Morgunblaðið - 13.03.1985, Side 60

Morgunblaðið - 13.03.1985, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1985 Pleat gerir 5 ára samning Frá Bob Honnessy, fréttamanni Morgunblaösins á Englandi. DAVID Pleat, framkvæmda- stjóri Luton, hofur gert nýjan fimm ára samning við félagió og nú hefur hann einnig tekið sæti í stjórn félagsins. Portsmouth hefur selt fram- herjann kunna Alan Biley til Brighton fyrir 50.000 sterl- ingspund. Biley var í þrjú og hálft keppnistímabil á Frutton Park og skoraöi 50 mörk fyrir Portsmouth á þeim tíma. „Ég vildi aö ég gæti tekiö áhorfend- ur á heimaleikjum Portsmouth meö mér til Brighton,” sagöi Biley eftir aö hafa skrifaö undir hjá Brighton, en þeir þykja ein- hverjir hinir bestu á öllu Eng- landi. Formaöur Portsmouth sagöi, eftir aö gengiö haföi ver- iö frá sölunni: „Biley var mjög vinsæll hér, en ég vil taka þaö skýrt fram aö hann fór sjálfur tvívegis fram á sölu.“ ‘ • Forráðamenn West Ham hafa gefið John Lyall, fram- kvæmdastjóra liösins, þrjár vikur til umhugsunar hvort hann vilji gera nýjan samning viö félagió. Lyall hefur veriö í þrjátíu ár hjá félaginu, sem leik- maöur, þjáffari og nú fram- kvæmdastjóri síöastlióin ellefu ár. Starf stjóra hjá West Ham þykir eitt þaö öruggasta í ensku knattspyrnunni, aðeins fjórir menn hafa gegnt starfinu frá 'striöslokum. Er Terry Venables hætti hjá QPR í fyrra var Lyall boöin staöan og 70.000 pund í árslaun — sem er talsvert meira en hann hefur hjá West Ham, en starfiö á Upton Park þykir talsvert öruggara en hjá QPR ... • Southampton hefur selt framherjann lan Baird til Leeds fyrir 50.000 pund. Hann er tví- tugur. Hann var í láni hjá New- castle nýlega og lék þar tals- vert en komst ekki í liöið hjá Southampton þar sem gamla kempan Joe Jordan hefur leikiö mjög vel í vetur. Barcelona trónar á toppnum á Spáni BARCELONA heldur enn éfram •igurgöngu sinni í 1. deildinni é Spéni og hefur nú 11 stiga for- skot é næsta líð. Úrslit leikja é Spéni um helgina voru þessi: Sarcelona — Malaga 1—0 Gíjon — Hercules 4—0 Sevilla — Atletico de Madrid 2—4 Valladolid — Valencia 1—0 Athletic de Bílbao — Murcia 1—0 Santander — Real Sociedad 1—0 Real Madrid — Betis 3—2 Zaragoza — Osasuna 1—2 Staöan í 1. deildinni á Spéni er nú þessi: Barcalona 28 19 8 1 63—21 46 AUatico da Madrid 27 13 9 5 43—24 35 Gijon 28 10 14 4 28—19 34 RaalMadríd 28 11 10 7 38—29 32 Athlatic da Bilbao 28 9 13 6 28—22 31 rmI Qocixlid 28 9 11 8 35—25 29 ValMKia 28 8 12 8 34—29 28 Zaragoza 28 9 10 9 30—30 28 Santander 28 9 10 9 22—25 28 Eipanoi 28 8 11 9 34—38 27 Stviila 28 9 9 10 25—33 27 Oiatuna 27 10 8 11 32—32 26 Valladolid 28 6 14 8 34—38 26 Malaqa 28 7 11 10 20—30 25 Battia 28 1 7 13 28—37 23 Hercuto* 28 5 12 11 21—38 22 Eleha 28 4 11 13 11—31 19 Murcia 28 3 10 15 17—40 18 • Gunnar Gunnarsson fær mjög lofsamlega dóma í dönskum blööum fyrir leik sinn gegn Helsinger. En hann og Gísli Feiix Bjarnason fóru é kostum í leiknum sem kom liöi Ribe í 4 liöa úrslitin. Gunnar sem é myndinni sést skjóta é mark Helsinger skoraði fimm mörk í leiknum, öll gullfalleg, og Bjarni varði markið af hreinni snilld. Dönsku blöðin segja aö þeir félagar hafi hleypt miklu lífi í lið Ribe og handknattleikinn í bænum, enda er éhugi þar meiri en nokkru sinni fyrr. Gunnar og Gísli Felix fá mjög lofsamlega dóma ÞAÐ kom mjög é óvart um síð- ustu helgi í Danmörku þegar 2. deildar lið Ribe vann stórliöið Helsingör í étta liöa úrslitum dönsku bikarkeppninnar i hand- knattleik. Þaö fór bókstaflega allt é annan endann í dómkírkjubæn- um Ribe. Uppselt haföi verið é leikinn og komust færri aö en vildu. Og þegar sigurinn var í höfn þé brutust út gífurleg fagn- aðarlæti meðal éhorfenda. Ýmsir telja að ekkert geti stöðvaö Ribe og að liðið verði danskur bikar- meistari í handknattleik. Ribe hefur líka gengiö mjög vel í 2. deildinni í vetur. Varla tapaö leik og næsta öruggt má teljast aö liöiö sigrar í deildinni og leikur í 1. deild á næsta ári. Ribe þarf aöeins eitt • Gísli Felix Bjarnason stig til viöbótar til þess aö vera öruggt um 1. deildar sæti. Þaö er enginn annar en Anders Dahl Nielsen handknattleikskapp- inn margreyndi og snjalli sem þjálfar Ribe. Hann þjálfaöi liö KR hér fyrir tveimur árum og fékk til liös viö sig tvo snjalla leikmenn. Þá Gísla Felix Bjarnason markvörö og Gunnar Gunnarsson. Og þeir eru mennirnir á bak viö stórgóöan árangur liösins. Þeir hafa fengiö mjög lofsamlega dóma í vetur og þá sérstaklega nú fyrir síöasta leik sinn. Vegna velgengni Ribe-liösins hefur áhugi á handknattieik aukist mjög í bænum og uppselt er á hvern einasta heimaleik. Þeir Bjarni og Gunnar hafa því upplifaö ævintýri þarna ytra um leiö og frammistaöa þeirra er þeim til sóma og góö landkynning. Dönum þykir mikiö til þeirra koma og telja annaö útilokaö en aó íslenska landsliðiö í handknattleik geti not- aö krafta þeirra. 122 mættu á samæfingu hjá Karatesambandinu Nýstofnað Karatesamband íslands, KAÍ, gekkst fyrir sam- æfingu Karateféiaganna síð- astliðiö mánudagskvöld. lök- endum í Karate fjölgar stöðugt og nú eru Karatefélögin orðin ellefu talsins. Sú gróska sem nú ríkir í íþróttinni kom vel í Ijós á samæf- ingunni því aö alls mættu 122 iökendur úr sjö félögum. Þó var mæting ekki nægilega góö úr stærstu félögunum. Mikil örtröö myndaöist á samæfingunni þvi enginn átti von á svo mörgum þátttakendum. Níutíu og fimm karlar og tutt- ugu og sjö konur mættu á æfing- una. Flestir þátttakendur voru frá Gerplu, fjörutíu og fjórir tals- ins. Þórshamar sendi þrjátíu og tvo þátttakendur og Breiöablik fimmtán. Fjórtán komu frá Sel- fossi. Kennarar á námskeiöinu voru Árni Einarsson og Karl Sigur- jónsson, Jónína Olsen og Karl Gauti Hjaltason. Johnston til Spurs? Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaósins á Englandi. Þær sögusagnir hafa gengið hér að undanförnu að Maurice Johnston, skoski landsliðs- framherjínn, sé é leiðinni fré Celtic til Tottenham. Johnston lék í fyrra meö Watford sem kunnugt er en þar sem hann kunni aldrei viö sig í London var hann seldur til Celt- ic. Á dögunum kom hann síöan ásamt umboösmanni sínum á White Hart Lane, völl Totten- ham, og fylgdist þar meö viöur- eign liösins viö Real Madrid í Evrópukeppninni. Þaö þótti enskum blaöamönnum grun- samlegt... • Portúgölsku meisturunum Benfica hefur gengiö illa í vetur. Til aö ráöa bót á því hafa for- ráöamenn félagsins áhuga á aö fá Englendinginn John Mortim- er sem þjálfara, en hann þjálf- aöi liöið einmitt árin 1976 til 1979 og náöi þá góðum árangri. Mortimer þessi er nú aöstoðarmaöur Lawrie McMenemy hjá Southampton. • Tommy Docherty stjóri Wolves vildi ekki selja hinn unga og bráðefnilega markvörö sinn Tim Flowers um helgina er hann fékk tilboð í hann sem nam 160.000 pundum. Flowers er 18 ára. Docherty vildi ekki gefa upp liöiö sem bauö í strák- inn — en fullvíst er taliö aö þaö hafí verið Everton.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.