Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
47
Dágóð byrjun hjá íslensku
þátttakendunum á Húsavík
Skák
Margeir Pétursson
Taflfélagiö á Húsavík heldur
upp á 60 ára afmæli sitt med því að
halda alþjóðlegt skákmót sem Jó-
hann Þórir Jónsson, ritstjóri
Skákblaðsins, hefur skipulagt.
Þetta er þriðja alþjóðaskákmótið
sem Tímaritið Skák gengst fyrir í
samvinnu við aðila utan Reykja-
víkur. Fyrri mótin tvö voru haldin í
Grindavík og á Neskaupstað í
fyrra. Mótið á Húsavík er álíka
sterkt og hin tvö. Það er í 8. styrk-
leikaflokki FIDE sem þýðir að
keppendur geta unnið sér inn
áfanga að bæði stórmeistara- og
alþjóðlegum meistaratitli.
I mótinu taka þátt fjórir
stórmeistarar, Bandaríkjamenn-
irnir Lombardy og Lein, Guð-
mundur Sigurjónsson og Helgi
Ólafsson, sem vann sér rétt til
titilsins daginn áður en Húsa-
víkurmótið hófst. Þá eru fjórir
alþjóðlegir meistarar með, þeir
Jón L. Árnason, Helmers frá
Noregi og Bandaríkjamennirnir
Zuckerman og Tisdall. Aðrir
þátttakendur eru Karl Þorsteins
og Sævar Bjarnason, sem báðir
eru á meðal okkar þekktustu
skákmanna, og Norðlendingarn-
ir Pálmi R. Pétursson og Áskell
Örn Kárason, sem heyja nú
frumraun sína gegn svo öflugri
mótstöðu.
Til að hljóta áfanga að stór-
meistaratitli þarf 8 v., en 6 v.
duga til áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli.
Úrslit í fyrstu umferðinni
urðu þannig:
1. umferð:
Sævar — Áskell 'k — 'k
Helgi — Guðmundur fr.
Pálmi — Tisdall 0—1
Lein — Helmers 1—0
Karl — Zuckerman 0—1
Jón — Lombardy 'k — 'k
Skák stórmeistaranna Helga
og Guðmundar var frestað því
hinn fyrrnefndi komst ekki í
tæka tíð frá mótinu í Kaup-
mannahöfn.
2. umferð:
Áskell — Lombardy 0—1
Zuckerman — Jón 'k — 'k
Helmers — Karl 'k — 'k
Tisdall — Lein 0—1
Guðmundur Pálmi 'k — 'k
Sævar — Helgi 'k — 'k
3. umferð:
Helgi — Áskell 1—0
Pálmi — Sævar 0—1
Lein — Guðmundur 'k — 'k
Karl — Tisdall 'k-'k
Jón — Helmers 1—0
Lombardy — Zuckerman 'k — 'k
Staðan eftir þrjár umferðir:
1. Lein 2'k v. 2.-5. Sævar, Jón,
Lombardy og Zuckerman 2 v. 6.
Helgi l'k v. og skák frestað, 7.
Tisdall 1 'k v. 8. Guðmundur 1 v.
og skák frestað, 9. Karl 1 v.
10.—12. Pálmi, Áskell og Helm-
ers 'k v.
Anatoly Lein fluttist til
Bandaríkjanna frá Sovétríkjun-
um fyrir rúmum áratug. Hann
stendur nú afar vel að vígi eftir
að hafa unnið tvo alþjóðlega
meistara í fyrstu tveimur um-
ferðunum. Lein er afar öflugur
skákmaður, en hann er ekki sér-
lega vel heima í byrjanafræðun-
um og það hefur löngum háð
honum. Lein á 49 ára afmæli í
dag.
íslendingarnir hafa flestir
staðið sig með sóma. Helst svíð-
ur að Karl skuli hafa tapað fyrir
Zuckerman með hvítu í fyrstu
umferðinni, því flestir telja að
hann ætti að geta náð áfanga í
alþjóðatitilinn á mótinu.
Áskell Örn Kárason er uppal-
inn á Húsavík og hræðilegur af-
leikur hans gegn Lombardy olli
heimamönnum því sárum von-
brigðum. Eftir mikið tímahrak
gátu keppendur loks slappað af
er tímamörkunum í 40. leik var
náð, en í stað þess að taka lífinu
með ró lék Áskell herfilega af
sér.
Svart: Lombardy
Hvítt: Áskell
41. Dxd57?
Sennilega er 41. Dc3 nákvæm-
asti leikurinn í stöðunni og hvít-
ur heldur sínu, enda er hann peði
yfir, þó svartur hafi virkari
stöðu. Eftir það virðist hvorki
41. ... Dg3, 43. Hgl né 42. - d4,
43. Dd3 vera honum skeinuhætt.
41. — Hel+, 42. Hxel — Dxd5,
43. b4 — Dd2, 44. He4 og hvítur
gafst upp um leið.
Jón L. Árnason varð fyrstur
til að vinna útlending:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Helmers (Noregi)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — a6
Paulsen-afbrigðið.
5. Bd3 — Rf6, 6. 0-0 — d6, 7. c4 —
g6
Friðrik Olafsson átti einna
mestan þátt í að gera þetta af-
brigði vinsælt fyrir 10 árum, en
það hefur ekki reynst nægilega
traust til að festa rætur.
8. Rc3 — Bg7, 9. Be3 — 0-0, 10. f3
— Rbd7, 11. b4 — He8, 12. Dd2
— b6,13. Hacl — Bb7,14. Rb3 —
d5
Þessi framrás nægir yfirleitt
til að jafna taflið í slíkum stöð-
um.
15. exd5 — exd5, 16. c5 — bxc5,
17. bxc5 — Re5, 18. Hfel — Dc7,
19. Bfl — Rc4?
Lítur vel út, en hvítur á öflugt
svar:
20. Rxd5! — Rxd5, 21. Bxc4 —
Rxe3, 22. Hxe3 — Hxe3, 23. Dxe3
— Be5, 24. g3 — Bxg3
Biskupaparið veitti svörtum
greinilega ekki nægilegt mót-
vægi fyrir peðið svo hann leggur
allt undir og fórnar manni. Auk
þess var Helmers orðinn naumur
á tíma.
25. hxg3 — Dxg3+, 26. Kfl —
Bxf3, 27. Rd4!
Svarta sóknin er ekki eins
hættuleg og hún lítur út fyrir að
vera og Jón teflir vörnina af ör-
ynK'.
27. — Dg2+, 28. Kel — Bc6, 29.
Rxc6 — Dxc6, 30. De7 — Dhl+,
31. Kd2 — Dh2+, 32. Kc3 —
Dg3+, 33. Kb2 — Df2+, 34. Kbl
— Hb8+, 35. Bb3 — Df5+, 36.
Hc2 — a5, 37. c6 — a4, 38. c7 —
Hxb3+, 39. axb3 — axb3, 40.
c8=D+ gefið.
Aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi f febrúar:
Afli góður en verkfall
setti strik í reikninginn
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi yfirlit um aflabrögð í Vest-
fírðingafjórðungi frá skrifstofu
Fiskifélags íslands á ísafirði:
Suúureyri:
Elín Þorbjarnardóttir tv. 140,6 3
Ingimar Magnússon 42,9 8
l*orlákur Helgi 34,2 4
Heildaraflinn í mánuðinum var
488 lestir, en var 932 lestir á sama
tíma í fyrra. Er heildaraflinn frá
byrjun vertíðar í haust þá orðinn
1.670 lestir, en í fyrra var aflinn
orðinn 2.901 lest á sama tíma. 1
febrúar stunduðu 55 bátar frá
Vestfjörðum rækjuveiðar á inn-
Lestir Bátar
Arnarfjörður 91 8
ísafjarðardjúp 105 32
Húnafíói 228 15
424 55
fjörðum, en í fyrra voru 56 bátar
að veiðum á sama tíma.
Aflinn í febrúar skiptist þannig
eftir veiðisvæðum:
Alls Lestir Bátar Alls
130 60 9 257
729 641 34 1.837
811 231 13 807
1.670 932 56 2.901
Tvö skip stunduðu rækjuveiðar á djúpslóð í febrúar, Sólrún frá Bol-
ungarvík, sem landaði 14 lestum
og Hafþór frá ísafirði, sem land-
aði 50 lestum.
Afli var góður á Vestfjarðamið-
um í febrúar, bæði hjá bátum og
togurum, en vegna verkfalls yfir-
manna hættu bátarnir róðrum
eftir 18. febrúar og skömmu síðar
hættu einnig flestir togararnir.
í febrúar stunduðu 14 (13) tog-
arar og 20 (15) bátar botnfisk-
veiðar frá Vestfjörðum, og réru
bátarnir allir með línu. Heildar-
aflinn í mánuðinum var 4.411 lest-
ir, og er aflinn frá áramótum þá
orðinn 10.449 lestir. í fyrra var
aflinn í febrúar 5.584 lestir og afl-
inn frá áramótum var þá orðinn
10.028 lestir.
Aflahæsti línubáturinn í mán-
uðinum var Patrekur frá Pat-
reksfirði með 166,6 lestir í 16 lögn-
um, en hann var einnig aflahæstur
í febrúar á seinasta ári, þá með
185,9 lesteir í 22 lögnum. Sléttanes
frá Þingeyri var nú aflahæst tog-
aranna með 261,4 lestir, en í fyrra
var Páll Pálsson frá Hnífsdal afla-
hæstur í febrúar með 407,4 lestir.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjördur: Lestir í feróum
Sigurey tv. 162,0 3
Patrekur 166,6 16
Vestri 144,7 16
Jón l*óróarson 130,9 15
hrymur 117,7 15
Brimnes 41,0 8
Tálknafjöróur
Tálknfiróingur tv. 196,1 3
María Júlía l/n 98,6 8
Geir KE 67 47,3 8
Bíldurdalur:
Solvi Bjarnason 1». 180,6 3
hingeyri
Sléttanes tv. 261,4 3
FramncN tv. 254,9 3
Flateyri:
Sif 68,8 12
Áageir Torfason 61,1 13
Bohingavilt:
Dagrún tv. 162,9 3
Hciórún tv. 110,8 3
Fhxn 130,0 14
llugrún 96,9 13
Kristján 58,5 16
Páll Helgi n. 41,7 16
ísafjöróur:
(•uóbjörg tv. 244,2 2
Páll Pálsson tv. 221,0 4
(■uóbjaKur tv. 1704 2
Júlíus (íeirmundss. tv. 35,5 1
Orri 128,3 13
Víkingur III 100,8 11
(■uóný 80,9 12
SúAavík:
Bessi tv. 257,0 4
llólmavík:
Marz 36,9 8
Framanritaðar aflatölur eru
miðaðar við slægðan fisk hjá tog-
urum, en óslægðan fisk hjá bátum.
Aflinn í einstökum
verstöðvum í febrúar
1985 1984
lcstir lestir
Patreksfjöróur 795 (816)
TálknafjörAur 353 (461)
Bfldudalur 203 (69)
Þingcyri 593 (568)
Klateyri 134 (424)
Suóureyri 244 (249)
Bolungavík £49 (889)
ísafjörAur 1.108 (1.783)
Súóavík 295 (325)
Hólmavík 37 (0)
4.411 (5.584)
Janúar 6.038 (4.444)
10.449 (10.028)
Rækjuveiðar
Rækjuveiðar voru stundaðar í
Arnarfirði og Húnaflóa allan
mánuðin, en í Isafjarðardjúpi voru
veiðar bannaðar, þar til síðustu
daga mánaðarins, en þá voru veið-
ar leyfðar á ný.
Ármúla 8 — 108 Reykjavík
Sími (91) 19294