Morgunblaðið - 13.03.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1985
19
frelsið
3* 1984
Tímaritið Frelsið:
í sjálf-
heldu sér-
hagsmuna
„ADAM Smith benti á þaö í hinni
miklu bók sinni, Auðlegð þjóðanna,
að á markaönum væri til ósýnileg
hönd og að hún leiddi einstaklinga,
sem væru að keppa að eiginhags-
rnununi, að því að vinna að almanna-
hagsmunum, þótt sú hefði alls ekki
verið ætlun þeirra. Mér hefur virst,
að þessu sé þveröfugt farið í stjórn-
málura; þar sé líka til ósýnileg hönd,
en hún leiði góðfúsa menn, sem að-
eins eru að vinna að almannahags-
munum með stjórnmálaafskiptum
sínum, að því að þjóna sérhagsmun-
um.“
Þessi orð lét hagfræðingurinn
víðkunni, Milton Friedman, falla í
upphafi fyrirlesturs síns á Hótel
Sögu 1. september í fyrra, en lest-
ur hans, „I sjálfheldu sérhags-
munanna", er meðal efnis í þriðja
hefti tímaritsins Frelsið 1984, sem
nýlega er komið út. Einnig eru
birtar fyrirspurnir, sem fundar-
menn beindu til Friedmans, og
svör hans við þeim.
Björn Bjarnason, aðstoðarrit-
stjóri Morgunblaðsins, á grein í
ritinu, sem hann nefnir „Sigfús í
Heklu. Brot um athafnaskáld."
Hann segir, að saga Sigfúsar
Bjarnasonar sýni í senn áræði, út-
sjónarsemi og manngæsku. „Öll-
um, sem kynntust Sigfúsi í
Heklu," skrifar Björn, „er hann
ógleymanlegur. Þeir rifja gjarnan
upp, hversu árrisull hann var og
virtist leggja í vana sinn að ljúka
sem flestum skylduverkefnum
fyrir venjulegan fótaferðartíma
annarra."
Jónas H. Haralz, bankastjóri
Landsbankans, skrifar grein, sem
nefnd er „Velferð og hagþróun".
Þar fjallar hann um stefnu þá í
velferðarmálum, sem fylgt hefur
verið í vestrænum samfélögum
síðastliðin ár, eða frá lokum síðari
heimsstyrjaldar, í ljósi þeirrar
hagþróunar, sem varð á sama
tíma og jafnframt í ljósi þeirra
kenninga um hagþróun og hag-
stjórn sem efst hafa verið á baugi
á þessum árum. „Tilgangur minn,‘‘
skrifar Jónas, „er að vekja til
íhugunar og umræðu um það,
hvaðan við höfum komið, hvaða
veg við höfum gengið og hvaða
landslag við höfum haft fyrir
sjónum.“
Matthías Johannessen, skáld og
ritstjóri Morgunblaðsins, birtir
þýðingar sínar á nokkrum ljóðum
tveggja norskra skálda; það er
verk eftir Stein Mehren og Tove
Lie. Ritstjóri Frelsisins, Hannes
H. Gissurarson, skrifar um síð-
asta þing Mont Pélérin-þinganna,
þar sem hann var gerður félagi,
fyrstur íslendinga og yngstur
manna frá upphafi.
Loks er í tímaritinu að finna
ritdóma um bækur eftir Birgi
Björn Sigurjónsson, Magna Guð-
mundsson og Friedrich A. Hayek.
Höfundar dómanna eru Hannes
H. Gissurarson og ólafur ísleifs-
son, hagfræðingur.
„Ég hefði ekkiþurft að kvíða neinu“
Biskupsfrúin
predikaði
í Dómkirkjunni
„Fólkið í kirkjunni predikaði
alveg jafnt til mín eins og ég til
þess. Það var svo gott samspil
allan tímann í messunni svo að
ég hefði ekki þurft að kvíða
neinu,“ sagði Sólveig Ásgeirs-
dóttir, biskupsfrú, í samtali við
Mbl., en hún predikaði í Dóm-
kirkjunni við messu sl. sunnudag.
Sr. Þórir Stephensen þjónaði fyrir
altari, Ólöf Kolbiún Harðardóttir
söng einsöng og foreldrar ferm-
ingarbarna lásu bænir og ritn-
ingartexta.
„Það eru margir kirkjugest-
anna búnir að hringja i mig og
sýnir það að mér hafi tekist að
ná sambandi við söfnuðinn.
Fólkið gaf mér líka ákaflega
mikið. Eg fann hvað allir voru
mér velviljaðir. Þetta var mjög
góður söfnuður og skiptir hann
miklu máli fyrir ræðumenn,"
sagði Sólveig.
Sólveig sagðist aldrei hafa
hugsað sér að stíga í predikun-
arstólinn. „Ég varð meira að
segja að spyrja Þóri hvernig
ætti að koma sér í stólinn þó
svo að ég hafi oft verið meðal
kirkjugesta. Ég var mjög
Biskupsfrúin, Sólveig Ásgeirsdóttir, f predikunarstól Dómkirkjunnar sl.
sunnudag.
ánægð yfir því að hafa gert verið ósátt við sjálfa mig hefði
þetta — ég held ég hefði alltaf ég sagt nei. Texti dagsins var
um illa anda og fannst mér
hann bæði erfiður og hrika-
legur í byrjun svo að ég var að
hugsa um að sleppa-honum og
tala um eitthvað fallegt í stað-
inn. En síðan hætti ég við það
og sagði söfnuðinum frá því
vegna þess að lífið er ekki bara
slétt og fellt.
Ég fékk góð ráð og leiðbein-
ingar hjá manninum mínum og
uppörvun og ég fann að hann-
treysti mér fyllilega. En fram-
ar öllu er ég Guði þakklát fyrir
handleiðslu hans og ég vona að
ég hafi komið orði hans til
skila. Þessi reynsla mín á
sunnudaginn er mér ákaflega
dýrmæt og fyrir það er ég inni-
lega þakklát," sagði Sólveig að
lokum.
Sr. Þórir Stephensen sagði að
kirkjusókn hefði verið óvenju-
mikil. Kirkjan tekur um 600
manns í sæti, en á sunnudaginn
komu 620.
Kvenfélag dómkirkjunnar
hafði sinn árlega fjáröflunar-
dag þá og var selt kaffi eftir
guðsþjónustuna til styrktar
orgelsjóði dómkirkjunnar.
Þórir sagði að það væri orðin
venja að fá leikmenn til að pre-
dika þennan fjáröflunardag
kvenfélagsins og mæltist það
mjög vel fyrir meðal kirkju-
gesta.
Útkoman verdur alltaf sú sama: Þú færð mest fyrlr peningana,
þegar þú kaupir MAZDA!
Til dæmis MAZDA 626 árgerð 1985: Hann kostarfrá aðeins kr.426.300
MEST FYRIR PENiNGANA
Opið laugardaga
frá kl. 10—4
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99