Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hvert stefnir hin íslenska þjóð?
Huyheilar þakkir færi éy öllum þeim er
minntust mín á áttræöisafmæli mínu þann
sextánda þessa mánaöar med yóöum yjöfum,
söny, hlýjum handtökum oysendum kveöjum.
h / o<; konan mín þökkum ykkur öllum oy
biöjum ykkur árs oyfridar oy GuÓs blessunar.
Sigsteinn Pálsson,
Blikastödum.
2712-2299 skrifar:
Ég get ekki lengur orða bundist
yfir íslensku þjóðinni. Tökum t.d.
börnin, í staðinn fyrir að fara í
kirkju á sunnudögum er nú farið á
Duran Duran-hátíð þar sem börn-
in eru hvött til að taka sig saman
og svindla popplögum inn á vin-
sældalista og andvaralaus börnin
hlýða cins og ekkert sé. Endar
þetta ekki með því að börnin fá
hálsmen með myndum af popp-
stjörnum í staðinn fyrir hálsmen
með krossi, tákni Jesú Krists.
Og svo í sambandi við kvik-
myndamenningu íslendinga, þá
verð ég að segja að ég varð alveg
hlessa þegar ég frétti að aðeins
40.000 manns hefðu séð hina stór-
góðu mynd Hrafninn flýgur og ættu
Við töku myndarinnar Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson. Bréfritari
er undrandi á því hve íslendingar sýna henni lítinn áhuga.
Islendingar að skammast sín fyrir myndir en fara þess í stað á alls
að sjá ekki sóma sinn í því að kyns ómerkilegar sápuóperur frá
sækja vel vel gerðar íslenskar útlandinu.
Léleg þjónusta í Seljahverfi
íbúi í Seljahverfi skrifar:
Eftir að hafa búið í Seljahverfi
í ein níu ár get ég ekki lengur
orða bundist yfir lélegri þjónustu
við hverfisbúa. í hverfinu er
ekki: pósthús, bakarí, apótek,
bókabúð (í hverfinu er fjölmenn-
asti skóli landsins og annar til)
svo eitthvað sé nefnt, hvað þá
nógu tíðar strætisvagnaferðir til
að hægt sé með góðu móti að
sækja þessa þjónustu í önnur
hverfi. Mér finnst til dæmis al-
veg forkastanlegt að leið 14 skuli
aðeins ganga á 30. mín. fresti en
ekki á 15 mín. fresti eins og
nauðsynlegt væri, sérstaklega
síðdegis.
Ég bara spyr, nær það nokk-
urri átt að 8000 manna hverfi búi
við þessa „óþjónustu"?
íbúi í Seljahverfi er orðinn langeygur eftir pósthúsi, bakaríi, apóteki o.fl. í hverfið.
Bænina að finna
í Hallgrímskveri
Steinvör hringdi.
Réttilega var frá því sagt í Vel-
vakanda að morgunbæn nokkur
væri eftir Hallgrím Pétursson og
væri að finna í bókinni Kvæði og
leikir handa börnum eftir Hall-
dóru Bjarnadóttur.
Hins vega. er mér kunnugt um
að þessi bók er nú ófáanleg með
öllu og því vildi ég benda fólki á að
bænina, sem heitir Ungmenna-
morgunbæn, er einnig að finna í
Hallgrímskveri sem hefur að
geyma sálma og kvæði eftir Hall-
grím Pétursson. Nánar tiltekið er
bænin í 14. útgáfu á bls. 203.
Geymið súrmjólk-
ina á hvolfi
Húsmóðir hringdi:
Um daginn var kvartað undan
því í Velvakanda hve þunn súr-
mjólkin okkar er orðin.
Mér hefur reynst ágætlega að
geyma fernurnar á hvolfi þangað
til að ég opna þær. Þykkildið sem
safnast saman á botninum jafnast
þá út í súrmjólkina. í kjölfar þessa
væri kærkomið ef hægt væri að
hafa dagsetninguna á botni fern-
anna.
Bækur hans
verði þýddar
Eiríkur skrifar:
Kæri Velvakandi.
Mig langar að spyrja af hverju
bókaútgefendur láta ekki þýða
bækur Stephens King.
Meirihluti bóka hans eru góðar
og spennandi s.s. The Dead Zone,
Carrie og Shining sem gerðar hafa
verið samnefndar kvikmyndir eft-
ir. Það væri miklu nær að þýða
bækur eftir King í stað þess að
þýða hverja Alister MacLean-
bókina á fætur annarri, sem eru
allar lélegar.
Þökk fyrir dans-
námskeiðið
íbúi á Blönduósi hringdi:
Ég vil þakka danskennurunum
Huldu og Margréti fyrir þeirra
ágæta dansnámskeið sem þær
héldu hér á Blönduósi. Ég tók nú
ekki þátt í námskeiðinu sjálfur
heldur var áhorfandi. Þó má ég til
með að láta í ljós aðdáun mína á
námskeiðinu og vonast ég nú til
þess að við fáum að sjá þessa
kennara sem fyrst hér aftur.
Notaður
Citroén
næst Ix'sli
kosturinn
Árg. Ekinn Verö
Citroén CX Reflex 1982 28 þús. km. 430.000
Citroön GSA X3 1982 28 þús. km. 280.000
Citroðn GSA Pallas 1982 33 þús. km. 280.000
Citroön GSA Pallas 1982 38 þús. km. 270.000
Citroön GSA Pallas 1982 35 þús. km. 270.000
Citroön GSA Pallas 1981 64 þús. km. 210.000
Citroön GSA Pallas 1980 78 þús. km. 180.000
Opið laugardaga kl. 2—5.
Sálfræðistöðin
FORELDRANÁMSKEIÐ
Námskeið í bamasálfræði
fyrir foreldra
2-6 ára bama.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra meira um börn, læra
leiðir til að örva þau til meira sjálfstæðis og styrkja sjálfstraust
þeirra. Engrar fyrirframþekkingar er krafist.
A NAMSKEIDINU VERÐUR FJALLAÐ UM EFTIRFARANDI:
Pti OQ
BARNIÐ
» hvað mótar þig sem foreldri
• persónuleikaþróun barnsins
• eðlileg þróun/algeng frávik
• álag og tímamót í lífi barna
AÐÞEKKJA
BARNIÐ
• hvernig þróast leikurinn?
• hvernig þróast teikningar?
• hvernig breytist hegðun
eftir aldri og uppeldi?
Pti OG • að örva sjálfstæði
T__ • að styrkja sjálfstraust
UPPELDIÐ • að auka á hæfni til að ráða
við árekstra
Foreldrum barna á aldrinum 4-6 ára er sérstaklega bent á
þessi námskeið. Við fjögurra ára aldur er þroski barna kominn
á það stig að margt er hægt að segja um persónulega þróun
og aðlögun að umhverfi. Mun auðveldara er nú að örva bamið
og fá það til samvinnu en áður og tvö ár eru enn í skólagöngu.
Leiðbeinendur
eru
salfræðingamir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal
Innritun virka daga kl. 10-12
rSánari upplýsingar í síma
Sálfræðimiðstöðvarinnar687075 milli kl. 10-12
Metsölubhd ú hverjum degi!