Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
Alþýðuflokkur:
*
Utvarps-
félög leggi
fram trygg-
ingarfé
JÓN Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuílokks, lagði
fram breytingartillögur við
frumvarp til útvarpslaga síö-
astliðinn fímmtudag í neðri
deild Alþingis. Þar er gert ráð
fyrir að útvarpsfélög og aðrir
aðilar sem uppfylla ákveðin
skilyrði geti annað hvort leigt
af sveitarfélögum og samtök-
um þeirra sendirásir eða átt
og starfrækt sendistöðvar
fyrir staðbundið hljóðvarp.
Útvarpsréttarnefnd á sam-
kvæmt tillögunum að fylgjast
með útvarpsrekstri, setja al-
mennar reglur um hluta auglýs-
inga í dagskrá, setja almennar
reglur um óhlutdrægni í frétta-
flutningi og sjá um að reglum
sem útvarprekstri eru settar, sé
framfylgt.
Til að útvarpsfélag hljóti við-
urkenningu útvarpsréttarnefnd-
ar til útvarpsreksturs þarf fé-
lagið að setja fram tryggingu að
fjárhæð 5 milljónir króna, en
auk þess þurfa félögin að upp-
fulla önnur skilyrði s.s. að kosta
ein gerð þeirra dagskrá sem þau
senda út.
STRJÁLBÝLISÞINGMENN — Mynd sú, sem hér birtizt, er tekin á þingflokksfundi sjálfstæð-
ismanna fyrir skemmstu. Hún sýnir (talið frá vinstri): Þorvald Garðar Kristjánsson (Vestfirðir), Árna Johnsen
(Suðurland), Pálma Jónsson (Norðurland vestra), Friðjón l'órðarson (Vesturland) og Valdimar Indriðason
(Vesturland).
Fntmvarp til sveitarstjórnarlaga:
Fámennir hreppar
verði sameinaðir
Friðrik Sophusson
Friðrik Sophusson:
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur lagt fram stjórnarfrumvarp til sveitar-
stjórnalaga, en gildandi lög eru frá 1961. í frumvarpinu er heimild til
handa félagsmálaráðuneytinu að sameina hrepp nágrannahreppi að tillögu
sýslunefndar hafi íhúatala verið lægri en 100 í fimm ár samfellt. Einnig er
gerð tillaga um að sýslufélögin verði lögð niður með öllu, en við tekur
vettvangur sveitarstjórna, svokallaðar héraðsnefndir.
í frumvarpinu er ákvæði um
að sveitarfélög skuli hafa sjálf-
stæða tekjustofna og sjálfsfor-
ræði um gjaldskrár eigin fyrir-
tækja og stofnana til þess að
mæta kostnaði við framkvæmd
þeirra verkefna er þau annast.
Á fyrsta ári hvers kjörtimabils
skal sveitarstjórn semja og fjalla
um fimm ára áætlun um rekstur,
framkvæmdir og fjármál sveit-
arfélagsins. Áætluninni er ætlað
að vera rammi um árlegar fjár-
hagsáætlanir sveitarfélagsins.
Þá er i frumvarpinu lagt til að
kjördagur verði sá sami í öllum
Auglýsingar á að leyfa
FRIÐRIK Sophusson, varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt
fram breytingartillögur við frum-
varp til útvarpslaga í neðri deild
Alþingis. Þar leggur þingmaðurinn
til að útvarpsstöðvum verði heimilt
að afla tekna með auglýsingum,
sem skulu vera skýrt afmarkaðar
frá annarri dagskrá stöðvanna. Út-
Stuttar þingfréttir
Lánsfjárlög
Helgi Seljan, Alþýðubandalagi,
hefur lagt fram breytingartil-
lögu í efri deild við frumvarp til
lánsfjárlaga fyrir árið 1985. Þar
er lagt til að Framkvæmdasjóði
fatlaðra verði heimilt að taka
lán að fjárhæð 100 millj. kr. til
þess að endurlána Fiskveiðasjóði
vegna mengunarvarna og orkþ-
sparnaðar í fiskimjölsverksmiðj-
um.
Bókmennta-
verölaun
Kristín Halldórsdóttir, Kvenna-
lista, hefur lagt fram fyrirsþurn
sveitarfélögum og skal hann vera
annar laugadagur i júní. Komi
aðeins fram einn framboðslisti
skal framboðsfrestur lengdur.
Auk framangreinds eru mörg
ný ákvæði í frumvarpinu s.s. um
réttindi og skyldur sveitarstjórn-
armanna og um vanhæfi til með-
ferðar einstakra mála, heimild
til að kjósa í almennum kosning-
um nefndir til að fara með af-
mörkuð mál, og ákvæði um fjár-
mál sveitarfélaga, svo eitthvað sé
nefnt.
Bandalag jafnaðarmanna:
Ekki sömu eignaraðil-
ar að útvarpi og blöðum
MEÐAL breytingartillagna sem
Kristín S. Kvaran og Guðmundur
Einarsson, Bandalagi jafnaðar-
manna, hafa lagt fram við stjórnar-
frumvarp til útvarpslaga er sú, að
„einstaklingum, sem hafa aðalat-
vinnu af öðrum greinum fjölmiðlun-
ar eða eiga hlut í fyrirtækjum í þeirri
atvinnugrein, svo sem dagblöðum,
er óheimilt að eiga hlutdeild í út-
varpsrekstri. Þetta ákvæði á einnig
við um fyrirtæki".
í greinargerð segja flutnings-
menn að „setja verði skörp skil á
milli þess hvað talizt getur frjáis
rekstur og hringamyndun" og því
þurfi að setja skorður að því þetta
eina atriði varðar.
varpsstöðvarnar skulu sjálfar
ákvarða verð þeirrar þjónustu sem
þær veita.
Auk auglýsingatekna gerir
Friðrik Sophusson ráð fyrir að
útvarpsstöðvarnar hafi tekjur af
afnotagjaldi eða sérstöku gjaldi
vegna útsendinga fræðslu- og
skýringarefnis.
til menntamálaráðherra um út-
hlutun bókmenntaverðlauna
Jóns Sigurðssonar. Spyr þing-
maðurinn í fyrsta lagi um hvort
verðlaunum hafi verið úthlutað
og hvort stjórn til að fjalla um
verðlaunin hafi verið skipuö. Þá
spyr Kristín einnig um framtíð
þessara verðlauna og hvers
vegna ekki sé veitt fé til þeirra á
fjárlögum í ár.
Auglýsinga-
kostnaður
ríkissjóðs
Lögð hefur verið fram fyrir-
Alþýðubandalag:
Einkaréttur ríkisútvarps-
ins veröi afnuminn
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag skil-
aði 2. minnihluti menntamálanefnd-
spurn til fjármálaráðherra, um
auglýsingakostnað ríkissjóðs ár-
ið 1984 til loka janúar 1985, af
Svavari Gestssyni og fleiri þing-
mönnum.
Samfelldur
skólatími
Guðrún Helgadóttir, Alþýðu-
bandalagi, hefur beint fyrir-
spurn til menntamálaráðherra
um framkvæmd þingsályktunar-
tillögu, sem samþykkt var 1984
um könnun á kostnaði við ein-
setningu skóla, samfelldan
skólatíma og skólamáltíðir.
ar, Hjörleifur Guttormsson, Alþýðu-
bandalagi, áliti um frumvarp til út-
varpslaga. Þar segir meðal annars
að þingflokkur Alþýðubandalagsins
sé því fylgjandi að hópum með ólík-
an bakgrunn verði heimilað að reka
útvarpsstöðvar. Einungis samtök
sem sérstaklega eru stofnuð með
slíkan rekstur í huga eiga að fá
heimild til hans.
Alþýðubandalagið leggst ein-
dregið gegn því að auglýsingar
verði leyfðar til að koma í veg
fyrir að „útvarpsstarfsemin sé
gerð að markaðsvöru í gróða-
skyni“, eins og segir í nefndaráliti
Hjörleifs Guttormssonar. 1 breyt-
ingartillögum sem sami þingmað-
ur hefur lagt fram, er lagt til að
ríkissjóður leggi útvarpsréttar-
nefnd til allt að 10 milljónum
króna árlega á fjárlögum næstu
þriggja ára, til kaupa á útsend-
ingarútbúnaði og til að koma upp
útvarpsveri í hverjum landshluta
er leigð verða handhöfum út-
varpsleyfa.
Stjórnarflokk-
ar fá að
skoða frum-
vörpin fram að
mánaðamótum
Á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag
voru lögð fram frumvörp nefndar-
innar um nýsköpun í atvinnulífinu
og uppstokkun sjóðakerfisins og
eins og greint hefur verið frá í Morg-
unblaðinu er hér um frumvörp að
ræða fyrir Byggðastofnun, alla fjár-
festingarlánasjóðina, þróunarfélag
og eignarhaldsfyrirtæki. Frumvörpin
eru nú til meðferðar og skoðunar hjá
stjórnarflokkunum, en samkvæmt
því sem Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra upplýsti blm. Mbl.
hefur hann sett flokkunum tíma-
mörk, þannig að þeir hafi afgreitt
frumvörpin frá sér um næstu mán-
aðamót.
Aðspurður um hvað hann legði
mesta áherslu á að gæti fengið af-
greiðslu á þessu þingi sagði for-
sætisráðherra: „Helst þyrftu þessi
frumvörp öll að verða að lögum á
þessu þingi, en ef svo á að verða,
þarf að halda vel á spöðunum. Ég
legg mesta áherslu á að frumvarp-
ið um þróunarfélag og frumvarpið
um Byggðastofnun fái afgreiðslu á
þessu þingi. Þessi tvö frumvörp
haldast í hendur, og mun Fram-
kvæmdastofnun þar með leggjast
niður í núverandi mynd þegar þau
eru orðin að lögum."
Niðurskurður á lánsfjár-
áætlun enn til skoðunar:
Breyttar heim-
ildir atvinnu-
veganna til lán-
töku erlend-
is í skoðun
STEINGRÍMUR Hermannsson, for-
sætisráöherra lagði á ríkisstjórnar-
fundi á þriðjudag fram hugmyndir
sínar um með hvaða hætti lánsfjár-
áætlun veröi skorin niður um einn
milljarð króna, og taka viðkomandi
ráðherrar þessar hugmyndir nú til
formlegrar meðferðar. „Ég óskaði
eftir því að breyttar heimildir fyrir
atvinnuvegina til lántöku erlendis,
yrðu teknar til athugunar, og það er
von mín að slíkt verði til þess að
draga eitthvaö úr lántökum þeirra
erlendis á árinu,“ sagði forsætis-
ráðherra í samtali við blm. Mbl. að-
spurður um þessar hugmyndir hans.
Forsætisráðherra sagði jafn-
framt að fyrst og fremst yrði lögð
áhersla á að ríkissjóður verði
rekstrarhallalaus, og á að það
næðist með stórhertri og bættri
innheimtu á álögðum gjöldum.
Auk þess sagði hann minnkandi
umsvif Landsvirkjunar og Raf-
magnsveitna ríkisins gera það að
verkum að léttara yrði að skera
niður lánsfjáráætlun.
Myndbandaleigur:
Skorað á menn
að skila myndum
á bannlista
AF GEFNU tilefni vill Félag ís-
lenskra myndbandaleiga eindregið
beina því til félagsmanna sinna að
skila myndum á bannlista til
Kvikmyndaeftirlits ríkisins eða
lögregluyfirvalda viðkomandi
staðar.
INNLENT