Morgunblaðið - 19.03.1985, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 19.03.1985, Qupperneq 60
 áeila HL DAGIEGRA NOTA OfÚZ ÍO.CO-CO-IO ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Isafjörður: Stefnir í verk- fall sjómanna ÚTLITIÐ er svart hvað snertir sættir í kjaradeilu útvegs- manna og sjómanna á ísafirði og þungt hljóðið í forsvars- mönnum samningsaðilanna er Morgunblaðið ræddi við þá í gær. Árangurslaus samningafundur var í kjaradeilunni á laugardag og engin nýr samningafundur boðaður, en verkfall skellur á á miðnætti á miðvikudag, hafí samningar ekki tekist. Samið hefur verið við sjómenn annars staðar á landinu en á Vestfjörðum, en sjómenn á ísafírði hafa einir Vestfírð- inga sett fram kröfugerð, þó félög sjómanna í öðrum plássum hafí sagt upp samningum. „Þetta eru miklu hærri kröfur en sjómenn annars staðar hafa fengið fram,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, formaður Útgerð- armannafélags Vestfjarða í sam- tali við Mbl. „Þeim hefur staðið til boða sömu samningar og ann- ars staðar hefur samist um á landinu. Þeir vilja meira og því er allt strand." Rúnar Grímsson, varaformað- ur verkalýðs- og sjómannafélags- ins Baldurs á Isafirði kvað meg- inkröfur sjómanna vera starfs- aldurshækkanir og leiðréttingar til handa línusjómönnum á Isa- firði. Starfsaldurshækkunum, sem þeir hefðu haldið að ætti vera ein af meginkröfunum í sjó- mannasamningunum hefði verið ýtt út af borðinu, en hins vegar væri vitað mál að að þessu hlyti að koma. Það væri undarlegt ef sjómenn einir verkseljenda á ís- landi ættu ekki að njóta starfs- aldurshækkana, sem þeir gerðu kröfu um að kæmi á kauptrygg- ingu, en ekki á hlut, eins og Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ héldi fram í Mbl. á föstudag. Sjómennsku þyrfti að læra eins og annað og mætti að minnsta kosti meta til 4ra ára iðnnáms. „Við erum búnir að slá mikið af og breyta okkar kröfum, en kom- ið fyrir ekki. Þeir hafa boðið okkur, það sem samdist um ann- ars staðar, en við höfum sérkröf- ur sem þurfa að ræðast og má örugglega komast að niðurstöðu um, séu málin rædd. Það hefur bara ekki væri neinn samnings- vilja að finna hjá útvegsmönnum. Það þarf tvo til að samningar takist. Við semjum ekki nema þeir tali við okkur,“ sagði Rúnar. Guðmundur kvaðst ekki geta metið það nákvæmlega í tölum hve kröfur sjómanna væru mikl- ar, en það væri útilokað að út- vegsmannafélag Vestfjarða myndi fallast á hærri kröfur en annars staðar hefði samist um. „Útlitið er mjög svart og ekki hægt að sjá það í dag að það séu neinar líkur á samkomulagi, því miður,“ sagði Guðmundur að lok- um. „Ég vona auðvitað að samning- ar náist án þess að til verkfalls komi, en er ekki bjartsýnn á það. Það virðist vera svo í kjarabar- áttu hér á landi, að það sé útilok- að fyrir launþega að ná fram kjarabótum öðru vísi en að fara í verkfall og þá er rokið upp til handa og fóta. Mitt mat er hins vegar það að það mætti ná sam- an, ef það væri einhver vilji til þess,“ sagði Rúnar að lokum. Haukasigur í „Ljónagryfjunni“ ívar Webster og félagar hans í Haukum sigruðu fslandsmeistara Njarð- víkinga í „Ljónagryfjunni" í Njarðvík í gærkvöldi, 87:80, í fyrsta eða fyrri úrslitaleik liðanna um íslandsmeistaratitilinn. Hér skorar Webst- er eina af körfum sínum. Sjá nánar á íþróttasíðu á bls. B12. Þjófnaður úr herbergjum á Loftleiðum FJARMUNIR hafa horfið úr bót- elherbergjum á Hótel Loftleiðum að undanförnu. Grunur leikur á að sá, sem valdur er af þjófnaðinum hafi komizt yfír svokallaðan höf- uðlykil, þ.e. lykil, sem gengur að öllum dyrum hússins, því að engin ummerki voru um innbrot. Málið var á laugardag kært til Rannsóknalögreglu ríkisins, sem unnið hefur að rannsókn málsins yfir helgina, en sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun málið enn óupp- lýst. Sérstök vakt var sett í hótelið um helgina eftir að grunur vaknaði um að þjófur með lykil gengi laus í hótelinu. Peningar hurfu einungis úr 5 eða 6 herbergjum. Þjófurinn mun ekki hafa tekið mikla fjár- muni úr hverju herbergi, en málið fór að verða grunsamlegt, er gestir hótelsins fóru að kvarta við hótelstjórnina um hvarf fjármuna. Samninganefnd rfldsins: Kennurum hefur verið boðin 30 % launahækkun — Grunnskólakennarar leggja niður störf í dag SAMNINGANEFND ríkisins hefur boðið Hinu íslenska kennarafélagi 30% launahækkun, það er um 10%hiekkun umfram aðra ríkisstarfsmenn, að því er fram keraur f fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. „Með því að bjóða HÍK 10% hækkun umfram það sem aðrir kunna að fá, hefur kennurum í HÍK verið tryggð yfir 30% launahækkun frá síðasta hausti á meðan aðrir launþegar hafa samið um rúmlega 20% hækkun. Allir hljóta að sjá, að lengra er ekki hægt að ganga í þessu efni gagnvart öðrum opinberum starfsmönnum á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins. Ennfremur segir, að ekki hafi verið ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar um meðferð þessa máls. Allir grunnskólar á Stór- Reykjavíkursvæðinu verða lokaðir í dag og vilja kennarar með því sýna samstöðu við kennara í Hinu íslenska kennarafélagi. Ætla grunnskólakennarar að nota dag- inn til að funda um stöðu skóla- mála og munu kennarar á lands- byggðinni margir fara að dæmi þeirra, t.d. á Akranesi og á Akur- eyri. Fræðsluráð Reykjavíkur hélt fund í gær og lýsti áhyggjum sín- um yfir því að niðurfelling kennslu sé notuð sem vopn í kjara- baráttu og beinir því til samtaka kennara að slíkt verði ekki gert. Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, hélt fund með skólameisturum fram- haldsskóla í gær. Hún kvað meg- inefni fundarins hafa verið að ræða hugsanlegar neyðarráðstaf- anir til að aðstoða þá nemendur. sem verði að lesa utanskóla því kennarar þeirra mæti ekki til starfa. Að sögn menntamálaráð- herra sneru færri kennarar til starfa í gær en búist var við. Sjá nánar á bls 4. Skinnauppboð í Kaupmannahöfn: Heldur lægra verð en var í febrúar SÍÐASTLIÐINN fóstudag fór fram uppboð á loóskinnum f Kaupmanna- höfn. Að sögn Jóns Ragnars Björnsson- ar hjá Félagi íslenskra loðdýra- ræktenda fékkst nokkuð lægra verð fyrir skinnin en á febrúaruppboð- Tillaga á ríkisstjómarfundi í dag: Bindiskylda sparisjóða — Lánastofnanir fjármagni sjálfar afurðalán til innlendra framleiðsluatvinnuvega banka og úr 28 % í 18 % RÍKINSTJÓRNIN fjallar á fundi NÍnum árdegis, samkvæmt heimild- um Mbl., um hugmyndir Seðlabanka íslands að breyttu fyrirkomulagi af- urðalána og bindiákyldu innlána- stofnana við Seðlabankann, sem bankinn hefur unnið að allt frá því á síðasta ári að ósk viðskíptaráðherra, Matthíasar Á. Mathiesen. Tillögur bankans gera ráð fyrir lækkun bindiskyldu lánastofnana við Seðla- bankann úr 28% ( 18%. Á móti er gert ráð fyrir að bankastofnanir taki sjálfar á sig fjármögnun á afurðalán- um til innlendra framleiðsluatvinnu- vega, sem Seðlabankinn hefur end- urlánað til af ofangreindu bindifé. Tillögur um lækkun bindiskyldu lágu fyrst fyrir í Seðlabankanum um mánaðamótin október/nóv- ember sl. og var þá ætlunin að þær kæmu til framkvæmda 21. des- ember sl. Undir árslok komu fram hörð mótmæli og áætlun þess efn- is, að nýju reglurnar tækju siðan gildi 21. janúar runnu ennfremur út í sandinn. Tillögurnar eru f samræmi við stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar. inu, en að þrátt fyrir það hafi verð- ið verið prýðilega gott. Af islenskum skinnum voru boðin upp 37.743 blárefaskinn af betri flokki. 91% skinnanna seldust og var meðalverð 1.897 ísl. kr. (539 d.kr.) Það samsvarar um 4% lækk- un frá því á febrúaruppboðinu. Boðin voru upp 19.422 skinn af undirtegundum blárefs og seldust um 95% þeirra. Meðalverð var 1.436 ísl. kr. (408 d.kr.) og er það um 1% hækkun. Af tegundinni Shadow, eða skuggaref, voru 18.643 skinn boðin upp og seldist um 51%. Meðalverð er um 9% lægra en á síðasta upp- boði, eða 2.140 krónur (608 d.kr.). Fyrir undirtegundir af skuggaref fengust 1.517 ísl. kr. (431 d.kr.) og er það um 4% lækkun. Alls seldust 75% af þeim 4.333 skinnum sem voru boðin upp. Silfurrefaskinnin seldust öll, samtals 2.999, á 5.705 isl. kr. (1.507 d.kr.) hvert skinn. Minkaskinn seldust i stórum stil á t.ððu verði. Boðnar voru upp tæp- ar tvær milljónir skinna og seldist svo til hvert einasta þeirra á allt að 1.400 isl. kr. (400 d.kr.) hvert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.