Morgunblaðið - 22.02.1985, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
Ungmennafélagið með
fjölbreytt starf
S«l1osai, 18. tabrúar.
AÐALFUNDUR Ungmennafélags
Selfoss var haldínn sl. föstudag
15. febrúar. Ungmennafélagið er
fjölmennasta fólagið hér í bænum
og sinnir íþrótta- og félagsstarfi
ungs fólks.
Innan félagsins starfa 7 íþrótta-
deildir ásamt framkvæmdastjórn
félagsins. Þá eru starfandi fasta-
nefndir hjá félaginu, jólasveina-
nefnd, sem hefur innan sinna vé-
banda 13 jólasveina og fjögur tröll,
og íþróttavallanefnd sem er ráö-
Bikarglíma
GLIá
sunnudag
BIKARGLÍMA Glímusambands ís-
lands fer fram í Melaskólanum
næstkomandi sunnudag og hefst
kl. 14.00. Þrettén keppendur eru
skróðír til leiks. Þar é meðal flest-
ir sterkustu glímumenn landsins.
gefandi um framkvæmdir á
íþróttavallasvæðinu. Málfunda-
klúbburinn Málfoss er starfandi og
félagiö annast rekstur Selfossbíós.
Skráölr félagar hinna ýmsu
deiida félagsins eru um 790 talsins
og starfsemin því geysimikil viö aö
sinna félags- og leikjaþörf þessa
fólks sem er aö meirihluta innan 18
ára aldurs.
Á aöalfundinum var lögö fram
greinargóö ársskýrsla félagsins í
A4 broti, 80 síður aö stærö. í henni
er tíundaö starf íþróttadeildanna
sem er mikiö aö vöxtum.
Á fundinum var Tryggvi Helga-
son sundmaöur útnefndur íþrótta-
maöur Selfoss áriö 1984. Trimm-
NEWCASTLE United keypti í gær
framherjann George Reilly frá
Watford og greiddu þeir fyrir
hann 200.000 pund. Fyrir tveimur
vikum keypti Jack Charlton fram-
tarínan sem afhent er mesta
trimmaranum kom í hlut Smára
Ársælssonar og Sigmundur Stef-
ánsson forstöðumaöur Sund-
hallarinnar hlaut Björns Blöndal-
bikarinn sem veittur er dyggum
stuöningsmanni og velunnara fé-
lagsins undanfarin ár.
Mikilvægi starfs iþrótta- og
ungmennafélaga er ágætlega lýst í
inngangsoröum Björns Gíslasonar
formanns aö árskýrslu félagslns en
þar segir m.a.: „i harönandi sam-
keppni um tómstundir unga fólks-
ins er íþróttahreyfingin eina aflið
sem getur spornaö viö þeim vá-
gesti sem ávana- og eiturlyfja-
neyslan er.“
kvæmdastjóri Newcastle Steve
Kinsly sem einnig er framherji
fyrir 80.000 pund. Newcastle Uni-
ted mætir Luton é laugardaginn í
1. deild og mun Reilly leika með
Newcastle í þeim leik.
Reilly til Newcastle
Frá Bob Hennessy, fréttamanni MorgunblaðH-
ins í Knglandi.
Landsganga SKÍ hafin
Kjíibtstoðum, 17. febrúar.
í GÆR hófst í Egilsstaöaskógi 1.
éfangi landsgöngu Skíðasam-
bands íslands 1985, en Skíöa-
sambandiö gengst fyrir 5 skíöa-
göngumótum víös vegar um land
é þessum vetri.
í gær voru gengnir 25 km og
voru keppendur 30 talsins. i hópi
17—34 ára karla voru keppendur
þrír og bar Gottlieb Konráösson,
Ólafsfiröi, sigur úr býtum á 1. klst.,
20 mín. og 48 sek. Annar varö
Haukur Eiríksson, Akureyri, á 1.
klst., 23 mín. og 39 sek. og þriöji
Ingþór Eiríksson, Akureyri, á 1.
klst., 31 mín. og 04 sek.
I hópi 35 ára karla og eldri bar
Siguröur Aöalsteinsson, Akureyri,
sigur úr býtum á 1 klst., 32 mín. og
10 sek. Annar varö Björn Þór
Ólafsson, Ólafsfiröi, á 1. klst., 34
mín. og 11 sek., þriöji Halldór
Matthíasson, Reykjavík, á 1 klst.,
39 mín. og 57 sek. og fjóröi Hjálm-
ar Jóelsson, Egilsstööum, á 1.
klst., 43 mín. og 55 sek.
Næst veröa gengnlr 20 km á Ak-
ureyri, þá 42 km viö Reykjavík,
10—20—30 km á Ólafsfiröi og aö
lokum 24 km á Isafiröi. Stig þátt-
takenda veröa reiknuö eftir röö í
hverju göngumóti skv. reglugerö
SKÍ þar um. Samanlögö stig
þriggja bestu mótanna ráöa úrslit-
um í íslandsgöngunni.
Alls tóku 13 trimmarar þátt í
göngunni í gær og veröur lands-
gangan sjálfsagt til aö auka enn
veg skíöaíþróttarinnar hér um
slóöir.
— Ólafur.
Morgunblaöiö/Ólafur
• Skíöagöngumenn fara af stað í fyrstu trimmgönguna af fimm sem
Skíðasamband íslands gengst fyrir. Skíðagangan fór fram í
Egilsstaðaskógi um síöustu helgi.
Framférði stjómar HSÍ er í máli
þessu stórlega ámælisvert
Herra ritstjóri.
Að undanförnu hefur veriö fjall-
aö nokkuö ítarlega é íþróttasíö-
um blaös yðar um mél Svafars
Magnússonar, leikmanns með
mfl. Víkings í handknattleik og
afleiöingar þess að hann lék með
Víkingi é móti Val í íslandsmót-
inu.
f blaöi yðar í dag er löng grein
um mélið eftir einn af íþrótta-
fréttamönnum yðar og stjórnar-
mann í handknattieiksdeild Vík-
ings, Hall Hallsson. í greininni er
vikið aö dómi dómstóls HSÍ í
kærumélinu nr. 1/1985: Valur
gegn Víkingi é þann hétt aö telja
veröur eðlilegt að dómurinn í
heild komi fyrir augu lesenda yö-
ar. Sendist yður hér með endurrit
úr dómabók HSÍ varðandi fram-
angreint mél.
Vírðingarfyllst, f.h. dómstóls
HSÍ, Ingvar Björnsson, formaöur.
Ár 1985, þriöjudaginn 15. janúar
kom dómstóll HSÍ saman.
Dómarar eru Haukur Bjarnason,
Ingvar Björnsson og Siguröur
Jónsson.
Fyrir er tekiö máliö nr. 1/1985:
Valur gegn Víkingi.
Af hálfu Vals sækja þing Bjarni
Jónsson og Bergur Guðnason, hdl.
Af hálfu Víkings sækir þing Hall-
ur Hallsson.
Lagt er fram nr. 1, kæra nr. 2,
leikskýrsla.
Umboösmaöur Víkings leggur
fram nr. 3—8, grg. ásamt fskj.
Umboösmaður Víkings óskar
eftir fresti þar sem lögmaöur Vík-
ings, Helgi V. Jónsson, hrl., geti
ekki mætt. Umboösmenn Vals
samþykkja frest. Málinu frestaö til
miövikudagsins 16. þ.m. kl. 17.30.
Fleira ekki tekiö fyrir.
Þannig fram fariö. Hallur Halls-
son (sign), B. Guðnason (sign),
Bjarni Jónsson (sign), Ingvar
Björnsson (sign), Haukur Bjarna-
son (sign), Sig. Jónsson (sign).
Ár 1985, miövikudaginn 16.
janúar kom dómstóll HSÍ saman.
Dómarar eru Ingvar Björnsson,
Haukur Bjarnason og Jón H.
Magnússon.
Fyrir er tekiö máliö nr. 1/1985:
Valur gegn Víkingi.
Skjöl málsins nr. 1—8 liggja
frammi.
Af hálfu Vals mæta Bjarni
Jónsson og Bergur Guönason, hdl.
Af hálfu Víkings mæta Hallur
Hallsson, Hannes Guðmundsson
og Helgi V. Jónsson, hrl.
Lögmenn aöilja lýsa gagnaöflun
lokiö.
Ákveöiö er aö flytja máliö
munnlega.
Tók þá til máls lögmaður Vals,
Bergur Guönason, hdl. Geröi hann
sömu dómkröfur og fram koma á
dskj. nr. 1. Hann rakti málavexti,
studdi kröfur sínar lagarökum,
mótmælti varnarástæðum Víkings
og lagði málið svo búiö i dóm meö
fyrirvara um aö Val væri heimilt aö
skjóta niöurstööum dómstóls HSI
til íþróttadómstóls ISÍ:
Þá tók til máls lögmaður Vík-
ings, Helgi V. Jónsson, hrl. og
geröi þessar dómkröfur:
Aö máli þessu veröi vísaö hér
frá dómi en veröi frávísunarkrafan
ekki tekin til greina kraföist hann
sýknu umbj. sínum til handa af öll-
um kröfum Vals. Hann rakti mála-
vexti og færöi fram lagarök kröfum
sínum til stuönings. Hann geröi
fyrirvara um aö Víkingi væri heimilt
aö skjóta niöurstööu dómstóls HSÍ
til íþróttadómstóls ÍSf. Hann lagöi
máliö svo búiö í dóm meö venju-
legum fyrirvara.
Þá tók lögmaöur Vals aftur til
máls. Hann mótmælti frávísun-
arkröfu Víkings efnislega. Hann
mótmælti lagarökum og öðrum
rökstuöningi lögmanns Víkings.
Hann itrekaöi dómkröfur og lagöi
málið svo búiö í dóm með fyrir-
vara.
Tók þá á ný til máls lögmaöur
Víkings. Hann færöi á ný fram rök
og lagatilvitnanir máli sínu til
stuönings. Hann mótmælti laga-
rökum og öörum rökum lögmanns
Vals. Hann ítrekaöi gerðar dóm-
kröfur og lagði málfö svo búiö i
dóm.
Máliö er tekið til dóms og kveö-
iö upp í því svohljóöandi dómur:
Reykjanesmótiö er framkvæmt
aö öllu leyti í samræmi viö lög og
reglur HSÍ um handknattleiksmót
þótt eigi sé til sérstök reglugerð
um þaö mót. Skoöast Reykja-
nesmótiö vera opinbert mót, sam-
bærilegt Reykjavíkurmótinu í
handknattleik.
Skv. 13. gr. laga HSI fjallar
dómstóll HSI um öll kærumál sem
varöa landsmót. Kærumál þetta
fjallar um slíkt tilvik og á þvi undir
lögsögu dómstólsins. Máli þessu
veröur því ekki vísað frá dómi.
Skv. 3. gr. b. reglugeröar HSÍ
um handknattleiksmót getur leik-
maöur aöeins leikiö meö einu fé-
lagi á sama leikári, en leikár telst
frá 1. september til 31. ágúst, sbr.
3. mgr. 2. gr. reglugeröar HSÍ um
handknattleiksmót. Viðurkennt er
aö Svafar Magnússon lék meö
Gróttu í Reykjanesmótinu á yfir-
standandi leikári. Þátttaka Svafars
í hinum kæröa leik samrýmist því
ekki 3. gr. b. reglugeröar HSf um
handknattleiksmót. Breytir hér
engu, þótt stjórn HSi hafi á fundi
sínum 12.11.1984 veitt Svafari
leikheimild meö Víkingi frá og meö
þeim degi, þar sem stjórn HSÍ hef-
ur enga heimild til aö veita undan-
þágu frá gildandi reglugeröar-
ákvæöum og má í þvi sambandi
vísa til þess aö aukaþing HSI er
meira aö segja óheimilt aö gera
laga- eða reglnabreytingar, sbr. 3.
mgr. 7 gr. laga HSÍ. Leikheimild
stjórnar HSÍ þann 12.11.1984 til
Svafars var því markleysa (nullitet)
og hefur ekkert gildi. Framferöi
stjórnar HSÍ í máli þessu er stór-
lega ámælisvert. Útsending bréfs
dags. 1.6.1984, dskj. nr. 6, meö
reglum um félagaskipti sem felldar
höföu veriö á síöasta ársþingi HSÍ,
er vítaverð svo og aö taka sér vald,
sem stjórnin haföi ekki, til aö
heimila félagaskipti þvert á gild-
andi regiur, sbr. dskj. nr. 4, og ber
aö víta slíkt.
Þar sem Svafar Magnússon var
ekki hlutgengur í hinum kæröa leik
ber meö vísan til a-liös 19. gr.
reglugeröar HSÍ um handknatt-
leiksmót aö dæma Víkingi tapaðan
hinn kæröa leik.
Dómsorð: Frávísunarkrafa Vík-
ings er ekki tekin til greina.
Stjórn HSÍ er vítt fyrir aö senda
út rangar upplýsingar til aðildarfé-
laga sinna um félagaskipti og fyrir
aö taka sér vald til aö heimila fé-
lagaskipti þegar slíkt vald var ekki
fyrir hendi.
Leikur Vals og Víkings í mfl.
karla á íslandsmótinu, sem leikinn
var hinn 8. janúar 1985, dæmist
Víkingi tapaður.
Ingvar Björnsson (sign), Jón H.
Magnússon (sign), Haukur Bjarna-
son (sign).
Rétt endurrit staöfestir:
Hafnarfirði, 17. janúar 1985,
Ingvar Björnsson, hdl.