyaprathet, 21. rebniar. AP.
SKÆRULIÐAR Rauðra khmera hafa verið athafnasamir að baki víglínunnar
og gert margar árangursríkar árásir á hermenn Víetnama. Er það haft eftir
einum foringja þeirra. Thailendingar halda því fram, að Víetnamar hafi beitt
eiturgasi gegn skæruliðum og fólki í flóttamannabúðum.
Mitr Mual, einn foringja Rauðra
khmera, sagði, að Víetnamar
hefðu engan sigur unnið á skæru-
liðum. Þeir hefðu lagt undir sig
Stöðvar, sem skæruliðar hefðu yf-
irgefið, og ættu nú undir högg að
sækja fyrir árásum skæruliða að
haki víglínunnar. Sagði hann, að
skæruliðar myndu leggja undir sig
allt Phnom Malai-svæðið fljót-
lega.
Talsmenn thailenska hersins
héldu því fram í dag, að Víetnam-
ar hefðu skotið fallbyssukúlum
með eiturgasi á kambódíska flótt-
amenn. Sýndu þeir ljósmyndir af
ósprungnum sprengjum og af
sprengjusérfræðingum við að gera
þær óvirkar. Sögðu þeir, að Víet-
namar hefðu fyrst farið að nota
eiturgasið í desember 1983.
Abou Nidal, leiÖ-
togi Fatha, kominn
fram á sjónarsviðið
París, 21. febrúar. AP.
ABOU Nidal, einn af leiðtogum PLO,
Frelsissamtaka Palestínuaraba, sem
sagöur var látinn í október síöastliön-
um, átti nýlega átta klukkustunda
langt viðtal við franska tímaritið
„France-Pays Arabes“, að því er
blaðamaðurinn, sem viðtalið tók,
Lucien Bitterlin, sagði í dag, fimmtu-
dag, en viötalið á að birtast á morgun.
Abou Nidal hefur verið forystu-
maður Fatah-armsins innan PLO,
sem er andstæður Yasser Arafat,
leiðtoga PLO.
Veður
víÖa um heim
Lœgst Hssst
Akureyri 1 lóttskýjaó
Amsterdam 4« 2 skýjaö
Aþena 0 5 skýjaó
Barcetona 7 rigning
Berlín +5 +0 snjókoma
BrUssel 0 5 skýjaó
Chicago +7 6 skýjaö
Dublin 4 9 skýjaö
Feneyjar 4 þokum.
Frankfurt +5 0 skýjaö
Qenf +11 +3 skýjaö
Helsinkí +20 +10 heióskírt
Hong Kong Jerúsalem 12 13 rígning vantar
Kaupm.höfn +4 +3 skýjaö
Las Paimas 18 tóttskýjaö
Lissabon e 10 rigning
London 3 7 skýjaö
Los Angeles 11 17 heiöskírt
Luxemborg 1 skýjaö
Malaga 14 alskýjaö
Mallorka 12 alskýjaö
Miaim 21 25 skýjað
Montreal +12 +2 heiöskfrt
Moskva +20 +10 heiöekírt
U—.. Vnrlr TOrK +1 8 heiöskirt
Ostó +10 +4 skýjaö
París +3 8 heiöskírt
Peking +12 +3 heiöskfrt
Reykjavík 1 hagól
Rio de Janeiro 22 39 skýjaö
Römaborg 9 heiöskírt
Stokkhólmur +20 +9 skýjaö
Sydney 20 25 skýjaö
Tókýó • 14 heiöskfrt
Vínarborg +« +3 skýjaö
Þórshöfn 8 rigning
Nímamynd/AP
RAUÐIR KHMERAR HÖRFA — Víetnamska innrásarliðið í Kambódíu hefur náð á sitt vald
mörgum stöðvum Rauðra khmera en skæruliðar segjast hafa misst tiltölulega fáa menn og
aðeins hörfað í bili. Segja þeir frá árangursríkum árásum á herlið Víetnama að baki víglín-
unnar.
Thatcher um ríkisstjórn Reagans:
Fullur skilningur á
efnahagsvandanum
Washinvton, 21. íebrúar. AP. Inndi mpinQ hanttarícVnm
Wanhington.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði á fundi með frétta-
mönnum í Washington síðdegis, að engin einföld lausn væri til á þeim vanda,
sem skapast hefur vegna hinnar öru hækkunar á gengi bandaríkjadals að
undanförnu.
Thatcher, sem í gær ávarpaði ekki á neinum ráðleggingum að
sameiginlegan fund beggja deilda
Bandaríkjaþings við mjög góðar
undirtektir, sagði að hún hefði
komist að raun um það í viðræð-
um sínum við Ronald Reagan for-
seta og ráðherra hans, að fullur
skilningur væri á því, að fjár-
hagshallinn skapaði vanda, sem
takast yrði á við. Hún var spurð
hvort hún hefði gefði forsetanum
einhver ráð við hallanum. „Ég
held að í þessu efni þurfi hann
halda,“ svaraði hún.
Mörg alþjóðamál bar á góma á
fréttamannafundinum og var tal-
inu m.a. vikið að þeirri ákvörðun
stjórnar David Lange á Nýja Sjá-
iandi, að meina bandarískum
herskipum aðgang að höfnum í
landinu á meðan ekki fengist yfir-
lýsing um hvort þau flyttu kjarn-
orkuvopn. „Þessi afstaða veldur
mér miklum vonbrigðum," sagði
Thatcher. Hún kvaðst hafa greint
stjórn Lange frá því, að engar
slikar upplýsingar yrðu veittar um
bresk skip, sem leita hafnar á
Nýja Sjálandi.
Fylgi íhaldsflokks
ins minnkar enn
Lundúnum, 21. febrúar. AP.
Treholt birt ákæran í
beinni sjónvarpssendingu
Osló, 21. febrúar. Frá Jan Erik Laure rréttaritara Mor^unblaésins.
ÁKÆRAN á hendur Arne Treholt verður lesin upp í beinni sjónvarpsútsend-
ingu frá réttarhöldunum, og er það í fyrsta sinn í sögu norskrar réttvísi að
sjónvarpað er beint úr réttarhaldi.
Akæruna les upp einn af sækj-
endunum, Lasse Quigstad, og er
búist við að það taki hann um 20
mínútur, en réttur verður settur
klukkan 10 á mánudagsmorgun.
Norska útvarpið mun einnig út-
varpa beint frá réttarhöldunum.
Treholt og verjandi hans hafa
sett sig upp á móti beinni útvarps-
og sjónvarpssendingu frá réttar-
höldunum. óttast þeir að ýmis at-
riði ákærunnar kunni að hafa það
djúpstæð áhrif á tilheyrendur að
það veiki varnarmöguleikana.
Segja þeir ákæruatriðin ekki
mundu hafa sömu áhrif á fólk ef
þau væru lesin upp í fréttatíma.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvort sýnt verður í beinni útsend-
ingu er verjandi Treholts flytur
varnarræðu sína.
FLEST Lundúnablöðin láta í dag í
Ijós mikla ánægju með ræðu þá sem
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, flutti á Bandaríkja-
þingi í gær. Skoðanakönnun, sem
dagblaðið The Guardian greindi frá í
dag, bendir hins vegar til þess að
forsætisráðherrann og flokkur henn-
ar haldi áfram að tapa fylgi meðal
kjósenda.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar í The Guardian hefur
forskot íhaldsflokksins fram yfir
Verkamannaflokkinn lækkað úr 8
prósentum í janúar niður í 3 pró-
sent í febrúar. 38 prósent kjósenda
styðja íhaldsflokinn, 35 prósent
styðja Verkamannaflokkinn og
Bandalag jafnaðarmanna og
frjálslyndra nýtur stuðnings 26
prósenta.
í könnuninni var spurt hver yrði
besti forsætisráðherrann og völdu
31 prósent kjósenda Thatcher, sem
er 3% fylgistap frá því í svipaðri
könnun í janúar. 20 prósent kjós-
enda telja, samkvæmt könnun-
inni, að Neil Kinnock, leiðtogi
Verkamannaflokksins, yrði besti
forsætisráðherrann.
Suður-Afríka:
Átján falln-
Tillögur sænsku stjórnarinnar í mengunarmálum:
Bensínið blýlaust og
hreinsibúnaður í bíla
Stokkhólmi, 21. febrúar. AP.
EFTIR RÚM tvö ár verður blýlaust bensín að vera fáanlegt á öllum
bensínstöðvum í Svíþjóð og frá og með áramotum 1989 verða allar nýjar
bifreiðir að vera með hreinsibunað.
Þessar tillögur verða meðal
annarra, sem sænska stjórnin
ætlar að leggja fyrir þingið í
næstu viku, og eru þær liður í
baráttu hennar og Svía gegn vax-
andi mengun. Með þeim er hins
vegar ekkert tillit tekið til þeirra,
sem hafa kvartað um of mikil
umskipti á of litlum tíma.
Orkuráð rikisins hefur lagt til,
að þessum aðgerðum verði frest-
að í eitt ár og olíufélögin í Sví-
þjóð hafa verið reiðubúin að
greiða fyrir þessu máli á allan
hátt. Vegna þess hve stutt er til
stefnu hafa þau hins vegar farið
fram á, að ríkið taki einnig þátt í
því að upplýsa fólk um allt, sem
fylgir því að nota blýlaust bens-
ín, t.d. um áhrif þess á bílvélina.
Blýlaust bensín er skilyrði
fyrir því, að hreinsibúnaðurinn
vinni eins og til er ætlast og
hann er aftur nauðsynlegur til að
ná burt köfnunarefnissýrlingn-
um úr útblæstrinum. Það er
köfnunarefnissýrlingurinn, sem
er talinn bera mesta ábyrgð á
menguninni og skógardauðanum.
Samkvæmt tillögum stjórnar-
innar verður fyrsta atlagan að
menguninni gerð þegar sumarið
1986 en þá á að vera fáanlegt
blýlaust bensín á bensínstöðvum
við helstu þjóðvegi. Ári síðar
verða allar bensínstöðvar að hafa
blýlaust bensín á boöstólum og
frá og með 1989 verða allar nýjar
bifreiðir að vera búnar hreinsi-
búnaði, þar með talin 1989-ár-
gerðin.
Embættismenn í landbúnað-
arráðuneytinu, sem skiljanlega
hafa miklar áhyggjur af meng-
unarmálunum, segja, að ýmsar
blikur séu á lofti í þessum efnum
og ekki allar fagrar. Á megin-
landinu, þaðan, sem menguninni
rignir yfir Svía, virtist áður vera
vaxandi skilningur á mengunar-
vörnum en það eru þó aðeins
Vestur-Þjóðverjar, sem hafa
ákveðið að láta til skarar skríða
og setja mörkin við 1989 eins og
Svíar. Segja embættismennirnir,
að ýmislegt bendi til, að Frakkar,
ítalir og Bretar séu að reyna að
stöðva baráttuna gegn mengun-
inni af umhyggju fyrir bílaiðnað-
inum í viðkomandi löndum og
vegna þess, að þeim hrýs hugur
við kostnaðinum við almennar
mengunarvarnir. Auk þess hefur
EB ekki enn lagt blessun sina yf-
ir ákvarðanir Vestur-Þjóðverja.
ir í óeirð-
unum
Jóhannesarhorg, 21. febrúar AP.
Til óeirða kom í tveimur
bæjum blökkumanna í nótt
sem Jeið, og féllu tveir menn
í þeim. Hafa þá 18 menn alls
beðið bana í óeirðunum frá
því á mánudag en undirrót
þeirra er stefna stjórnarinnar
í kynþáttamáium.
Átökin hófust þegar hermenn
hófust handa við að flytja á brott
fólk, sem sest hafði að í kofaþyrp-
ingum í Crossroads, skammt frá
Höfðaborg, en talið er að um
60.000 manns hafist þar við.
Desmond Tutu, biskup og friðar-
verðlaunahafi, kom þar í dag og
ræddi við íbúana. Sagði hann og
einnig Phillip Russel, biskup angl-
íkönsku kirkjunnar í Höfðaborg,
að átökin stöfuðu af svikum
stjórnarinnar, sem hefði ekki
staðið við þau loforð, sem hún
hefði gefið fólkinu.
Drengur og stúlka, bæði 16 ára,
létust í dag af sárum, sem þau
fengu fyrr í vikunni, og hafa þá 18
manns misst lífið í þessum átök-
um.