Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
33
Selfoss:
Bifreiðaeftirlitið
fiytur í nýtt húsnæði
Aðstaða til skoðunar innandyra, stórt
skref til aukins umferðaröryggis
Selfossi, 15. febrúar.
BIFREIÐAEFTIRLIT ríkisins í Suðurlandsumdæmi flutti nýlega í nýtt eigið
húsnæði að Gagnhciði 20 á Selfossi. Þetta er eini staðurinn í landinu sem
Bifreiðaeftirlitið er í eigin húsnæði.
Suðurlandsumdæmi Bifreiða-
eftirlitsins nær yfir Selfoss, Ár-
nes- og Rangárvallasýslu og
V-Skaftafellssýslu. Jón Sigurðs-
son umdæmisfulltrlui Bifreiðaeft-
irlitsins hefur gengið fram fyrir
skjöldu í því að leysa húsnæðis-
vanda embættisins. í nýja hús-
næðinu er unnt að veita mun betri
þjónustu og það býður upp á að
skoðun bifreiða fari fram innan-
dyra.
Það var árið 1956 að Bjarni
Benediktsson þáverandi dóms-
málaráðherra skipaði Jón Sig-
urðsson bifreiðaeftirlits- og lög-
gæslumann í Suðurlandsumdæmi.
Sem Iöggæslumaður heyrði hann
undir sýslumann Árnessýslu.
Eitthvað vöfðust launamálin fyrir
embættismönnum, því engin laun
voru greidd fyrir störf þessi fyrr
en í desember ’56. Löggæslustörfin
voru fyrst án sérstakra launa en
Páll Hallgrímsson kom því til leið-
ar að greidd voru full laun í janú-
ar 1957.
Það þætti sjálfsagt seinvirkt í
dag ef launamálin væru afgreidd á
þann veg sem var í þessu tilfelli.
Aðsetur fyrst í litlu
herbergi
Fyrsta aðsetur Bifreiðaeftirlits-
ins var í litlu herbergi í norður-
enda sýsluskrifstofu Árnessýslu
„Þetta húsnæði var auðvitað stra>
of lítið," sagði Jón, þegar hanr
rifjaði upp fyrstu árin í embætti
„þetta var bara eitt herbergi og
þegar lögreglan kom 1958 þá
þurftu þeir að ganga í gegnum það
inn á sína skrifstofu. Það varð til
þess að ómögulegt var að prófa
þarna og því prófaði ég oft á tíðum
heima."
1964 flutti Bifreiðaeftirlitið í
rýmra húsnæði en þá flutti lög-
reglan og bifreiðaeftirlitið að Að-
albóli, Hrísholti 8, þar sem emb-
ættið hefur verið þar til 18. janúar
sl. að það flutti þaðan í eigið hús-
næði sem Bifreiðaeftirlitið keypti
1981, að Gagnheiði 20. Það hús-
næði var innréttað sl. sumar. Þar
er skrifstofuaðstaða starfsfólks og
aðstaða til fræðilegra prófa.
Helmingur hússins er ætlaður til
inniskoðunar bíla en sá hluti er
óklár enn vegna fjárskorts.
Skoðun innandyra
innan seilingar
Þess eru ekki mörg dæmi að
embættismenn berjist fyrir því
með oddi og egg að sköpuð sé betri
aðstaða og hafi erindi sem erfiði.
Jón var spurður að því hvað hefði
rekið hann áfram í þeirri baráttu.
„Það byrjaði 17. mars 1981 þeg-
ar Páll Hallgrímsson sýslumaður,
tjáði mér að við þyrftum að rýma
húsnæðið að Hrísholti 8 vegna
þess að það vantaði aukið rými
fyrir lögregluna. Þá var strax far-
ið að ræða málin en lítið var um
hentugt húsnæði á Selfossi. Þar
sem þessi fyrsta uppsögn sýslu-
manns var ekki tímasett þá ritaði
hann annað bréf 21. maí 1981 þar
sem hann sagði Bifreiðaeftirlitinu
upp húsnæðinu frá og með 1. ágúst
sama ár. Þá komst ég að því að
húsið við Gagnheiði var á lausu en
ekki um annað að ræða en kaup á
því af hálfu eiganda þess. Þetta
var síðan í athugun í ráðuneytinu
fram til áramóta 1981—82 að end-
anlega var gengið frá kaupunum
um miðjan janúar. Síðan gerðist
ekkert fyrr en á sl. vori að innrétt-
ing hússins var boðin út. Nokkrar
tafir urðu síðan á verkinu vegna
aukinna krafna um brunavarnir.
— Það hefur einna mest lent á
þínum herðum að ýta þessu
áfram?
„Já ég hef argast í þessu," sagði
Jón, „Þeir hjá Bifreiðaeftirlitinu í
Reykjavík sögðust alltaf hafa nóg
með sitt í höfuðborginni og því lít-
ið verið á þeim að græða. Ánnars
hefur það verið Örn Sigurðsson
hjá dómsmálaráðuneytinu sem
einna mest og dyggilegast hefur
unnið að þessu máli. Hann er nú
hættur störfum í ráðuneytinu og
við hefur tekið Guðmundur
Björnsson. Mér hefur líkað af-
bragðs vel að vinna með þessum
mönnum og færi þeim báðum
bestu þakkir fyrir þeirra fram-
gang í þessu þarfa máli.“
— Aðstaða til inniskoðunar er
þá innan seilingar?
„Já, ég tel það algjört skilyrði að
inniaðstaðan til skoðunar verði
gerð klár. Skoðunin er það mikið
atriði að það verður að búa vel að
henni. í vondum veðrum er fyrst
einhver von til að geta skoðað ef
svona aðstaða er fyrir hendi."
— Hafa orðið einhverjar breyt-
ingar á viðhorfi manna til bif-
reiðaskoðunarinnar en var á
fyrstu árunum?
„Já, breytingar og breytingar
ekki. Þetta eru orðnir miklu betri
bílar núna. Breytingin er helst sú
að það er eins og menn hafi betri
tök á að eiga bíl núna en þá var.“
Aðalskoðunin mikill
álagstími
Auk Jóns starfa nú hjá Bifreiða-
eftirlitinu í Suðurlandsumdæmi
tveir skoðunarmenn og ein skrif-
stofustúlka. Með tilliti til stærðar
umdæmisins og aðstöðu til að
framkvæma ítarlegri og betri
þjónustu þá má segja að fjölgun
starfsmanna sé nauðsynleg.
Ljóst er að þessi aðstaöa býður
upp á það að inn til Bifreiðaeftir-
litsins á Selfossi verði tekin aukin
þjónusta við bifreiðaeigendur til
að spara þeim hlaup á milli stofn-
ana, s.s. við skoðun og umskrán-
ingu bifreiða.
Jón Sigurðsson var spurður
hvernig þessi stóra umdæmi væri
þjónað og hvernig aðstaðan væri
til þeirra starfa.
„Á fyrstu árunum þá komu
hingað menn úr Reykjavík þegar
aðalskoðun fór fram. Oftast var
það Gestur heitinn Ólafsson sem
kom, en hann varð síðar forstöðu-
Starfsfólk Bifreiðaeftirlitsins á Selfossi fyrir utan húsnæðið. Á þeirri mynd eru frá vinstri Hjálmtýr Júlíusson, Jón
Sigurðsson, umdæmisfulltrúi, Erling Guðmundsson og Ólöf Karlsdóttir.
Skipt um númer. Moruunblaftið/Sigurður
maður Bifreiðaeftirlitsins. Störfin
voru þá sem nú fólgin í aðalskoðun
bifreiða, umskráningu og umferð-
areftirliti. Með auknum mannskap
hér á Selfossi fór ég vikulega aust-
ur í Rangárvallasýslu á fimmtu-
dögum. Áður var farið þangað til
aðalskoðunar. Aðalskoðunin í
Rangárvallasýslu stendur yfir í
1 'k mánuð og þá er farið daglega
héðan og þann tíma starfar að-
stoðarmaður þar austur frá, Jón
Hermannsson. Þetta er mikill ál-
agstími og einatt kemur það fyrir
að ég kemst ekki að við skoðun
vegna ýmissa annarra starfa og
símtala. í V-Skaftafellssýslu er
skoðunartíminn styttri enda færri
bílar. Ferðirnar þangað eru ekki
eins skipulagðar þar sem veður
geta sett strik í reikninginn bæði
á sumri og vetri. Aðstaða er þarna
nánast engin. Á Hvolsvelli er ver-
ið i olíuskúr, í Vík er verið í for-
stofu sýsluskrifstofunnar og á
Klaustri höfum við verið hjá
RARIK með aðstöðu."
— Er þá ekki orðin þörf á
manni þarna austurfrá með aukn-
um umsvifum embættisins?
„Jú, það er svo sannarlega þörf
á því, sem dæmi má nefna að skoð-
anir í umdæminu voru 8.504 á sl.
ári, ökupróf 225 og umskráningar
og eigendaskipti 2.780. Bæði er
það að störfin hafa aukist og síðan
taka sumarfríin langan tíma og
nýr maður gæti leyst af í sumar-
frium hér vestan Þjórsár.“
Bifreidum fjölgaö
um 8200
Sem dæmi um aukin umsvif Bif-
reiðaeftirlitsins í Suðurlandsum-
dæmi má nefna að 1956 þá voru á
skrá í Árnessýslu um 800 bifreið-
ar. Nú eru þær nálægt 6400 og
númeratalan kominn i 7000. I
Rangárvallasýslu voru á skrá um
350 bifreiðar en eru nú 2176 og í
V-Skaftafellsýslu voru þær um
200 á skrá en eru nú um 700.
Eitt er það sem vekur athygli
þegar starfsemi þessarar stofnun-
ar, Bifreiðaeftirlitsins, er athugað
en það er að hún hefur enga eigin
bifreið til afnota, þrátt fyrir stærð
umdæmisins hér á Suðurlandi sem
annars staðar á landinu. Starfs-
menn hafa alltaf lagt til sínar bif-
reiðar til ferðalaga. Þetta skýtur
dálítið skökku við þegar litið er til
annarra stofnana. Um ástæður
fyrir þessu, er ekki vitað en þrátt
fyrir að Bifreiðaeftirlitið hafi
miklar tekjur er það hornreka hjá
ríkinu.
Hið nýja húsnæði embættisins í
Suðurlandsumdæmi er fagnaðar-
efni fyrir þá sem vilja að búið sé
vel að þeim sem vinna öryggismál-
um umferðarinnar. Þó svo að hér
á Selfossi hafi embættið tekið til
starfa í nýju eigin húsnæði mun
það ekki vera stefna þeirra sem
með yfirstjórnina fara, því áfram
mun vera ætlunin að ganga á
braut leiguhúsnæðis amk. í
Reykjavík. En með eigin húsnæði
liggur það í augum uppi að ríkið
getur betur komið til móts við þær
kröfur sem gerðar eru til aukins
eftirlits með ökutækjum og um
leið til aukins öryggis í umferð-
'nn'- SigJóns.
Gjöf til
Stykkis-
hólmskirkju
Stvkkishómi, 10. febrúar.
í DAG færói Jóhann Pétursson, fyrr-
um vitavörður á Hornbjargsvita,
Stykkishólmskirkju veglega gjöf í
minningu foreldra sinna, Jóhönnu
Jóhannsdóttur frá Öxney og Péturs
Einarssonar, sem hér bjuggu alla
sína búskapartíó, áttu mörg börn og
komu þeim upp í erfióri aóstöóu og
fátækt. Þau hjón stunduóu dag-
launastörf og Jóhanna gaf sig einnig
mjög að félagsmálum og var þar vel
virk. Þessi gjöf er árituó í minningu
þeirra hjóna frá börnum þeirra og
nafn heimilis sem þau áttu hér og
þau nefndu Akra. Þau hjón eru látin
fyrir mörgum árum.
Þessi gjöf er fagurt og vel gert
róðulíkneski af Kristi. Er það
gjört í Englandi, en keypt hingað
til lands fyrir mörgum árum og
hefir verið í Klausturhólum. Jó-
hann sagði mér að þegar hann
hefði séð þetta líkneski hefði það
strax flogið í hug sinn að gefa
krikjunni það í minningu foreldra
sinna og nú hefði hann komið því í
framkvæmd. Jóhann er fæddur í
Stykkishólmi árið 1918 og í þess-
ari krikju er hann fermdur 1932 af
séra Sigurði ó. Lárussyni, sem
hann kveðst ætíð hafa metið mik-
ils. Bjarni Lárentsinusson, for-
maður sóknarnefndar, veitti gjöf-
inni viðtöku, en sóknarnefnd og
starfsfólk voru viðstödd. Afhenti
formaður síðan sóknarprestinum,
Gísla H. Kolbeins, gjöfina til frek-
ari varðveislu.
Árni.
Jazzhátíð hefst í kvöld
Tíu af þekktustu nútímajazzleikurum Evrópu eru mættir til leiks á
jazzhátíóina, sem hefst í Félagsstofnun stúdenta í kvöld.
Þeirra á meðal eru m.a. saxó-
fón- og klarinettleikarinn Peter
Brötzmann og bassaleikarinn
Peter Kowald frá Vestur-Þýzk-
alandi. Þeir koma hingað til
lands beint frá því að halda tón-
leika í Carnegie Hall í New York,
fyrstir þýskra jazzleikara til að
leika í því húsi.
Það er hljómplötuútgáfan
Gramm og Ulli Bobel Koncert-
buro í Þýzkalandi, sem skipulagt
hafa jazzhátíðina í samvinnu við
m.a. Goete Institut í Þýzkalandi
og á íslandi. Nánar var sagt frá
jasshátíðinni í Mbl. 17. þ.m. En
hún mun standa tvö næstu kvöld
í Félagsstofnun stúdenta og
hefst klukkan 21.00 bæði kvöld-
in.