Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
j, (?u gelur &\veg treyst mer, pctta
cr loara. bólusetnirp qcgn hun.do.3rol."
... að finna að
vorið er komið.
TM Raa. U.S. Pat. Off.—all rlghts reserved
°1984 Los Angeles Tlmes Syndlcate
Snjöll hugmynd þetta, enda heyrist
ekki eitt styggöaryrði frá honum.
Með
tnor^unkaffinu
Kallaðu til mín þegar þú kemur á
næsta viðkomustað?
HÖGNI HREKKVtSI
FLUGLEIDII
flugleiðir
Bréfritari segir að borgarbúar geti talist í hópi þeirra lánsömu sem hafi fiugvöll við bæjardyrnar.
Til varnar Reykja-
víkurflugvelli
Stefán Sæmundsson skrifar:
Síðastliðinn sunnudag birtist
grein hér í Velvakanda þar sem
bréfritari tekur undir skoðun fjár-
málaráðherra um brottflutning
Reykjavíkurflugvallar.
Sem betur fer eru svona bréf
sjaldséð fyrirbrigði en þeim má þó
ekki láta ósvarað. Ekki virðist
bréfritari eingöngu eiga við
flughræðslu að stríða heldur
óttast hann einnig Áburðarverk-
smiðju ríkisins og ótaldar aðrar
framtíðaráætlanir á borgarsvæð-
inu.
Hættur borgarbúa
Að fenginni áratuga reynslu
mætti álíta að bílar væru hér
meiri slysavaldar en flugvélar,
sem betur fer dettur þó engum
heilvita manni í hug að gera
Reykjavík að gönguborg né fjar-
lægja þaðan flugvelli í þeim eina
t.ilgangi að fækka slysum. Hætt er
við að fleiri mannslíf glötuðust á
leiðinni til Keflavikur heldur en
þau sem bjarga mætti með flutn-
ingi flugsins frá Reykjavík. Ekki
má skilja orð mín svo að ég telji
bílhræðslu eða flughræðslu óeðli-
lega, en henni má setja skynsam-
leg mörk.
Kostnaður borgarbúa
Nærtækt ætti að vera fyrir fjár-
málaráðherra að líta í kassann og
athuga hvort við höfum efni á að
flytja innanlandsflugið til Kefla-
víkur. Það sem eftir yrði af svo-
kölluðu innanlandsflugi, ef flutt
yrði, læt ég ósagt, en flugtími
mundi lengjast til allra staða á
íslandi og beinn flugkostnaður
þannig aukast. Jafnvel þótt far-
þegar sættu sig við að eyða jafn
löngum tíma í að komast um borð
í flugvél í Keflavík eins og lengsta
flugferð innanlands tæki, þá dreg
ég mjög í efa að nokkur vildi borga
stórfé í skattheimtu fyrir það
óhagræði sem af hlytist.
I’ægindi borgarbúa
Reykvíkingar geta taiist í hópi
þeirra lánsömu sem eiga flugvöll
við bæjardyrnar og að auki kemur
hann allri landsbyggðinni til góða.
Jafnvel þótt flugslys yrði í Vestur-
bænum, breytir það engu um þá
staðreynd. Bílslys verða varla til
að draga úr vegaframkvæmdum,
nema síður sé. Hví skyldu þá
flugslys verða til að útrýma flug-
völlum? Kjarni málsins snertir
aðra þætti lífsins sem við latum
okkur mjög annt um, sem sé þæg-
indi og tímasparnað. í huganum
vorkenni ég vesalings Keflavíkur-
innanlandsfarþegunum á leið til
Vestmannaeyja, þegar áhöfnin
kemur til Keflavíkur og fær þau
boð að ófært sé orðið á leiðarenda.
Skyldi engum detta orðið Herjólf-
ur í hug þann daginn?
Umhugsunarefni fyrir
borgarbúa
Vafasamt er að Vesturbærinn
yrði betur eða fallegar skipulagð-
ur þótt flugvöllurinn yrði látinn
víkja fyrir húsum, blokkum eða
öðrum mannvirkjum. Auð svæði
eiga líka heima í góðu skipulagi.
Kunnur byggingaverkfræðingur
tjáði mér að flugvallarsvæðið væri
jarðvegslega séð mjög óheppilegt
til bygginga, en að auki væri jarð-
vatnsstaða svo há að frárennslis-
vandamái væri þar verulegt.
Margt má gera til að fegra
svæðið án þess að flugvöllurinn
þurfi að víkja, og fyrirhuguð leng-
ing norðvesturbrautar ætti að
verða til þess að minnka umferð
um norður-suður-brautina, sem
mjög er til bóta vegna hávaða,
sem óhjákvæmilega fylgir aðflugi
og fráflugi stærri flugvéla. Áform
um að fylla upp eða byggja í tjörn-
inni hafa sem betur fer verið lögð
á hilluna, vonandi verður það
sama með hugmyndir fjármála-
ráðherra hvað snertir flugvöllinn.
Snjöll hugmynd og ódýr
Sú hugmynd kom fram nýlega,
hvort ekki væri mun ódýrara og
betra fyrir alla ef þeir sem ekki
þola flugvélar fengju aðstoð til að
flytja til afvikins staðar.> Þá
þyrftu aðeins örfáir að leggja
lykkju á leið sína vegna innan-
landsflugsins, flugvöllurinn gæti
áfram fengið- að vera á sínum stað
og borgarbúar notað fjármuni
sína í annað þarfara en hug-
myndaflug fjármálaráðherra.
Þessir hringdu . . .
Jákvæðari umfjöllun
um daglegt mál
Kennari kom að máli við Velvak-
anda.
Hvernig væri að umsjónarmað-
ur þáttarins Daglegt mál fjallaði
um málfarið á aðeins jákvæðari
hátt?
Menn eru farnir að verða
hræddir við að opna munninn af
ótta við að segja eitthvað rangt.
Þó þátturinn sé gagnmerkur þá
vill oft jaðra við að hann sé í
nöldurtón.
Stór hluti félags-
manna verkafólk
Stjórnarmaður í Leigjendasam-
tökunum hringdi:
Mér þótti heldur sterklega til
orða tekið í bréfi fyrrverandi íbúa
í verkó sem birtist í Velvakanda
föstudaginn 15. febrúar, þar sem
hann talar um „hámenntaða menn
í Búseta sem fari hamförum".
Því vil ég láta þess getið að sam-
kvæmt könnun sem gerð var innan
Leigjendasamtakanna reyndust
77% félagsamanna í Búseta vera
verkafólk eða tilheyrandi þeim fé-
lögum sem heyra undir Alþýðu-
samband íslands. í nefndu bréfi
segir jafnframt að Framsóknar-
flokkurinn sé linur í þessu máli.
Því langar mig að benda á það að
það er ekki bara Framsóknar-
flokkurinn sem er linur því að af
þingflokkunum sex styðja allir
nema Sjálfstæðisflokkurinn Bú-
seta.