Morgunblaðið - 19.03.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
23
in líða mikið fyrir þetta fyrir-
komulag. Þróunarlöndin hafa nær
eingöngu hráefni og landbúnað-
arvörur að selja og afla með gjald-
eyris. Þau þurfa að keppa við
niðurgreiddar landbúnaðarvörur
iðnrfkjanna, en kaupa iðnaðarvör-
ur þeirra á mun hærra verði en
ella.
Þetta veldur því m.a. að ágóði
iðnríkjanna af viðskiptum við
þróunarlöndin er mun meiri en
svokölluð þróunaraðstoð, sem þau
veita. Þetta er nokkuð misjafnt
eftir löndum, en hér er átt við
heildina. Þróunaraðstoð komún-
istaríkjanna sker sig úr að því
leyti, að hún er eingöngu fólgin í
vopnasölu, til þess að gera spillt-
um einræðisstjórnum kommún-
ista kleift að halda niðri lýðnum
eða fara með ófriði á hendur
grannþjóðum.
Það væri verðugt verkefni fyrir
sósíaldemókrata, lýðræðisjafnað-
armenn, sem vilja rísa undir
nafni, á Norðurlöndum, að sam-
einast um frumkvæði að og bar-
áttu fyrir afnámi styrkja- og niður-
greiðslukerfanna, sem eru við lýði í
iðnríkjunum og þar með í baráttu
fyrir bættum viðskiptakjörum til
handa hinum snauðu og van-
þróuðu.
Fyrir þróunarlöndin trúi ég, að
þetta skipti meira máli en öll sú
þróunaraðstoð, sem veitt er í dag,
samanlögð. Fyrir okkur er þetta
stærra mál en sjálft landhelgis-
málið.
Eina hneykslið, sem varð á ný-
afstöðnu þingi Norðurlandaráðs f
Reykjavík var það, að forráða-
menn íslendinga skuli hafa orðið
uppvísir að því að skilja ekki sam-
hengið milli lélegra lffskjara sjó-
manna og fiskverkunarfólks á ís-
landi og hins norska ríkisimperi-
alisma. Eða, sem er ekki skárra,
hafi þeir skilið það, að þá skuli
hafa brostið kjark til að halda fast
á málstað þjóðar okkar frammi
fyrir hinum erlendu hátignum.
Jón Baldrin Hannibalsson er for-
maður Alþýðuflokksins og þing-
maður flokksins fyrir Reykjavíkur-
kjördæmi.
Hryllings-
sjónarspil
á skyndi-
bitastað
Löngu8tröBd, Kaliforníu, 12. mnre. AP.
RÚMLEGA fertugur maður, Islams-
trúar, myrti fyrrum eiginkonu sína
með hryllilegum hætti að 150 manns
ásjáandi á hamborgarasölustað um
háannatímann. Maðurinn sagði
konu sína hafa brotið lög Islams er
hún fékk skilnaðinn og er hún neit-
aði ítrekað að snúa aftur til hjóna-
bandsins, síðast á matsölustaðnum,
ærðist eiginmaðurinn og stakk hana
mörgum stungum með blaðlöngum
hnífi í hálsinn.
Fjölmenni reyndi að koma kon-
unni til hjálpar, en maðurinn
vingsaði hnifnum vfgalega f kring
um sig milli þess sem hann lagði
honum til fyrrum konu sinnar.
Fólk kom höggum á hann, með
matarbökkum, stólum og fleiru,
það meira að segja grýtti hann
með hamborgurum og pylsum,
brauði og öllu tiltæku, en ekkert
hreif, alger berserksgangur hafði
runnið á hann. Það var ekki fyrr
en konan hafði hnigið niður á gólf- *
ið helsærð eftir að hann sleppti
taki á henni, að hann linnti látun-
um. í sama mund dreif að örygg-
isvörð og skipaði manninum að
kasta frá sér hnífnum eða deyja
að öðrum kosti. Afhenti maðurinn
vopn sitt þá án mótþróa, brosti og
spurði hvort konan væri látin.
Hin látna var 32 ára og vann á
matsölustaðnum. Hún átti mat-
arhlé og fyrrum eiginmaðurinn
vissi af því, heimsótti hana og bað
hana að snúa aftur til sín.
Tékknesk æska veldur áhyggjum:
Offíta og undar
legar skoðanir
Praf Tékkóslóvakíu, 15. mars. AP.
RÚMLEGA fimmtungur barna í
Tékkóslóvakíu þjáist af offitu að
því er sagði í dag í leiðara blaðs-
ins Rude Pravo, málgagns
kommúnistaflokksins.
f leiðara Rude Pravo var
kvartað undan því, að í Tékkó-
slóvakíu væru allt of fá leik-
fimihús og leikvangar þar sem
fólk getur sprett úr spori eða
stundað aðrar æfingar og sagt,
að áætlanir um að koma upp
fleiri leikfimihúsum og sund-
laugum við skóla hafi farið út
um þúfur.
„Sannleikurinn er sá, að
minni líkamleg þjálfun er farin
að hafa veruleg áhrif á heilsu-
far þjóðarinnar og sýnir sig
best í því, að rúmlega fimmt-
ungur barnanna þjáist af
offitu,“ sagði í Rude Pravo.
í fyrra var gengist fyrir mik-
illi skokkherferð í Tékkó-
slóvakíu og tóku þátt í henni
um fimm milljónir manna. í
Rude Pravo sagði hins vegar,
að langflestir hefðu látið sér
nægja tilskildar æfingar og
hlaup og hætt að því búnu.
í annarri grein í Rude Pravo
sagði, að þegar kannaðar hefðu
verið skoðanir ungs fólks á líf-
inu og tilverunni hefði komið í
ljós, að innan við helmingur
hefði tileinkað sér lífssýn, sem
eitthvað ætti skylt við marx-
leninisma.
Aöalfundur Reykjavíkurdeildar RKÍ veröur haldinn í
Múlabæ Ármúla 34 þriöjudaginn 2. apríl 1985 kl. 20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál.
Stjórn Reykjavíkurdeildar
Rauöa kross íslands.
fHtvgtmMafrffe
■ Gódan daginn!
EDITHPIAF
AAKUREYRl
Leikhúsferð til Akureyrar felur í sér flug og gistingu í tvær nætur á
hóteli, aðgöngumiða á söngleikinn Edith Piaf og glæsilegan kvöldverð í
Sjallanum, Smiðjunni eða Laxdalshúsi. Farþegum í leikhúsferð Flugleiða
er auk þess boðið á dansleik i Sjallanum víðfræga. Þá geta þeir sem
óska fengið ódýran bílaleigubíl og ekið um bæinn og nágrenni hans.
LE1TIO FREKARI UPPLÝSINGA ÆBRf
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA. mmm m m a rinip
hjA umboðsmönnum og FERÐA- rLUKjLEitJlK
SKRIFSTOFUM. M