Morgunblaðið - 22.02.1985, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985
55
VALSMENN sigruöu stúdenta í
Úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í
gærkvöldi með 105 stigum gegn
86, staöan í hálfleik var 57:39 fyrir
Val. Valsmenn geröu út um leik-
inn strax í fyrri hálfleik og var
aldrei spurning hver færi meö
sigur af hólmi, til þess var of mik-
ill munur á þessum liöum.
Valsmenn komust strax í 6:0 og
stúdentum tókst aö laga stööuna í
6:5 en síöan ekki söguna meir,
komust aldrei nær Valsmönnum.
Eftir sjö mínútur var staðan 16:7
fyrir Valsmenn og þegar fyrri hálf-
leikur var rúmlega hálfnaöur var
munurinn orðinn 20 stig, 35:15
fyrir Val og gátu Valsmenn leyft sér
aö taka alla byrjunarleikmenn sína
út af og leyfa þeim ungu aö spjara
sig. Þaö voru burðarásarnir í liöi
Vals sem fóru út af, þeir Kristján,
Torfi, Tómas, Einar og Jóhannes
og létu yngri strákana leika út hálf-
leikinn. Þeir stóöu sig vel og héldu
fengnum hlut og staöan eins og
áöur segir 57:39 fyrir Val.
MA sigraði
Framhaldsskólamót á skíðum
fór fram í Bláfjöllum á öskudag,
keppt var í flokkasvigi og boö-
göngu, veöur var frekar slæmt,
en mótiö gekk þó vel fyrir sig.
Mót þetta hefur veriö haldiö all-
ar götur síöan 1970 og hefur átt
miklum vinsældum aö fagna hjá
framhaldsskólanemendum, sem
hafa fjölmennt hvaöanæva af land-
inu. Keppter í þriggja manna sveit-
um og ráöast úrslit af saman-
lögöum árangri þeirra.
Flokkasvig sek.
1. Menntaskólinn á Akureyri 86,2
2. Menntaskólinn á ísafiröi 90,3
3. Menntaskólinn við Sund 91,0
Boðganga: mín.
1. Fjölbrautask. Sauöárkr. 23,33
2. Menntask. á Akureyri 23,41
3. Fjölbrautask. á Ólafsfiröi 23,51
Meistaramót
í frjálsum
um helgina
Valur — IS
105:86
Valsmenn voru aftur meö sitt
sterkasta liö inná í seinni hálfieik.
Stúdentar reyndu aö klóra í bakk-
ann og um miöjan siöari hálfleik
var munurinn oröinn aöeins 13 stig
og höföu Valsmenn þá slakað á.
Siöan hélst þetta bil þar til þrjár
mínútur voru til leiksloka aö
Valsmenn tóku fjörkipp svona rétt
til aö brjóta 100 stiga múrinn og
þaö tókst þeim og sigruöu verö-
skuldaö meö 105:86.
Vörn Vals í þessum leik var góö
og áttu stúdentar oft í miklum erf-
iöleikum aö komast í gegn. Þeir
tóku því þaö til bragös aö skjóta
fyrir utan punktalínu og þaö tókst
mjög oft, sérstaklega hjá Árna
Guömundssyni sem skoraöi fjórar
þriggja stiga körfur og þeir Eiríkur
og Jón geröu sitthvora þriggja
stiga körfuna.
Bestu menn stúdenta voru Helgi
Gústafsson sem lék mjög vel gegn
sínum gömlu félögum í Val og svo
var Árni drjúgur.
Bestir í liði Vals voru Torfi
Magnússon, sem stjórnaöi liöi sínu
eins og herforingi, Jóhannes
Markússon var góöur, svo og
Björn Zoega, ungu mennirnir Sig-
uröur Björnsson og Svali Björg-
vinsson vöktu athygli.
Stig Vals: Torfi Magnússon 18, Jóhannes
Markú.sson 17, Björn Zoega 16, Kristján Ág-
ústsson 12, Sigurður Björnnson 10, Leifur Gúst-
af.sson 8, Kinar Ólafsson 8, Páll Arnar 6, Tómas
Holton 7 og Svali Björgvinsson 3.
Stig ÍS: Helgi Cústafsson 23, Árni Guö-
munds.son 20, Gudmudur Jóhannsson 15, Valdi-
mar (lUÓlaugsson 13, Eiríkur Jónsson 10, Jón
Indriðason 3 og Björn Leósson 2.
— VJ
Morgunblaöiö/Július
• Geir Sveinsson átti mjög góöan leik í gærkvöldi gegn Víkingi. Geir skoraöi sex falleg mörk þar af fjögur
af línu. Geir er á góöri leiö meö aö veröa einn besti línumaöurinn í íslenskum handknattleik í dag.
Mikill darraðardans í
leik Vals og Víkings
Yfirburöir
Valsmanna
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
íþróttum innanhúss veröur haldiö
í Laugardalshöll og Baldurshaga
um helgina í umsjá ÍR-inga.
Rúmlega 100 keppendur frá 14 fé-
lögum og samböndum eru skráö-
ir til leiks. Tímaseöill mótsins er
annars svohljóðandi:
Laugardagur:
Laugardalshöll:
9:45 Hástökk karla
10:15 800 karla
10:30 Kúluvarp karla
10:30 800 kvenna
Baldurshagi:
14:00 50 karla, undanrásir
14:30 50 kvenna, undanrásir
16:15 Langstökk karla
Sunnudagur:
Laugardalshöll:
9:45 Hástökk kvenna
10:00 1500 karla
10:30 Kúluvarp kvenna
Baldurshagi:
14:00 50 gr. karla
14:20 50 gr. kvenna
15:35 Langstökk kvenna
17:20 Þrístökk karla
ÞAÐ VAR mikill darraöardans
stiginn á fjölum Laugardalshall-
arinnar í gærkveöldi er lið Vala
og Víkings geröu jafntefli, 17:17, í
1. deildinni í handknattleik karla.
En leikur liöanna var ekki aö
sama skapi vel leikinn. Mikiö var
um fum og fát á báöa bóga og
miklar sveiflur voru í leiknum.
Víkingar náðu til dæmis aöeins
aö skora tvö mörk fyrstu 22 mín-
útur leiksins.
Valsmenn höföu fimm marka
forskot i hálfleik, 10:4, og náöu sex
marka forskoti strax í upphafi síö-
ari hálfleiks en meö baráttugleöi
og hörku náöu Víkingar aö jafna
metin, 16:16, undir lok leiksins og
komast yfir, 17:16. Þaö voru
Valsmenn sem náöu svo að jafna
metin, 17:17. Sanngjörn úrslit eftir
gangi leiksins.
Þaö var mikill kraftur í iiöi Vais í
upphafi leiksins. Liöiö lék þá mjög
vel. Opnaöi vörn Víkings hvaö eftir
annaö meö laglegum leikfléttum
og eftirleikurinn var oft auöveldur.
Valsmenn komust í 7:1, og þegar
22 mínútur voru liönar af fyrri háif-
Valur — Víkingur
17:17
leik var staöan 8:2, fyrir Val. Fimm
mörk skildu liöin svo af í hálfleik.
I síöari hálfleik snerist dæmiö
svo viö. Víkingar tóku þá af skariö
og sigu hægt og bítandi á. Þegar
síöari hálfleikur var hálfnaöur var
staöan 12:10 fyrir Val. Leikur
þeirra hafði riðlast mjög og Vík-
ingar gengu á lagiö. Þegar þrjár
mínútur voru til leiksloka var Geir
Sveinssyni, Val, vikiö af leikvelli og
dæmt víti á Val. Einar Jóhannes-
son skoraöi úr því og jafnaði metin
fyrir Víkingi, 16:16. Skömmu síðar
náöi Guömundur Guömundsson
forystunni fyrir Víking, 17:16 meö
laglegu marki úr horninu.
Hart var barist síöustu mínútur
leiksins, en leikiö var meira af
ákafa en skynsemi. Valsmenn jöfn-
uðu, 17:17. Víkingum mistókst síö-
asta sókn sín. Valsmenn náöu
boltanum og litlu munaöi aö þeim
tækist aö skora úr hraöaupp-
hlaupi.
Bestu menn liöanna í gærkvöldi
voru tveir stórgóöir markveröir.
Einar Þorvarðarson Val og Kristján
Sigmundsson Víking. Þeír báru af
á vellinum. Vöröu báöir af stakri
prýöi og tóku leikinn alvarlega.
Aörir leikmenn léku ekki eins og
þeir geta gert best. Geir Sveinsson
ÞÓR og KR mætast í kvöld í 1.
deildinni í handknattleik, ieikur-
inn fer fram í Vertmannaeyjum
og hefst kl. 20.00.
Heil umferö er í 1. deild kvenna,
Þór og Valur leika á Akureyri kl.
20.00, ÍBV og ÍR í Vestmannaeyj-
um kl. 21.15, FH og ÍA leika í Hafn-
arfirði kl. 21.15 og Fram og KR í
Höllinni kl. 21.30.
i 1. deild karla eru tveir leikir,
og Jakob Sigurösson léku þó vel í
liöi Vals.
í liöi Víkings áttu þeir Einar Jó-
hannesson og Karl Þráinsson góö-
an leik. Skoruöu falleg mörk og
unnu vel fyrir liö sitt.
Mörk Vals: Geir Sveinsson 6 2v, þorbjörn
Guðraundsson 3, Jakob Sigurðsson 3, Valdimar
Grímsson 2, þorbjörn Jensson 2, og Theódór
(lUðfinnsson 1.
Mörk Víkings: Einar Jóhannesson 6 2v, Karl
Þráinsson 4, Steinar Birgisson 3, Guðmundur
Guðmundsson 2, Þorbergur Aðalsteinsson 1,
Hilmar Sigurgíslason 1. Viggó Sigurðsson lék
ekki með Víking í gærkvöldi vegna meiðsla.
— ÞR
Fram og KA leika í Höllinni kl.
20.15, Haukar og Þór leika í Hafn-
arfiröi kl. 20.00.
Körfubolti
EINN leikur er í kvöld í 1. deild
karla í körfuknattleik, Þór og ÍBK
eigast viö á Akureyri kl. 20.00.
Handknattleikur