Morgunblaðið - 22.02.1985, Side 36
MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
36
Minning:
Hjörtur Hjartarson
kaupm. frá Reijnimel
Fæddur 31. október 1902
Dáinn 15. febrúar 1985
I dag, föstudag, kl. 10.30, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni
Hjörtur Hjartarson, kaupmaður
frá Reynimel, en hann lést í
Landspítalanum föstudaginn 15.
febrúar síðastliðinn 82 ára að
aldri.
Hjörtur Hjartarson fæddist í
Reykjavík 31. október 1901, sonur
hjónanna Margrétar Sveinsdóttur
og Hjartar Jónssonar, (1863—
1940) sjómanns og steinsmiðs, er
hyggðu Reynimel, lítinn steinbæ
er lengi stóð þar sem heitir
Bræðraborgarstígur 22, en steinb-
ær þessi var byggður úr því
höggna grjóti er afgangs varð, er
smíði Alþingishússins var lokið,
og þá um leið annar bær, Brautar-
holt við Grandaveg, sem enn
stendur. Þar bjó Oddur Jónsson,
bróðir Hjartar Jónssonar, en þeir
voru synir Jóns Eyjólfssonar,
útvegsbónda í Steinum, er ættaður
var frá Kjalarnesi, og konu hans,
Sigríðar Oddsdóttur, sem var
skaftfellsk að ætt.
Jón Eyjólfsson drukknaði í
fiskiróðri 15. apríl árið 1868,
Steinar voru á Bráðræðisholti, en
á þessum slóðum bjó fjöldi sjó-
manna á öldinni sem leið og nokk-
uð fram á þessa, að minnsta kosti
svo lengi, sem menn fóru á skútum
eða opnum skipum til sjóróðra frá
Reykjavík, en aukin heldur var
stundaður landbúnaður eftir því
sem grasnyt leyfði svo og garð-
rækt. Margrét Sveinsdóttir
(1861—1940) var ættuð af Kjal-
arnesi.
Hjörtur Hjartarson ólst upp í
stórum systkinahópi, en meðal
bræðra hans voru þeir Sveinn
Hjartarson, bakari, sem hafði
mikil umsvif í bakstri og mjólkur-
sölu á sinni tíð, og Jón Hjartarson,
kaupmaður, sem rak stóra og
þekkta verslun í Hafnarstræti 4.
Af Hirti var hinsvegar það að
segja, að þegar hann hafði lokið
barnaskólanámi hóf hann störf
hjá Ölgerðinni Agli Skallagríms-
syni en varð síðan afgreiðslumað-
ur hjá Jóni, kaupmanni, bróður
sínum, og meðal verka Hjartar
var að afgreiða skipin. Fjöldi
skipa tók allan kost hjá verslun
hans. Oft varð að róa út í skipin og
gátu það verið slarksamir túrar í
norðanngarra, eða útsynningi.
Höndlun við skip er og var sér-
stakt trúnaðarstarf, því oft voru
föngin ekki bundin alfarið við lag-
er verslunarinnar, en skipshandl-
arinn varð að útvega allt, mjólk,
brauð og rekstrarvörur fyrir þilf-
ar og vél. Þetta var því sérstakt
trúnaðarstarf, sem rækja varð af
samviskusemi og nákvæmni, en
einmitt þessa kosti höfðu systkin-
in á Reynimel, auk annars, fengið
heima.
Hjörtur mun snemma hafa
ákveðið að leggja fyrir sig verslun
og hann byrjaði með því að sækja
bókhaldsnámskeið hjá N. Mancher
í Reykjavík, en sigldi síðan til
náms og lauk prófi frá Brodrene
Paahlmens Handelsakademi í
Kaupmannahöfn árið 1924. Hjört-
ur stundaði skrifstofustörf í
Reykjavík fram til ársins 1926 er
hann stofnsetti verslun undir eig-
in nafni 9. febrúar árið 1926, sem
hann rak til 7. júlí árið 1982, eða í
56 ár samfleytt. Verslunin var
ávallt til húsa á sama stað, á
Bræðraborgarstíg 1.
Árið 1927, eða 8. október það ár,
gekk Hjörtur Hjartarson að eiga
eftirlifandi eiginkonu sína, Ástu
Björnsdóttur, sem var dóttir hjón-
anna Önnu Pálsdóttur (1888—1961)
og Björns Jónssonar, skipstjóra
frá Ánanaustum (1880—1946),
Björnssonar, tómthúsmanns í
Ánanaustum, en hans getur Jón
Helgason, biskup lofsamlega í
endurminningum sínum frá
Reykjavík. Björn Jónsson var í
sinni tíð einn þekktasti skipstjóri
á Suðurlandi, en hann stýrði
lengst línuveiðaranum Sigríði.
Hjónaband þeirra Ástu og
Hjartar var hið farsælasta og
þeim fylgdi glæsileiki og ljúf-
mannlegt viðmót alla tíð.
Lengst af bjuggu þau ásamt
börnum sínum á Reynimel 16A,
sem er myndarlegt, tvílyft timb-
urhús, sem enn stendur mitt í
hvirfingu húsa sem flest voru reist
skömmu eftir aldamótin á þeirri
tíð, er torfbæir viku fyrir viða-
meiri og betri húsum.
Kynni mín af Reynimelsfólkinu
hófust snemma, enda átti ég til
frændsemi að rekja, því Oddur í
Brautarholti var langafi minn í
móðurætt. Börn þeirra Ástu og
Hjartar voru einnig á líku reki og
við systkinin. Það var líka auðvelt
að laðast að þessu góða heimili
þar sem öllum var svo vel tekið.
Þá voru sumardagar og miklir
tímar. Á Reynimel var gestkvæmt
því fólkið var frændrækið og vina-
margt og gestrisni meiri en geng-
ur og gerist. Heimilið brúsaði af
lífi og gleði. Mótlæti var hinsvegar
mætt þar af stillingu og sorginni
með réttri alvöru, sem var eins
gott, því oft var hún innan seil-
ingar, allt frá upphafi og til sein-
ustu daga, þegar farið er að sjá á
grösum.
Hjörtur vann við verslun sína
alla daga. Var röggsamur og ná-
kvæmur kaupmaður. Sama fólkið
kom í búð hans ár eftir ár, nýjar
kynslóðir tóku við af gömlum, og
þótt flutt væri annað lögðu margir
það á sig að leita þangað um lang-
an veg og viðskipti við sjómenn og
útgerð voru oft mikil, enda var
kaupmaðurinn æfður skipshandl-
ari, sem að framan greinir. Hjört-
ur verslaði nær alla ævi og ávallt
á sama stað. Eftir stríðið, þegar
bærinn byrjaði að þenjast út,
brugðust margir kaupmenn í
gömlu hverfunum við á þann hátt,
að flytja verslanir sínar í stór
hverfi og rúmgóðar búðir. Hjörtur
á Reynimel hugleiddi þau mál
einnig, en hætti við og réð það ef
til vill mestu að bæði var honum
sárt um höfnina og útræðin og
eins var það hitt að synir hans
hneigðust ekki til verslunarstarfa,
þannig að enginn var til þess að
taka við.
Árið 1974 seldu þau hús sitt,
Reynimel, þar sem heimili þeirra
hafði staðið í nær hálfa öld og
fengu sér í staðinn hentugra hús-
næði í Espigerði 4. Þá mun einnig
hafa komið til álita að draga úr
umsvifum. Sú varð þó raunin á, að
Hjörtur kunni ekki iðjuleysi og því
hafði hann verslun sína opna
áfram meðan heilsa entist, seinast
nokkra tíma á dag og það held ég
að margur hafi metið mikils. Nógu
margt hafði farið úr skorðum
samt í Vesturbænum gamla.
Maður gat að minnsta kosti
komið þangað með börnin og
kynnt þau fyrir mildum höfðingja
og frænda, en hann var barngóður
og sýndi börnum þá virðingu að
taka þau sem jafningja. Búðar-
ferðir þangað þóttu því af hinu
góða.
En svo aftur sé vikið að starfs-
ævi Hjartar Hjartarsonar, kaup-
manns, þá kaus hann að vera um
kyrrt í Vesturbænum. Samt vann
hann ótrauður að félagsmálum
kaupmanna og framförum í smá-
söluverslun. Hann var einn af
stofnendum Félags matvörukaup-
manna og sat um tíma í stjórn
þess. Var hann sæmdur gullmerki
félagsins árið 1978. Hjörtur var
eini eftirlifandi stofnandi þessa
félags, er hann lést. Þá starfaði
hann í Oddfellowreglunni frá ár-
inu 1942. Hann var lengi gjaldkeri
Dómkirkjusafnaðarins í Reykja-
vik.
Meðal áhugamála Hjartar var
tónlist. Hann var í Tónlistarfélag-
Konan min t RAGNHEIÐUR BOGADÓTTIR,
Frakkastfg 6a
er látin. Gunnar Ólafsson
+
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
ÁSGEIR HALLDÓR JÓNSSON,
fyrrverandi bóndi á Valshamri Skógarsfrönd,
Vesturbergi 144,
andaöist i öldrunardeild Landspitalans Hátúni 10b 21. febrúar.
Áslaug Guómundsdóttir,
Erla Áseirsdóttir, Björgvin H. Björnsson,
Ása Ásg eirsdóttir, Ingvar Kristinsson,
Jón Ásgeirsson, Valgeröur Gunnarsdóttir,
Gylfi Ásgeirsson, Sveinlaug Júlfusdóttir.
t
Maöurinn minn,
BJÖRN ÁRSÆLSSON,
Bólstaóarhliö 30,
lést 20. febrúar. Útförin veröur auglýst siöar.
Dagný S. Karlsen.
Faöir minn.
t
EDVIN ARNASON,
andaöist i Landspitalanum aö kvöldi hins 19. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árni Edvins.
t
Eiginmaöur minn,
MARTEINN M. SK AFTFELLS,
kennari,
Hamrahlíö 5,
lést aö morgni 20. febrúar.
Astrid Skaftfells.
t
Sonur minn og fóstursonur okkar, bróöir og fósturbróöir,
SIGURKARL FJÓLAR ÓLAFSSON,
Kópavogsbraut 105,
Kópavogi,
andaöist í Landspitalanum miövikudaginn 20. febrúar sl.
Ólafur Jens Pétursson,
Gunnsteinn Ólafsson,
Pétur Már Ólafsson,
Helga Helgadóttir,
Sveinbjörn Br. Pétursson,
Hrönn Sveinbjörnsdóttir,
Helgi Sveinbjörnsson,
Héöinn Sveinbjörnsson.
t
Móöir min,
AMALÍA JÓNSDÓTTIR,
Óöinsgötu 13,
Reykjavfk,
veröur jarösunginn frá Villingarholtskirkju laugardaginn 23. febrúar
kl. 13.00. Áætlunarferö frá BSÍ.
Ómar Breiðf jörö.
t
Dóttir okkar og systir,
HAFDÍS HALLDÓRSDÓTTIR,
Tjarnargötu 33,
Keflavfk,
veröur jarösungin frá Keflavikurkirkju, föstudaginn 22. febrúar kl.
14.00.
Elfsabet Ólafsdóttir, Halldór Brynjólfsson
og systkini.
t
Mágkona min,
RANNVEIG JÓNSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Stóra - Núpskirkju laugardaginn 23. febr. kl.
14.00.
Ferö verður frá Umferöarmiöstööinni kl. 11.00.
Fyrir hönd aöstandenda,
Vilborg Pálsdóttir.
t
Útför eiginmanns mins,
FINNBOGA EINARSSONAR,
Neöri — Prestshúsum,
Mýrdal,
fer fram frá Reyniskirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir.
Kristfn Einarsdóttir.
t
Faöir minn og bróðir okkar,
NÚMI ERLENDSSON
trésmföameistari
frá Þjóðólfshaga, Holtahreppi,
veröur jarösunginn frá Marteinstungukirkju laugardaginn 23.
febrúar kl. 14.00. Ferö veröur frá BSI kl. 12.00.
Birgir örn Númason,
Elfsa Erlendsdóttir,
Margrót Erlendsdóttir,
Þóróur Erlendsson.
t
Móöurbróö.ir minn, ,
SIGURDUR SIGURDSSON,
Garövangi, Garöi,
veröur jarösunginn frá Útskálakirkju iaugardaginn 23. febrúar kl.
14.00.
Fyrir hönd ættingja,
Lovfsa Þorgilsdóttir.