Morgunblaðið - 04.04.1985, Page 31
Tækni
án
töfra
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
BÍÓHÖLLIN: 2010 ★ ★ Vi
Bandarísk. Árgerð 1984.
Handrit og leikstjórn: Peter Hyams.
Aðalhlutverk: Roy Scheider, John
Lithgow, Bob Balaban, Helen Mirr-
en, Keir Dullea.
Ódysseifskviðan úr geimnum
árið 2001, stórmynd Stanley Kubr-
icks eftir sögu Arthur C. Clarke,
var kvikmyndaleg og heimspekileg
opinberunarbók fyrir þær kyn-
slóðir sem hún tók með trompi eft-
ir frumsýninguna árið 1968. Ekki
síst eignaði hin nýróttæka stúd-
entakynslóð og hippagengið sér
þessa göróttu blöndu af kosmísk-
um vangaveltum um stöðu og upp-
runa mannkynsins og spennandi
vísindaskáldskap um hættulegt
ferðalag út í geiminn. Mikilfeng-
legar tæknibrellur, litadýrð og
ljósasjó urðu bæði helsta aðdrátt-
arafl myndarinnar og stefnu-
markandi fyrir gerð vísindaskáld-
skapar í kvikmyndum.
Auðvitað er það óðs manns æði
að ætla að fylgja slíkri opinberun-
arbók eftir sextán árum síðar með
„framhaldi" að hætti Hollywood.
Fyrir nú utan það, að engin sjá-
anleg eða gild ástæða er fyrir þess
háttar framhaldsmynd, nema þá
gróðavonin. En úr því þetta hefur
nú verið reynt skal strax tekið
fram að verkið lenti ekki í slæm-
um höndum þar sem er Peter Hy-
ams og tilraun hans er heiðarleg
svo langt sem hún nær. 2010 er á
margan hátt prýðileg, vönduð af-
þreying þótt hún sé ekki á einu
einasta sviði sú opinberun sem
2001 var.
Peter Hyams á að baki margar
heldur greindarlegar afþrey-
ingarmyndir sem flestar byggjast
á hugmyndum um pólitísk sam-
særi. Nú síðast var Star Chamber
sýnd í Nýja bíói, en greinilegt er
af 2010 að fyrri tilraunir Hyams
við vísindaskáldskap í þriller-
formi, Capricorn One og Outland,
nýtast honum hér vel, ekki síst við
stjórn kvikmyndatöku sem hann
hefur í fyrsta skipti á sinni könnu
núna, auk þess að leikstýra, fram-
leiða og skrifa handrit. Or hand-
ritsgerðinni kemur hann inn í
kvikmyndaiðnaðinn, og það er því
merkilegt að handritsbygging og
samtalasmíð er það sem síst
heppnast í 2010. Hyams grípur of
oft til klénna og langra orðræða
og einræða til að skerpa sögu sem
er í eðli sínu ekki skörp, heldur
ansi fljótandi fantasía.
2010 er mjög bókstaflegt fram-
hald 2001, tekur upp þráðinn þar
sem honum var sleppt níu árum
áður. Eftir einkar klaufalegt mas
á jörðu niðri milli Roy Scheider,
vísindamanns og sovéskra og
bandarískra embættistoppa legg-
ur hann af stað í sameiginlegan
leiðangur beggja stórvelda til Júp-
íters. Þar er enn á sporbaug hið
gamla geimfar Discovery sem við
skildum við í lok 2001 og hin dul-
arfulla svarta steinsúla sem virð-
ist geyma leyndardóm alheimsins.
Ætlunin er að komast að því hvað
kom fyrir áhöfn Discovery, þ.á m.
hina skapmiklu tölvu geimfarsins,
Hal, og jafnframt að reyna að
ráða í rúnir þessa leyndardóms-
fullu súlu. Við erum voða litlu nær
að ferðalokum í 2010, enda eins og
segir á einum stað í myndinni, eru
„svörin stærri en spurningarnar".
En þótt við fáum ekki svör við
spurningunum eilífu fáum við í
seinni hluta 2010 ágætlega unnin
og spennandi atriði um glimu leið-
angursfólks við hættur geimsins.
Hinn mannlegi þáttur, persónur
bandarísku og sovésku vísinda-
mannanna, og sá pólitíski, tortím-
ingarstefna stórveldanna, að ekki
sé talað um „skýringuna" á örlög-
um Discovery á grundvelli sam-
særis i Hvíta húsinu, — alt þetta
er á hinn bóginn einkar ósannfær-
andi. Töfrar ódysseifskviðunnar
frá árinu 2001 víkja árið 2010 fyrir
einberri tækni. Og besti leikarinn
í myndinni er tölvan Hal, sem hér
fær verðskuldaða uppreisn æru.
fi-41
Vexti*
áajaldeyris
rafntíngum
FRÁ1.MARS 1985:
Iðnaóarbankinn
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
MITSUBISHI
J^LANCER
S manna drossta meö
ímynd japanskrar tækni
Hæfilega stór
Þægilegur
Sparneytinn
LANCER
LANCER
LANCER
LANCER
LANCER
LANCER
ANCER
6 ara ryd varnarabyrgd
L.
50 ara reynsla
í bílainnflutningi
og þjónustu
EKLAH
Verð fra kr.394.900
Laugavegi 170 -172 St'mi 212 410
l---------------------
MITSUBISHI
MOTORS