Morgunblaðið - 22.02.1985, Side 56

Morgunblaðið - 22.02.1985, Side 56
SmfflEST ianstraiist úeiía Oftíd W.OO-Z.OO FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. 3,2 milljónir lítra af áfengi drukknir hér á landi í fyrra ÍSLENDINGAR drukku samtals 3,2 milljónir lítra af áfengi á árinu 1984, að því er fram kemur í skýrslu frá ÁTVR. Af sterkum drykkj- um drukku landsmenn 1,3 milljónir lítra, 1,3 milljónir lítra af boró- vínum og tæplega 520 þúsund lítra af millisterkum vínum. Af sterkum vínum var mest drukkið af erlendum vodka, rúm- lega 385 þúsund lítrar, þarnæst kom íslenska brennivínið, rúmlega 288 þúsund lítrar, þá viskí, tæp- lega 147 þúsund lítrar, og í fjórða sæti var íslenska kláravínið, rúm- lega 134 þúsund lítrar. Af milli- vínum, svokölluðum heitum vín- um, var mest drukkið af ver- mouth, tæpiega 208 þúsund lítrar, og þarnæst var sherry, 135 þúsund lítrar rúmir. Af borðvínum var mest drukkið af rauðvíni, rúmlega 643 þúsund lítrar, en af hvítvíni voru drukknir rúmlega 348 þúsund lítrar og af Rínar- og Móselvíni tæpir 316 þúsund lítrar. Hver landsmaður drakk að með- altali 3,30 lítra af hreinum vín- anda í fyrra og er það örlítil aukn- ing frá árinu áður er drukknir voru 3,23 lítrar af hreinum vín- anda. MorRunblaðið/Júlíus Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, og Óskar Vigfússon, formaður SÍ, koma af fundi forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra siðdegis í gær. Stuttur fundur í sjómannadeilunni: Aðilar rædd- ust ekki við í G/ER var haldinn árangurslaus sáttafundur í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna. Samninganefndir aðila komu til fundar hjá ríkissátta- semjara klukkan 14 en fóru aftur um klukkan 15.30 án þess að hafa ræðst við, en ríkissáttasemjari ræddi við nefndirnar hvora fyrir sig. óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands og Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands fóru á fund Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra og Halldórs Ás- grímssonar, sjávarútvegsráð- herra, í gær til að ræða við þá um kröfur sjómanna á hendur ríkisvaldinu. Að sögn Óskars varð engin árangur af fundinum. Hann sagði að ráðherrarnir væru að athuga málin. Ríkis- sáttasemjari hefur boðað samn- inganefndirnar til sáttafundar klukkan 14 í dag. Nær allur fiskiskipaflotinn er nú hættur veiðum og liggja skip- in bundin viö bryggjur víðsvegar á landinu eða eru á siglingu úr söluferðum. Hlýddu áhafnir skipanna kalli samninganefnda sjómanna um að hætta veiðum og sigla í land, með nokkrum undantekningum þó eftir því sem næst verður komist. Samn- inganefnd LÍÚ sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem áskorun samninganefnda sjómanna um að skipin hætti veiðum, er harð- lega mótmælt. í yfirlýsingunni segir að LÍÚ áskilji sér allan rétt fyrir sig og félagsmenn sína vegna þessara ólögmætu að- gerða, sem valdið hafi útgerðar- mönnum gífulegu fjárhagstjóni. Sjá mótmæli LÍÚ á bls. 31. FólksbifreiA fór sem næst á hliðina og inn um glugga á bifreið við hliðina. Strætisvagn krækti í fólksbifreið STRÆTISVAGN, sem ekið var niður Seljaveg í átt að Mýrargötu í gærmorgun krækti í Subaru fólks- bifreið, sem lagt hafði verið á bfla- stæði með þeim afleiðingum, að hún fór á hliðina og hafnaði á bif- reið við hliðina. Undir venjulegum kringum- stæðum aka strætisvagnar ekki Seljaveginn, heldur Vesturgöt- una inn á Ánanaust. En Vestur- gatan var lokuð, svo vagnstjór- inn ákvað að aka niður Seljaveg, norður á Mýrargötu og þaðan inn á Ánanaust. Mikil hálka var á Seljavegi þegar óhappið átti sér stað og rann vagninn til, stuðari hans kræktist í stuðara fólksbifreiðarinnar með fyrr- greindum afleiðingum. Enginn slasaðist. Ráðgjafarþjónusta Húsnæðisstofnunar: Algengt að húsbyggj- endur séu með 100— 200 þús. í vanskilum AÐ MEÐALTALI hafa um 20 manns leitað til ráðgjafarþjónustu Húsnæðisstofnunar ríkisins fyrir húsbyggjendur í greiðsluerflðleik- um á dag þá þrjá daga sem hún hefur starfað. I fyrstunni var fyrir- hugað að tveir menn sinntu ráð- gjafarþjónustunni, en eftir fyrsta daginn var þriðja ráðgjafanum bætt við og á mánudag tekur sá fjórði til starfa. Grétar J. Guðmundsson, verkfræðingur hjá Húsnæðis- stofnun, sagði í samtali við blm. Mbl. að það væri mjög mismun- andi hvað fólk væri í miklum vandræðum, enda mismunandi hvað það teldi vera vandræði. Sagði hann algengt að það fólk sem til þeirra leitaði væri með 100—200 þúsund kr. í vanskil- um, en sumir væru í vandræð- um með minna, reyndar allt niður í engin vanskil, og aðrir með allt upp í 300 þúsund i van- skilum. Aðspurður um dæmi sagði Grétar að hann væri með á borðinu hjá sér umsókn þar sem vanskil væru 250 þúsund en heildarskuldir 1,8 milljónir kr. Þetta væri 5 manna fjölskylda sem byggi í íbúð í fjölbýlishúsi. Virtist hún hafa verið keypt að öllu leyti fyrir lánsfé og væri þetta með verstu dæmunum sem á hans borð hefði komið enn sem komið er. Grétar sagðist ekki verið bú- inn að athuga þessa umsókn en í fljótu bragði sé gæti hann ekki séð að nýtt lán breytti miklu fyrir þetta fólk. Það væri með þennan klafa áfram á bakinu. Þeir færu í gegn um umsóknirn- ar og athuguðu með hjálp tölvu hvort viðkomandi gætu greitt skuldirnar af ráðstöfunantekj- INNKAUPASTOFNUN ríkisins hef- ur ákveðið, f.h. ríkissjóðs, að festa kaup á 114 bifreiðum frá íslenzkum bifreiðaumboðum, að undangengnu útboði um kaup á 119 fólks-, lögreglu- og sendibflum. Ileildarkaupverð bif- reiðanna er 51 millj. 300 þús. kr., en á almennum markaði er kaupverð þeirra 55 millj. 900 þús. kr„ þannig að með útboðinu telst Innkaupastofn- uninni til, að ríkissjóður spari 4,6 millj. kr. Flestar bifreiðirnar, u.þ.b. fjórð- ungur heildarfjöldans þ.e., 31 bif- reið, eru frá Agli Vilhjálmssyni, þar af eru 24 af gerðinni Fiat 127. Ingvar Helgason selur ríkinu sam- um sínum. Ef þeim virtist að viðbótarlán frá Húsnæðisstofn- un gætu hjálpað fólki til að komast fram úr greiðsluskuld- bindingum sínum, þá mæltu þeir með lánveitingu. Ef viðbót- arlán væru ekki líkleg til að hjálpa fólki yrði að ráðleggja því að selja húsnæðið. tals 27 bíla og það umboðið sem er þriðja í röðinni selur samtals 16 bíla. Að sögn Ásgeirs Jóhannessonar forstjóra Innkaupastofnunar bár- ust samtals á annan tug aðgengi- legra tilboða. Hann sagði að bif- reiðaumboðin hefðu vandað mjög til tilboða sinna og fengið umtals- verðan afslátt frá bifreiðaframleið- endum, sem gert hefði þessa niður- stöðu mögulega. Afsláttur á bif- reiðunum hefði verið allt að 15%. Ásgeir sagði ennfremur, að enn væri eftir að taka ákvarðanir um kaup á þeim fimm bifreiðum sem vantaði upp á í töluna 119. Ríkið kaupir 114 bifreiðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.