Morgunblaðið - 22.02.1985, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
fclk í
fréttum
Pálmi, Örn, Laddi og Jörundur fara á kostum
Fettur og grettur nokkurra
náunga í draugalegum ljósa-
gangi getur að líta í auglýsingu á
skjánum þessa dagana. En þeir
sem vilja sjá þessa sveina augliti
til auglitis og fá meira að heyra
geta lagt leið sína á „Söguspaug
85“ sem frumsýnt var í Súlnasaln-
um sl. laugardagskvöld. Þar
sprella þeirra félagar Pálmi
Gestsson, Örn Árnason, Laddi og
Jörundur. Var ekki annað að sjá á
frumsýningunni en gestir
skemmtu sér hið besta eins og
meðfylgjandi myndir sýna. Þess
má geta að sérstakur matseðill
hefur verið saminn fyrir þessi
kvöld og þar má finna hið girni-
legasta Ijúfmeti. Það hefur verið
mikið að gera hjá þeim félögum í
Söguspauginu að undanförnu því
auk æfinga fyrir það eru sumir
einnig að leika í Þjóðleikhúsinu og
aðrir að gera það gott í Hryll-
ingsbúðinni.
Tiltekt hjá 5. HK
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nemendur í 5 HK í Hlíðaskóla tóku sig til um daginn og söfnuðu 700 tómum ílátum undan
Svala-drykknum. Hér má sjá hópinn hressan í bragði með hrúguna.
• •
Orlög sjónvarpspersóna
í beinum tengslum við
launakröfur leikara
Hefur einhver íhugað hvers
végna mikilvægar hetjur
framhaldsþátta í sjónvarpi hverfa
skyndilega? Þær eru látnar deyja
skyndilega, flytja um set eða
hverfa. En hver er skýringin?
Oftast nær er hún sú, að leikar-
arnir hafa sett fram óhóflegar
kaupkröfur, framleiðendurnir
hafa neitað að verða við þeim og
breytt handritinu til að losa þátt-
inn við viðkomandi friðarspilli.
í Dynasti var Alexis Carringtor
ásökuð um morð og ævilangt fang-
elsi er stefndi í óefni í karpi Joan
Collins við framleiðendur þátt-
anna. Ungfrú Collins hefur þegar
45.000 dollara vikukaup, en hún
fór fram á meira og það þótti
vinnuveitendum hennar óhóflegt.
Þegar Joan varð ljóst að hlutverk
hennar yrðu að engu gert í þáttun-
um, slíðraði hún sverð sitt og um
leið féll allur grunur af Alexis
Carrington.
Munið þið eftir Dusty Farlow í
Dallas? Þann hrossakappa lék
Jared Martin og er hann var orð-
inn stórnúmer í Dallas heimtaði
hann kauphækkun ofan á 12.000
dollara vikulaun sín. Því næst
lenti Dusty í flugslysi, lamaðist,
en batnaði aftur síðar. Allt var
þetta öðru vísi en ætlað var í byrj-
un og einungis gert til að losa
Dallas við kúrekann.
Það sama gerðist við Audrey
Landers, sem lék Afton Cooper í
Dallas; kaupkröfur hennar féllu
ekki í góðan jarðveg hjá framleið-
endum þáttarins þannig að hún
var skrifuð út úr þáttunum, send í
langt ferðalag og sást aldrei fram-
ar.
Farrah Fawcett sló fyrst í gegn
í „Charlies Angels". Hún þáði
5.000 dollara fyrir hvern þátt, en
er endurnýja átti samninga,
heimtaði þokkagyðjan 75.000 doll-
ara fyrir hvern þátt, lauflétta
kauphækkun, en er vinnuveitend-
ur hennar fengu málið á nýjan
leik, var Jill Munroe, engillinn
sem Farrah lék, látin flytja til
Evrópu og nýr engill fyllti skarðið,
engill sem gerði ívið minni kaup-
kröfur.
Kvenþjóðin eignast
sinn eigin Tarsan
Kvenþjóðin hefur
eignast sinn „Tars-
an“ í kvikmyndinni
„Sheena" þar sem Tanya
Roberts fer með titilhlut-
verkið, leikur Sheenu sem
er nokkurs konar kven-
kyns útgáfa af Tarsan
apabróðir. Hún situr þar
á sebrahestum, fílum og
hestum og leikur sjálf í
flestum erfiðu atriðunum
í stað þess að láta sér-
þjálfaða staðgengla sjá
um það. „Ég var í lík-
amsrækt í heilt ár til þess
að geta staðið í stykkinu í
þessari mynd,“ sagði
Tanya við fréttamenn.
Tanya hefur viða komið
við, en hún varð fyrst
kunn fyrir vestan haf sem
ein af englum Charlies í
vinsælum sjónvarpsþætti
sem hét „Charlies Ang-
els“. Síðar á þessu ári
leikur hún Bond-stúlku í
„A view to kill“, sem var
að hluta til tekin upp á
fslandi sem kunnugt er.
Gott
hjónaband
í einkalífinu er þessi
huggulega 29 ára gamla
kona við eina fjölina felld,
hún hefur verið gift Barry
Roberts í 12 ár, gekk að
eiga hann 17 ára gömul og
hún segist elska mann
sinn út af lífinu. Hann
fylgir henni um heim all-
an, eða hvert sem hlut-
verk hennar krefst og
fjárhagslega heldur
Tanya þeim hjónum á
floti. „Við treystum mjög
á feril minn í kvikmynd-
um til að framfleyta
okkur. Þess vegna eigum
við engin börn þrátt fyrir
12 ára hjónaband. Við
höfum svo mikið fyrir
stafni að við yrðum lélegir
foreldrar," segir frú Rob- Tanya Roberts meö Donovan Scott í
erts. „Sheena“.