Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 46

Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 46
46 B MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985 félk í fréttum rsir, Delon litli girðir niður um sig Hann gengur langt, áhuginn á því hvernig frægt fólk klæðir sig og lifir lífinu. Gárungar spyrja stundum algera sérfræðinga í frægu fólki hvernig nærfötum það gangi í og gera þannig gys að sér- fræðingunum. En eftir að hafa skoðað meðfylgjandi mynd ættu allir að geta talist sérfræðingar í nærfatatísku Anthonys Delon, syni leikarans fræga Alains Del- on. Anthony hinn ungi er gleði- og söngmaður mikill eins og sam- kvæmisfólki er gjarnan lýst á ís- lenskri tungu og finnst afar gam- an að láta á sér bera. Þess vegna var hann til í að girða niður um sig fyrir alla sem berja vildu dýrð- ina augum, þar með töldum ljós- myndaranum. Af svipbrigðum kvennanna, vakti uppátæki glaumgosans unga mikla kát- ínu... Tanni kemst allra sinna ferða - segir Sveinn Sigurbjarnarson frá Eskifirði EskifírAi, 1. mpríl. SVEINN Sigurbjarnason frá Eski- firði, þaulvanur jökla- og fjallabíl- stjóri var einn þeirra manna sem lögðu hart að sér við leit að Akur- eyringunum þremur, sem lentu í órörum á Vatnajökli nú um helg- ina. „Ég kom inn í þetta þannig að björgunarsveitarmenn á Egilsstöð- um höfðu samband við mig um klukkan tvö aðfaranótt laugar- dags,“ sagði Sveinn er fréttaritari Morgunblaðsins hafði samband við hann eftir björgunina. „Ég hófst þá þegar handa við að útbúa mig og snjóbílinn til fararinnar og vorum við komnir af stað með Tanna á vörubíl um klukkan fjögur. Bíllinn er mjög vel útbúinn til jöklaferða. Hann er með loran-tækjum og snjó- tönn og kemst þvi flestra sinna ferða. Eftir að hafa hitt Egils- staðamenn héldum við af stað og var keyrt að Grenisöldu á Fljótsdalsheiði á vörubílunum, en þaðan er um 90 kílómetra bein loftlína á staðinn þar sem þremenningarnir voru. Telst mér til að við höfum ekið um 120 kílómetra frá Grenisöldu að staðnum, sem þeir voru á. Við vorum á tveimur snjóbíium. Veðrið var slæmt og við sáum varla handa okkar skil þegar á jökulinn var komið. Var keyrt eftir loran-tækjunum. Okkur gekk vel að finna mennina utan þess, að við misstum einu sinni loran-merkið og þurftum því að fara til baka suður á jökulinn, fjær Kverkfjöllum, til að freista þess að fá rétt merki svo loran- tækið ynni rétt. Eftir að við náð- um merkinu keyrðum við í um einn tíma að staðnum. Þá sáum við fyrsta blysið frá þeim í um 600 til 800 metra fjarlægð frá okkur. Þá vorum við farnir að sjá út úr skafrenningnum og einnig betur frá okkur en verið hafði fram að því. Þeir skutu síð- an upp þremur öðrum blysum þar til við fundum þá. Þeir voru vel haldnir og einnig sá sem í sprungunni var. Þeir sem voru á sprungubarminum höfðu reist tjald og hlaðið snjó- hús utan um það. Þeir voru vel útbúnir og væsti ekki um þá. Sá sem fallið hafði í sprunguna var ómeiddur og gat gengið um niðri í sprungunni, og klifraði meðal annars 10 metra upp eftir henni á syllu sem þar var. Þá fékk hann næga fæðu frá félögum sínum. Hann kvartaði einna helst yfir því að þarna undir virtist vera jarðhiti og þar var því mjög rakt. Einn okkar fór niður til hans í öryggisskyni og til að fylgjast með að hann færi rétt í sigbeltið og síðan náðum við honum upp. Var þá liðinn um klukkutími frá því við hittum þá. Það liðu um fimm tímar frá því við komum að jöklinum og þar til við fundum mennina. Þegar þessu var lokið hófum við leit að Bandaríkjamönnunum, sem lent höfðu á jöklinum og leituðum í um fimm stundar- fjórðunga eða þar til við fengum fyrirmæli frá stjórnstöð um að halda ofan af jöklinum. Þegar ég hugsa til baka finnst mér að þann lærdóm megi draga af þessari leit, að þar sem vitað var að mennirnir voru ekki í hættu og óslasaðir, með góðan útbúnað og búnir að láta vita af högum sínum og að þá vantaði sigvað og festingar, fannst mér ekki ástæða til að gera eins mikið veður út af þessu eins og gert var. Ég tel að nægjanlegt hefði verið að senda velbúinn leiðang- ur, búinn loran-tækjum, sem er algert skilyrði til ferða í snjóbyl á jökli og í dimmu, auk aðstoðar flugvélar til að staðsetja menn- ina. Þá finnst mér fréttaflutningur sumra fjölmiðla ganga algjör- lega út í öfgar og lýsir sér best í þessu tilfelli þegar það kom fram í ákveðnum fjölmiðli, að maðurinn væri fastur í sprung- unni og óvíst væri að hann lifði af aðra nótt. Slíkar fréttir eru verri en engar og til þess eins fallnar að auka á áhyggjur ætt- ingja og vina sem heima sitja," sagði Sveinn. Aðspurður sagði hann, að í svona ferðum fyndi hann ekki til þreytu á meðan á aðgerðum stæði en er þeim lyki væri vel þegið að leggja sig, en það gat Sveinn gert um miðnætti á sunnudagskvöldið og hafði hann þá vakað i 58 tíma stans- laust. Sveinn lét það þó ekki aftra sér frá að mæta til vinnu klukkan hálf átta í morgun og var hann farinn að undirbúa næstu fjallaferð, sem er páska- ferð á öræfi og jökla núna í vik- unni. — Ævar Þá var öldin önnur er Díana prinsessa var leigukokkur Ung stúlka að nafni Sophie Kimbali greindi nýlega frá því í viðtali við enskt vikublað, hvernig hún og Díana prinsessa af Wales unnu saman sem leigukokk- ar á táningsárum sínum. Frú Kimball er enn í dag einn besti vinur prinsessunnar og þessir dag- ar eru síður en svo eitthvað sem Díana óskar eftir að liggi í láginni enda saklaus sumarvinna meðan þær stöllur bjuggu saman í lítilli íbúð og reyndu að hafa ofan af fyrir sér. Sophie var I Eggelston Hall- matreiðsluskólanum og þegar hún hafði útskrifast réðu þær sig hjá „Lumleys", sem er eitt virtasta leigukokkafyrirtæki Bretlands. „Við lentum í ýmsum ævintýrum," segir Sophie og lætur þess getið, að Dí sé afbragðs kokkur og mjög nýstárlegur og frumlegur. „Stund- um urðu vandræði við matargerð, þetta voru oft erfið verkefni, matseld fyrir fjölmennar veislur, en ég þekkti enga sem var jafn klók að koma sér út úr svoleiðis klípum og Díana, hún hafði ráð undir rifi hverju ef eitthvað fór úrskeiðis í matartilbúningnum. Góðir kokkar verða að geta smakkað á matnum sem þeir laga og fundið ef allt er ekki í stakasta lagi. Sophie segir: „Di hafði gott lag á þessu, hún er mikil matkona, nýtur matarins og ekki einungis dýrindisréttanna, hún hefur átt það til að senda eftir hamborgur- um og frönskum á næsta Mac- Donalds, ef til vill minnir það hana á gömlu góðu dagana er við unnum saman sem leigukokkar," segir Sophie ... , i. » 1111 —i graH 1 Mii /ÉaámmM r MorgunblaöiA/Einar Kristinssou Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni á Helhi sem fóru á Vatnajökul Frá vinstri: Óskar Jónsson, Nói Sigurðsson. Sighvatur Sveinbjörnsson, Erl- ingur Gíslason, Karl Bergmann, Þröstur Jónsson. Kristinn Bergsson og Gunnar Bragason. Sáum ekkert frá okkurá „VIÐ fórum í startholurnar um ellefuleytið á föstudagskvöldið og fórum þá i Sigöídu þar sem við biðum eftir björgunarsveit- um frá Reykjavík," sagði Gunn- ar Bragason, félagi í Flugbjörg- unarsveitinni á Hellu, sem tók þátt í leitinni á Vatnajökli um helgina. „Veðrið var ekkí svo slæmt þegar við lögðum upp þá um nóttina, vel ratljóst, tunglskir og heiður himinn. í Jökulheim- um var einnig ágætt skyggni og við héldum áfram í skálann við Grímsvötn. Á þeirri leið fór veðrið versnandi og þar fór að skafa. Við vorum um fimm tíma frá Jökulheimum að Gríms- vatnaskálanum, en venjan er að fara þessa leið á tveimur tímum. Veðrið var þá orðið þannig að við sáum ekkert frá okkur. Síðan tímabili héldum við áfram, vélsleðarnir á undan og snjóbíll frá Lands- virkjun á eftir og áttum skammt, eftir ófarið þegar við urðum að hörfa til baka vegna veðurs Þá var ákveðíð að skipta hópnum og við fórum ásamt. hjálparsveitar- mönnum aftur S Grímsvatna- skálann og biðum átekta Við héldum svo til í skáianum um nóttina eftir að hafa frétt að mennirnir voru fundnir, Um morguninn var svo ætlunin að hefja leit að Bandarikja- mönnunum og þyrla Landhelgis ■ gæslunnar kom með vistir til okkar. Skömmu síðar fann hún Bandarikjamennina og þar með var þessum bjórgunaraðgerðum í raun lokið, og við héldum til byggða. Þá var veðrið orðið ágætt þarna hjá okkur og gekk niðurferðin því öllu betur en ferðin upp á laugardeginum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.