Morgunblaðið - 19.03.1985, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
55
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Foreldrum gert mis-
hátt undir höfði
BréfriUri telur það rangt að hjón eigi einungis aðgang að um 10% dagheim-
ilisrýma auk þess sem einstæðir foreldrar greiði mun minna fyrir dagvist en
hjón.
Móðir hringdi:
f sjónvarpsþætti sl. þriðju-
dagskvöld voru m.a. rædd dagvist-
unarmál í Reykjavík. Þar spurði
fulltrúi Kvennalista borgarstjóra
hvort hann væri ekki sammála sér
um að það væri þjóðhagslegra ha-
gkvæmara að leggja höfuðáherslu
á heilsdagsrými barnaheimila þar
sem að þeir nýttu sér hálfsdagsr-
ými væru hvort sem er heima og
gætu gætt barna sinna sjálfir.
Borgarstjóri var ekki sammála
þessu og það er ég ekki heldur.
Hvernig er það, eiga einstæð for-
eldri ein rétt á barnaheimilum
hér? Hvað greiða þau í dagvistun-
argjöld, 2.400 krónur. Þeir hafa
forgang að dagheimilum en við
hin, sem kjósum að búa í hjónab-
andi, greiðum 3.600 krónur og eig-
um aðgang að 10% dagheimilisr-
ýma, þangað til börnin eru orðin
þrigja ára. Þar að auki megum við
iðulega bíða eftir leikskólarými
þar til barnið er komi langt á
fjórða ár.
Það er mikill misskilningur að
öll dagheimilisbörn eigi foreldra
sem séu heima og þurfi ekki á
gæslu að halda fyrir börnin. Mikill
meirihluti mæðra þeirra starfar
utan heimilis þann tíma dagsins
sem börnin, eldri sem yngri, sækja
skóla, 4—5 tíma á dag. Mig langar
að beina nokkrum spurningum til
fulltrúa Kvennalista: Er vinna
þessara kvenna ekki þjóðhagslega
hagkvæm? Hverjir greiða skatt-
ana sem þessi barnaheimili eru
byggð fyrir? Hver er réttur barns-
ins, eiga ekki öll börn rétt á að
nýta sér þá þjónustu sem þarna er
veitt og fá að taka þátt í leik og
starfi leikskólanna, sem flestir eru
sammála um að sé hverju barni
holl og nauðsynleg?
Að lokum langar mig að þakka
Davíð Oddssyni, borgarstjóra,
fyrir hans þátt í þessum umræð-
um. Ég dáðist að stillingu hans og
þolinmæði gagnvart sumum fyrir-
spyrjendunum, það var engu lík-
ara en að þeir vissu ekki hvað
mannasiðir eru.
Sanngirni á báða bóga
Þessar linur eru skrifaðar 8.
mars 1985 þegar rokkviður og regn
dynja á gluggarúðunum. Mikið er
ég fegin að eiga þak yfir höfuðið.
Ég finn hvernig öryggiskenndin
streymir um mig. Þakklæti til
Skaparans er ríkt þessa stundina,
ég segi þessa stundina, því oft er
grunnt á þakklætinu til Guðs og
manna. Nú beinist þakklæti mitt
til höfundar lífsins, aðallega fyrir
þetta góða tíðarfar undanfarna
mánuði. Veturinn hefur sem sagt
farið í verkfall án þess þó að gera
nokkra tilraun til kröfugerða.
Hann brýtur heldur engin lög,
vegna þess að hann ber virðingu
fyrir yfirboðara sínum, honum
sem raðar niður tíð og tímum. Það
er meira en hægt er að segja um
okkur mennina.
menn lægju afvelta 1 vitlausu
veðri, þar gilda líka lögmál, þ.e.
hæfni til að standa við erfiðar að-
stæður, fyrir háa sem lága, kven-
fólk sem karlmenn.
Hringt án
árangurs
Jóhanna Þorstcinsdóttir, Esp-
igerði 4, hringdi:
Um síðustu helgi vorum við
samankomnir nokkrir vinir og
ætluðum að panta miðnætursnarl
í Smiðjukaffi. Ég hringdi árang-
urslaust á hátt á þriðja klukku-
tíma og þá sjaldan er svarað var
kom drukkinn maður í símann
sem greinilega var að skemmta
sér á skemmtistaðnum Ypsilon, en
hann og Smiðjukaffi eru með
sama síma.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég reyni að nýta mér þjónustu
Smiðjukaffis í gegnum síma og
alltaf hefur það farið á sama veg,
þ.e. að ekki næst samband.
Er ekki vert að taka það til at-
hugunar að hafa sitt hvorn sím-
ann á þessum tveimur stöðum og
koma því þannig fyrir að maður
nái sambandi við matsölustaðinn?
Við viljum helst fara okkar eig-
in leiðir og eftir okkar eigin lögum
eða bara hafa engin lög. Við
heimtum og heimtum. Það er nú
ekki eins og að ausa súpu á disk að
leysa allar þessar kröfuflækjur!
Ég held að okkur væri hollt að
hugsa til forfeðra og mæðra
okkar, sem urðu að berjast áfram
algjörlega með eigin kröftum og
fannst sómi að því að vera nægju-
söm, byrja með lítið, en vinna sig
upp til þess að verða bjargálna.
Hve margir skyldu hafa byrjað
búskap í einu herbergi og eldhús-
króki eða aðgangi að eldhúsi og
vegnað vel? Þetta mátti nú reynd-
ar breytast til bóta og ég vil sam-
gleðjast þeim sem geta búið vel
um sig og sína í upphafi. Svo ekki
meira um það.
Það eru gerðar kröfur. Þær elta
hver aðra í öllum mögulegum
myndum. Sjálfsagt er rétt og skylt
að greiða úr vanda náungans ef
hann er illa staddur og krafan er
réttlætanleg. Óréttlæti er öllum
hugsandi mönnum þyrnir í aug-
um. Ritningin segir: „f þolinmæði
og trausti skal styrkur yðar vera."
Hún segir líka að við eigum að
sýna þeim virðingu sem virðing
ber. Virðing. Hugtakið sem þetta
orð byggist á er hundsað á mörg-
um sviðum. Ef við bærum meiri
virðingu hvert fyrir öðru væri
öðru vísi í samskiptum manna á
meðal. Ég hugsa til þeirra sem við
höfum valið til þess að stjórna
þjóðarskútunni. Þeir fá stundum
engan frið til þess að greiða úr
málefnaflækjunum sem að þeim
berast. Yrði ekki affarasælla að
mætast á miðri leið með sann-
girni, virðingu og trausti í stað
þess að leggja stein í götuna og
hindra þannig meðferð mála til
lausnar. Kröfur eru oft réttlætan-
legar og nauðsynlegar en það er
ekki sama hvernig á málum er
haldið. Sanngirni verður að gæta
á báða bóga með virðingu og
drenglyndi. Þegar mér finnst
ódrengilega vegið að þeim sem
völdin hafa og sem vilja áreiðan-
lega gera sitt besta fyrir Iand og
lýð frá hvaða stjórnmálaflokki
sem þeir koma, dettur mér oft í
hug vísan sem ég lærði fyrir
löngu.
Ekki er hollt að hafa ból
hefðar uppá Jökulstindi,
af því þar er ekkert skjól
úti, fyrir frosti, snjó og vindi.
Lífsreynd kona
FlipnFile
FYRIR DISKLINGA OG SNÆLDUR
Fæst einnig: Bókabúö Braga, Laugav. 118 v/Hlemm.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verö.
Steinull — glerull — hólkar.
Armula 16 sími 38640
Þ. NRGRÍMSSON &C0
ÞJÓNUSTA
MEÐm^
Við höfum ávallt Kapphostað að veita MAZDA e
endum sem fjölbreyttasta og besta þjónusti
verkstaeði ohhar. Fullhominn tækjakostur
þrautþjálfaðir starfemenn okkar gera okkur kle
að veita ábyrgð á allri verkstæðisþjónustu.
bílaverkstæði geta nú veitt fjölþættari þjónusi
© Almennar mótor- og gírkassaviðgerðir
© Reglubundnar skoðanir......................
© Vélastillingar ............................
© Mjólastillingar ...........................
© Púströraviðgerðir .........................
\6 / Boddíviðgerðir .........................
wj 5lípun á hemiadiskum (allar tegundi
bifreiða)..........................
© Smurþjónusta
Ljósastillingar .
Ö) Ásetning á silsalistum og
grjótgrindum.................
Upphækkanir ...........
(l2) Og það nýjasta hjá okkur:
Framrúðuviðgerðir á öllum gerðum bifreii
meðan beðið er.
MAZDA eigendur: Látið okkur annast skoðanir
viðhald bílsins, það margborgar sig.
BÍLABORG HF.
Smiöshöfða 23 sími812 99