Morgunblaðið - 04.04.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
B 27
V
1
Óskarsverdlaunahifinii f ár, Sally
Field, sýnir hvere hún er megnug í
aðalhlutverkinu f f fylgsnum hjart-
ans. (Stjörnubíó).
sem leigjanda. Því hinn blindi
Wills, stríðshetja úr fyrra stríði,
er einfaldlega niðursetningur,
hornreka á erfiðum tfmum. Með
erfitt hlutverk hans fer óþekktur
leikari, John Malkovich, með mikl-
um ágætum. Reyndar fer hann
einnig með hlutverk f Vígvöllunum,
algjöra andstæðu, en skilar þvf af
jafn mikilli prýði.
Tvenn önnur hjón koma talsvert
til sögunnar. Systir Field, sem
rekur hárgreiðslustofu f þorpinu,
maður hennar, (vel leikinn af Ed
Harris, The Right Stuff), glaumgosi
sem heldur við konu vinar síns.
Hliðarsaga sem þéttir myndefnið
og gefur áhorfandanum heil-
steyptari mynd af lífi sveitafólks í
kreppunni í því mikla fylki, Texas.
En fyrst og fremst er það Sally
Field sem ber f fylgsnum hjartans
uppi með óvenju tjáningaríkum
leik. Hann þarf þó ekki að koma á
óvart, því hlutverkið er ekki svo
fjarri þeim bestu sem hún hefur
skilað, eins og Norma Rae og Sybil.
Og ekki verður horfið svo frá
leikhópnum að ekki sé getið hinna
ungu leikara í hlutverkum barna
Fields, Yankton Hatten og Gennie
James. Bæði standa sig með prýði
og láta vel að stjórn.
Ytra borðið er heilsteypt og
vandað, svo sem hæfir Benton,
sem er þó enn betri stjórnandi
leikara, og Nestor Almendros, sem
hér vinnur listilega úr blæbrigð-
um suðursins, jafnvel svo að
minnir á stemmninguna f lista-
verki hans, Days of Heaven. Eitt
atriði er þó raunalega ólánlegt og
verður fyrst og fremst að skrifast
á leikstjórann: fellibylurinn með
frámunalega klaufalegum tökum
og sviðsetningum.
En í heildina er í fylgsnum hjart-
ans engin meðalmynd, frekar en
nokkur fyrri mynda Bentons. Hún
er failegur óður um manneskjur
sem rétta úr sér og víkja hvergi
þegar á reynir, og manni þykir
vænt um í minningunni.
MARAZZI
ítölsk fágun
MARAZZI eru stærstu
flísaframleiðendur á
Ítalíu, og í fararbroddi
þróunar flísagerðar í
heiminum.
Nú bjóða þeir nýja gerð
flísa — MARLIT — sem
sameinar helstu kosti
allra flísategunda á
markaðinum.
Meðal fjölmargra eigin-
leika MARLIT flísanna
má nefna:
• Gegnheilar (massífar).
• Enginn glerungur, öldótt
yfirborð, stamar en þó
auðveldar að halda
hreinum.
• Hámarks þéttleiki
— lágmarks vatnsdrægni.
• Frostheldnar
— til notkunar jafnt utan-
húss sem innan.
• Fást bæði sem tröppu-
og sökkulflísar.
• Auðveldur frágangur.
• Gráyrjóttar, drapplitar og
Ijósbeige.
• Allar stærðir jafnþykkar,
10x20, 20x20, 20x30,
30x30 cm.
• Níðsterkar, gullfallegar
á mjög hagstædu verði.
Söluaðtlar
MARAZZI flísa eru:
Nýborg hf.,
Ármúla 23, Reykjavík
Arnarfell sf.,
Espigrund 4, Akranesi
Droplnn,
Hafnargötu 90, Keflavík
Miöstööln,
Faxastfg 26, Vestmannaeyjum
Norðurfell,
Kaupangi, Akureyri
Raftæknl,
Óseyri 6, Akureyri
S.G. Búöln,
Eyrarvegi 37, Selfossi
Trésmiöja
Daniels Kristjánssonar,
Skeiði, fsafirði.
Trésmiöjan Borg,
Ketilsbraut 7, Húsavík
w
MARAZZI
TlMABÆR
Sendum allan föstudaginn langa Öll kvöld og nætur yfir páskana